Morgunblaðið - 25.05.1949, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.05.1949, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 25. maí 1949. ♦> f f t v t ❖ ? t t x t *;« RIDDAR Þrjú bindi komu út á þriðjudag og kosta aðeins kr. 130,00 í skinnbandi en kr. 100,00 óinnbundnar Skemtilegustu, bestu og ódýrustu bækurnar, sem komið hufu út á þessu úri RIDDARASÖGURNAR skiptast í tvo aðalflokka eftir aldri og uppruna, alerlendar, þý&dar á norræna tungu og frumsamdar sögur íslenskar. Bókmenntagrein þessi er frönsk að uppruna og elstu riddarasögur .voru þýddar í Noregi á fyrri hluta 13. aldar. En snemma tóku tslendingar sjálfir að semja sögur í þessum sama stíl og hjeldu því áfram i margar aldir. • Frumtextarnir frönsku voru kvæði, og eru sum þeirra nú glötuð og önnur hafa tekið miklum breytingum- Hafa því þýðingar þessar orðið frönskum bókmenntafræðingum ómetanlegar heimildir um sögu þessarar bókmenntagreinar í Frakklandi. I bindunum eru eftirfarandi sögur: 1. bin<li Saga af Tristram og Isönd Möttuls saga . Bevers saga II. ltindi Ivents saga Partalópa saga Mágus saga jarls (hin meiri) (Bragða Mágus saga) III. bindi Mírmanns saga Sigurðar saga þögla 'Konráðs saga keisarasonar Samsons saga fagra (Sagan af Samson friða og Kvintalín kvennþjóf) SÖGUR þessar lýsa íburði og glæsileik riddaralifsins í öllum þess myndum, burtreiðum, bardögum, vopnaburði og síðast en ekki síst ástum riddara og hefðarkvenna, leyfilegum og óleyfilegum eftir atvikum. Þó að sögur þessar sjeu hinar merkilegustu og erlendar stórþjóðir myndu vera hreyknar af að hafa varðveitt þær og eiga slik rit á sinni tungu, verður ekki annað sagt, en Islendingar hafi á síðustu tímum sýnt þeim lítinn sóma- I rauninni hefir þessi fjársjóður verið algerlega lokaður fyrir öllum þorra landsmanna, þar sem öll handrit eru löngu komin á söfn og útgáfur fáar, flestar erlendar, hafa litt borist hingað og eru fre'kar gerðar fyrir fræðimenn en bókelska leikmenn. BJARNI VILHJÁLMSSON cand. mag. sjer um útgáfu þessara hóka og mun nafn hans eitt næg trygging þess, að verkið sie vél unnið. HALLDÖR PJKTURSSON listmálari hefir gert saurblaða titilsiðu og upphafsstafa teikningar. ISLENDINGASAGNAÚTGÁFAN heitir á alla góða íslendinga að bregðast vel við og kaupa sögur þessar, sem mrrnu tvimælalaust vera það skemmtilegasta og mtírkilegasta, sem Islendingar hafa samið um erlend efni. Hvergi hefir notið sín betur fjörugt og auðugt ímyndunarafl Islend- inga en í þessum sögum. Riddarasögur inn á hverf íslenskf heimili. Þrjú bindi kosfa aðeins kr. 130,00 í góðu skinnbandi, en kr. 100,00 óbundnar. Hringið eða skrifið fil úfgáfunnar og bækurnar verða sendar heim til yðar. J)ó íe n ci in^aóa^naat^af'an Pósthólf 73 — Túngötu 7 — Sími 7508 íja n — ^Jdaabadalóát aa> Reykjavík. Jeg undirrit .... gerist hjermeð áskrifandi að Riddarasögum Haukadals og Islendingasagnaútgáfunnar, og óska eftir að fá bækurnar: innbundnar —• óbundnar. Banrl bókanna óskast i Svörtum lit Brúnum lit Rauðum lit Stryki?) yfir þáS, sem ekki ú vif>). Nafn Heimili Póststöð Haukadalsútgáfan — íslendingasagnaútgáfan Pósthólf 73 — Túngötu 7 — Sími 7508 — Revkjavík. f f f f f f f f f f f f ❖ f f ♦> f f f f f f f *!♦ f f *> f f V f f f f f v ♦:♦ *:♦ ♦:♦ ♦:♦ f f f ♦:♦ ♦:♦ *:♦ ♦:♦ ♦:♦ f ♦:♦ ♦:♦ ♦:♦ ♦:♦ f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.