Morgunblaðið - 05.12.1947, Page 9
Föstudngur 5. des. 1947
MORGUTSBLAÐIÐ
9
EGYPTALAND OG ARABABANDALAGIÐ
LÖNDIN við austanvert Mið-
jarðarhaf, þar sem álfurnar
þrjár, Evrópa, Asía og Afríka
mætast, hafa einatt haft hina
mestu þýðingu. Frá elstu tím-
tim hafa stöðugir þjóðflutning-
ar gengið yfir þessar slóðir og
máttug menningarríki og heims
veldi risið og fallið. Á 15. og
16. öld fóru Tyrkir sigri hrós-
andi og lögðu undir sig Balkan-
skagann, Vestur-Asíu og Norð-
ur-Afríku alla leið til Atlants-
hafs. Hin utbreidda' kenning
Múhameðs, boðuð af Aröbt
og viðtekin af Tyrkjum, teng
þetta víðlenda svæði sterku
menningarböndum.
En varla hafði Sóliman hin
mikilláti fyr rekið smiðshöggi'
á hið víðlenda heimsveldi sií
en því tók að hnigna bæði vegn
innri meinsemda og utanaðkom
anai árása. Hnignunin hjelt á-
fram um fjórar aldir, uns, í lok:
fyrri heimsstyrjaldar, Balkan-
þjóðirnar og Arabaríkin höfðu
þá þegar eða því sem næst Öðl-
ast fullkomið sjálfstæði. Tyrk-
land, sem ettir það var orðið
tiltölulega lítið ríki en altyrkn-
eskt að þjóðerni, tókst þó aftur
að safna kröftum og tileinka
sjer vestræna menningu undir
forustu Mústafa Kemals.
Baráítan um Miðjarðarhafið.
Síðari heimsstyrjöldin sýndi
enn áþreifanlegra efnalegt og
hernaðarlegt mikilvægi land-
anna við austanvert Miðjarð-
arhaf. Hitler og Mússolini
reyndu með geigvænlegri tang-
arsókn, að norðan frá Balkan-
skaga og Rússlandi og að vest-
an frá Afríku, að leggja undir
sig Arabaríkin, sölsa undir sig
Súesskurðinn og klófesta
þannig auðugustu olíulindir
veraldarinnar. Tilramr sú mis-
tókst. Fyrir tilstyrk Montgom-
erys hershöfðingja, amerísku
láns- og leigusamninganna og
bresk-bandaríska forðabúrsins
þar austur frá lánaðist Banda-
mönnum að halda í þessi þýð-
ingarmiklu landssvæði. Þegar
stríðinu lauk, varð stórveldun-
um og Arabaríkjunum hvorum
tveggja jefnvel enn Ijósari hin
vaxandi þýðing þcssara vega-
móta framtíðarinnar.
Veldi Egypta.
Egyptaland, fjölmennasta og
framfp1ramesta Araibaríkið,
varð fyrst til afj slíta af sjer
viðjar tyrkneskrar yfirdrottn-
unar. Frægasti stjórnandi þess,
Mehemet AIi, fæddur 1769
(sama árið og Napóleon og her-
toginn af Wellington) kom sjer
upp voldugum her og flota.
Hann lagði 1 undir sig alla
Arabíu, gersigraði tyrkneska
heri og stofnaði yfirráðum
Tyrkja í Gyðingalandi, Sýrlandi
og jafnvel Konstantinópel í
hættu, þangað. til stórveldin
skárust í leikinn og vörðu hið
veika Tyrkjaveldi falli.
Mehemet Ali cndurbætti
jarðeigna- og skattatilhögun
Egyptalands, rjeði til sín evr-
ópska verkfræðinga og kunn-
átturnenn og kom nútímasniði
á höfuðborgina, Kairo. Hann sá
sig í anda leiðtoga allra Araba.
