Morgunblaðið - 17.07.1948, Síða 2
2
MORGUNBLAÐlk
I mánudog kveðju
lefkvikiugcif ðlym-
píufaruno
Þá koma þeir allir tram é íjsróilavellinum.
'Á MÁNUDAGINN verður hinn svonefndi Ólympíudagur, og um
kvöldið fer fram Ólympíumót frjálsíþróttamanna á íþróttavell-
inum. Áður en keppnin hefst ganga allir íslensku Ólympíukepp-
endurnir, bæði í frjálsíþróttum og sundi, inn á völlinn í búningi
þcim, er þeir verða í í London, en fyrir fylkingunni verður bor-
inn fáni sá, er borinn verður fyrir íþróttamönnunum á Ólympíu-
leiltvanginum. Mun Ben. G. VVaage, forseti Iþróttasambands ís-
lands, flytja stutt ávarp við það tækifæri.
Dregið í happdrætti'4>
Olympíunefndar.
Einnig verður um kvöldið á
íþróttamótinu dregið í happ-
drætti Olympíunefndarinnar,
en á mánudaginn verður lögð
sjerstök áhersla á sölu miða.
Verða þeir seldir í 3—4 bílum
á götum bæjarins og fjórum
bókaverslunum, Isafoldar, Ey-
mundssonar, Helgafelli og Lár-
usi Blöndal. í happdrætti þessu
er 1. vinningur Hudson bifreið,
annar vinningur rafmagnsheim
ilistæki, ísskápur, þvottavjel,
rafsuðuvjel og strauvjel og
þriðji vinningur aðgöngumiði
að Olympíuleikunum ásamt far
miðum. Er takmarkið að á mánu
dagskvöldið hafi allir happ-
drættismiðar selst upp. Ættu
Reykvíkingum að vera ljúft að
stuðla að því, að svo verði.
Brjefmerkið.
Þá er rjett að minna á brjef-
merki Olympíunefndarinnar,
sem er mjög smekklegt. — Það
fæst í öllum helstu bókaversl-
unum bæjarins og í öllum póst-
húsum landsins.
Keppt í II greinum.
Keppt verður í 11 greinum
á mótjnu á mánudagskvöldið
og verða allir Olympíufararnir
í frjálsum íþróttum þar meðal
keppenda. Þátttakan verður
sem h?er segir:
100 metra hlaup: Haukur
Clausen og Finnbjörn Þor-
valdsson, ÍR. og Trausti Eyj-
ólfsson og Ásmundur Bjarna-
son, KR.
í
Kúluvarp: Vilhjálmur Vu-
mundarson, KR, Sigfús Sig-
urðsson, Selfossi, Örn Clausen,
ÍR, og Ástvaldur Jónsson, Á.
Staagarstökk: Torfi Bryn-
geirsson, KR, Bjarni Linnet, Á,
KoJbeinn Kristinsson, Selfossi,
og Þorkell Jóhannesson, FH.
400 metra hlaup: Reynir Sig-
urðsson og Örn Clausen, ÍR, og
Páll Halldórsson og Sveinn
Björnsson, KR.
Langstökk: Finnbjörn Þor-
valdsson, M3gnús Baldvinsson
og Örn Clausen; ÍR, óg Halldór
Lárusson, UK.
Spjótkast: Jóel Sigurðsson,
Gísli Kristjánsson og Örn Clau-
sen, allir úr ÍR,
200 metra hlaup: Haukur
Clausen, ÍR, Ásmundur Bjarna-
soíi og Trausti Eyjólfsson, KR,
og Þorbjörn Pjetursson, Á.
Þrístökk: Stefán Sörensson.
TR. Þorkell Jóhannesson, FH.
Hermann Magnússon, KR og
Hallur Gunnlaugsson, Á.
Kxl^glukast: Ólafup Guð-
mundsson og Þorsteinn Löve,
ÍR, Gunnar Sigurðsson, KR, og
Gunnlaugur Ingason, Á.
1500 metra hlaup: Óskar Jóns
son, IR og Ingi Þorsteinsson KR.
Þá verður keppt í 4x100 m
bpðhlaupi, er meðal ann-
ars allir þeir, sem verða í Ol-
ympíusveitinni taka þátt í.
Fyrstu verðlaun á mótinu
verður lítill Olympíuskjöldur,
önnur verðlaun lítil skeið með
Olympíumerki og 3. Olympíu-
merki. Hallgrímur Fr. Hall-
grímsson, formaður Olympíu-
nefndarinnar. afhendir verð-
launin. Hann mun einnig við
það tækifæri afhenda sund-
mönnunum verðlaun fyrir afrek
þeirra á Olympíusundmótinu.
Reykvíkingar munu áreiðan-
lega fjölmenna á völlinn á mánu
dagskvöldið til þess að kveðja
þá glæsilegu sveit ungra kvenna
og manna, sem verða fulltrúar
íslands á Olympíuleikunum.
