Morgunblaðið - 02.04.1950, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.04.1950, Qupperneq 5
5 t Sunnudagur 2. apríl 1950. WORGVHBLAÐIÐ ex miljónir píkgrímn væntanlegir til Róm Eftir ívar Guðmundsson. Vatikanborg í mars. BUIST er við því, að minsta Ikosti sex miljónir kaþólskra pílagríma komi til Rómaborgar a þessu „heilaga ári“, auk ann- ara íerðamanna, sem koma til „Hinnar eilífu borgar“, sem al- ítnennir ferðamenn. Kaþólskir menn liafa haldið ,,heilagt ár“ á.tuttugu og fimm ára fresti, ’um nokkurra alda skeið. Eftir því, sem heimildir herma, er árið 1950, 25. „heilaga árið“. Á þessum árum koma ka- þólskir menn úr öllum löndum heims til Rómaborgar, til að öðlast fyrirgefningu synda sinna, í lifandi lífi. Og það er tiltölulega auðvelt að öðlast fyrirgefninguna. Menn þurfa að koma til Rómaborgar á heil- ögu ári. Sækja fjórar ákveðnar kirkjur, þar á meðal fyrst og íremst Pjeturskirkjuna, lesa fyrir fram ákveðnar og prent- aðar bænir, og játa syndir sínar íyrir presti. 20.000 pílagrímar á viku. Undanfarnar vikur hafa 20 þusund pílagrímar komið til Rómaborgar vikulega. A göt- tinum í Rómaborg eru prestar og munkar, nunnúr og óbrotið sveitaíolk, ásamt valdamönnum í andlegu og veraldlegu lífi. — tíkáeygSir Japanar og Kínverj- &r, kolsvartir Afríkubúar og ijóshærðar nunnur frá Norður- iöndum, knjekrúpa við gröf St. Pjeturs og’ kyssa tána á eirlík- íieski hans. Gistihúsin í Róm eru yfirfull. En sjerstakar verslanir hafa verið opnaðar, sem selja ekkert tmnað en minjagripi. Flestir leiðsögumenn ferðamanna eru þegar orðnir feitir og pattara- iegír og húsaleigan fer síhækk- öndi á svarta markaðnum í Róm. Tekjur Vatikansins marg- íaldast á þessu ári, sökum auk- ínnar frímerkjasölu og aðgangs eyris að söfnun Páfagarðs. En gjafír og lausnareyrir bætast f)fan á. í öllum hugsanleg- um farartækjum. Pilagrímar koma nú í fyrsta Bkifti til hátíðahalda „heilaga ýrsins í flugvjelum. Fyrr á öld- um komu flestir gangandi og Bjúkir menn voru bornir á bak- ínu landa á milli, til að hljóta folessun páfans í Róm. Öll íarartæki eru full, sem íil Róm koma, skip. flugvjelar, jjárnbrautarlestir og áætlunar- bílar. Aðrir koma í einkabíl- lim og enn þann dag í dag koma jafnvel margir pílagrím- ©r fótgangandi frá fjarlægustu löndum. Kaþólskur prestur, sem býr Við landamæri Frakklands, í Pyrenneafjöllum kom til Róma borgar á dögunum á reiðhjóli. Hann haíði farið leiðina í 37 áföngum. Næstu daga er vænfanleg til Róm kona nokkur, ríðandi ein- liesta f'rá Þýskalandi. Búist er ví.3 að um páskana Verði aösireymi pílagríma til borgannnar hvað mest. Er von- laUst að a’lir aðkomumenn fái jþá inni. En það verður þá ekki I íyrsiu skifti í sögu kaþólsku Þeir iá iyrirgeiningu synda kirkjunnar, sem pílagrimar eru’ húsnæðislausir í Róm á heilögu ári; jafnvel pestir og hallærij aftraði ekki kaþólskum píla- j grímum frá að fara til Róm á; fyrri öldum. Hægt að skrifa á öllum heimstung- unum. Víða um Pjeturskirkjuna eru skriftastólar, þar sem píla- grímar geta Ijett af hjarta sínu öllu, er þeir hafa misjafnt gert. A þessa skriftastóla er letrað eins .og í minjagripaverslunum nútímans í öllum heimsþorg- um: „English spoken“, — „On. parle francaise“ og „Man spricht Deutsch“. Það er hægt að játa syndir sínai á öllum heimsins tungum. En hver skriftafaðir hefur langt prik, til að bægja þeim forvitnu á brott, Pjeturskirkjan í Róm. sem kunna að verða of nær- göngulir. Við gröf St. Pjeturs er jafn- an þröng. Þeim, sem þangað koma til að biðja um fyrirgefn- ingu synda sinna, verður sjald- an orðfátt. Þeir geta keypt hin- ar fyrirskipuðu bænir í næstu búð við Pjeturstorgið, áður en þeir fara inn í kirkjuna. Daglega koma í kirkjuna hóp ar pílagríma, sem hafa sam- mælst í pílagrímsferð. Eru þeir þá jafnan undir leiðsögn síns eigin sóknarprests. Þessir hópar ganga um kirkjuna með fána og krossa, syngjandi sálma, en prsturinn segir fram latneskar bænir, er hlje verður á sálma- söngnum. Aðrir koma í kirkiuna til þess eins að skoða hin dásamlegu listaverk, sem þar er að sjá, og snerta hvorki vígða vatnið nje eirfót Sánkti Pjeturs. — En slíkir ferðalangar eru í greini- legum minnihluta. Tuttugu og átta stórhátíðar á árinu. Píus páfi tilkynnti, að hið Heilaga ár væri hafið, á að- fangadag jóla s.l. Með . mikilli