Morgunblaðið - 01.09.1948, Síða 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
NA eða norðan go3a og
'fcaldi. — Víað ljettskýjað.
DANSKUR prófessor víð
fornleifarannsóknir í Ameríkiti
— Sjá grcin á bls. 7.
205. tbl. — Miðvikudagur 1. septeinber 1948.
Gagnfræðadeildir starf
ræktar við barnaskóla
bæjarins í vetur
Þær sækja öll 13 ára börn, er lokið
hafa barnapróti.
‘Á VETRI komanda verða við barnaskóla Reykjavíkurbæjar
kíarfræktar sjerstakar deildir fyrir þau börn, er á síðasta vori
luku barnaprófi. Verður kennslu í deildum þessum hagað i
samræmi við námsskrá fyrsta bekkjar gagnfræðastigs.
Lögin gengu í gildi í fyrra.
Vorið 1947 samþykkti fræðslu
ráð Reykjavíkurbæjar, að leggja
til við fræðslumálastjóra, að
bin nýju fræðslulög væru látiu
koma til framkvæmda í Reykia
vík 1. september. Það sama ár
I eamræmi við ályktun þessa og
f samráði við fræðslumálstjóra
var kennt í barnaskólunum s.l.
vetur eftir breyttri námsskrá.
Barnapróf.
í vor sem leið tóku börn í 13
éra deildum barnaskólanna hið
venjulega fullnaðarpróf og luku
með því skólaskyldu sinni. Börn
í 12 ára deildum þreyttu hið
sama próf og gildir það sem
barnapróf, þeim sem það stóð-
ust. Þau börn eiga nú eftir tvö
tór fræðsluskyldunnar.
12 ára börn. *
Samkvæmt fræðslulögunum
skulu börn er lokið hafa barna-
prófi stunda nám í gagnfræða-
skólum vegna þess m.a. að hinn
nýi gagnfræðaskóli í Skólavörðu
holti er ekki fullgerður, ákvað
fríeðsluráð, að öll 13 ára börn
^kyldu stunda nám í barnaskóla
næsta vetur. Námi þeirra verð-
ur hagað samkvæmt námsskrá
gagnfræðastigs og mun skráin
væntanleg innan skamms.
Á fundi sínum s.l. mánudag
ræddi fræðsluráð Reykjavíkur
þetta nýja viðhorf og bar
fræðslufulltrúinn, Jónas B. Jóns
son fram svohljóðandi tillögu,
sem var samþykkt með sam -
hljóða atkvæðum:
Hefst 1. okt.
Fræðsiuráð ályktar, að þau
börn, sem luku barnaskólaprófi
s.l. vor, njóti kenslu í barna-
skólunum á vetri komarfda. —
Skal þeirri kenslu hagað í eins
nánu samræmi og kostur er
við námsskrá 1. bekkjar gagn-
fræðaskóla samkv. fræðslulög-
unum nýju, bæði að því er varð
ar bóknámsdeild og verknáms-
-deild, og miðist við, að börn
þessi Ijúki 1. bekkjarprófi úr
slíkum gagnfræðaskóla næsta
vor og geti þá gengið inn í
gagnfræðaskóla bæjarins. —
Skólatími verður 8 mánuðir frá
1. okt. að telja.
Undir stjórn barnskólastjóranna
Skólastjórum barnaskólanna
er falið að hafa umsjón með
þessum deildum og að skipa í
þær. Ennfremur er þeim falið
að ráða kennara frá barnaskól-
unum til þeirra í samráði við
fi æðslufulltr.úa, og vill fræðslu
ráð leggja til við fræðslumála-
stjórn, að þessir kennarar verði
átnir njóta sömu kjara og kenn-
arar við gagnfræðaskóla bæj-
arins.
Bræla skall á í gær-
kvöldi
Raufarhöfn í gærkvöldi.
Um kl. 10 í kvöld var kom-
in strekkingur á miðunum og
naumast hægt að vera í bátum
vegna veðurs.
