Morgunblaðið - 02.04.1950, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.04.1950, Blaðsíða 12
12 MORGL /V BL 4ÐIB Sunnudagur 2. apnl 1950. Hlýðið umferðarreglimum AÐALATRIÐIÐ: Ekki hlaupa skyndilega út á götuna. S. V. F. í. — Reykjovíkurbrjef Framhald af blaðsíðu 9. urt veður af þéssari algerðu kúvendingu sinni. Svo þeir þorðu ekki fyrir sitt litla líf, að segja stakt orð um húsbónda si^n eða eiganda, fyrri en skila boð komu að áustan um það, hvað þeir ættu eða mættu segja. Nú er það vitað, að mikil sendistöð er skammt frá Moskvu sem sinnir því hlut- verki, að hafa daglegt loft- skeytasamband við leynistöðv- ar Fimmtuherdeiídanna víðs- vegar út urn lönd. Svo nú geta stjórnendur liðssveita kommún ista á vesturlöndum haft beint •samband við alla liðsmenn ^sína, hvar í lýðræðislöndum vsem er, og á hvaða augnabliki K.sem er. Nú geta þeir haldið áróðursvjelum sínum gang- .andi viðstöðulaust með beinu ,sambandi \íð „fósturjörðina“. Mönnum kann að detta í hug að hin mikla leynd, sem er yf- ir því, hvaðan Þjóðviljinn fær frjettir sínar, kunni að stafa af því, að kommúnistum þykir viðfeldara að.hafa ekki orð á því, hvaðan frjettirnar koma. Miðstöðv- | arketill h Miðstöðvarkuttill til sölu. 2,8 | ; ferm. að stærð. Uppl. í síxna ; 9666. ■BBBIUIUIIIIIIIIfimUIIIIIIIMIIIIIIIIIHUIHIIMHIIHIPk- WUnjHllinilHIHIimiHIVUHHIIHIIIIIItllllllllllllHIHIHH f,- | Eggert Claessen Gústaf A. Sveinsson 1 hæstarj eUarlögmen.1. Oddfellosiiásið. Sími 1171 - f Allskonar lögfræðistörf l (II IfllllllllllllllMI MXHII.IIIIIIII IIII lllllll IIIII11'11111111111111 Söngmóf framhalds- skóla Reykjavíkur í DAG ki. 7 verður haldin söng skemmtun í Gamla-Bíó, þar sem fram koma kórar úr ýms- um framhaldsskólum Reykja- víkur. Þetta er í fyrsta sinn, er slík söngskemmtun er haldin á þessum vetri, en í fyrra var haft eitt slíkt mót. Tilgangurinn með þessum mótum er að efla fjelagslíf á milli skóla og auka áhuga á söng innan þeirra. Hafa þau mikla þýðingu fyrir skólalíf, og æskilegt, að sem flestir skól ar tækju þátt í þeim. Ekki er ætlast til, að á þessa söngskemmtun verði litið sem kappsöng, því að slíkt gæti ekki þróast í skólafjelagslifi, og má ekki krefjast fullkomins söngs af skólakórum, er hafa takmarkaðan tíma til söngæf- inga, Kórarnir, sem koma fram á söngmótinu, eru þessir: Kór Kennaraskólans, blandaður kór stjórnandi Guðmundur Matt- híasson. Kór Gagnfræðaskóla Austurbæjar, kvennakór, stjórn andi Helgi Þorláksson. Kór Menntaskólans, blandaður kór, stjórnandi Hjörtur Halldórsson. Kór Kvennaskólans, stjórnandi Ragnar Björnsson, og Kór Iðn- skólans, karlakór, stjórnandi Jón ísleifsson. Þjéðverjum hefir nú borist hoðið STRASSBURG, 1. ápríl — Fundi utanríkisráðherranefnd- ar Evrópuráðsins lauk í Strass- burg í dag. Kemur hún næst saman í Lundúnum í maí í vor. Hefir hún nú sent brjef til Bonn, þar sem V -Þýskalandi er boðið að gerast aukaaðili ráðsins, þ. e. megi sitja fundi ráðgjafaþingsins. Sams konar brjefi tók franski utanríkisráð- herrann við fyrir hönd Saar- hjeraðsins. Gert mun ráð fyrir, að V.