viðhöfn opnaði hann „hinar helgu dj-r“ Pjeturskirkjunnar, sem aldrei eru opnar nema á heilögum árum. Páfinn barði að dyrum með gullhamri, með fíla- beinsskafti, og mælti: „Opnið dyr rjett.lætisins“. Múrarar höfðu áður gengið frá því, að hægt. væri að opna dyrnar auðveldlega. En að þessu heilaga ári loknu, verður aftur múrað í dyrnar og þær ekki opnaðar fyrr en eftir 25 ár. Það er að.sjálfsögðii takmark hvers einasta pílagríms, að ganga inn í Pjeturskirkjuna.um þessar heilögu dyr. Þegar páfi.opnaði hinar heil- ögu dyr Pjeturskirkjunnar á jólunum í fyrra tilkynti hann, að þetta ár skyldi verða ,,ár hinnar miklu endurreisnar og stóru fyrirgefninga“. „Aldrei fyrr hefur verið brýnni þörf, °n einmitt á þessu ári, að endurreisa trúna á kirkj una og guðspjöllin", mælti páfi við sama tækifæri. Það má segja, að meðal kaþ- ólskra pílagríma sje hátíð á hverjum degi allt árið. En til- kynnt hefur verið, að alls verði sjerstakar 28 stórhátíðar í Róm á þessu ári. LÍKNESKI Sankti Pjeturs í Pjeturskirkjunni. — Pílagrímar og aðrir kaþólskir kirkjugestir kyssa á tána, sem stendur fram af íótstallinum, og strjúka venjulega með erminni um fótinn á eftir. Nýir dvrðlingar. Ákveðið hefur verið, að tekn- ar verði rúmlega 20 trúarhetjur kaþólskra í dýrðlingatölu á þessu ári og auk þess verða margir af stríðsmönnum kaþ- ólskrar trúar blessaðir sjerstak lega og teknir í einskonar hálf- dýrðlingatölu. Þeir, sem minnast þess heima á íslandi, að 400 ár verða liðin á hausti komanda, frá því er Jón Arason, Hólabiskup, var hálshöggvinn fyrir trú sína, gætu ef til vill látið sjer detta i hug, að tími væri til kominn til að taka hann í dýrðlinga tölu. En Jón taiskup er ekki a dýrðlingaskrá þessa heilaga árs. Erfitt ár fyrir páfa. Hiti og þungi þessa heilaga árs kemur einna þyngst niður á páfa sjálfum. En páfarnir hafa ekki til þessa talið eftir sjer þá erfiðleika. sem að- streymi hinna kaþólsku pila- gríma leggur þeim á herðar og það væri heldur ekki líkt þeim páfa, sem nú situr í sæti St. Pjeturs, að draga af sjer í störf- um sínum fvrir kirkjuna. Leó páfi XIII. var 90 ára, er hann fyrirskipaði heilgt ár ár- íð 1900. En samt heimtaði hann að blessa hvern einasta pílagrím. sem til Róm kom. Að sjálfsögðu gerði hann ekki krossmark yfir hverjum einum, því páfar geta blessað heila hópa í einu. jaín vel nokkur þúsund manns, svo að dugi. Þrír páfar b.afa látist á meðan á heilögu ári hefur staðið: •—• Úrban VI. 1390, en það var 3. heilaga árið. Innocent XII., áríð 1700, en þá var 16. heilaga árið og loks Clement XII., en þá var 19. heilaga árið. Þeir, sem kunnugastir eru Píusi XII., hafa látið í ljós ótta við að áreynslan geti orðið hon- um um megn, vegna heilsu hans. En ekki sjást nein elli-, eða þreytumörk á páfa enn þá, þrátt.fyrir óvenju miklar annir. „Aldrei var* svo dimmt . . .‘ Sögufróðir menn benda á, að oft hafi verið dimmt yfir veldi kaþólsku kirkjunnar, þegar haldin hafa verið heilög ár. — Oftast hefur ófriður geisað ein- hversstaðar í heiminum. Árið 1525, á 9. heilaga árinu, voru kenningar Marteins Lút- ers að ryðja sjer braut í Ev- rópu og ógnuðu veldi kaþólsku kirkjunnar. I dag eru prestar kirkjunnar, bæði kaþólskir og annara trúarbragða, ofsóttir austan járntjalds. Daglega ber- ast fregnir að austan af átök- um kommúnista og kirkjunnar manna. Sendiherra Páíarikisins í Prag er sendur heim og prest- ar fangelsaðir. Mörgum eru í fersku minni rjettarofsóknir gegn Mitzenty kardínáia í Ung- verjalandi og fleiri kirkjuhöfð- ingjum. En miljónir streyma til Róm. ár, eins og þær hafa gert á undanförnum öldum. — Og hverja afstöðu, sem menn ar.n- ars hafa á káþölsku kirkjunni, þá. geta þeir ekki annað en við- urkennt, að hún er voldug og sterk. Þær 400.000 000. er lúta páfanum í Róm í trúarlegum efnum, er hópur, sem kemur til greina, þegar valdahlutföllin eru metin í heiminum. RjettaiMldln í Tjekkóslóvakíu PRAG, 1. apríl: — Rjettarhöld unum yfir þeim 10 kaþólsku kirkjunnar mönnum í Tjekkó- slóvakíu, sem hófust í gær, hjelt áfram í dag. Hafa nú 7 sakborninganna „játað“. Hafa sumir., játað á sig landráð og' njósnir, en 2 hafa ekki játaS öllu því sem kommúnistar ætl- uðu þeim að gangast við. Þrír hafa þrjóskast við og meðganga. ekki. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.