Morgunblaðið - 06.01.1952, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.01.1952, Blaðsíða 1
16 síðiar 39. árgangur. 4. tbl. — Sunnudagur 6. janúar 1952. Prentsmiðja Morgunblaðsins. Flying Enlerprise á Aflantshafi Sigraðist 6 náftímöílunum með hurðiengi og úræði - uleinu €hiu,3,c2iill mað blaðamönnum NEW YORK, 5. ian. — Churc- hill forsætisráðherra ræddi við blaðamenn þegar eftir komuna til New York og varaði hann brezku og bandarísku þjóðirnar við því, að búast við miklum og óvæntum ákvörðunum og niðurstöðum af fundi þeirra Trumans forseta. Hann kvaðst vænta náins og gagn- kvæms skilnings milli sín og Tru- mans. Síðdegis í dag var tilkynnt, að Churchill væri kominn til Wash- ington. ■—Reuter. Mynd þessi er tekin er Carlsen skinstjóri var orðinn einn um borð i „Fiying Enterprise“. Þrautseigja hans hefur vakið heimsathygli. pll 09 ¥ið sumninguborðið KOMNÚNiSTAR ÁSAKA BANDARÍKIN Lársa Endverjm NÝJU DELHI, 5. jan. — Nehru, i forsætisráðherra Indlands og sendiherra Bandaríkjanna í Nýju | Delhi hafa undirritað samning, > þar sem Bandaríkin lána Ind- verjum 50 .milljón dali íil að auka matvæ'iaframleiðslu lands ins. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. PANMUNJOM, 5. jan. — Orðahnippingar og illyrði settu svip sinn á viðræðurnar í Panmunjom í dag. Fulltrúi kínverskra kommún- ista lýsti því yfir, að bandarískar sprengjuflugvélar hefðu gert lðftárásir á kínversku borgirrar Shanghai, Mukden og Tsingtao, en slík ásökun hafði áður komið fram í Peking-útvarpinu. Að sjálfsögðu urðu viðræðurnar í dag með öllu árangurslausar og mjög ófriðvænlegt var á fundunum. FÁRÁNLEGAR ÁSAKANIR ^--------------------------------- Eftir slíkar ásakanir á hend ii r Badaríkjamönnum kvað kínverski fulltrúinn svo að orði, að firrur þeirra og hroki keyrðu úr hófi fram.'! Við annað tækifæri réðst kín- verski fulltrúinn að Turner, flotaforingja, fulltrúa S. Þ. í undirnefndinni og Iýsti því yfir, að hann væri ekki full- trúi bandarísku þjóðarinnar. Fleiri stóryrði lét kínverski fulltrúinn falla og lauk fundi með því að samningamenn kölluðu hverjir aðra stiga- menn. NEITA AÐ SVARA Kommúnistar neita enn að svara málaleitan S. Þ. um tafarlaus skipti á sjúkum og særðum föng- um. Yfir Norð-Vestur-Kóreu áttu bandarískar Sabre-þrýstiloftsvél- ar í höggi við MIG-orrustuflug- vélar af rússneskri gerð og höfðu betur. . SKÆRULIBUM ÚTRÝMT Suður-Kóreumenn tilkynna, að þeir hafi fellt 214 skæruliða og handtekið 149 á sunnanverðum Kóreuskaga, undanfarna tvo daga, Herskip S. Þ. héldu upp Han-fljótið í dag og hófu ákafa fallbyssuskothríð að bækistöðv- uin kommúnista á árbakkanum og ollu gífurlegu tjóni. WASHINGTON, 5. jan.: — 300 leynilögreglumenn og aðrir aðitoðar meirn lögreglunnar í Bandaríkjun- -um vinna nú að þvi að handsama eiturlyfjasala og neytendur i alls- herjar herferð gegn þessum ófögn- uði, sem gert hefur vart vi.ð sig í mjög vaxandi mæli í Bandaríkjun- um að undanförnu. Ilafa aldrei j.afn margir lögreglumenn tekið þátt i kerfisbundinni útrýmingu eiturlyfja- nautnar þar í landi og nú. Þegar hafa yfir 500 grunaðir eitur lyfjasalar og neytendur verið hand- teknir. Margir starfsmenn iögregl- unnar hafa stófnað lifi sinu í hættu til að kom.ast í samband við glæpa- menn þessa. Eiturlyfjanautn unglinga hefur farið svo mjög i vöxt þar vestra að undanförnu. að yfirvöld töldu óhjá- kvæmilegt að gera viðtæka ti.lr.aun til að grafast fyrir rætur þessa vanda máls. — Reuter. CANBERRA: — Ástralskur vís- indamaður telur sig hafa fundið í Viktoríuríki steinrunnin spor eftir risafugla eða eðlur, sem lifðu á jörðinni fyrir 50,000 árum. Gfigork efsltsr með IVi vinning HASTINGS, 5. jan. — Hinu árlega skákmóli í Hastings lauk í dag. Júgóslafinn Glig- oric vann keppnina, hafði IV-i vinning eftir að hafa unnið Bretann Hooper í dag efiir 30 leiki. Annar varð Yanof- sky (Kanada) með 6 vinn- inga, Schmid (Þýzkalandi) 5Ý2, Barden (Bretlandi), Donner (Hollandi) og Popel (Frakklandi) hver með 414 vinning, Thomas (Bretlandi) 3Ý2, Abrahams (Bretlandi) Hooper (Bretlandi) og Gol- ombek (Bretlandi) hver með 3 vinninga. Úrslitin í síðustu umferð urðu, sem hér segir: Yonof- sky og Schmid gerðu jafn- tefli, Barden og Donner jafn- tefli, Abraham og Golombek jafntefli, Popel vann Thomas •—Reuter. „Gefstu ekki upp!" sagði kona hans í skeyti KLUKKAN NÍU í gærmorgun