Morgunblaðið - 06.01.1952, Qupperneq 10
f 10
Sunnudagur 6. janúar 1952.
MORGVNBLAÐIÐ
.. í Þ
Lið úr 4 bæjarhlutum Rey k|a-
víkur keppa í haiuiuatfleik
UM ÞESSAR mundir, eða nánar tiltekið hinn 29. janúar, eru liðin
10 ár frá stofnun Handknattleiksráðs Reykjavíkur. — í tilefni af-
maelisins hefur stjórn ráðsins ákveðið að efna til afmœl-ismóts með
nokkuð nýstárlegu sniði. Reykjavíkurbæ hefur verið skipt í 4
hverfi, sem síðan keppa. Hverfin eru: Vesturbær (að Lækjar-
götu), Austurbær (að Snorrabraut), Hlíðar, Teigar, Holt og Tún
(að Sundlaugum), Kleppsholt, Vogar og úthverfi.
Í.IÐIX ÞEGAR VALIN
Handknattleiksráðið tiinefndi 4
menn til að velja í liðin i hverju
hverfi. Óli B. Jónsson er bóndi
• Vesturbæjarliðsins, Sigurður
Magnússon Austurbæjarliðsins,
Hafsteinn Guðmundsson Hlíða,
Teiga og Höltaliðsins og Sveinn
Helgason er bóndi Kleppsholts-
liðsins. Hafa þeir valið í liðin og
> verður þeirra getið síðar.
Þá fer og fram keppni í kvenr.a
í f-okki milli Vestur- og Austur-
j bæjar.
Mótið fer fram dagana 10., 11.
og 13. janúar að Hálogaiandi.
. Hefst keppnin alla dagana kl.
: 8 e. h. '
Bikarinn um kyrf
í Ástralíu
KEPPNINNI i tennis um Davis-bik
arinn er nýlokið í Ástralíu. -— Var
hún hörð og skemmtileg og sót-t -af
tugþúsundum manna. Ástraiia hélt
bikarnum með þvi að sigra Banda-
ríkin með 3:2.
Átralía hefur unnið bikarinn 9
sinnum en Bandarikin 16 sinnum.
Frá stríðslokuin haxa Bandaríkja-
menn unnið þrisvar en Ástraliurnenn
tvisvar.
fcr það fslendiirgur
sem á heímsme! í
spjéfkasfi!
I GREIN einni er birtist í norska
íþróttablaðinu „Sportsmanden"
er rætt um íþróttaafrek hinna
fornu norrænu kappa. Þar segir
m. a. að telja megi að kappar forn
aldar hafi unnið meiri afrek á
íþróttasviðinu en íþróttamenn nú
tímans. í gömlum íslenzkum sög-
um sé skýrt frá því m. a. að
Grettir Asmundsson hafi kastað
spjóti sínu 126 álnir, sem sam-
svarar 79 metrum. Heimsmetið í
spjótkasti á Finninn Yrjö Nikk-
anen, 78.70 metra.
Og þar sem spjót Grettis hitti
mann, má ætla að ella hefði það
farið nokkru lengra en 126 álnir.
Og spót hans var bardagaspjót,
þungt og smaug ekki gegnum
loftið eins vei og tréspjótin okkar.
Gunnar frá Hiíðarenda hopp-
aði hæð sína til að forðast
spjót er að honum var kastað. —
Ef til vill hafa forfeður vorir
verið betri í íþróttum en við?
— G.A.
Ummæii amerísku síúdenianna:
Undravert hvað Isíending-
arnir pfa í körfuknattleik
Furttuleg eiiðurníðsSa íþróffahússins
EINS og skýrt var frá í blaðinu í
gær sýndu og kepptu amerísku
körfuknattleiksmennirnir í í-
þróttahúsi ÍBR í fyrrakvöld. —
Ilúsið var fullskipað áhorfend-
um, er nutu ágætrar skemmtun-
ar. —
Áður_ en keppnin hófst flutti
forseti ÍSÍ, Ben. G. Waage, ávarp
og bauð gestina velkomna. Staf-
ford Cassel, fararstjóri liðsins og
þjálfari þakkaði, en Ingólfur
Steinsson kynnti keppendurna.
Voru þessar móttökur ánægjuleg
ar og smekklegar.
MJKIL LEIKNI
Fyrst sýndu stúder.tarnir
nokkra kennsluþætti undir stjórn
þjálfara síns. Leikni þeirra og
geta er frábær, enda er ekki
slegið slöku við æfingarnar, sem
standa yfir í 2 stundir daglega.
