Morgunblaðið - 29.01.1952, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.01.1952, Blaðsíða 6
6 MORGUTSBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. janúar 1952 Leifað að skæruliðjm Vilhjálmur Guðmundsson mMt jarSsunginn í dag Hér sjást brezkir hermenn í Ismailia í leit að skæruliðum, eftir óeirðirnar, sem var urðu, er ameríska nunnan var vegin. Hveraig er hið flókna gert einfalt? ERINDI UM SKOLAMAL EFTIR HELGA TRYGGVASON [ÞAÐ er sannarlega ekki að á- Etæðulausu, að mikið et rætt um J>að nú á dögum, að lífið sé orðið allt of flókið og margbrotið, og Jess vegna þurfum við að vinna að því að gera það aftur einfalt cg óbrotið. Samt sem áður er það 6 o, að við getum ekki með öliu Josnað við það margbrotna, og þetta er dálítið giettið efni við að fást. Það getur nefnilega orðið fullflókin gáta fyrir okkur að Íinna út, hvað er einfalt og hvað er flókið og hvernig hlutirnir geti orðið einfaldir. FYRR OG NÚ Nú ætia ég að nefna fyrir ykkur »iokkur dæmi um hið einfalda og hdið flókna í skólastofunni. Sum- ir segja við mig sem svo: Þið gerið miklar kröfur um alls konar kennslutæki nú á dögum. 1 mínu ungdæmi var allt með einföldu Bniði og tæki voru fá. Þarna sát- um við kringum borðið hjá kenn- aranum í okkar litlu stofu, og hann sýndi okkur allt á einfaldari iiátt en þið viljið gera nú. — Satt er það, að þegar fáir nemendur etu saman, er miklu auðveldara »ð taka tökum á öllu, færri svo- lölluð skólatæki þarf að nota. Það er tiltölulega einfallt að segja til örfáum nemendum í einu, sem naður hefur rétt hjá sér. Það íiálgast mjög einkakennslu. En í ysnjulegri nútíma skólastofu er eafnað saman eitthvað um 30 nem- endum og stundum fleiri. Hér er vitandi vits stofnað til þess, sem er margbrotið og flókið. Það er íiefnilega alls ekki einfalt mál að kenna um 30 börnum eða ung- lingum í einu og láta vinna, svo 8ð vel sé. Er þá fært í slíkri skóla- Btofu að hverfa aftur til þess ein- falda og eðlilega á þann hátt að Jiafa tækin sem fæst og laus við J)að að vera margbrotin? Nei, síð- fcr en svo. Þegar við höfum rtofn- jað til þess erfiða og fiókna og ynargbrotna, sem sé að kenna Xr.örgum ungmennum í einu í sömu gíofu, þá getur orðið eina lciðin Jtil þess að komast út úr flækj- Junni að nota tæki, jafnvel mörg jtæki og margbrotin, ef því er að ekipta. KENNSLA GERÐ EINFÖLD MEÐ TÆKNI Ef ég kenni éinum eða örfáum Jiemendum, get ég skrifað á blað fneð venjulegri stafastærð, og nem- fcndur hafa fulit gagn af. Þetta er fnjög eðlileg aðferð. Kenni ég mörg á'ður fyrr. Það var ekki svo ein- íalt eða auðvelt að draga upp með orðum eínum fjölmargar af þeim mjög greinílega á tjaldi með sliuggamyndavélinni. Ég er ekki að innleiða það margbrotna og fróðlegu myndum víðs vegar af fróðleikssvíðum, sem ég get sýnt um nemendum, sumum langt frá mér, í stórri stofu, og ætli ég að ná þeim sama einfaldleik sem í einkakennslu, hef ég mjög stórt blað, þ. e. a. s. stóra veggtöflu og skrifa stórt letur, sem blasir við augum hvers nemanda. Þar með geri ég kennsuaðferðina aft- ur einfalda með tækninni. Ef ég kenni einum eða örfáum nemendum, get ég sýnt þeim póst kort eða aðrar litlar myndir. Hver maður hefur þá fullt gagn af. Þegar ég hef gert verkefni mitt flókið með því að safna mörgum í stóra stofu, þarf ég stærri mynd, veggmynd, landa- bréf, prentaða Ijósmynd, skugga- mynd. Ef einhver segir við mig: Hvað ert þú að gera með þetta svona fyrirferðarmikið og marg- brotið? Hvers vegna haugar þú þessum myndum að þér? Þetta er svo flókið og umstangsmikið. Já, áður var allt einfaldara. Þá svara ég: Þetta er einmitt leiðin til þess að gera flókið námsefni einfalt. Sjón er sögu ríkari. Höld- um enn áfram. Stundum er sagt við mig: Ekki þurftum við skuggamyndavélar í gamla daga, með mörgum glerjum og ljósa- gangi og rafmagnsstraum. Þá var allt einfaldara. En ég segi: Málið í sjálfu sér var ekki einfaldara flókna, þegar ég nota skugga- myndavélina, heldur