Morgunblaðið - 02.04.1950, Síða 11

Morgunblaðið - 02.04.1950, Síða 11
Sunnudagur 2. apríl 1950. MORGVJSBLAÐIÐ 11 Hjalti Lýðsson fimmtugur FYRIR tuttugu og átta árum fluttist til Reykjavíkur unglingur austan úr RangárvaRasýslu. — Fjármunir hans komust fyrir í buddu, er hann bar á sjer. „Mjór er mikils vísir“, og hvergi voru þá meiri möguleikar til frama en í höfuðstaðnum. En nú tókst svo illa til, að buddunni með fjársjóðnum var — stolið. Hann hafði, sem betur fer, ann- an arf þegið úr föðurhúsum, sem ekki verður metinn til fjár. Kom það brátt í ljós. Hann vann hjá sama manni í nokkur ár, af trúmennsku, ósjerhlífni og frá- bærum dugnaði. Þeir eíginleikar einkenndu störf hans, er hann hóf sjálfstæðan atvinnurekstur. Telst hann nú til dugmestu og forsjálustu kaupsýslumanna Reykjavíkur. Þessa ævintýris minnast í dag ættingjar og vinir Hjalta Lýðs- sonar frá Hjallanesi. Hann er nefnilega barn hinnar nýju ald- ar, fæddur 2. apríl árið 1900, lif- andi vottur þeirra miklu umbreyt inga, er orðið hafa á liðnum fimmtíu árum. Foreldrar Hjalta voru heiðurs- hjónin, Lýður Árnason og kona hans, Sigríður Sigurðardóttir. •— Bjuggu þau á fjórða tug ára að Hjallanesi á Landi og komu unp tólf mannvænlegurh börnum, tíu sonum og tveimur dætrum. Hjalti Lýðsson fluttist til Reykjavíkur 1916, þá sextán ára gamall. Rjeði hann sig hjá Emil Rockstað, útgerðarmanni og bónda að Bjarmalandi, og vann hjá honum nokkur ár. — Var þar í nógu að snúast og ekki hlífði Hjalti sjer. En mjög er honum hlýtt til sinna gömlu hús- bænda, Rockstaðs og frú Jó- hönnu. Hann komst á þeim árum í kynni við ungan Norðmann, er dvaldi nokkur ár hjer á landi. Mun hann hafa sjeð hvað í Hjalta bjó og gerðist því hvata- ínaður þess að hann sigldi og kynnti sjer niðursuðu og reyk- íngu síldar. Fyrstu framkvæmd- Irnar hófu þeir fjelagar í litlum skúr, byrjuðu í smáum stíl und- Ir afar erfiðum kringumstæðum. Hjalta tókst, með dugnaði og hagsýni, að bæta smám saman Við húsakynni, tæki og verkefni, fevo að úr þessu varð arðbært íyrirtæki, Reykhúsið á Grettis- götu 50. Það fullnægði þó ekki starfs- löngun og metnaði Hjalta Lýðs- feonar. Byggði hann fáum árum feíðar stórhýsi á horni Baróns- fetígs og Grettisgötu og setti upp kjötverslun. Rak hann í allmörg ár fjórar verslanir hjer í bæn- um. Hialti er kvæntur norskri konu. Hefir hún reynst honum ágætur lífsförunautur og góð stoð í úmsvifamiklu starfi. Eiga hau hjón þrjú börn uppkomin. Verður gestkvæmt í dag á hinu fallega heimili Hjalta og frú Elvira, að Snorrabraut 67. Þar hafa margir notið góðrar gest- risni áður. Vinir og ættingjar senda þeim í dag hlýjar kveðjur. Trúfastur og hjálpsamur hefir hann reynst okkur, sem vináttu hans höfum notið. Góðum málefnum hefir hann reynst fórnfús stuðnings- maður. Hann hefir, eins og kunnugt er, notið óvenjulega mikils trausts — að verðskuld- uðu. Velgengni sína þakkar Hjalti Lýðsson algerlega náðarsamlegri handleiðslu Guðs, er hann telur sig hafa notið allt frá æskuárum. Er það einlæg ósk vina h,ans, á þessum tímamótum ævinnar, að hann megi verða þeirrar bless- unar aðnjótandi allt til æviloka. Vinur. | B ■ 11 [ : til sölu, amerískur 6 manna bíll. É 1 model 1941. Til sýnis á mánu- = | dag á planinu við Aðalstræti 2. ! Herbergi með innbyggðum skápum til leigu á Melunum. Uppl. í síma 80553 eftir kl. 1 i dag. Rxnc» Verðbrjef óskast Allt að 100.000 kr. í veðdeildarbrjefum Landsbankans eða öðrum opinberum verðbrjefum, óskast til kaups. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir miðvikudagskvöld í umslagi merkt: „Verðbrjef“ — 0610. Takið eftir Framhaldsskólar Reykjavíkur efna til Söngmóts í Gamla bíó mánudaginn 3. apríl kl. 7 e. h. Miðar eru seldir í Ritfangaversl. ísafoldar, Banka- stræti og í Bókaversl. Isafoldar, Austurstræti. Sjáið útstillingar í gluggunum. Vöruhappdrætti Síðustu dagana fyrir drátt verða umhoð happdrættisins í Reykjavík og Hafnarfirði opin eins og hjer segir: Umboðið í Austurstræti 9: Grettisgata 26: Máanagata 3: Barmahlíð 42: Bókabúð Laugarness: Bókaversl. Sigv. Þorsteinssonar, Efstasundi 28: Nesveg 51: Bókabúð Vesturbæjar, Ránargötu 50: Bókaversl. B. Sigurðssonar, Hafnarfirði: í allan dag, til kl. 10 að kvöldi. Mánudag og þiúðjudag til 12 á miðnætti. í allan dag, til kl. 10 að kvöldi. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Til klukkan 5 í dag. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Til klukkan 8 í kvöld, Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. í allan dag til klukkan 8 að kvöldi. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. í dag milli klukkan 3—6. Mánudag og þriðjudag til kl. 10 að kvöldi. Gbymið ekki að endurnýja! Öllum ágóða af happdrættinu er varið til nýbygginga að Reykjalundi. Sfýðjum sjúka til sjálfsbjargar. 2 ~ i-, 2. hefti. 1. árgangs er komið út. Draumaráðningar — flugsíða — danslagatextar — húsmæðrasiða — tískusíða — tónlistarsíða — kvikmyndasíða — íþróttasíða (viðtal við Þórdísi Árnadóttur, ásamt mylid — Skák tefld af Lárusi Johnsen og Friðrik Ólafssyni — Bridgesíða — Kross- gáta. Sögurnar: Óvæntir fagnafundir — Slungin kona — Sönn reykvísk gleðisaga — Ef vel er að gáð — Eiturblandan — Framhalds.sagan — Syndir feðranna (Kvikmyndin verður sýnd í Austurbæjarbíó). Til umræðu: Tvíburar eru merkilegt ra nnsóknarefni — Elskar þú hann? (próf- raun fyrir stúlkur) — Brjef frá Napóleon mikla til Jósefínu — Myndasagan Daníel Boone kistulokinu — Spakmæli — Skr ítlur o. fl. Takið ,,ALLT“ með í páskaieyfið og þá 1 eiðist yður ekki. Kostar aðeins 5 krónur. Ibúð til leigv 1—2 herbergi og eldhús til leigu í kjallara til 1. okt. Uppl. í Karfa vog 29, eftir kl. 1 mánudaginn 3. april. Vjelar til sölu Litil hjólsögu og borvjel til sölu. : Borvjel sjerstaklega fyrir járn. | Skipti á annarri fyrir trje æski- j leg. Til sýms i Sörlaskjóli 36 : frá kl. 5—7. : MIUIIMMMtMURU •■lUiHHuttlllMii'Wwn Næturakstursslmi B.S.R. er 17 20 ■ ■ ■» ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■■■■■■■■l«MM >.Mui>nnm Veilingaskáli m m Vil taka á leigu í sumar veitingaskála. Tilboð um á ■ v verð og aðrar upplýsingar leggist inn á afgreiðslu » blaðsins merkt: ,.Veitingaskáli". Z Grásieppuhrogn Kaupi hreinsuð, Ijertsöltuð grásleppuhrogn í 50 kg. | tunnum, hvar sem er á landinu. Get lagt tunnur til. Upplýsingar í, síma 2586. SÆMUNDUR ÞÓRÐARSON.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.