Tyrknesk yfirráð í Egyptalandi
voru eigi lengur nema nafnið
tómt. En eftirmenn hans, khedív
Verða Bretar að flytja her sinn
frá Zues?
rssa
protessor
Fyrri grein
Arabar hafa sýnt það á síðari árum, að þeir ætla að hafa sam-
vinnu milli landa sinna. Hjer sjást arabiskir hermenn á úlf-
öldum við hersýningu.
arnir, reyndust ónýtir eyðslu-
seggir. Þeir fjellust á gröft
Súesskurðarins, sem 1869 olli
stórbyltingu á sviði úthafssigl-
inga með því að stytta til
mikilla muna sjóleiðina til Ind-
lands og Austur-Asíulanda.
Disraeli, forsætisráðherra Eng-
lendinga, keypti árið 1876 svo
marga hluti í skurðfjelaginu af
hinum gjaldþrota khedív
Egypta, að Bretland hafði eftir
það töglin og hagldirnar. Bret-
land skipaði fjármálaráðunaut
með aðsetri í Kaijo. Umbætur
hans og persónuleg áhrif færði
Bretum brátt raunveruleg yfir-
ráð vfir Egyptalandi. Nokkru
seinna aðstoðuðu breskar her-
sveitir egypska herinn við að
bæla niður uppreisn ofstækis-
íullra sjertrúarmanná meðfram
Efri-Níl. Hið víðlenda Súdan
varð með þeim atburðum sam-
eiginleg bresk-egypsk eign. Var
því svo komið þegar fyrir fyrri
heimsstyrjöld, að Bretland var
komið í stað Tyrklands sem hið
erlenda veldi, er eiginleg yfir-
ráð hafði í Egyptalandi.
)
Undir b'reskri vernd.
í desember 1914, eftir að
Tyrkland hafði gengið í lið með
Þjóðverjum, afsettu Bretar
gamla khedívann, sem að nafn-
inu til var epn undirsáti Tyrkja
soldáns, og lýstu' því yfir, að
Egyptaiand væri undir breskri
vernd. Að stríðinu loknu hófst
í Egyptalandi öflug þjóðernis-
hreyfing undir forustu hins
þrautreynda sjálfstæðisleiðtoga
Zaghlul Pasha. Blóðugar óeirðir
áttu sjer stað, og breskir em-
bættismenn voru myrtir. Af
þeim ástæðum lýstu Bretar
Egyptaland sjálfstætt riki. 1922.
En sú yfirlýsing var vissum
skilyrðum bundin. Bretland á-
skildi sjer rjett til þess að hafa
hersveitir í landinu til varnar
Súesskurðinum og öryggis
Egyptalandi, að útlendingar
væru undanþegnir egypskum
lögum og Bretar hefðu eftir
sem áður íhlutun um stjórn
bresk-egypska Súdans. Sett var
upp stjórnarskrá, sem gerði ráð
fyrir ráðuneyti og þingræðis-
stjórn. Hinn nýi khedív tók sjer
með samþykki Breta titilinn
Fuad I.
Breytingar þessar nægðu þó
ekki hinum eldheitu egypsku
þjóoernissinnum. Þeir hjeldu
áfram andstöðu sinni með end-
úrteknum óeirðum og tilræð-
um við breska embættismenn.
Árið 1936, er Fuad I. andaðist
og til ríkis kom Farouk I., sem
þá var enn ómyndugur, gerðu
Bretar samning við hann og
lofuðu áð hverfa á brott rneð
her sinn smámsaman nema frá
Suesskurðinum eða ef til ófrið-
ar drægi. Egyptalandi var siðan
veitt innganga í Þjóðabandalag
ið sem frjálsu og fullvalda ríki.
Svo voru gerðar stjórnarskrár-
breytingar, sem skertu vald hirð
klíkunnar og hinna ríku
egypsku landeigenda.
