Morgunblaðið - 05.02.1949, Blaðsíða 5
MORGUISBLAÐIÐ
5
Laugardagur 5. febrúar 1949.
Útsvörin iækka
Fremb af bls. *)
ara verklegra framkvæmda, eft
ir ákvörðun bæjarstjórnar síð
ar á árinu, yrði veittar kr. 1,5
milj. Er hjer aðeins um orða-
lagsbreytingu að ræða. í fjár-
hagsáætluninni var það bundið
við Sogsvirkjunina.
Styrkur var veittur til mæðra
styrksnefndar vegna þinghalds
kr. 1500.
Ályktanir
Eftirfarandi tillögur voru
bornar fram af Sjálfstæðismönn
um og samþykktar.
Þar eð leikvallanefnd hefur
eigi skilað endanlegum tillög-
um um leikvelli og dagheimili,
vegna þess að athugunum henn
ar og skýrslusöfnun er aðeins
nýlokið, felur bæjarstjórnin
nefndinni að vinna áfram að
málum þessum og sjer því ekki
ástæðu til að afgreiða einstök
atriði þeirra.
Ennfremur:
Bæjarstjórn Reykjavíkur
skorar á Alþingi, að veita á
þessu ári fje til byggingar upp-
eldisstofnana fyrir börn og
ungmenni, sem lent hafa á glap
stigu, sbr. 37. gr. laga um
vernd barna og ungmenna.
Líkneski af Skúla Magnússyni.
Þá kemur dagskrártillaga við
ályktun Alþýðuflokksins um
líkneski Skúla Magnússonar.
Dagskrártillagan er svohljóð-
andi:
Bæjarstjórn telur æskilegt að
gjört verði líkneski af Skúla
Magnússyni landfógeta. En þar
sem Verslunarmannafjelag
Reykjavíkur hefur á fundi í
nóv. s.l. samþykkt, að beita sjer
fyrir því máli og kosið nefnd
manna, til þess að vinna að því,
og afla fjár til þess, telur bæjar
stjórnin ekki ástæðu til þess á
þessu stigi að samþykkja fjár
veitingu í þessu skyni.
Frá Alþýðuflokknum
Svohljóðandi ályktunartil-
laga frá Alþýðuflokknum, var
visað til bæjarráðs:
Reykjavíkurbær hefir í sinni
vörslu Barnahælissjóð Thor-
valdsensfél.. og Barnahælissjóð
Reykjavíkur. Samtals nema
þeir um 200 þús. kr.
Hann hefir nú á leigu í öðru
bygðarlagi yfir 60 km., frá bæn
um, húsnæði fyrir barnaheim
ili og ráðgerir að verja til þess
heimilis á yfirstandandi ári 140
þús. kr. Með tilliti til þess, að
mjög óhentugt verður að telj-
ast, að reka slíka starfsemi svo
fjarri bænum, og að hentugt
húsnæði er ekki fyrir hendi
hjer, en bryn nauðsyn á að
koma þessum málum í betra
horf, þá samþykkir bæjarstjórn
Að fela borgarstjóra og bæj
arráði að láta hefja í samráði
við stjórn Thorvaldsensfjelags-
ins, undirbúning að byggingu
•fullkomins barnaheimilis í
grend við bæinn og byrja fram
kvæmdir strax og nauðsynleg-
um undirbúningi er lokið.
Frá kopimúnistum
Þessum tveim ályktunartillög
um frá kommúnistum var vísað
til bæjarráðs:
Bæjarstjórnin telur nauðsyn
legt að haldið verði áfram þeim
athugunum, sem hafnar eru á
því hvort bærinn og Trygging-
arstofnun ríkisins geti haft
samvinnu um að koma upp og
reka vinnustofu fyrir öryrkja
og lasburða fólk og leggur ríka
áherslu á nauðsyn þess að koma
slíkri stofnun upp hið allra
fyrsta.