tókst loks að koma dráttartaug um borð í bandaríska skipið Flying Enterprise frá brezka dráttar- bátnum Turmoil, og eru skipin nú á leið til hafnar ásamt franska dráttarbátnum, sem kominn var á vettvang. Eru þeir báðir ura borð í skipinu Carlsen skipstjóri og fyrsti stýrimaður af Turmoil. Fréttamaður brezka útvarpsins fór í gær flugleiðis á vettvang og sáust báðir mennirnir á þilfari skipsins, en það hefur enn 60“ siagsíðu. Skiptast þeir á um að standa vaktir, en Carlsen var orðinn mjög svefnþurfi eins og að líkum lætur. í gær tókst að koma mat- vælum um borð í Flying Enterprise. Skipta ágóðammi BAGDAD, 5. jan. — Ráðherra- nefnd hefur nú lokið við uppkast að nýjum samningi milli olíu- félagsins í írak og ríkisstjórnar landsins. 1 samningnum er gert ráð fyrir að hagnaður olíufélags- ins skiptist til helminga milli ríkis ins og félagsins. Samningsuppkastið verður lagt fyrir þingið til staðfestingar mu- an tveggja vikna. -—Reuter. (arlsen skipstjori ^GEFSTU EKKI UPP! Skömmu áður en skipverj- urn dráttarbátsins tókst aff koma tauginni um borð í Fly- ing Entcrprise hafði Carlsen samband við bandaríska tund- urspillinn með aðstoð vararaf- geyma skipsins. Lét hann vel af sér og kvaðst staðráðinn í að dveljast í skipinu unz það væri komið í höfn eða sykki, Tundurspillirinn svaraði urr hæl með kveðju frá eiginkonu Carlsens svohljóðandi: „Gefstu ekki upp, gæfan fylgi þér“. Eigendur skipsins sendu einnig kveðjur og hvatning- arorð til hins þrautseiga Dana og Lnndúnablöðin birtu fregu ir af atburðunum undir fyr- irsögninni „Vertu-kyrr-Carl- sen“. i VEÐURSPÁ HAGSTÆÐ Síðast þegar fréttist gekk allt að óskum og var veðurspá næstu dægra ekki óhagstæð en þó var ekki búizt við að skipih næðu höfn fyrr en á þriðjudag. Skip- stjóra hafa verið búnar glæsi- legar móttökur í Falmouth og í Lundúnum verður hann heiðurs- gestur í félagsskap yfirmanna á kaupskipum brezka heimsveldis- ins. Búizt er við að tugir þús- unda manna þyrpist á vettvang til að fagna komu skipanna og meðal þeirra foreldrar skipstjór ans, sem brezka blaðið Daily Express hefur boðið til Lur.d- úna frá Danmörku til að íagna syninum. Hér birtist mynd af Kurt Carl- sen hinum einbeitta skipstjóra á „Flying Enterprise“ scm nú er á leið til lands mcð skip sitt eftir harðvítuga baráttu við suit, svefn og stórsjó. Öryggismálin rædd í gær Tillaga Rússa fær dauiar undirtekfir PARÍS, 5. jan. — Á fundi Stjórnmálanefndarinnar í dag var rætt um ályktunartillögu 11 ríkja, þar sem farið er fram á, að áætlun öryggismálanefndarinnar verði samþykkt, en hún gerir m. a. ráð fyrir, að öll ríkin hafi til taks hersveitir, sem beitt yrði gegn árásar- ríki. VILJA NEFNDINA FEIGA Rússar hafa lagt fram aðra álykt- unartillögu um að öryggismálanefnd in verði lögð niður og kalJ.aður verði 'Saman sérstakur fundur í öryggisráð inu til að fjalla um hinar uggvæn- legu horfur i heimsmálunum, ekki sízt Kóreustriðið. FULLTRÚI CHILE Ukraina, IIvita-Rússland og Pól- land hafa tekið afstöðu með rúss- á óvart, en fulltrúi Chile sem tók til máls í dag, var mjög harðorður 1 garð Rússa og lýsti andstöðu sinni við tillögur þeirra. Kvað hann feril Rússa i frið.armálunum vera með þedrn hætti, að ekki, væri ástæða til að samþykkja þessar tillögur. Vesturveldin eru og andvig því, að öryggisráðið verði kallað saman til sérstaks fundar í þessu skyni, og sagðj Acheson utanrikisráðherra í gær, að samþykkt slíkrar tillögu mundi aðeins tefja fyrir samkomu- nesku tillögunum og kom það engum lagsumleitunum i Kóreu. I íara ti! Abadan TEHERAN, 5. jan. — Mossadeq forsætisráðherra Persa, hefur nú fallizt á að tveggja manna sendinefnd Alþjóðabankans, sem dvelst í Teheran um þessar’ mundir, fái að skoða olíuhreins- unarstöðvarnar í Ahadan, og gefi síðan bankanum skýrslu um niðurstöður af athugunum sír.um. Tillögum Alþjóðabankans um að hafnar yrðu að nýju viðræð- ur um olíumálið, svaraði Mossa deq á þá lund, að þýðingarlaust væri fyrir sendinefndina að fara til Abadan, nema bankinn samþykkti að gerast málsvari Persastjórnar í olíudeilunni. —Reuter. Sagði af sér TEHERAN. — Fregnir herma, að innanríkisráðherra Persíu hafi sagt af sér. Engin skýring hefur fengizt á þessari ákvörðun ráð- herrans, en hún hefur þó verið sett í samband við stúdentaóeirð- irnar í Teheran á dögunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.