Eftirgjöf þessi náði til allrar
hamingju að koma á vinsam-
legri samvinnu með Bretum og
Egyptum. í síðustu heimsstyrj-
öld fóru tilraunir Möndulveld-
anna til að vegja þjóðernisbylt-
ingu gegn Bretum gersamlega
út um þúfur. Egypíaland varð
miðstöð íorðabúrs Bandamanna
við austanvert Miðfjarðarhaf,
sem tryggði óskipt fylgi allra
Araba við málstað þeina.
Payneflugvöllurinn í nágrenni
Kairos varð hin mikla miðstöð
fyrir flugsamgöngur frá Ame-
ríku um Mið-Afríku til Rúss-
lands, Indlands og Austur-Asíu.
Breska lífæðin um Súesskurð-
inn var örugglega varin.
Áróður gegn Bretuin.
Eigi að síður sjeldu hinir rót-
tækari þjóðernissinnar, einkum
á meðal stúdenta, áfram stöðug
um áróðri gegn Bretum. Hinir
síðarnefndu buðu þess vegna
9. maí 1946 til umræðna um
endurskoðun samningsins frá
1936. Samingaumleitanirnar
snerust einkum um tvö atriði:
brottflutning breskra liðsveita
og framtíð Súdans. Meðan á því
stóð tóku Bretar að flytja her-
sveitir sínar frá Alexandríu og
Kairo til nýrra varnarstöðva á
Súesskurðsvæðinu.
Til þess að flýta fyrir samn-
ingunum fór hinn hægfara
Sidky Pasha, sem varð forsætis
ráðherra 12. september, til
Lundúna til ráðstefnu við Ern-
est Bevin, utanríkisráðherra.
Hinn 26. október undirrituðu
þeir leynilegt samningsuppkast,
sem virtist hafa útkljáð þessi
tvö atriði. En þegar Sidky Pasha
kom til Kairo og lýsti því þar
yfir, að sjer hefði tekist að
tryggja algeran brottflutning
breskra hersveita innan þriggja
ára og ,koma til leiðar samein-
ingu Egyptalands og Súdan und
ir egypsku krúnuna“, tilkynnti
Attlee forsætisráðherra í neðri
deild breska þingsins, að yfir-
lýsing Sidky Pashas væri ,,hlut
dræg og villandi“: Að engin
breyting á högum Súdans væri
fyrirhuguð nje „nokkur tilraun
til að svipta Súdanbúa rjetti til
að ráða sjálfir framtíð sinni,
þegar tími væri til kominn“.
Súdan.
Súdan er Egyptum afar mikil-
vægt. Þar eru uppsprettur Níl-
arfljótsins og þveráa þess, sem
bómullar- og kornrækt lands-
ins byggist á. Það er einnig
þýðingarmikið í augum Breta,
sem hafa fest geysimiklar fjár-
upphæðir í flóðstíflum, járn-
brautum og öðrum mannvirkj-
u m, auk þess sem þeim virðist
landið hafa mikla hernaðarlega
þýðingu fyrir bresk yfirráð í
Norðaustur-Afríku og varnir
Rauðahafssjóleiðarinnar til
Súesslíurðsins. Egvptar krefjast
að Súdan verði þegar í stað
sameinað Egypt'alandi undir
egypskri stjórn. Bretar, sem að
mestu leyti hafa fengið lands-
stjórnina í hendur þarlendum
embættismönnum, vilja, að
Súdan njóti sjálfsákvörðunar-
rjettar, láti kosningar fram
ganga, setji'sjálfsstjórn á lagg-
irnar og ákveði síðan sjálfir,
hvort það skuli verða sjálfstætt
eða sameinast Egyptalandi. Á-
hrifamikill hluti Súdanbúa,
hinn svonefndi Umma-flokkur,
er hlyntur bresku hugmyndinni
og algeru fullveldi. En það er
aðalástæðan fyrir því, að Egypt
ar eru mótsnúnir þéim flokki.
