Morgunblaðið - 02.04.1950, Blaðsíða 1
16 siður
87. árgangui
77. tbl. — Sunnudagur 2. apríl 1950.
PrentsmiBJ* Morgijnblaðsm*
Oibeldisliðið frá 30. mars dæmt fyrir:
Árás á Alþingi, æsingar til óeirða, grjótkast,
ofbeldi við lögregiuna, skítkast og uppvöðslu
Hlutlaus lýsing áém-
stólunnu ú ntburSun-
im ufhsúpur Mekk-
ingur kommúnistu
Eftir árás kommúnista 30. mars 1949
Framhlið Alþingishússins eftir skrílsárás kommúnista 20. mars 1949.
Úr dómsforsendum undlrrjetter
MORGUNBLAÐINU bárust í gær forsendur dó.v.a þeirra,
sem kveðnir voru upp þann 25. mars s.l. yfir mSnmun þeir:,
sem þátt tóku í árásinni á Alþingi, löggæslumenn og fric-
sama borgara þann 30. mars 1949.
í upphafi dómsforsendnanna er á hlutlausan hátt rakin
rás viðburðanna, sem gerðust þennan dag í hjarta höfte -
borgarinnar. Þar sem sú frásögn varpar skýru ljósi á þsð
ofbeldi, sem kommúnistar höfðu þarna í frammi verður hún
birt hjer áður en vikið verður nokkru nánar að afbrotum
hinna dæmdu. — í dómsforsendunum segir svo:
Firnumiklur flokks-
hreinsunir í Rúmeníu
180 feíi. kommúnisla reknar
PARÍS: — Nálega 180.000 manns hafa verið leknir úr kommún-
istaflokki Rúmeníu. Að vísu liggja engar tölur fyrir frá stjórn
landsins, er sanni þetta, en þetta mun samt öruggt. Svo er mál
þetta með vexti, að formælandi rúmenska ræðismannsins í
París hefir skýrt svo frá, að í Verkamannaflokknum hafi verið
um milljón manna fyrir 2 árum síðan, er hann varð til fyrir
sambræðslu kommúnista og sósíalista.
18 afhundraði reknir
Alexandru Moghicrosh, rit-
ari miðstjórnar Verkamanna-
flokksins (kommúnista) skýrði
frá því í seinasta eintaki aðal-
tímarits flokksins, sem gefið
er út í Búkarest, að 18% flokks
fjelaganna hefði verið reknir.
Talið er, að hreinsun þessi hafi
byrjað í haust, er leið.
Treysta fjöldanum ekki
Af þessu sjest, að flokkurinn
hefir beðið geysilegan hnekki.
Þessi hreinsun á vafalaust ræt-
ur sínar að rckja til þess, að
leiðtogarnir í Moskvu treysta
ekki allskostar löghiýðni og
samhug fjöidans.
Cambridge vaitn
LONDON, 1. apríl — í dag fór
fram róðrarkeppni milli Oxford
og Cambridge, en keppni þessi
þykir jafnan mikill viðburður
í Bretlandi.
Að þessu sinni vann Cam-
bridge-háskólinn og hefir hann
þá unnið 52 sinnum alls. Ox-
ford hefir unnið keppnina 43
sinnum. — Reuter.
3900 drepn-
ir í innrás
SAN FRANCISCO 1. apríl —
í kinversku útvarpi, sem hjer
heyrðist til í dag, sagði frá því,
að kínverskir kommúnistar hafi
gert enn eina tilraun til inn-
rásar á eyna Hainan, en hún
hefði farið út um þúfur.
í útvarpinu sagði, að 30 skút-
um kommúnista hefði verið
sökkt og 3000 hermenn hefðu
verið dreppnir. Leifar innrás-
arflotans flýðu norður á bóg-
inn, og veittu fallbyssubátar
þjciðernissinna þeim eftirför.
—Reuter.
Fimm menn falla
SINGAPORE, 31. mai's. — Komm
únistiskir ofbeldismenn sátu í
morgun í launsátri fyrir nokkrum
lögreglumönnum á austurhluta
Malakkaskaga. Fjellu þar fimm
af lögreglumönnunum.
