Morgunblaðið - 05.02.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1949, Blaðsíða 1
16 síður Afgreiðsla fjárhagsáætlunarinnar Ú tsvörin tækka um 1,1 rndjón króna HIN ÖRUGGA fjárhagsstjórn Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur leitt til þess, að bæjarbúar munu á þessu ári greiða einni milljón 120 þús. krónum minna í útsvar en á árinu 1948. Þrátt fyrir fólksfjölgunina í bænum. — Á þessu ári nema útsvörin kr: 52.070.00. Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir þetta ár stóð yfir í um 14 klukkustundir og var atkvæðagreiðsl- unni lokið klukkan langt gengin 7 í gærmorgun. TJtsvörin lækka. Aður en gengið var til at- kvæða um fjórhagsáætlunina tók Gunnar Thoroddsen borgar stjóri til máls. Gerði hann stutt lega grein fyrir þeim breytinga tillögum, er fram höfðu komið frá bæjarráði og sjálfstæðis- mönnum. En þó þær væru sam þykktar mætti lækka útsvör bæjarbúa um 1.1300.000 krónur frá í fyrra. Nýir liðir. Við afgreiðslu fjárhagsáætl- unarinnar voru allar ályktunar tillögur Sjálfstæðismanna er birtar voru í Mbl. í fyrradag, samþykktar. Hjer á eftir verð ur gerð grein fyrir nýjum liðum fjárhagsáætlunarinnar, er fram komu frá bæjarráði og Sjálf- stæðisflokknum, ennfremur get ið ályktunartill., er fram komu frá Sjálfstatðismönnum á fund inum í fyrrinótt og loks er svo getið ályktunartiilagna frá minnihlutaflokkunum. Styrkir til ýmsra menningarmála. Fyrsta tillag'a bæjarráðs við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinn ar var lækkunartillaga. Að laun vegna framfærslumála verði lækkuð úr kr. 400 þús. í kr. 350 þús. Framlag bæjarins til heilsu verndarstöðvarinnar Líkn, var hækkað úr 172 þús. kr.. í 200 þús. kr. Þá kemur nýr liður. Það er 75 þús. kr. fjárveiting til mæðrastyrksnefndar til bygg- ingar dvalarheimilis. Framlag til Tónlistarskólans var hækk- að um helming, eða í 80 þús. kr. Til Vei’kstjórasambz. íslands voru veittar 5000 kr., vegna námskeiðs fyrir fjelagsmenn. Til íþróttastarfseminnar í bænum 50 þús. kr. hækkun. Til búreksturs bæjarins voru veitt ar 400 þús. kr. en í fyrra 300 þús. kr. Framlag bæjarins til Skógræktarfjel. íslands var hækkað úr 40 þús. kr. í 75 þús. kr. Jarðhitarannsóknir Til jarðhitarannsókna var í ár veittar 400 þús. kr. Er hjer um 100 þús. kr. hækkun að ræða. Síðasta tillaga frá bæjar ráði við' afgr. fjárhagsáætlunar innar, var að á árinu skuli veita 80 þús. kr. vegna girð- ingar umhverfis friðland Reyk víkinga, Heiðmörk. Tillögur frá Sjálfstæðis- mönnum. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri flutti breytingatillögu við áætlunarlið um skatta ríkis- stofnanna og samvinnufjelaga að hækka skattinn í 2,5 milj. kr. úr 1,5 milj. Ennfremur var sam þykkt að til lánveitingar vegna Sogsvirkjunarinnar eða til ann (Framh. á bls. 5) Mindszenly- rjellarhöldin Budapest í gærkveldi RJETTARHÖLDUNUM yfir Mindszenty kardinála var hald ið áfram í Budapest í dag. — Tilkynti ákærandi kommúnista þá, að kardínálinn hefði „tek- ið aftur“ ummæli sín í brjefi því, sem hann ritaði í október- mánuði síðastliðnum, er hann varaði við því, að hann kynni að verða píndur til að játa á sig ýmsar sakir. í yfirlýsingu kardínálans í dag eins og hún var lesin fyrir rjettinum, segir, að hann líti nú „öðrum augum á málin en áð- ur“ og sjái eftir villu sinni. — Reuter. Vill Slalin leiðtoga- ráðstefnu Veslur- veldanna og Rússlands London í gærkveldi. ÝMSIR erlendir frjettamenn í Moskva töldu í dag, að Stalin marskálkur vilji gjarnan koma saman á ráðstefnu með Truman forseta og forsætisráðherrum Bretlands og Frakklands. Telja sömu frjettamenn ekki ólíklegt að Vesturveldin mundu fús til ‘að athuga gaumgæfilega mögu- leikana fyrir slíkri ráðstefnu, ef opinberum tilmælum um hana yrði komið til ríkisstjórna