Morgunblaðið - 05.02.1949, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. febrúar 1949.
Frá afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar 1949:
Borgarstjóri ræðir ýms bæjarmdl og
hrekur firrur andstæðinganna
IVIINNIHLUTAFLOKKARN
•■■“♦l.I. bæjarsyórn höfðu lokið
—•érasisöguræðam sínum, flutti
C-unnar Thoroddsen borgar-
•n'-.jóri ræðu. Rakti hann þar lið
4. .' lið aðfinnslur þær og firr
♦d., sem framsögumenn hinna
41 n-ikarma höfðu borið fram á
fur.dinum. Þar eð ræður þeirra
ho'fðu staðið í marga klukku-
líma eru ekki tök á að rekja
F)je:r hvert atriði þeirra.
í fyrri ræðu sinni hafði borg
ai.’atjóri bent á að tilgangslaust
var, að bera fram tillögu úm
það að leggja ætti fram 3 millj.
úr Framkvæmdasjóði bæjarins
íil þess að bæta úr atvinnuleysi
» bænum, því öllu handbæru
íje sjóðsins hefur verið ráðstaf-
ftð, með samþykki minnihluta-
Úokkanna.
28 milj. til verklegra
íra mkvæmda
Það er eins og bæjarfulltrú-
ornir gleymi því, sagði borgar-
stjóri, að samkvæmt þeirri f jár-
hagsáætlun, sem nú er verið að
afgreiða, er ætlast til þess að
verklegar framkvæmdir bæjar-
íns nemi rúmlega 20 milljónum
króna. Að vísu er þetta ekki allt
{verkalaun. Að sumu leyti er
h.jer um byggingar að ræða. Af
byggingarkostnaði fer a. m. k.
60% til verkalauna. En ýmsir
utgjaldaliðir fara nær eingöngu
til verkalauna. Auk þess hafa
framkvæmdir bæjarfyrirtækja
jverið áætlaðar 8 millj. á þessu
nrí.
| Þar fyrir utan er Sogsvirkj-
turin nýja. Áætlað er að hún
kostí samtals 73 millj. Af því
f;r ii’.nlendur kostnaður 39 millj.
tíú. af þeirri fjárhæð a. m. k.
R2 millj. vinnulaun. Vonandi er
nð fje fáist til þessara fram-
kvæmda, svo að hægt verði að
fi.efj a verkið á þessu ári, og frá
Log jvirkjuninni komi því um
f7 millj. árlega til verkalauna
|iæstu 3 ár.
CT inilj. til atvinnuaukn-
fmgar
Þegar Ljósafoss var virkjaður
unnu þar 250 manns í 3 sumur
að staðaldri. Má búast við að
’vipuð tala verkamanna vinni
við nýju virkjunina. Miðað við
:>ær náu fjárhæðir, sem ákveð-
■fð er að bærinn leggi fram til
iærklegra framkvæmda, myndi
fiklc: kveða mikið að þessum 3
JTiiIlj. sem Sosialistaflokkurinn
aiugsaði sjer að fá úr fram-
Íívæmdasjóði. En um þessi mál
fiyt :ur Sjálfstæðisflokkurinn svo
Siljóðandi tillögu:
Það er stefna bæjarstjórnar
keykjavikur að stuðla að því
-jaf fremsta megni, eftir því sem
íjúrh agur bæjarins og gjaldþol
l»æjarbúa leyfir, að jafnan sje
») >eg atvinna handa þeim bæj-
ív búutn ,sem hjer eru löglega
Ibúseítir, svo að böl atvinnu-
i-.-ysts þurfi ekki að þjá Reyk-
Vílcinga.
A'S þessu marki vill bæjar-
Verklegar framkvæmdir bæjarins og
bæjarfyrirtækja nema 28 miljónum kr.
stjórnin vinna með því annars
vegar, að örfað sje eftir föng-
um hið frjálsa atvinnu- og at-
hafnalíf í bænum og hinsvegar
að bærinn hafi með höndum
verklegar framkvæmdir, sem
gerir hvorutveggja í senn að
auka lífsþægindi og fá Reyk-
víkingum vinnu í lúkur.