- Þýskaland sendi 18 fulltrúa á þingið eins og Bretland, Frakk- land og Ítalía, en Saar sendi 3 fulltrúa eins og ísland. Shaw var knár hjélreiðamaður LONDON Breski leikrita- höfundurinn, George Bernard Shaw, hefir enn mikinn áhuga á hjólreiðum, enda þótt hann sje nú orðinn 93 ára. Þar til fyrir 10 árum mátti tíðum sjá rithöfundinn fara á hjóli í kringum þorpið siatt í Hert- fordskíri. Nú getur hann ekki lengur iðkað hjólreiðar, og hef- ir hann þá mesta yndi af lestri um hjólreiðar og hjólreiða- menn. Þá minnist hann liðinna daga, því að hann var einn fyrsti hjólreiðamaður Bret- lands. — Reuter. — Meðal annara orða Frh. af bls. 8 Mörgum smáþjóðum mundi verða kostnaður, sem af því leiddi, alveg ofviða, auk þess sem það mundi óhjákvæmilega valda því, að þjóðirnar teldu sig ekki geta látið aðra en skussa sækja þingið. Enginn getur verið svo lengi án sinna hæfustu manna. Rakarasveinar og meisfarar semja ÞANN 30. mars s. 1. var und- irritaður nýr kaup- og kjara- samningur milli Rakarasveina- fjelags Reykjavíkur og Rakara meistarafjelags Reykjavíkur. Samkvæmt hinum nýja samn- ingi hækkar grunnkaup sveina úr kr. 173,00 í kr. 190,00 á viku. Þá varð sú breyting enn- fremur á samningnum, að eftir- leiðis skal rakarastofum lokað kl. 12 á hádegi á Iaugardögum frá 1. maí til 30. sept., í stað 15. maí til 30. sept. Samningurinn gildir til 1. júlí n. k. og er uppsagnarfrest- ur einn mánuður. Rakarasveinafjelagið hafði boðað vinnustóðvun frá og með 1. apríl n. k., en til hennar kem ur ekki þar eð samningar hafa tekist milli aðilja. Námskeið um starf- semi Sameinuðu þjéðama DAGANA 26. júní til 18. ágúst verður haldið námskeið í New York um starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annað námskeið í Genf dagana 10. júlí til 1. sept- ember. Námskeiðin eru einkum ætl- uð háskólanemum á síðasta námsári, eða þeim, er lokið hafa háskólaprófi á árinu 1950, en einnig koma embættismenn til greina. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20 til 30 ára. Umsóknarfrestur er til 5. maí. Utanríkisráðuneytið veitir nánari upplýsingar. (Frá utanr'kisráðuneytinu). Hjálparbeiðni Góðir Reykvíkingar! ENN er komið að dyrum hjá ykkur til þess að leggja góðu málefni lið. Það er fjölskyldufaðir í einu af braggahverfum bæjarins, sem hefir verið heilsulaus að mestu í 3 ár. Hann hefir konu og 2 börn á framfæri, og er af- koman eins og að líkindum læt- ur afar slæm. Þeir, sem vildu leggja þess- um hjónum lið, mundu með því vinna mikið kærleiksverk. Morgunblaðið veitir gjöfum móttöku. Presfurinn málfi ekki vinna í koianámunni NOTTINGHAM — Þrítugur klerkur með gleraugu tók upp á því hjer á dögunum að vinna í námunum i Nottinghamsríki til að kynna sjer líf venjulegra verkamanna í námuhjeruðun- um. „Kirkjan er að verða ganial dags og miðar starf hennar að því að skilja trúna frá daglegu lífi“. Hann mokaði nú þarna kolum í 3 daga, í 7 til 8 tíma i einu og ætlaði að halda því áfram að minnsta kosti í heila viku. En eftir 3 daga stöðvuðu yfir- völdin hann. Enda þótt hann mætti fara niður í námurnar sem „gestur“ þá fyrirmunuðu reglurnar honum að nota skóflu þar eð hann hefði ekki hlotið neina undirstöðu þjálfun í starf