Körfuknattleikur er svo til ný
íþróítagrein hér á landi. ÍR-ingar
liófu æfingar undir stjórn Ed-
ward Mikson, þjálfara félagsins,
fyrir nálega ári síðan. — Urslit
leiksips í fyrrakvöld, 65:16, eru
því viðunanleg þegar alls er
gætt. Með ÍR-ingum lék Ameríku
maður, J. Walock. Hann er bú-
settur hér í bænum og hefur æft
með ÍR. Var hann liðinu mikill
styrkur.
Til stóð að keppnin færi fram
s.l. fimmtudagskvöld en hún fórst
íyrir þá sökurn þess að íþrótta-
húsið var ékki hitað upp nógu
fljótt fyrir keppnina. Ljósin
s’.oknuðu. margsinns meðan á
leiknum stóð og hinir amerisku
p.estir, svo ekki sé minnzt á ís-
lendingana, sern öllu eru orðnir
vanir, uiðu að bregða sér í íötin
sveittir og heitir, því ekki hafði
verið gert við sturturnar. —J
Er hér um að ræða einstakan 1
trassaskap af háifu þeirra er
stjórna þessu stærsta íþróttahúsi
Iandsins.
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR
Búast má við að körfuknatt-
leikur eigi hér mikla framtið fyr
ir sér. Ameríkumennirnir létu
þau orð falla um íslenzku pilt-
ana, að undrun sætti hvað þeir
gætu eftir ekki lengri tíma en Jið
inn er frá því þeir hófu æfingar.
Keppnir verða því vafalaust tið-
ari hér eftir í þessari grein og
væri ekki úr vegi að gólíið yrði
strikað samkvæmt reglum.
Aðalhvatamaður að komu liðs -
ins hingað var Capt. Stroble á
Keflavikurflugveíli, en hann er
útskrifaður frá American Uni-
versity, skólanum, sem þessir pilt
ar eru frá. Auk hans hafa að-
stoðað við komu liðsins hingað
Major Denmore og Lt. Phaty,
sem eru í varnarliðinu hér.
íþróttaæska Reykjavíkur hakk
ar liðinu fyrir komuna og þann
rausnarskap liðsins að leika hér
íslenzkr-i íþróttahreyfingu , að,.
kostnaðarlausu.
tímaritsins Allt um íþróttir voru
birt úrslit í skoðanakönnun þeirri
er tímaritið efndi til meðal les-
enda sinna um hver hljóta skyldi
titilinn „íþróttamaður ársins
1951“.
454 atkvæði bárust. Hlaut Örn
Clausen 275 þeirra eða tæplega
61%. Torfi Bryngeirsson hlaut
128 atkvæði, Ríkarður Jónsson
28, Ingi Þorsteinsson 8, Gunnar
Huseby 7, Guðmundur Lárusson
3, Helgi Sigurðsson 3, Haukur O.
Sigurðsson 2 og Kristján Árnason
1.
Jólahefti tímaritsins er mjög
fjölbreytt að efni. Þar birtist
grein eftir örn Clausen um Grikk
landsförina, íþróttir í Vestmanna
eyjum, Afrekaskrá Evrópu, Skíða
þáttur, báttirr um fræga íþrótta-
menn, Handknattleiksmót Reykja
vikur, Myndgáta og fl. — Hér að
ofan birtist mynd af Erni Clau-
sen, Var hún tekin í Grikklandi.
10 þ jóðir senda lið.
OSLO — Tíu þjóðir hafa tilkynnt
þátttöku í íshokkikeppni Olym-
píuleikanna, sem fram fer í Osló.
Þær eru Kanada, USA, Finnland,
Ítalía, Noregur, Pólland, Sviss,
Svíþjóð, Tékkóslóvakía og
Þýszkaland.
Frá körfuknattleikskeppni American University og í. R. Gunnar
Bjarnason (í svörtum bol nr. 1) skorar síðustu körfu leiksins, sem
lyktaði með sigri hins sterka ameríska liðs 65 stig gegn 16.
Ljósm.: Ragnar Vignir.
Næsíw Hlympíuieikar á
áströlskum krikketvelli ?
„6e! ég fengið
gullverðlannin
mín aftur"
SAGA íþróttanna geymir ótal
sögur um frábæra íþróttamenn,
sem stóðu feti framar samtíðar-
mönnum sínum — íþróttamenn,
sem á alheimsmótum unnu
hverja íþróttagreinina af annari.