— Þorbjörn.
Brjefmerki
Olympíunefndar
Sendið ekkert brjef án brjef-
merkis Olympíunefndar.
Meðul við krabba-
meini
Washington í gær.
LEWIS L. STRAUSS, sem er
meðlimur Jgarnorkunefndar
Bandaríkjanna upplýsti nýlega,
að kjarnorkuvísindin hefðu opn-
að nýjar leiðir til að sigrast á
krabbameininu. Lýsti hann
tveimur aðferðum, sem hefðu
verið reyndar undanfarið við
kjarnorkustöðina í Oak Ridge,
sem hefðu gefist vel. Báðar eru
nýjar aðferðir við notkun geisla-
virkra efna.
Fyrri aðferðm, sem Strauss
nefndi, er með geislavirku gull-
dusti, sem er sprautað beint inn
í krabbameinsæxlið. Hin aðferð
in er lík, nema þar er notað
geislavirkt joð. Strauss sagði,
að joðaðferðin væri mjög marg-
brotin, en hún hefði reynst bet-
ur.
ísland sendlr 22
bátttakendur á 01-
ympuleikana
ISLAND sendir alls 22 þátttak-
endur á Olympíuleikana í Lon-
don, sem hefjast í þessum mán-
uði. Fjórtán keppendur verða
i frjálsum íþróttum, en átta í
sundi. *
Frjálsar íþróttir:
100 m hlaup: Haukur Clau-
sen, ÍR, Finnbjörn Þorvaldsson,
ÍR, og Örn Clausen, ÍR.
200 m hlaup: Haukur Clau-
sen, ÍR.
400 m hlaup: Reynir Sigurðs-
son. ÍR.
800 m hlaup: Óskar Jónsson,
ÍR.
1500 m hlaup: Óskar Jóns-
son, IR.
Langstökk: Finnbjörn Þor-
valdsson. ÍR.
Þrístökk: Stefán Sörensson,
ÍR.
Stangarstökk: Torfi Bryn-
geirsson, KR.
Spjótkast: Jóel Sigurðsson,
ÍR.
Kúluvarp: Vilhj. Vilmundar-
son, KR, og Sigfús Sigurðsson,
Selfossi.
Tugþraut: Örn Clausen, ÍR.
4x100 m boðhlaup: Haukur
Clausen, ÍR, Finnbjörn Þor-
valdsson, IR, Ásmundur Bjarna
son, KR og Trausti Eyjólfsson,
KR.
4x400 m boðhlaup: Haukur
Clausen, ÍR, Reynir Sigurðsson,
ÍR, Magnús Jónsson, KR og Páll
Halldórsson, KR.
Sund karla:
100 metra skriðsund: Ari
Guðmundsson, Æ.
400 metra skriðsund: Ari
Guðmundsson, Æ.
100 metra baksund: Guð-
mundur Ingólfsson, ÍR.
200 metra bringusund: Sig-
urður Jónsaon, HSÞ, Sigurður
Jónsson, KR og Atli Steinars-
son, IR.
Sund kvenna:
100 metra baksund: Kolbrún
Ólafsdóttir, Á.
200 metra bringusund: Anna
Ólafsdóttir, Á, og Þórdís Árna-
dóttir, Á.
Koussevifsky heiðr-
aður
Washington.
DR. SERGE KOUSSEVITZKY,
hinn 74 ára gamli stjórnandi
Boston symfóníuhljómsveitar-
innar, var nýlega heiðraður fyr-
ir að hafa stuðlað meira en
nokkur annar maður að því, að
hjálpa ungum, bandarískum
hljómlistarmönnum. Næsta ár
eru 25 ár liðin frá því að hann
hóf að stjórna Boston-symfón-
íunni, og hefur hann tilkynt, að
hann muni þá draga sig í hlje.
I júlí og ágúst mun hljómsveitin
halda alls 14 hljómleika. Dr.
Charles Munch hefur verið val-
inn sem eftirmaður Kousse-
vitzky, en hann hefur undanfar-
ið stjórnað hljómsveitum í
Frakklapdi, Hollandi og Belgíu.
Laugardagur 17. júlí 1948. ]
Norræna helmiHslSnaðarsýningin
Norska deildin á norrænu heiniilisiðnaðarsýningunni.
Norræna heimilisiðn-
aðarþinginu lokið
SJÖTTA NORRÆNA heim-
ilisiðnaðarþinginu lauk á mið-
vikudagskvöld s. 1. og höfðu
verið flutt á því alls 6 erindi
um ýmis atriði heimilisiðnað-
arins og auk þess skýrsla frá
hverju Norðurlandanna um á-
stand og horfur þessara mála
síðan síðasta þing var háð í
Stokkhólmi 1937. Var allstaðar
sama sagan, að ófriðarárin
höfðu truflað mjög alla handa-
vinnu og síðan stríðinu lauk
hafði allstaðar verið mjög örð-
ugt um að fá æskileg efni til
að vinna úr. í öllum löndunum
var bá heimilisiðnaðurinn aft-
ur að ná sjer á strik og t. d.
