Morgunblaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 1
Stjórna Marshallhjálpinni
I»ctta eru mennirnir, sem stjórna aðstoð Bandaríkjanna til viðreisn-
ar Evrópu. Til vinstri er Averell Harriman, sem er einskonar sendi
lierra Marshallaðstoðarinnar, en til haegri er Paul Hoffman, fram-
kvæmdastjóri aðstoðarinnar.
Líðan Benes fyrrum
forseta hrakar stöðugt
Læknar telja lilla von um bata.
Prag í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HEILSU BENES, fyrrum forseta Tjekkóslóvakíu, hrakar enn og
gaf opinbera frjettastofan 'i kvöld út tilkynningu, þar sem segir,
að sjúkdómur hans sje mjög alvarlegur og er óttast, að það kunni
að draga hann til dauða.
Sjúkdómurinn er æðakölkun.
Veikindi Benes er æðakölkun
og hefur heilsu hans í sífellu
hrakað síðustu viku. Klukkan 5
í morgun missfi hann meðvitund
og blóðþrýstingurinn lækkaði
mikið og hann fjekk háan hita.
Litlar líkur um bata.
1 skýrslu, sem er undirrituð
af læknum dr. Benes, segir að
líðan hans sje mjög alvarleg og
litlar líkur fyrir að honum batni.
Hann liggur í sjúkraklefa í sum-
grbústað sínum, Sesimovo Usti
Bjarni Benediktsson
(er á sameiginlegan
fund utanríkisráð-
herra
BJARNI BENEDIKTSSON ut-
anríkisráðherra, fer sennilega á
sameiginlegan fund utanrikis-
ráðherra Norðurlandanna, er
haldinn verður í Stokkhólmi
dagana 8. og 9. september.
Fundur ráðherranna mun
fæða sameiginlega afstöðu
Norðurlandaþjóðanna, til ým-
issra mála, er rædd verða á
allsherjárþingi Safneinuðu þjóð
anna, sém hefst í París seint í
þessum mánuði.
«
1000. farþeginn
með „Gullfaxa"
GULLFAXI Flugfjelags Is-
lands kom í gær frá Prestwick
og með flugvjelinni var eitt
þúsundasti farþeginn, sem flýg
ur með vjelinni frá því að Flug
fjelag Islands keypti hana í
sumar. Hafa nú alls 1023 far-
þegar flogið með Gullfaxa.
Gullfaxi fer í dag aukaferð
til Kaupmannahafnar, en þar
býður margt íslendinga heim-
ferðar. Hefir ekki verið hægt að
anna flutningum fólksins heim
og þess vegna er þessi auka-
ferð farin.
693 farþegar í ágúst.
I ágústmánuði flutti Flugfje
lag Islands samtals 693 farþega
með vjelum sínum, bæði inn
anlands og utan.
Skemdarverk í Burma
Rangoon í gær.
SÓKN stjórnarherjanna gfcgn
uppreisnarmönnum í Burma
hefur nú tafist nokkuð, vegna
ýmiskonar skemmdarverka,
sem skæruliðarnir hafa fram-
kvæmt á vegakerfi landsins. —
Þeir munu meðal annars hafa
eyðilagt allmargar brýr.
Schuman tekur að sjer
stjórnarmyndun
]
Felst á lækkun framlags
til franska hersins
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SCHUMAN, fyrrverandi forsætisráðherra, en utanrikisráðherra
í stjórn André Marie, tilkynnti forseta Frakklands í dag, að
hann myndi taka að sjer að mynda stjórn í Frakklandi, en fyrst
myndi hann fara fram á traustyfirlýsingu í franska þinginu. —
Skömmu síðar var fundur settur í þinginu, þar sem Schuman
skýrði með ræðu frá fyrirætlunum sínum, ef honum tækist
síjórnarmyndun. Mesta athygli vakti, að hann virtist að mestu
fallast á kröfur sósíalista um minnkað framlag til franska hers-
ins. —
------------- •
Samkomulag
um Berlín?
Berlín í gær.
Einkaskeyti til Mbl. frá
Reuter.
FORINGJAR hernámsliðanna
fjögurra komu saman í Berlín S
dag og stóð fundur þeirra í eina
klukkustund. Ekkert nefur verið
tilkynnt um árangurinn af við-
ræðunum, en vitað er, að fund
ur þessi stendur í sambandi við
síðasta fund sendiherra Vestur
veldanna í Moskva við Molotov.
Sagt er að ákveðið hafi verið
á Moskvafundinum að gefa her
námsstjórnum allra hernámsv.
fyrirskipanir um tvö aðal-
ágreiningsefnin í Þýskalands-
málunum: 1) flutningbannið ti!
Berlín og 2) gjaldmiðil Berlínar
borgar, og munu hernámsstjór-
arnir hafa rætt þessi mál á fund
inum í dag.