í því frumvarpi til fjárhags-
áætlunar fyrir árið 1949, sem
liggur hjer fyrir til afgreiðslu,
eru veittar rúmar 20 millj., auk
þess 8 millj. á vegum bæjar-
stofnana, eða samtals 28 millj.
kr. Auk þess verður væntan-
lega byrjað á hinni nýju Sogs-
virkjun á þessu ári.
Bæjarstjórnin telur ekki fært
að auka útsvarsbyrði bæjarbúa,
með því að bæta nú milljóna
framlögum við þær miklu verk
legu framkvæmdir, sem eru ráð
gerðar í fjárhagsáætlun bæjar-
ins.
Framsögumaður sosialista gat
um það, að hann hefði flutt á-
samt Jóni A. Pjeturssyni í vor
tillögu um að auka framlag til
verklegra framkvæmda um 3
millj. Jeg vil benda á, að sú til-
laga kom frá öllum flokkum í
bæjarráði og síðan mun bæjar-
sjóður hafa lagt fram svipaða
upphæð til síldarverksmiðj-
anna.
Sjálfstæðisflokkurinn, sagði
borgarstjóri, teldi sjer ekki fært
að fylgja tillögu Alþýðufl. um
3 millj. viðbótarframlag til at-
vinnuaukningar, því svo mikið
væri lagt á borgarana, af út-
gjöldum og útsvörum sem verja
á til verklegra framkvæmda í
bænum.
Því að seilast í verkefni
fjelaga?
Þá vjek borgarstjóri að ýms-
um tillögum minnihlutaflokk-
anna. Benti á, að ekki mætti
fella niður tillagið úr bæjar-
sjóði til Sogsvirkjunar, því að
engin viðstaða má verða á und-
irbúningi. Fáist framkvæmda-
lán fljótlega, þarf ekki að grípa
til þessa fjár.
Borgarstjóri sagði, að það
væri einkennileg viðleitni
manna úr minnihlutaflokkun-
um að vilja láta bæinn seilast
í verkefni, sem ýms fjelög í
bænum hefðu óskað að taka að
sjer. Tillagan frá Alþýðuíl. um
líkneski Skúla Magnússonar
væri óþörf, þar sem Verslunar-
mannafjelag Reykjavikur ætl-
aði að gangast fyrir að reisa
þessum höfundi Reykjavíkur
minnismerki. Ómakleg væru
þau ummæli, að bæjarstjórnin
hefði sýnt minningu Skúla litla
ræktarsemi, þar sem ein aðal-
gata bæjarins ber nafn hans og
einn af fyrstu togurum bæjar-
útgerðarinnar. Ennfremur er ó-
þörf, sagði hann, tillaga um
fjárframlag til þess að laga og
prýða Beneventum og Eskihlíð-
ina, þar sem Reykvíkingafjelag
ið hefur óskað eftir að fá að
taka þetta verkefni að sjer.
Ávítur Alþýðufl. og sósíal-
ista um seinaganginn á undir-
búningi barnaleikvalla væru ó-
maklegar, þar sem bærinn hefði
fengið erlendan sjerfræðing til
þess að undirbúa það mál og
hann hafi þegar lagt í það’
mikið verk, þó að því sje ekki
enn lokið.
Odýrar tryggingar
Viðvíkjandi húsbyggingarmál
um gat borgarstjórinn þess, að
fyrir nokkrum mánuðum hafa
verið gerðar ráðstafanir til þess
að nefnd manna rannsakaði,
hvaða leiðir væru líklegastar til
þess að koma upp sem ódýrust-
um, varanlegum íbúðum, en
byggingum hagað þannig, að
menn gætu lagt fram eigin
vinnu. Er það í samræmi við ósk
ir fjölda verkamanna og' annara
láglaunamanna. Umsókn liefur
verið send til Fjárhagsráðs um
fjárfestingarleyfi fyrir 200 slík-
um íbúðum.