Ferill sumra þeirra hefur oft end
að nokkuð snögglega, reynt hef-
ur verið með ýmsum ráðum að
bola þeim út úr íþróttunum og
stundum tekizt. Ef til vill varp-
ar það meiri Ijóma um nöfn
þeirra og afrek, sem greypt eru
ómáðum rúnum í hugi milljóna
aðdáenda.
Á Olympíuleikunum í Stokk-
hóimi 1912 varð Indíáninn Jim
Thorpe frægastur þátttakenda.
í fimmtarþraut vann hann glæsi-
legan sigur og sigraði í 4 grein-
anna. í tugþraut bar hann einn-
ig sigur úr býtum og vann þar
5 greinar.
Það er ótrúlegt en satt að til-
viljun ein varð til þess að hann
var þátttakandi í leikjunum.
Hann var í rauninni fótboltamað-
ur (amerískur fótbolti) og lék
bæði í skólaliði og atvinnu-
mannaliði. Frjálsar íþróttir iðk-
aði hann lítið eitt og hafði ekki
áhuga á þeim sem keppnisgrein-
um.
Þegar hann var sendur til
Síokkhólms var amerísku Olym-
píunefndinni ekki kunnugt um
þátttöku hans í atvinnuliðinu. Og
fyrst 6 mánuðum eftir Olympíu-
leikana í Stokkhólmi komst
nefndin að hinu sanna og ógilti
þátttöku hans. Hann varð að af-
henda aftur gullverðlaunin bæði,
ásamt öðrum verðlaunum er hann
hafði unnið til í Stokkhólmi.
Nú liggur Thorpe íyrir dauð-
anum og hans síðasta ósk er
„Get ég fengið gullverðiaunin
mín aftur*.
Það er tálvon að ætia að ósk
hans verði uppfyilt.
57 ára að aldri gerðist hann
sjálfboðaliði í siðustu styrjöld.
„Ég á dóttur og son í hernum“,
sagði hann. „Það er einnig mál
til komið að hinir gömlu leggi
eitthvað af mörl.um“. G. A.
t’ENDA ÞÓTT enn sé rúmlega
hálft ár þar til Glympíuleikarnir
fara fram í Ilelsingfors, er þó
langt síðan hart stríð hófst um
það hver skuli fá að halda leik-
ana 1956% Meibourne í Ástralíu
varð fyrir valinu. Síðar komust
á kreik sögur um að hlutverkið
myndi reynast hlnni áströlsku
borg ofviða. Nýtt stríð hófst, en
allar Iikur benda þó til þess aff
leikirnir 1956 muni fara fram í
Melbourne.
Svíinn Gunnar Gallin, sem
mikið skrifar í sænska iþrótta-
blaðið dvaldist í Ástralíu fyrir
skömmu sem fararstjóri fyrir
sænskum tennisflokki er þar
keppti. Skrifaði Gallin að bæði
bær og ríki hefðu sýnt mikinn
áhuga fyrir að leikirnir færu
fram í Melbourne. Aðalvanda-
máiið væri hins vegar hvar í
borginni aðalhluti leikanna skuli
haldinn.
Öll hin stærri íþróttasvæði eru
í einkaeign. Eigendur þeirra
beita nú öllum ráðum til að fá
leikana á sitt íþróttasvæði, enda
geíur það vonir um góðan hagn-
að.
Gallinn skýrir svo frá að
krikketvöllur borgarinnar muni
sennilegast verða íyrir valinu.
Þar er áhorfendasvæði fyrir 85
þús. manns. Á krikketvellinum
eru möguleikar góðir til að
byggja hlaupabraut og jafnframt
að stækka áhorfendasvæðið að
mun.
377 fréttamenn m é7
íjésmyndarar á
élympíulelhana
BLAÐANEFL
leikanna í Nor
fréttamenn og <
blaðamannako
Af þessum fjöl
en hinir eru f’
Svíar senda 7(
25, Finnland P
Ítalía og Eng’
land 12, Þýzka’
Danmörk 9, I'
5 hvort, Unr'
slóvakía, Pólh
etrarolympiu-
■efur látið 377
jósmyndara fá
ð leikjunum.
u 101 norskir
úar 29 þjóða.
, Bandaríkin
s, Frakkland,
5 hvert, Hol-
og Kanada 10,
and og Japan
:a1and, Tékkó-
•Túgóslavía og
ísland 3 hvert, Tyrkland, Rúm-
enía, Lebanon, Korea, Chile,
Belgía, Astraiía og Argentina 2
hvert, en Portueal og Spánn 1
hvort land. — GA.