þeirra. — Reuter. Grískir kommúnistar tilkynna: Markos „leystur frú störfum“ ♦ Skæruliðaútvarpið í Grikklandi skýrði frá því í gær, að Markos hershöfðingi væri „alvarlega veikur“. Þessi mynd var tckin meðan „veikindin“ töfðu hann ekki frá störfum hjá komm- únistaflokknum gríska. Lögreglan tók hana á sínum tíma og liún er í vörslum hennar í Aþenu. Pólskir kommúnistar hand- taka þúsundir herforingja úr andslöðuhreyfingunni Þektir fryir hetjulega baráttu gegn nasistum Varsjá í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. PÓLSKU stjórnarvöldin stað- festu í dag að nokkru leyti þrálátar fregnir, sem gengið hafa um það að undanförnu, að leynilögregla kommúnista sje að láta handtaka mikinn fjölda liðsforingja úr pólsku andstöðuhreyfingunni fyrver andi, en hún gat sjer meðal annars frægðarorð fyrir upp- reisnina í Varsjá í lok ófrið- arins. Erlendir stjórnmálamenn í Varsjá áætla, að í höfuðborg- inni einni hafi nokkur hundruð manns verið handteknir, en þúsundir úti á landsbygðinni. að meðal þeirra handteknu sjeu bæði stúdentar og prestar, sem aðstoðuðu andstöðuhreyfing- una. Andstöðuhreyfingin, sem hjer um getur, var stofnuð af Sikorski hershöfðingja og stjórn að frá London, meðan pólska útlagastjórnin starfaði þar. Dýrmæf höggmynd LONDON — Victoria og Al- bert safnið í London hefur greitt 4000 sterlingspund fyrir sjaldgæfa höggmynd af Volt- aire. Hún er eftir Jean-Anton- ine Houdon, sem var þekktasti myndhöggvari sinnar tíðar. — Reuter. Mikið um *1 * J#64 „veikmdi 1 flokknum Flokksþing haldið á næsfunni Aþena í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. ÚTVARPSSTÖÐ grísku skæruliðanna tilkvnnti í kvöld, að miðstjórn kommún- istaflokks Grikklands hefði á- kveðið „að leysa Markos hers höfðingja frá störfum.“ Kom tilkynning þessi því aðeins viku eftir að „ríkisstjórn“ Markosar birti skilyrði þau, sem hún setti fyrir samvinnu við stjórnarvöldin í Aþenu. „Alvarlega veikur" í- útvarpstilkynningunni í kvöld sagði, að Markos væri „alvar- lega veikur“ og „ófær um að leysa þau verk af hendi, sem honum hafa verið falin“, og hefði því verið „leystur frá öllum embættum sínum“. — Á- kvörðun þessa, sagði skæru- liðaútvarpið, tók miðstjórn kommúnistaflokksins á fundum „einhversstaðar" í Norður Grikklandi 30. og 31. janúar. Meiri ,,veikindi“ Tuttugu og sex meðlimir sátu miðstjórnarfundina, sagði í út- varpstilkynningunni. í henni var því bætt við, að Chrysa Hatzivassiliou, fráskilin kona Roussoe, ,,utanríkisráðherra“ kommúnista, hefði og verið leyst frá öllum skyldustörfum, þar sem hún einnig væri hættu lega veik og gæti því ckki innt af hendi nein af „verkefnum flokksins“. Óvcnju margar handtökur Victor Groaz höfuðsmaður, talsmaður stjórnarinnar, neit- aði þó í dag að staðfesta þetta, enda þótt hann mótmælti því ekki, að óvenju mikið hefði ver ið um handtökur að undan- förnu. Hann svaraði spurningu erlendra frjettaritara um mál- ið á þessa leið: „Yfirvöldin munu bráðlega skýra almenn- ingi frá ástæðunni fyrir hand- tökunum“. Stúdentar og prcstar Óstaðfestar fi'egnir herma, Sljórnmála- námskeið Heimdallar í DAG kl. 4 flytur Bjarni Benediktsson utanríkisráð- herra fyrirlestur í Sjálfstæð ishúsinu um utanríkismál. Ollum ungum Sjálfstæðis- mönnum er hcimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Mætið stundvíslega. Flokksþing Skæruliðaútvarpið skýrði og frá því, að kosningar til stjórn- málanefnd&r flokksins mundu fara fram og' breytingar gerðar á miðstjórn hans, þegar er hið fyrirhugaða áttunda þing flokks ins hefði gefið samþykki sitt. Arftakinn í Aþenu er talið, að Goussis hershöfðingi muni taka við af Markosi sem æðsti maður gríska kommúnistaflokksins. Goussis var fyrst getið sem eins af Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.