í Finnlandi hafði fólkið fund-
ið ný efni til að vinna úr á
heimilúnum. I Svíþjóð hafði
stóriðjan nokkuð tekið heima-
vinnu í þjónustu sína. Norska
ríkisstjórnin hafði ráðagerðir á
döfinni um einskonar heim-
ilisiðnaðarháskóla. í Danmörku
var ástandið einna erfiðast sök
um efnisskorts. En allstaðar
vantaði kennslukrafta við
námskeig og handavinnuskóla.
Annars ber heimilisiðnarsýn
ingin í Listamannaskáianum
því eott vitni að margt fallegt
og nvtsamlegt er unnið á heim-
ilunum víðsvegar um öll Norð-
urlöndin. I fyrirlestrunum kom
það elöggt fram hve ýmiss kon
ar tóvinna, saumaskapur, leð-
urvinna, trjeskurður og smíðar
á heimilunum er þýðingarmik-
il starfsemi, fjárhagslega og
Tnenningarlega sjeð. Ymsar
sambyktir voru gerðar. Fyrst
og fremst um samvinnu um
efnisútveganir. Skipti á handa-
vinnufólki milli landanna til
kennslu og sami’æmingu
kennslukrafta.
Eftir lögum samabndsins á
að halda þessi þing þriðja hvert
ár til skiptis í löndunum. —
Næsta þing verður haldið í
Noregi, en vegna þess hve
lengi dróst að halda þetta þing,
verður hið næsta haldið 1950.
Nokkrir þingfulltrúar eru
þegar farnir heim til sín, en
aðrir fóru í stutta skemtiferð
norður í land. Meðan á þing-
inu stóð gafst erlendum og inn-
lendum fulltrúum kostur á að
sjá ýmsa merkisstaði í bænum,
m. a. Hstasafn Einars Jónsson-
ar, Þjóðminjasafnið, Hitaveit-
una og helstu byggingar. Far-
ið var til Gullfoss, Geysis og
Þingvalla. Allir róma fulltrú-
arnir mjög dvöl sína hjer og
kynningu af landi og þjóð. ís-
lensku deildina á sýningunni
telja þeir bera þjóðinni vitni
um ágætan smekk og framúr-
skarandi hagleik.
í dag, laugardag, kl. 2 e. h.
flytur landshöfðingjafrú Ger-
trud Rodhe frá Svíþjóð, erindi
á sýningunni um heimilisiðnað
og bvðingu hans fyrir lönd og
þjóðir. Sýningin getur aðeins
verið opin fáa daga enn og
verður þess langt að bíða, að
annað eins tækifæri gefist hjer
til að skoða úrvalsheimavinnu
Norðurlanda á sýningu.
Stefán Jónsson teiknari hef-
ur annast um uppsetningu sýn-
ingarinnar, en fyrir þinginu
stóð stjórn Sambands íslenskra
heimilisiðnaðarfjelaga, en hana
skipa nú: Próf. Matthías Þórð-
arson, formaður, Halldóra
Bjarnadóttir, Ragnhildur Pjet-
ursdóttir, Ólöf Björnsdóttir og
Sveinbjörn Jónsson.
íekjuafgangur
Bandaríkjanna
8 ralljarðar
Washington.
TEKJUAFGANGUR Bandaríkj
anna á fjárhagsárinu 1948 nam
rúmlega 8 miljörðum doliara.
Er það hæsti tekjuafgangur í
sögu Bandaríkjanna. Útgjöld
voru 6,17 miljórðum minni en
fjárhagsárið 1947 og stafar það
mestmegnis af minnkandi út-
gjöldum til hernaðar og frest-
un, sem varð á aðstoð til handa
Evrópuþjóðunum.
Churchill afhendfr
beiðwsdokforabrjef
London í gær;
WINSTON Churchill, var við-
staddur hina árlegu hátíð Brist-
ol háskóla, en hann er heiðurs-
forseti skólans. Var honum falið
að afhenda ýmsum merkum lær
dómsmönnum, sem gerðir voru
heiðursdoktorar háskólans, út-
nefningarskjölin. — Reuter.
- Paleslína
Framh. af bls. 1
þeir hefðu tekið Nasareth, sem
er mjög þýðingarmikil frá her-
fræðilegu sjónarmiði. Auk þess
vantar ekki mikið á, að þeir
hafi náð öllum veginum milli
Haifa, og Tel Aviv á sitt v,ald.