þvert á móti að gera það flókna mjög einfalt fyrir sjónum nemendanna með sönnuM myndum, og ég þarf ekki nema nokkur orð um hverja mynd, þá er allt ljóslifandi. KVIKMYNDIR, FJÖLRITUN, SEGULBAND OG FLEIRA Og hvað getur gert hlutina eins einfalda fyrir augum okkar eins og kvikmyndavélin með allri sinni margbrotnu tækni á bak við? Ekki voru heldur fjölritunar- tækin í gamla daga, sem við telj- um nú, að þurfi að vera í hverj- um skóla. Til eru margs konar fjölritunaraðíerðir, sem nútíma- tæknin býður. Það vita þeir, sem reynt hafa, hversu einfalt og á- hrifamikið og hentugt í alla staði er að geta rétt hverjum nemanda sitt eintak af fjölrituðu efni, öll nákvæmlega eins. Flókin fjölda- kennsla verður þar með að einka kennslu með hjálp iækninnar. Hvað er áhrifameira í fram- sagnarkennslu eða söngkennslu en að sýna nemandanum einfald- lega, hvernig hann talar og syng- ur, með bví að taka rödd hans upp með hinni dásamlegu nýtízku tæki, segulþræði eða segulbandi? Þar fær hver að skoða sjálfan sig í spegli. Þegar t.d. kennara- nemi fær að hlusta á sýnishorn af því, sem hann var að kenna, tekið á segulþráð, verður það honum lærdómsríkara en mörg leiðréttingarorð kennarans. Slík tæki hafa geysi-þýðingu á kennslusviðinu til þess að gera hið flókna einfalt, og sá, sem fer að nota slíkt tæki, vill ekki af þvi sjá. , TÆKNIN EYKUE, AFKÖSTIN Ef ég spyrði skólastjóra í ensk- um skóla sem svo: Hvers vegna ert þú að gera starf þitt flókið með því að hafa símasamband í allar stofur frá skrifborði þínu? myndi áreiðanega detta af hon- um andlitið af undrun. Gera það flókið! Sérðu ekki, að ég er að gera mitt flókna starf einfaldara, og það er líka hlutverk símans á öllurh sviðum. Auk þess sem ég geng oft um í skólastofum mín- um þarf ég iðulega að ná augna- blikssambandi við mína mörgu kennara á þennan einfalda hátt og koma skilaboðum, og þessu tæki á ég það mikið að þakka, að ekkert slíkt lendir í undandrætti og tími sparast. Einnig get ég komið boðum til allra í skólanum í einu hvenær sem ég vil. Þá stilli ég mín tæki inn í allar stofur í einu. Margt fleira get ég talið upp af þessu tagi, en mér dettur ekki í hug að reyna að segja allt um þetta merkilega efni, hvernig tæknin eykur afköstin í skóla- stofunni og greiðir úr flækjum þar eins og á öðrum nútímavinnu stöðum. En þið megið nú ekki segja, að ég hafi sagt, að við skul- um setja allt okkar traust á tæk- in. Því að það væri oftraust. Helgi Tryggvason. I DAG er til moldar borinn í Húsavík einn sérstæðasti borgari Húsvíkinga, Vilhjálmur Guð- mundsson í Hliðskjálf. Hann and- aðist þann 19. þ. m. að heimili finu. Var því nærri 83 ára að aldri, — fæddur í byrjun þorra, þann 25. janúar 1869. Vilhjálmur Guðmundsson kom til Húsavíkur fulltíða maður um aldamótin. En þar hefur hann lifað öldina hálfa. ! Það er að vissu leyti mikið bil í lífi og sögu íslenzku þjóðarinn- ar milli þeirra manna, sem voru fulltíða um aldamótin síðustu — og, hinna, sem náð hafa sama aldri nærri öldinni hálfnaðri. Lífsþægindi, sem menn kref jast í dag, voru draumsýnir þeirra, sem lögðu beztu krafta sína í lífsbaráttuna um aldamótin. Ekki rnun þó allt talið betra nú en þá. I Vilhjálmur Guðmundsson var ' fæddur á Flateyjardal við Skjálf- | anda, af góðu og harðgeru fólki ' kominn. | Þegar hann fór að heiman, undir tvítugt, var hann talinn tilkomumikill í sjón — og heyrði ég oft til þess tekið síðar á Húsa- vík, hversu fyrirmannlegur Vil- hjálmur þótti vera. Hann var I einn þeirra ágætu manna, sem bæði eru höfðinglegir í sjón og jraun. Áður en Vilhjálmur settist að í Húsavík bjó hann búi sínu i Kelduhverfi og Axarfirði. — Skömmu eftir að hann kom t.il Húsavíkur, sennilega 1905, byggði hann þar tvílyft hús, mjög mynd- arlegt að þeirra tíma hætti, og bjó þar síðan, til hinztu stundar. Betur væri, að þeir, sem þekktu Vilhjálm nánast rituðu um hann látinn. Mundi þá betur sannast égæti hans. Mér er hins vegar mjög ljúft að