Morgunblaðið - 23.06.1949, Page 16
PESÐDISÚTLIT — FAXAFLÓI:
@A goia cða kaldi. Úrkoinia-
laust, en nokkuð skýjað.
EorawttBaíitð
FRÁSÖGN af Synodus er á 9.
síðu blaðsins.
138. thi. — Fimmtudagur 23. júní 1949.
Rtiforkuver landsins fram
feiddu 160 miljónir
fxvvst. árið 1948
Yfírlit um rafmagnsframleiðsluna 1928-1948
Á ÁRUNUM 1928 til 1948 óx framleiðsla rafmagns í rafstöðv-
ttm- landsins, sem reknar eru með almanna fje, úr 6,6 milljón-
lutn Idlówattstunda í 160 milljón kwst. Nemur því framleiðslu-
aukningin á rafmagni þessa tvo áratugi um 153.4 millj. kwst.
Það er skýrt frá þessu í síð-<
asta Iiefti Hagtíðinda og er þar
tgérð grein fyrir aukningu raf-
vnsgnsframleiðslunnar á hverju
ári, á þessu tveggja áratuga
tíraa’bili.
Rafmagnsframleiðslunni er
skipt þannig, að annarsvegar
cr- framleiðsla þess með vatns-
orku og hinsvegar með elds-
rteyti.-
V atasorkuverin.
A árinu 1928 framleiddu
vatnsorkuverin í landinu, 5,9
miHj' - kílówattstundir af ram-
raagni Þess skal getið hjer að
ein kwst. er 1000 wött. Árið
192
nemur rafmagnsfram-
leiðsla orkuveranna 8,4 millj.
kws: Næstu ár á eftir fer raf-
niagnsframleiðslan ört vaxandi
og e:r komin upp í 23 milj. kwst.
•á árinu 1938. Fimm árum síðar,
cða árið 1943, er rafmagnsfram
loiðslan komin uppí 86 milj.
kwst. — Hefur því á þessum
tíma vaxið um 63 milj. kwst.
fvíðastliðin fimm ár, eða frá
1943 tii 1948, hefur framleiðsla
‘ fca-fmagns enn aukist gífurlega,
og var árið 1948 komin upp í
150 milj. kwst. Á þessum tveim
áratugum nemur aukning raf-
magnsframleiðslu vatnsorkuver
anna 144,1 milj. kwst.
Pt attleiðsla annara
rafstöSva.
Eins og fyrr segir, þá er raf-
rnagnsframleiðsla þeirra raf-
stöðva sem knúnar eru með
eldsneyti, sjerstaklega sundur-
>.4öð. A árinu 1928 nam raf-
magnsframleiðsla þessara raf-
stöðva 0,7 milj. kwst. Er aukn-
ing’ framleiðslunnar mjög hæg
og á árinu 1933 nemur rafmagns
frarnleiðsía þeirra 1,1 millj.
•t.wst? Fvær millj. kwst raf-
m agnsframleiðslu ná stöðvar
þessar á árinu 1941. Á árinu
1347 er hún komin upp í 4 milj.
kwst. en á árinu 1948 kemst
rafmagnsframleiðsla þeirra
skyndilega upp í 10 milj. kwst.
Ev það með tilkomu Toppstöðv-
a. innar við Elliðaár. Enda var
rúmlega helmingur af rafmagni
fi amleitt í almenningsrafstöðv-
um með eldsneyti árið 1948. er
framleitt í Toppstöðinni, segir
í skýrslu þeirri er Hagtíðindin
bírta um þetta mál. En það er
raforkumálaskrifstofan. sem
tekið hefur yfirlitið saman.
Eíitka rafstöðvar.
Framleiðsla rafmagns til
eigin nota, aðallega fyrir síld-
■arverksmiðjur og á sveitabæj-
ujn, er að sjálfsögðu ekki inni-
falixi í .yfirliti því sem hjer hef-
ur verið gefin nokkur skil. Um
raf'Ti .gnsframleiðslu þessara
rafstöðva, liggja ekki fyrir nein
ar upplýsingar, en raforkumála
skrifstofan áætlar, að hún hafi
verið um 4 milj. á árinu 1941,
en á árinu 1947 sje hún komin
upp í 8 milj. kwst. Þar af um
5/8 framleitt með eldsneyti, en
3/8 með vatnsorku.