Sidky Pasha sagði af sjer 8.
desember, og samningaumleit-
unum við Breta var haldið á-
fram af hinum nýja forsætis-
ráðherra Mahmoud Fahmy
Nokrashy Pasha, en árangurs-
laust. Loks slitnaði upp úr þeim
í janúarlok 1947 Bretar og
Egyptar komust ekki að neinu
samkomulagi í Súdanmálinu.
Arababandalagið ákvað að
standa með Egyptalandi. En
hinu umdeilda landi var eigi
að síður áfrarn stjórnað af bresk
um og súdönskum embættis-
mönnum.
Andúðin í garð Breta hefir
að verulegu leyti bitnað á öðr-
um útlendingum. Þetta öfga-
fulla útlendingahatur birtist í
meinlegum reglugerðum um
Vegabrjef, áritanir og ökurjett-
indi, í því ákvæði, að foringj-
ar í egypska hernum megi ekki
kvænast erlendum konum og í
frumvörpum, sem miða að þvi
að útiloka erlenda menn frá
því að stunda þar lækningar og
ýms önnur störf. Útlendingurn
er gefið það skýlaust 1 skyn,
að þeir sjeu ekki velkomnir.
Þarna kennir skammsýni hjá
Egyptum, því að ferðamanna-
straumurinn gæti með lagi orð-
ið önnur mesta tekjulind þeirra,
næst bómullinni.
skéla óánægðir með
iaunakjör sín
VINNUDEILUR og verkföll
gerast nú alltíð, bæði innanlands
og utan. Blöð og útvarp hafa
skýrt frá því, að opinberir starfs
menn, baéði í Finnlandi og Frakk
landi hafi gert verkföll og má
ganga út frá því sem gefnu, að
stjettum þessum hafi þótt kosti
sínum þröngt allmikið áður en
gripið var til svo róttækra ráð-
stafana. Hierlendis höfum við
hingað til verið lausir við verk-
föll opinberra starfsmanna, en nú
virðist svo sem í harðbakka muni
slá milli framhaldsskólakennara
og ríkisvaldsins og liggja til þess
eftirtaldar ástæður
Það hefur verið venja, að
minnsta kosti síðan um aldamót,
að greiða kennurum aukaþókn-
un fyrir stílaleiðrjettingar og
aðra fasta heimavinnu. Hafa
greiðslur þessar verið miðaðar
við nemendaíjölda : bekkjunum,
eins og sanngjarnast virðist, og
verið allt að því þriðjungur af
mánaðartekjum sumra kennara
í Reykjavík. Þessar „stílagreiðsl-
ur“ virðast alveg sjálfsagðar en
eigi að síður hefir ríkisvaldið nú
ákveðið að þær skuli niður falla.
Jeg vil hjer reyna að útskýra
fyrir almenningi og ríkisvaldi,
hvað það er, sem hjer er verið
ao gera, þvi slíkar ráðstafanir
sem þessar, hljóta að vera af
vanþekkingu sprottnar.
Nemendafjöldi í bekkjum gagn
fræðaskólarma hjer í Reykjavík
mun oftast vera 30 til 40. Tungu-
málakennarar munu yfirleitt
hafa einn stil vikulega og í 40
manna bekk tekur það að minsta
kosti 4 klst. að leiðrjetta stílana.
Ef gert er ráð fyrir 30 klst.
ltennslu vikulega verða það 24
heimavinnu tímar. Dæmið ver.ð-
ur best skýrú með því, sem ís-
lenskukennari ánn sagði við mig
um daginn. „Hugsum okkur að
skrifstofustjórar finndu upp á
því, að skipa tveim þriðju hlut-
um starfsfólks síns að taka skjala
pakka með heim að afloknu dags
verki, og skila honum tilbúnum
næsta dag endurgjaldslaust, enda
þótt það tæki aðeins 4 klst. .
Sennilega rnyndu þessir tveir
þriðju hlutar spyrja, hvers vegna
þeir ættu að inna miklu meiri
Frh. á bls. 12.