Byggja þarf á
raunveruleika
Þá vjek borgarstjóri að breyt-
ingartillögum Alþýðuflokksins
viðvíkjandi tekjuliðum áætlun-
arinnar. Hann sagði það til-
gangslaust að hækka á papp-
írnum meðlög frá barnsfeðrum
úr kr. 300 þús í kr. 600 þús.,
því að slíkar áætlanir myndu
ekki standast.
Þá leggur Alþýðufl. til, að
kostnaður við skrifstofu bæj-
arverkfræðings verði lækkaður
um 150 þús. Borgarstjóri kvaðst
þegar hafa skýrt frá því, að það
hefur beinlínis tafið nauðsyn-
legar framkvæmdir bæjarins,
hve mannafli við undirbúning
verklegra framkvæmda hefur
verið lítill. En nú hafa verið
gerðar ráðstafanir til þess að
bæta úr þessu, m. a. með því
að hafa skipulagsmálin í sjer-
stakri skrifstofu, sem áður hafa
verið undir stjórn húsameistara.
Þegar réýnslan hefur sýnt að
nauðsynlegt er að auka mann-
afla og kostnað, verður að haga
fjárhagsáætluninni samkvæmt
því. Sama máli er að gegna um
tillögu frá Alþýðufl. um lækk-
un á kostnaði við framfærslu-
mál og tillögu frá Sosialistafl.
um að lækka „önnur gjöld“
framfærslumála um 20 þús. kr.
Það er aðallega um að ræða
styrki eða lán til manna, sem
þurfa bráðabirgðaaðstoð til þess
að forða þeim frá því, að verða
stöðugir styrkþegar bæjarins.
Vilja þeir spara Vinnu-
miðlunarskrifstofuna
Sosialistafl. og Alþýðufl.
flytja báðir tillögur um að sam-
eina Ráðningarstofu Revkjavík
ur og Vinnumiðlunarskrifstofu
í eina stofnun. Um það mál er
nú búið að ræða í 15 ár. Jeg
er tillögumönnum alveg sam-
þykkur, að hagkvæmt væri að
sameina þessar skrifstofur. En
tvískiftingin er þannig tilkom-
in, eins og allir vita, að þegar
Reykjavíkurbær hafði stofnað
sína ráðinngarstofu þá var
vinnumiðlunarskrifstofunni
þvingað upp á bæinn. Hvað eft-
ir annað hafa Sjálfstæðismenn
farið fram á að ráðningarskrif-
stofan ein fengi að annast þessi
mál. Þetta myndi verða til
sparnaðar fyrir bæinn og ríkið.
En það er einkennilegt, þegar
einmitt fulltrúi sosialísta. Sig-
fús Sigurhjartarson, kvartar yf
ir þessum óþarfa kostnaði, því
jeg man ekki betur en það
væri hann sjálfur, sem fyrstur
var settur til að stjórna hinni
óþörfu vinnumiðlunarskrifst.
Enn. í dag mun fjelagsmála-
ráðherra geta kippt þessu í lag
ef hann vill, og ættu tillögu-
menn að snúa sjer til hans.
Því næst vjek borgarstjóri
nokkuð að ummælum er fulltrúi
sosialista, Hannes Stephensen,
hafði haft um fund sem nýlega
var haldinn í bílstjórafjelaginu
Þrótti, þar sem Hannes bar fram
órökstuddar dylgjur á bæjar-
stjórn og hafði eftir formanni
Þróttar ummæli, sem borgar-
stjóri kvaðst efast um að væru
rjett eftir honum höfð.
Óþarft eða ótímabært
Tillaga Alþýðufl. um sjer-
staka fjárveitingu til trjáplönt-
unar í sambandi við skólagarð-
ana, sagði borgarstjóri að væri
óþörf, þar eð trjáplöntun hefði
verið og myndi verða einn lið-
ur í starfi skólagarðanna. Enn
fremur sú tillaga Alþýððufl. að
veita sjerstaklega 30 þús. kr.
til eftirlits og leiðbeiningar leik
vallagæslu. Til leikvalla og
dagheimila alls veittar 800 þús.
kr. og mætti kosta það eftirlit
og leiðbeiningar, sem um ræddi,
af því fje.