. þing Sambands ungra Sjúlí-
stœðismanna verður sett ó morgun
150—200 fulltrúar
sitja pingið
í GÆRKVÖLDI hófst fulltrúaráðsfundur Sambands ungra
Sjálfstæðismanna i Sjálfstæðishúsinu, en á morgun hcfst sjálft
sambandsþingið.
Þetta cr 10. þing Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Um
150—200 fulitrúar sækja þingið úr öllum landsfjórðungum.
HEIÍ&ST VARI
REYKJAVÍK
HITINN hjer í Reykjavík
komst í gærdag í 20,4 stig og
mun ekki hafa verið jafnmikill
í öðrum höfuðborgum Norður-
landanna.
í Osló var 17 stig og svipað
hitastig mun hafa verið í
Höfn. í Stokkhólmi var aðeins
11 stiga hiti og í Færeyjum 15
stig. Ókunnugt var um hitann
í Helsingfors, en hann mun þó
hafa verið innan 15 stig. — Á
Bretlandseyjum var svipað
hitastig og hjer á landi.
Það óvenjulega skeði í gær,
að mestur hiti mældist á Grím-
stöðum á Fjöllum. Þar var 23.
stiga hiti_ Næst kom Síðumúli
í Borgarfirði. Minstur hiti var
á Reykjanesi, 10 stig.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni, þá eru horfur
á að svipað veður verði hjer á
landi í dag.
JOHN McCLOY,
fyrsti landstjóri Bandaríkjanna
í Þýskalandi, sem ekki er her-
maður.
Vöxtur er t
Gullfaxi lendir á
Suðureyjum
ÞEGAR „Gullfaxií: var á leið
til London í fyrradag lenti
hann á flugvellinum á Benba-
cula-eyju á Suðureyjum vegna
þess, að smávegis bilun varð á
einum hreyfli flugvjelarinnar,
en svo er mælt fyrir í alþjóða-
flugreglum, að verði bilun,
þótt smávægileg sje á flugvjel,
sem er með farþega skuli hún
lenda á næsta flugvellý Þegar
„Gullfaxi“ lenti var eftir um
45 mínúntna flug til Prestwick
og var ekkert til fyrirstöðu, að
hægt væri að fljúga þangað .á
þrernur hreyflum, þótt flug-
menn tækju hinn kostinn af
öryggisástæðum.
Flugvjel var fengin til að
fljúga með farþegana 25 til
London og komu þeir þangað
um miðnætti.
í Benbecula er ekki viðgerð-
arverkstæði fyrir flugvjelar og
var því Gullfaxa flogið til
Prestwick í gærdag og þar átti
viðgerð að fara fram. — Var
gert ráð fyrir að henni lyki í
gærkvöldi, og að Gullfaxi komi
úr Englandsförinni í dag um
kl. 18—19.
ymsum am
ALLMARGAR ár víðsvegar á
landinu, hafa í hitunum und-
anfarna daga, vaxið nokkuð og
sumar mikið, en tjón af völd
um vatnavaxtanna mun ekki
hafa orðið, ,svo kunnugt sje-
Norðurá flæddi t.d. i gær
yfir bakka sina. Hjá Bakkaseli
flæddi hún yfir veginn, en ekki
höfðu borist fregnir af skemd
um á veginum og bílar komust
leiðar sinnar þrátt fyrir vatns
elginn. Hvítá í Borgarfirði var
í nokkrum vexti í fyrradag, en
samkvæmt viðtali við Hvann-
eyri í gær, þá virtist flóðið vera
í rienum. Þjórsá er einnig í
vexti. Frjettir hafa og borist úr
Skagafirði um vöxt í ám.
5. dagur s!úden!dmóisins
NORRÆNA stúdentamótið
hófst á miðvikudag með fyrir-
lestri prófessors Ólafs Björnsson
jar, sem hann nefndi „Hag og
stjórnmálaþróun á íslandi frá
1918“. Var það skýr yfirlits-
fyrirlestur og urðu áhfcyrt'ndur
mikið fróðari um íslensk stjórn
mál en áður, enda um þau tal-
að á hlutlausan, skemmtilegan
hátt.
Eftir hádegi var kvikmynda-
sýning í Tjarnarbíó- Var þar
sýnd Heklukvikmyndin og
fleiri myndir af Islandi, en dr.