Ýmsar líkur benda til, að eitt
hvert samkomulag sje í vænd
um um afljetti samgöngubanns 1
ins við Berlín og um gjaldmið-
ilsvandamálið er það að segja,
að Bevin utanríkisráðherra
Breta lýsti því nýlega yfir, að
Bretar gætu fallist á að mark-
ið á hernámssvæði Rússa yrði
gjaldmiðill fyrir alla Berlín ef
ráð skipað fulltrúum allra her
námsveldanna fengi að hafa
hönd í bagga um seðlaveltuna.
Bretakonungur
heiðrar Lárus
Fjeldsted
BRET AKONUN GUR hefir
heiðrað Lárus Fjelsted hæsta-
rjettarlögmann og veitt honum
kommanderorðu af borgarlegu
deild hins breska heimsveldis.
(Commander of the Civil Divis
ion of the Order of the British
Empire).
Orðan er veitt í viðurkenning
arskyni fyrir þýðingarmikið
starf Lárusar Fjeldsted sem
hefir verið lögfræðilegur ráðu-
nautur bresku ræðismannsskrif
stofunnar og sendiráðsins í
Reykjavík í rúmlega 25 ár.
Mr. C. W. Baxter, sendi-
herra Breta, afhenti Lárusi
Fjeldsted merki orðunnar í
gær.
Tjekkar styðja baráttuna gegn
berklum.
PRAG: — Tjekkneska stjórnin lýsti
því yfir, að hún myndi styðja starf
heilbrigðisnefndar Sameinuðu þjóð-
anna í baráttunni gegn berklum í
heiminum.
Fullfermi og 375
lunnur lifrar á 8
dögum
NÝ SKÖPUNARTOG ARINN
Mars, hjeðan frá Reykjavík,
kom til Norðfjarðar á sunnu-
dag af veiðum og var með full-
fermi af fiski, sennilega 360
smálestir og 375 tunnur lifrar.
Hafði togarinn aflað þetta í átta
daga veiðiferð, en þar af var
hann 7 daga að veiðum.
Mun þetta vera einhver mesti
afli, sem fengist hefir á tog-
ara hjer við land á jafnskömm-
um tíma.
Aflinn er aðallega upsi og
lenti Mars í svo mikilli upsa-
göngu, að tvisvar sinnum
sprengdi trollið hjá lionum.
Voru tafir af því.
Skipstjóri á Mars er Þor-
steinn Eyjólfsson.
Sljórnlagaþing
týskalands kemur
saman
Frankfurt í gær.
HJERUMBIL 50 fulltrúar
koma saman á morgun í há-
skólanum í Bonn og mynda
þeir stjórnlagaþing Þýska-
lands. Er starf þessarar sam-
kundu að gera uppkast að
stjórnarskrá fyrir Þýskaland,
en stjórnarskrá þessa verða
hernámsstjórnir Vesturveld-
anna að samþykkja, svo að
hún sje gild. Að því loknu
verða tillögurnar bornar undir
þjóðaratkvæði, eða samþykkt-
ar af þingum hinna einstöku
ríkja. Opin leið verður fyrir
Austur-Þýskaland að gerast
þátttakandi að stjórnarskrá
þessari hvenær sem er.
— Reuter.
Ekki var búist við atkvæða-
greiðslu um traustsyfirlýsirig-
una, en búist við að hún yrði
samþykt með litlum meiri-
hluta.
Helstu atriði í ræðu Schu-
mans voru þessi.
Innanlandsmál:
Schuman sagði að aðalvanda-
málið í innanlandsmálum væri
efnahagsmálin og baráttan við
dýrtíðina. Fyrst og fremst væri
nauðsynlegt að leiða í lög ýmsa
hluta af efnahagstillögum Ren
auds, fyrrum fjármálaráðherra,
svo sem gagngera fækkun em-
bættismanna ríkisins, jafnvel
fækkun ráðherranna.
28 föld verðhækkun.
Nauðsynlegt væri að lækka
verð á víni og kjöti, einkum
væri verðhækkun síðari ára á
kjöti óviðunandi, en kjötverð
hefur hækkað 28-falt frá því
fyrir stríð. Þá verður að minka
framlög til þjóðnýttu fyrir-
tækjanna.
t
IlaEalaus fjárlög.
Þá sagði Schuman: Ef á að
koma í veg fyrir enn frekari
verðbólgu, er umfram allt nauð
synlegt að fjárlögin standist
hallalaus. — Til þess að auka
útflutning landsins, verður að
lækka vöruverð allt. Hann
sagðist og fallast á lækkun fjár
framlaga til hersins.
Utanríkismál:
Schumann sagði m. a., að
Frakkland myndi halda áfram
að berjast fyrir rjettlæti og
frelsi í heiminum, og sjerstak-
lega á allsherjarþinginu, sem
haldið yrði í París í næsta mán
uði.
Þýskalandsmálin.
Um Þýskaland sagði hann,
Framh. á bls. 5.