Þá vjek borgarstjóri að tillög
unni um að veita 250 þús. kr.
til sundlaugabyggingar í Vest-
urbænum. Hann sagði, að fjár-
veiting til þess væri ekki ííma
bær, því enn væri ekki á-
kveðið, hvernig leysa ætti mál-
ið, hvort sundlaugin ætti jafn-
framt að vera kenslulaug vij
Melaskólann eða ekki. Svipuðu
máli væri að gegna um tillögu
Alþýðufl. um framlag til Æ.sku-
lýðshallar. — Bæjarstjórn hefði
heitið því frá upphafi að láta
lóð undir Æskulýðshöllina. Sú
lóð er ákveðin inn í Tungu. En
borgarstj. vissi ekki til að und-
irbúningi væri lokið undir þá
byggingu eða gengið frá upp-
dráttum.
Næst vjek borgarstjóri að til-
lögum Sósíalista um það að
veita Vz milj. til mjólkur og
matargjafa í skólum. En Sigurð
ur Sigurðsson, berklayfirlækn
ir, hafði áður í ræðu skýrt frá
því, að samkvæmt áliti skóla-
læknanna væru mjólkur- og
matgjafar óþarfai', en lýsisgjaf
ir nauðsynlegar, enda eru til
þeirra ætlaðar 70 þús. kr. á fjár
hagsáætluninni.
Úthverfin og fisksölu-
miðstöðin
Þá vjek borgarstjóri að tiL
lögu Sósíalistaflokksins, - er
snerti ýms hagsmunamél íbú-
anna í úthverfum bæjarins. —•
Sagði hann, að Sósíalistaflokk-
urinn hefði breytt allmikið um
stefnu í því máli síðan í fyrra.
því þá hefði hann ætlast tii þess
að bærinn bygði fyrir sinn
reikning hús fyrir síma og póst,
læknastöð, lyfjabúðir o. s. frv.
Nú væri kröfunum stilt í hóf
og tillagan væri aðeins um
skipulagsmál.
Um tillögu Sósíalista viðvíkj
andi fiskversluninni sagði borg
arstjóri, að þar hefði ekki stað
ið á bænum. Fyrir löngu hefði
verið ákveðið að fela Fiskiðju-
verinu starfrækslu fisksölumið-
stöðvarinnar og væri lagt fram
tilskilið fje í því skyni. — En
það kann að vera, sagði borgar
stjóri, að það hafi tafið fram-
kvæmdir i þessu máli, að heil-
brigðissamþykktin nýja hefir
ekki verið staðfest af stjórnar-
ráðinu. En verður líklega ekki
langt að bíða að svo verði.
Þörf stofnun
Viðvíkjandi vinnustofu fyrir
öryrkja, sagði borgarstjóri að
hann hefði rætt um þnð mál við
forstjóra Tryggingarstofnunar-
innar og Odd yfirlæknir Ólafs
son, og hefði Oddur þegar safn
að ýmsum drögum til undirbún
ings því máli. Kemur álit hans
væntanlega áður en langt um
líður. Það er mikil nauðsyn á
slíkri stofnun, sagði borgar-
stjóri, þar sem menn er stund
að hafa erfiðsvinnu geta feng-
ið vinnu við sitt hæfi, þegar
þeir þurfa sökum lasleika eða
af öðrum ástæðum að hverfa
frá fyrri störfum.
Bæjarstjórn og Alþingi
í sambandi við íbúðarbygg-
ingar bæjarins benti borgam
stjóri á, hve aðstaðan til þeirra
hefði gjörbreyttst, þegar Al-
þingi frestaði þriðja kafla lagá
um opinbera aostoð við bygg-
ingu íbúðarhúsa í kaupstöðumj
og kauptúnum. Borgarstjóri
kvaðst samt hafa farið fram á
(Framh. á bls. 5j| j