Sprenging í Verona
VERONA, 1. apríl — Hin forna
borg Verona skalf á grunni í
kvöld, þegar yfir 400 gashylki
sprungu þar. Brotin þeyttust
mörg þúsund metra frá verk-
smiðju þeirri, sem sprengingin
varð í. Eldur, sem gaus upp,
var kæfður eftir 2 tíma. Engan
mann sakaði. — Reuter.
Árás á ofbeldismennina
LONDON, 1. apríl — Allmarg-
ar flugvjelar úr breska flug-
hernum gerði í dag þriggja
stunda árás á stöðvar ofbeldis-
manna á Malakkaskaga. Er
þetta mesta árás, sem gerð hef-
ir verið á ofbeldismenn komm-
únista hingað til. — Reuter.
Tillagan um þátttöku íslands
í Atlantshafsbandalaginu.
Hinn 28. mars 1949 bar ríkis
stjórnin fram á Alþingi svohljóð
andi þingsályktunartillögu:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gerast stofnaðili
fyrir íslands hönd að Norður-
Atlantshafssamningi þeim, sem
fulltrúar Bandaríkjanna, Belgíu
Frakklands, Hollands, Kanada,
Luxembui'g og Noregs hafa orð-
ið ásáttir um og prentaður er
sem fylgiskjal með ályktun
þessari.“ Áður en tillaga þessi
kom fram hafði mikið verði um
það rætt og ritað hvort ísland
skyldi gerast stofnaðili að samn
ingi þessum. Skoðanir um það
voru skiftar og risu um þetta
illvígar deilur í blöðum og á
mannf-undum. Hjer í bæ voru
blöðin yfirleitt fylgjandi aðild
íslands að samningnum, nema
Þjóðviljinn og Þjóðvörn, sem
beittu sjer mjög gegn henni. Á
Alþingi voru tvær umræður um
tillöguna, hin fyrri þriðjudag-
inn 29. mars kl. 10—21.35, en
hin síðari miðvikudaginn 30.
mars kl. 10—14.30. Að lokinni
siðari umræðu var tillagan sam-
þykkt með 37 atkvæðum gegn
13 og afgreidd sem ályktun Al-
þingis.
Lögreglan viðbúin til þess
að halda uppi fviði og reglii.
Vegna þess, hve ófrdðlega var
látið gegn málinu og þeim, sem
vitað var að því fylgdu á Al-
þingi, var öllu lögregluliði bæj-
arins boðið út báða umræðu-
dagana til að halda uppi friði
og reglu við Alþingishúsið
meðan umræðurnar færu fram.
Fyrri umræðudaginn urðu eng-
ar óeirðir fyr en um kvöldið
þegar dimmt var orðið. Um-
ræðum var þá slitið og at-
kvæðagreiðslu lokið og þing-
menn yfirleitt farnir úr fundar-
sal neðri deildar þegar grjót-
kastið hófst á þinghúsið utan af
Austurvelli og linnti því ekki
fyr en brotnar höfðu verið 11
rúður í gluggum fundarsals
neðri deildar og 3 rúður í aðal-
inngangi hússins. Fjellu við
þetta bæði glerbrot og steinar
inn í þingsalinn. — Lögreglan.
reyndi að sefa óspektalýðinn og
fjarlægði hann frá húsinu út á
Austurvöll. Fjell þá grjótkastið
niður, en vegna myrkurs og
\
mannfjölda gat iögrcglan ekki
sjeð hverjir köstuðu grjótinu
nje hverjir æstu til þeirra verka
enda virtist grjótkastið koma
nokkuð að baki mannfjöldan-
um. Að loknum fundi hjeldu al-
þingismenn heim óáreittir að
því undanteknu að gerður var
aðsúgur að utanríkisráðherra og
formanni Sjálfstæðisflokksins
þegar þeir gengu frá þinghús-
inu að Sjálístæðishúsinu við
Austurvöll.
Lögreglan verndaði för þeirra
svo þeir k.omust inn í Sjálí-
stæðishúsið. Óspektalýðurinn.
hóf þá grjótkast á Sjálfstæðis-
húsið og varð lögreglan þá að
dreifa honum. FJellu óspektirn-
ar þá niður þann dag. Eigi sá
lögreglan hverjir að þessum ó-
spektum stóðu og eigi hefur það
orðið upplýst með ícrum hætti.
Frh. á bls. 2