Sigurður Þórarinsson skýrði
myndina.
Síðar um daginn var mót-
taka hjá sendiherrum Norður-
landanna og um kvöldið var
stúdentum boðið að hlusta á
söng Tónlistarkórsins í Austur-
hæjarbíó, en Rögnvaldur Sigur
jónsson ]jok einltik á píanó
milli þátta.
Meirihluti þessa dags var
frjáls hjá erlendu stúdentunum
og notuðu þeir mikið tækifærið
til að ganga um götur bæjarins
í góða veðrinu og líta í búðir
o. s. frv.
Fundur fulltrúaráðsins vinn-^"
ur að undirbúningi Sambands-
þingsins og starfa fulltrúarnir
í nefndum í dag.
Klukkan 10 f. h. á morgun
hefst Sambandsþingið í Sjálf-
stæíishúsinu. Fer þá; fram
skráning fulltrúa og síðan út-
býting þingskjala og nefnda-
skipanir.
Eftir hádegi hefjast þing
fundir kl. 2 og getur þá for-
maður Sambandsins, Jóhann
Hafstein, alþm., skýrslu um
störf og viðfangsefni samtak-
anna frá síðasta Sambands-
þingi.
Síðar um daginn hefjast um-
ræður um ályktanir þingsins
og nefndir skila álitum.
Um kvöldið kl. 9 verður
sameiginleg kaffidrykkja í
Sjálfstæðishúsinu og gefa þá
fulltrúar hinna einstöku fje-
laga skýrslur um starfsemi fje
laganna og stjórnmálahorfur
heima í hjeruðum.
Á laugardag heldur þingið
svo áfram en gert er ráð fyrir
að þingstörfum ljúki fyrir
kvöldið, en lokasamsæti þing-
fulltrúa og gesta verður í
Sjálfstæðishúsinu með borð-
haldi og dansi og hefst kl. 7,30.
Á sunnudag er fyrirhuguð
kynnisferð þingfulltrúanna. —
verður fyrst skoðuð Hitaveita
Reykjavíkur, en eftir það hald-
ið til Þingvalla. Hádegisverður
er snæddur í Valhöll um kl. 2.
Frá Þingvöllum verður haldið
að Ljósafossi og Sogsvirjun-
in skoðuð.
Komið verður að Selfossi og
drukkið þar síðdegiskaffi — og
með þessari ferð lýkur Sam-
bandsþinginu-
Samtök ungra Sjálfstæðis-
manna eru lang öflugustu
æskulýðssamtök stjórnmála-
flokkanna. Mun Sambandsþing
ið áreiðanlega sýna þrótt og
viðgang þessara samtaka, sem
stöðugt hafa vaxið ár frá ári
og eru nú öflugri en nokkru
sinni fyrr.
Gullfaxi fer til
Hamborgar
GULLFAXI millilandaflugvjel
Flugfjelags Islands, fei um
næstu helgi til Þýskalands til
að sækja þangað verkafólk, sem
ráðið hefur verið hingað tii
starfa við landbúnaðinn.
Hjeðan frá Reykjavík fer
Gullfaxi á sunnudag og verður
þá flogið til Hafnar. Verður
flugvjelin um kyrrt þar fram á
mánudag, en þá verður flogið
til Hamborgar. Þar verður
varla staðið lengur við en tvo
tíma, en Gullfaxi tekur þar 40
Þjóðverja, konur og karia. Er
flugvjelin væntanleg til Reykja
víkur aftur á mánudagskvöld.
ÞorsfeSnn Hannesson
enduríekur söngskem!un
sína í kvöld
ÞORSTEINN HANNESSON,
óperusöngvari, hjelt söngskemt
un s.l. þriðjudagskvökl í Gamla
Bíó við mikla aðsókn og ágæt-
ar undirtektir.
Þorsteinn endurlekur söng-
skemmtun sína í kvöld kl. 7,15,
Undirleik annast Fritz Weissi
happel.
Meira herlið lil
Hong Kong
LONDON, 22. júní — A. V.
Alexander hermálaráðherra
Breta skýrði frá því í dag, að
það væri nauðsynlegt að auka
breska herliðið í Hong Kong
mikið frá því sem nú væri, enda
hefur hættan af árás kommún-
ista nálgast borgina ískyggi-
lega. — Reuter.