Bæjarstjórnin beinir því til
niðu?ijöfnunarr^fndar, að at-
huga sjerstaklega eftirfarandi
atriði í sambandi við ákvörðun
útsvarsstiga við niðurjöfnun út-
svara á árinu 1949:
Að árstekjur undir kr. 9 þús.
verði ekki útsvarsskyldar.
Að útsvarslækkun fjölskyldu
manna verði eigi minni en 450
krónur fyrir hvert barn á fram
færslualdri, enda komi sú lækk
un jafnt til greina á lægri tekj-
um sem hærri.
Að útsvör á launafólki verði
ákveðin lægri en undanfarin
ár, miðað við útsvarsskyldar
tekjur, þar sem opinberlega er
viðurkent, að launagreiðslur
haldist ekki einu sinni í hend-
ur við skráða verðlagsvísitölu,
hvað þá við raunverulega dýr-
tíð 1 landinu.
Að tekið verði tillit til húsa-
leigugreiðslu útsvarsgjaldenda
við ákvörðun útsvarsins.
Leiðrjelting
í ritgerð mína, Grxmsvötn og
Grímsvatnajökull, sem birtist í
ritgerðasafninu Skrafað og skrif
að, hefur slæðst inn leiðinleg
meinloka. Þar sem mjer hefur
nú verið bent á hana af mínum
margfróða sveitunga, Benedikt
Gíslasyni frá Hofteigi, vildi jeg
mega leiðrjetta hana, svo að
hún afyegaleiði ekki þá, sem
kynnu að lesa ritgerðina.
í ritgerð minni er þess getið,
að sjera Sigurður Gunnarsson
á Hallormsstað hafi staðsett eld
stöðvar Grímsvatnagossins 1883
með því að bera saman miðanir
á gosmökkinn frá ýmsum stöð-
um. Kemur sú staðsetning mjög
vel heim við rjetta legu
Grímsvatna. Þessarar staðsetn-
ingar er getið í grein, er birtist
í Fróða 2. júní 1883 og heitir:
Úr Múlasýslum. Þar eð Sig-
urður Gunnarsson hafði mik-
inn áhuga fyrir rannsóknum á
Grímsvötnum og hafði skrifað
um það mál, fjekk jeg það í koll
inn, að hann hefði gert þessa
staðarákvörðun og sent grein-
ina til Fróða, en það fær ekki
staðist af þeirri einföldu ástæðu
að hann var búinn að liggja
nokkur ár undir grænni torfu,
þegar þetta skeði. Benedikt
Gíslason telur það næsta örugt,
að þessi ákvörðun á legu Gríms-
vatna muni hafa verið gerð af
tengdasyni sjer Sigurðar, Páli
Vigfússyni, bónda á Hallorms-
stað, og ber honum þá heiður-
inn af fyrstu nokkurn veginn
n,ákvæmu staðsetningu Gríms-
vatna. En óbeint er þessi stað-
setning Sigurði Gunnarssyni að
þakka, því án áhuga hans og
skrifa um þessi mál, hefði hún
varla verið gerð.
Sigurður Þórarinsson.
Jón Guðfflundsson
sS Núpi, sjöfugur
Reikningsskekkja, ruglingur,
rykað presta þvakur,
Jón er sagður sjötugur,
svona ungur maður.
Æfin setur ama glý,
of á gömul minni,
þéirra’ er kannske komu í
kaupstað mörgu sinni.
Ungdómurinn elli nær,
oft má svo til haga;
þá er eins og gert í gær,
gaman æsku daga.
Þegar vinir vorsólar
vængi frá sjer rjetta,
út úr berki ellinnar
æskurósir spretta.
Enn þá Jóni yngist sál,
eins og sumum fleirum,
þegar hestsins hófamál
hringir glatt í eyrum.
Glæða veigar gleði ljóð,
gleðja lyndi manna,
og í hófi örfa glóð
endurminningannaa.
Er á gaman Bakkus brá,
benti út í strauminn;
kannske hefur konan þá
kippt í rjetta tauminn.
Gleðistund er glitrar hlý,
— geislar dagur bjartur, —
minningunum mætir í
mannsins betri partur.