í dag hefur verið nokkur
veiði á vestanverðum Þistil-
firði og út af Melrakkasljettu.
Nokkur skip hafa fengið mjög
góðan afla og vitað er um tvö
skip, sem náð hafa fullfermi.
Annað þeirra var Smári frá
Húsavík, er fyllti sig í einu
kasti í dag. Hitt skipið er Víð-
ir frá Eskifirði, er náði 1000
málum hjer út af Sljettu í
kvöld.
Milli 10 og 13 þús. hektól.
hafa borist til bræðslu hjer í
Raufarhafnarverksmiðjuna s.l.
sólarhring.
Siglufjörður.
Allur megin þorri flotans er
nú á austursvæðin, en þrjú
skip, sem voru við Grímsey,
fengu síld í dag.
Heildarsöltun á landinu nem
ur nú 103.810 tunnum síldar.
Allmörg skip komu hingað í
dag með síld til bræðslu. Til
Síldarverksmiðja ríkisins bár-
ust 2000 mál og til Rauðku
1800 mál, þar af 1324 úr m.s.
Helga Helgasyni, en af afla
hans voru saltaðar 372 tunn-
ur. Afli hans er nú orðinn 6340
mál og tunnur og mun hann
eflaust vera hæsta skip flot-
ans. — Guðjón.
Margaret prinsessa
Gríðarmikil síld við
vesturströnd Sval-
barða í sumar
hvaiveiðamenH segja þar
verið Íslandssíld.
Bergen.
NORSKIR hvalveiðimenn, sem nýlega eru komnir frá hvalveiðum
1 Norðurhöfum segja miMa síld hafa verið vestur af Svalbarða *
Margaret prinsessa, yngri dótt- sumar- Tel-Ía t*ir mikla naöguleika til síldveiða á þessum slóðum.
ir Bresku konungshjónanna Þeir segjast hafa siglt i gegnum síldartorfur í einn sólarhring.
sjest hjer á myndinni. Sögu- Uvalveiðimennirnir segjast ekki i vafa um, að þarna hafi verið
sagnir hafa gengið um það und- íslandssíld á ferðinni, en einnig millisíld.
anfarið, að hún sje í þann veg
að trúlofa sig Blandford mark-
greifa, sem er 22 ára og frændi
ChurchiIIs.
Bifreiðaslys
á Nngvallavegi
1 FYRRINÖTT varð bifreiða-
Gríðarmikil síld
í sjónum.
Heimildarmaðurinn fyrir
þesari síldarfregn frá Sval-
barðamiðum er hvalveiðimað-
urinn Harald Hansen frá Blom
vág. Hann gerði út leiðangur
í sumar til að veiða smáhveli
í Norðurhöfum og hafði smá-
skip og móðurskip í leiðangtr
inum, samtals 12 skip. Þeir
veiddu talsvert af hval og eru
slys á Þingvallavegi, við brúna ánægðir með ferðina
hjá Svanastöðum. Fólksbíln-
um R 5999 var ekið á einn af
Um síldina segir Hansen:
— En það var eitt, sem við
brúarstöplunum og varð árekst tókum sjerstaklega eftir vest-
urinn svo harður, að farþegarn ur af Svalbarða og það var hve
ir þrír, sem í bílnum voru og mikil síld var í sjónum. Einu
bílstjórinn, hlutu allir meiri sinni sigldum við heila nótt í
og minni meiðsli. Einn farþeg gegnum miklar síldartorfur.
ann, Ingólfur A. Jónsson, Hverf Fyrsta síldargangan, sem við
isgötu 80, slasaðist svo, að hann rákumst á, var fyrir utan ís-
liggur nú í sjúkrahúsi. j fjörðinn. Það var stór hafsíld
Slysið var milli kl. eitt og og það var ekki hægt að sjá
tvö í fyrrinótt. Bifreiðin var á annað, en að það væri sama
leið áustur, er slysið vildi til.1 síld og Íslandssíldin.