minnast þessa góða Húsvíkings. Vakna þá bæði eigin góðar endurminningar um mann- inn og það verður minnisstætt hið góða hugarþel, sem aðrir báru til hans. En það tel ég ótví- rætt endurskin af hans eigin mannkostum. Vilhjálmur Guðmundsson var rnanna skemmtilegastur, og það hef ég heyrt beztu vini hans segja, að það hafi verið eðli hans að vera glaður, — glens og mein- laust gaman streymdi frá honum. Hann gaf sig ekki að opinberum jmálum, en sjálfur vildi hann allt fyrii aðra gera, ef því var að skipta. ‘♦Ufcf j Það er nú liðinn röskur aldar- fjórðungur síðan Vilhjálmur missti ágæta konu sína, Helgu I ísaksdóttir. Skömmu síðar varð ; hann fyrir því áfalli að kenna meins í fæti, sem leiddi til þess ao taka marð af annan fótinn. | En Vilhjálmur Guðmundsson ,átti líka sitt mikla lífslán, þar 'sem eru börn hans þrjú, Gu5- mundur, forstjóri Eimskipafélags íslands, Óli, framkvæmdastjóri S.Í.S. í Kaupmannahöfn og síð- ast en ekki sízt María, sem alla jtíð hefur verið hjá föður sínum. Börn Vilhjálms hafa ekki aðeins haft getu, heldur einnig hinn sanna vilja, til að búa föðurnum skjól, sem mun hafa verið honum óvana lega ylríkt á efri árunum. Ég veit að ég særi ekki tilfinningar sonanna, þó að ég geti þess sér- staklega, að öllum þeim, sem til þekktu í Húsavík, hafi fundizt mikil gæfa streyma frá hinni kærleiksríku sambúð föðurins og dctturinnar í Hliðskjálf. Það er nú slitinn viðkvæmur strengur nánustú ættingja. Margir vinir minnast með söknuði góðs drengs við andlát og jarðarför Vilhjálms Guð- mundssonar. Jóhann Hafstein. Friðrik Ólafsson fefl- ir blindskákir í Giftin gar nngs fólks hlut- fallslega mestar í Israel Bandðrikjaraenn fremsfir í hjónaskilnaði. í ÍSRAEL gengur hlutfallslega fleira af ungu fólki i hjónaband en í nokkru öðru landi heims. í Bandaríkjunum skildu 385.000 hjón á einu ári. Þetta eru tvær óvæntar staðreyndir úr einni merkustu og fróðlegustu bók S. Þ., sem nú er nýkomin út í þriðja sinn, en það er „Demographic Yearbook 1950“, bók sem verður eftirsótt um heim allan. SÍÐASTLIÐINN sunnudag tefldi Friðrik Ólafsson fjöltefli við 18 menn í æfingasal Tafl- og bridge- klúbbsins í Edduhúsinu. Tvær af skákum þessum voru blindskák- ir. Viðureignin stóð yfir í rúmar þrjár stundir og lyktaði með sigri Friðriks á 16 borðum. en tvær skákir urðu jafntefli. Önn- ur þeirra var blindskákin. Fá 40 dollara á mánuði OTTAWA — I ársbyrjun gekk í gildi nýtt lagafrumvarp í Kanada um aðstoð við gamalmenni. Munu 635 þús. þeirra fá 40 dali mán- aðarlcga. EFTIRSÓTT UM ALLAN IIEIM Þegar áður en bókin var komin út, byrjuðu pantanir að streyma inn frá háskólum, menntastofn- unum, viðskiptafyrirtækjum, tryggingafélögum, opinberum heilbrigðisyfirvöldum og einstakl ingum — frá mönnum og stofnun- 1 um um víða veröld, sem þurfa að vita hvernig háttar'um fæð- ingar og dauða, meðaltalsævi- | skeið, dauðaorsakir, íbúatölu, fólksfjölgun o. s. frv. Allt eru þetta upplýsingar, sem einungis er að finna á einum stað í heim- inum, hjá hagstofu S. Þ., sem á hverju ári leggur mikla vinnu í „Demographic Yearbook“. VIÐBÓT UM HJÓNA- SKILNAÐI Og í ár hefur bókin fengið nýja og fróðlega viðbót. í fyrsta 'skipti fylgir yfirlit um hjóna- iskilnaði um allan heim. j Hér fylgja nokkrar tölur um hjónaskilnaði. Getur þá hver um sig reiknað út, hversu lengi hjóna bandið stendur að meðaltali I hverju landi. t 1950 giftust 1,669,934 hjón í Bandaríkjunum, en hjónaskiln- aðir voru 385.000. | í Frakklandi giftust 329.917 hjón, en hjónaskilnaðir voru 35.000. j í Danmörku giftust 38.838 hjón, skilnaðir voru 6.868. | í Svíþjóð giftust 54.185 hjón, skilnaðir voru 7991. | í Noregi giftust 27.090 hjón, skilnaðir voru 2324. í Finnlandi giftust 34.200 hjón, skilnaðir voru 3624. Á íslandi giftust 1207 hjón, en 102 skildu. í Dapmörku giftust 9,1 af hverjum 1000 íbúum, í Finnlandi 8,4, í Noregi 8,3 og í Svíþjóð 7,7 af þúsundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.