Þó menn lifi þúsund ár,
þreyti hug og mundir;
lúann deyfa, lækna sár,
lífsins gleði stundir.
Oðru betur glaðvært geð,
gott og trútt í starfi,
lukkubresti læknar, með
lífsins steina svarfi.
Örlögin jeg inn á treð
og þeim skeyti sendi,
af því núna eg er með
óskastein í hendi.
Hálofaður herrans þjón,
— heimsóknir við brýnar —
lengi ennþá letri Jón
Iífs, í bækur sínar.
Þessi ósk er þarna sett,
það sje ekki prettað.
Skrifi hann og skrifi rjett
skýru letri þettað.
Ösk þá líka inna má,
innst hjá skipa hinni,
að hann búi alltaf hjá
æsku gleði sinni.
Óskir mínar ekki fel,
aldni heiðursmaður!
Lifðu bæði lengi og vel;
lifðu heill og glaður!
Þórarinn Þorleifsson,
á Skúfi.
liiiiiiiiiiiiimiiiimiiMimimiiiiimnimiiMiiiiiiiiiititiii
| Til sölu
I samkvæmiskjóll á meðal
j kvenmann. Einnig smok-
I ingsföt, lítið númer. —
Uppl. í síma 3464.
IIMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIimm 1111111111111111111 IIIIIIIIIIIIIMIl
Kaupi gull
hæsta verði.
Sigurþór, Hafnarstræti 4.
— Ræha borgarstjórci
(Framh. ai bls. 2)
leyfi hjá fjárhagsráði til að
halda áfram íbúðabyggingu við
Miklubraut, en leyfi það, sem
fjekst, var algerlega ófullnægj
andi, aðeins leyít að byrja og
byggja kjallara en als ekki
meira. Taldi hann óráð að svo
komnu að hefja það verk, þar
sem vitað er að byggingar verða
mun dýrari, þegar ekki er hægt
að vinna að þeim slitalaust.
Sigfús Sigurhjartarson
talaði um það í ræðu sinni, að
það væri skrípaleikur þegar
bæjarstjórnin samþykti að fara
fram á það við Alþingi að þessi
lagakafli kæmi aftur til fram-
kvæmda, rjett eins og það væri
á valdi bæjarstjórnarinnar,
hvað meirihluti Alþingis sam-
þykti. Borgarstj. sagði það ekki
nema eðlilegt ,að menn úr sama
stjórnmálaflokki hefðu mis-
munandi sjónarmið á einstök-
um málum. Þó hann óskaði eft-
ir að lögin lræmu aftur til fram
kvæmda, gætu ýmsir flokks-
menn hans á þingi verið á öðru
máli. Minti hann síðan Sigfús
á nokkur tilfelli, þar sem hann
hefði fylgt málum á Alþingi, er
kunnu að verða Reykjavík til
hagsbóta, en flokksmenn hans
í kommúnistaflokknum snúist
öndverðir gegn þeim. Þrátt
fyrir hinn mikla aga, sem vit-
að er að ríkir í þeim flokki.
Skólinn í Kleppshoíti
Minst hefir verið á það sagði
borgarstjóri, að fjárfestingar
leyfi hafi fengist til að reisa
barnaskóla í Kleppsholti. Hann
kvaðst harma það mjög, að ekki
hafi verið hægt að byrja á þess
ari byggingu, en ástæðan var
sú, að húsameistari hefir haft
mannafla af skornum skammti
á skrifstofu sinni. Og þó jeg
hafi, sagði borgarstjóri, hvað
eftir annað lagt áherslu á að
lokið yrði við uppdrætti þess-
arar skólabyggingar, bá voru
þeir ekki fullgerðir fyrr en í
desember. Annað gat jeg ekki
gert, þar sem jeg er sjálfur
ekki fær um að teikna skóla-
hús.
Hann skilur það ekki
enn
Þá mintist borgarstjóri á um-
mæli Steinþórs Guðmundsson-
ar, þar sem hann enn hjelt því
fram að aldrei hefði átt að
byggja varastöðjna við Elliða-
árnar. Taldi borgarstjóri furðu
lgt, að slík firra væri enn við
lýði. Flestir bæjarbúar mnudu
þó að minsta kosti hafa fundið
til þess á dögunum, er Sogs-
línan bilaði, hvers virði það er
að hafa stöð bessa.