Um leið og bifreiðin rann innj Síðar urðum við varir við
á hrúna, rakst framendi henn minni síld, hina venjulegu
ar á hægri brúarstöpul. Við. ,,feit“-sildartegund.
Fundur í Óðni
í kvöld
MALFUNDAFJELAGIÐ
Óðinn heldur fund í kvöld
klukkan 8,30 í Bafjslofu iðn-
aðarmanna.
Á fundinum verður fje-
Iagsmönnum skýrt frá störf-
um Landsfundar Sjálfstæð-
ismanna, er haldinn var á
Akureyri í sumar. — Þá
verða rædd ýms fjelagsmál
og önnur þau mál, sem upp
kunna að verða borin af
funðarmönnum.
áreksturinn kastaðist hifreiðin
til þversum á veginum og stór-
skemmdist.
Lögreglumenn komu á slys-
staðinn kl. að ganga þrjú um
nóttina og fluttu þeir alla hina
slösuðu menn í Landsspítalann
Var þar gert að sárum þeirra
tveggja farþega og bílstjórans,
en síðan voru þeir fluttir heim
til sín. Ingólfur A. Jónsson
hafði í árekstrinum blotið mik-
ið höfuðhögg og þykir sennilegt
að höfuðkúpan hafi brotnað.
Hann var lagður inn í sjúkra-
húsið.
Þetta er í annað sinn í sum
ar, sem slys verður við þessa
brú, en sem kunnugt er, þá er
staður þessi hættulegur, eink-
um vegna þess, að vegurinn
kemur í all krappri beygju inn
á brúna.
Fleiri og fleiri
handlökur auslan
járnfjaldsins
Sofia í gær.
FORSETI búlgarska þingsins
tilkynnti i dag, að sjö þingfull
Jeg var að hugsa um að síma
síldveiðiskipunum norsku við
ísland, en hætti við það vegna
þess, að jeg vissi, að þau myndu
þurfa annan útbúnað til að
veiða þar, en þeir höfðu við
ísland.
Ætlar að gera út að sumri.
Hansen hvalveiðimanni leist
svo veiðilega á miðin við Sval-
barða, að hann segist vera á-
kveðinn í að gera út á síld
þangað að sumri og salta þar á
staðnum.
— Þetta er mikið veiðisvæði,
sagði Hansen, frá Suðurhöfða
til. Norðurstrandarinnar, eða
um 400 fermílur að minsta
kosti.
ÍBR vann íslands-
móf II. flokks
Akureyri, þriðjud.
ÍSLANDSMÓT í knattspyrnu
í II. flokki fór fram á Akureyri
um síðustu helgi.
ÍBA vann KA með 3:0, ÍBR
vann KS með 7:0 og ÍBR vann
ÍBA með 4:0.
Ármann Dalmannsson afhenti
trúar hefðu nýlega verið hand ÍBR verðlaun strax að lokinni
teknir af rlkislögreglunni og keppni. Knattspyrnuráð ÍBA sá
varpað í fangelsi. — Reuter. I um mótið. — H. Vald.
Heimdallur efnir
lil flugferðar
I’Af) HEFIR verið ákveð
ið að Heimdallur, fjelag
ungra Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, efni til skemti
ferðar í fllugvjel á morg-
un cða næsta dag, sem
gott veður '-verður. Ekki
er enn fyllilega ákveðið
hvort farið verður austur
yfir Suðurland og að
Kirkjubæjarklaustri cða
til einhvers flugvallar á
Vesturlandi, og verða veð
urikilyrði að skera úr því.
Gert er ráð fyrir að leggja
af stað kl. 18 síðdegis og
mun flugið taka um hálfa
aðra klukkustund.
Þeir, sem hugsa sjer að
taka þátt í þessari ferð,
verða að snúa sjer til
skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins, sími 7100, strax
í dag, og verða þar veitt-
ar allar nánari upplýsing
ar um ferðina.
Ferðin mun verða aug-
lýst nánar síðar og síðast
í hádegisútvarpi þann dag,
sem farið verður.
Fargjald verður 100.00
kr. fyrir manninn.