inu. — Reuter. ltllllllllllllMMIMIIMIMMIMIMIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIHIIIIItllllllHIHIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIHIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIIIIUIHIIIIIIIIIIIilllHimnillHHIIIIIMVr'i:iMM(MIMIIIMIMIIMIIIIIIMIIIIIimmnnimilll«niaiU1iCtlHHIIHHHIHIIIIIflfllinnilllllllffl|rifi Markús & á* & <L Eftir Ed Dodd I ^JIIIM 111111111111111111111111111111111111111111111111 IIMMMIHIIHIintHIHIIMIIIHIIIIHIMMHMMIIIMMMMMMIIHIH? — Þessi Eirrí or ekkert ann- íið en fláráð tæfa. — Hún { ykist vera hrekk- laus, óspillt sveitastúlka, en það er ekert nema látalæti og upp- gerð. —Hún var svo spillt, að hún taldi Markús, kærasta sinn, á að fara í margskonar ástarævin týri með mjer og svo ætlar þú að styrkja þetta fólk með fje- gjöfum. — Jeg er tilbúinn til að fara undir eins burt úr þessu svika- bæli. — Jæja, við förum hið bráð- asta. Géðar gæftir en mis- jafn afli á Hornafirðl HÖFN í Hornafirði, 1. apríl — A Hornafirði hafa gæftir ver- ið góðar í marsmánuði og hafa þeir bátar, sem flesta hafa róðra róið 21 dag. Framan af mánuðinum var afli góður og nokkuð jafn, en. síðari hluta mánaðarins hefir aftur á móti verið mjög mis- jafn afli. Alls hafa bátarnir sjö aflað' í mánuðinum.1592 skpt., en frá áramótum er samanlagður aflí, þeirra 3113 skpt. af slægðum. og hausuðum fiski. Fer hjer á eftir afli bátanna. Fremri talan er fyrir mars, er. sú síðari heildartala frá ára- mótum: Guðbjörg 228 — 582, Gissui Hvíti 290 — 517, Auðbjörg 273 — 482, Hafþór 218 — 426, Brynjar 227 — 384, Þristur 17i — 370, Hrollaugur 181 — 352 Allur aflinn hefir verið salt- aður. Loðnuveiði hefir verit stopul, og veldur það roiklu um hve aflinn er misjafn. Lygamælar og sannleikslyf LONDON — Fundur Alþjóöú- lögfræðignafjelagsins verðc r haldinn í Lundúnum í júlí í sumar. Þekktir lögfræðing^r hvaðanæfa að úr heiminuin munu sækja hann. Þar vert. ur fjallað um lyf, sem fá mem, ai að segja satt (sannleikslyt, og tæki, sem ljóstra upp um iyg- ara (lygamæla). M. a. mun fundurinn fá þessi viðfangsefni til úrlausnar: A vitnisburður, sem fengínn er með þessum tækjum, að jafngilda framburði fyrir rjetti? Hvort á saksóknarinn eða rjetturinn að fara fram á uotk- un sannleikslyfja eða lyga: .iæ'ia hverju sinni? Hve mikið af þeim íiam- burði, sem fæst með þe: ,um tækjum, á að birta rjettínum? Eiga lögfræðingar að fylgj- ást með skjólstæðingum un- um, meðan tækjum þessum. er við þá beitt, til að ganga , skugga um, að farið sje að. lög um? Ber að setja alþjóðareglur þar sem tiltekið er um lágmarks- kröfur um meðferð fanga? —Reuter. ðánægHir með sjón- leikinn LONDON — Sjónvarpsleikur- inn „Menn myrkursins“. hefii komið mörgum Bretanum úi jafnvægi. Útvarpinu hafa bor- ist fjölmargar kvartanir vegna þessa „skelfilega“ leiks. Kvöld- ið, sem hann var sýndur, bár- ust þegar 56 mótmreli. Leik þessum var snúið úr frönsku, og fjallar um and- spyrnuhreyfinguna þar í landí á styrjaldarárunum. A einum stað sjást 2 menn, þar sem þeir bíða aftökunnar eftir að þeir hafa verið pyndaðir, annar er blindur, en blóðið lagar úr höfði hins. Þeir, sem undan sjónleiknum kvarta, segja, að ekki hafi verið varað við, að leikurinn væri óhæfur fvrir börn. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.