Engar tillögur
Síðan vjek borgarstjóri með
nokkrum orðum að ræðu full-
trúa framsóknarflokksins,
Pálma Hannessonar, er hann
hafði haldið á fundinum, og
leiðrjetti ýmiskonar misskiln-
ings, er þar hefði komið fram.
Bæjarfulitrúinn hafði lýst óá-
nægju sinni yfir undirbúningi
fjárhagsáætlunarinnar og
hvaða aðilar væru þar að verki.
Borgarstjóri sagði að þeir menn
hafa undirbúning þennan með
höndum, sem kunnugastir em
fjármálum og rekstri bæjarins,
þar á meðal borgarstjóri, aðal-
bókari, forstjóri endurskoðunar
innar og svo bæjarráð, en þar
hefði Framsóknarflokkurinn
ekki fulltrúa af eðlilegum a~
stæðum. Þar sem bæjarfullírú
inn talaði um að bílakostnað-
ur hefði stórhækkað, þá væri
það á misskilningi bygt, því
þessi hækkun á papptrnum staf
aði af tilfærslu á milli gjalda-
liða.
Borgarstjóri kvaðst furða-
sig á því, hve framkoma þeirra
i bæjarstjórn væri ólík, núver-
andi fulltrúa Framsóknarflokks
ins, og fyrv fulltrúa flokks-
ins, þar sem núverandi fulltrúi
hans hefði ekki borið fram ne ína-
breytingartillögu eða ályktunar
tillögu í sambandi við fjárhags-
áætlunina, en það hefði aldrei
liðið langur tími milli þess sem
Jónas Jónsson fyrirrennari hans
hefði flutt þar tillögur og ályýt.
anir.
Hjer er þá að nokkru rakin
þau atriði, sem borgarstjóri
flutti í svarræðu sinni til mirmi
hlutaflokkanna í ttæjajrstjórn
að þessu sinni. En heildarsvip-
ur umræðnanna að þessu sin.ni
sem oftar i bæjarstjórn Reykja-
víkur, er þessi: Við forystuna
er öruggur umbótaflokkur, sem
þó leggur áherslu á að miða að'-
gerðir sínar, og tillögur, við það,
sem mögulegt er að koma í frara
kvæmt á hverjum tíma. En and
stöðuflokkarnir þrír flytja til-
lögur og ályktanir sem fyrst
og fremst er ætlað að vera
skrautfjaðrir til áróðurs og oft
svo vanhugsaðar, að þær stang
ast innbyrðis eða geta ekki
staðist.
yfirlýiing frá rúss-
neska ufanrríkisré&i
neytinu
. Moskva í gærkvölci.
. í YFIRLÝSINGU, sem rúss-.
neska utanríkisráðuneytið Ijet
í dag birta í öllum blöðum í
Moskva, er ráðist harkalega á
finimveldabandalagið, hinn fyr
irhugaða Atlantshafssáttm ála
og öll önnur samtök þeirra
ríkja, sem ekki lúta kommim-
istastjórnum.
Yfirlýsingin er ákaflega Kng
og fyllir um tíu blaðadálka I
henni saka Rússar einkum
Breta og Bandaríkjamenn um
það, hvernig ástandið er nú í
heiminum. — Reuter.
Flugvje! ferst
London í gær.
BRESK Skymasterf lu gv j el
eyðilagðist í lendingu skammtf
frá Tripoli snemma í morgun.
Flugmaðurinn ljet Hfið
— Reuter.
Kominn til London
LONDON: — Leyvis Dougl ss, sendi-
herrn Bandnríkjanna í London, kutn
þangað flugleiðis í dag frá Washmif
ton. Er búist við að hann. nr.mi gfinpt*-
á fund Bevins, utanrikisráðkerró. fyr
ir helgina, ti.1 þess að rmða um At-
mtshafs-sáttmalann.