Morgunblaðið - 15.03.1952, Qupperneq 14
< 14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. marz 1953
HILDU LAWRE NC
v ''
Framhaldssagan 32
ur líklega sagt honum að fara
að taka saman dótið sitt strax í
dag“.
En enginn tók saman föggur
sínar þann daginn. Mark var að
Ijúka úr kaffibollanum og Morey
var að kveikja sér í pípu þegar
lögreglustjórinn í Bear River
hringdi og vildi fá að tala við
Morey.
Amos hafði fundið Flórrie í
verkfærageymslunni á bak við
hús frú Lacey. Hún hafði legið
á gólfinu á bak við hurðina. Ilún
hafði verið kyrkt.
Mark og Morey fóru niður eftir
til Crestwood og Perrin voru
gefnar fyrirskipanir um að halda
fréttunum leyndum.
Margar bifreiðar stóðu fyrir
framan stöðina og tjöld voru
dregin fyrir gluggana á sumum
þeirra. Lítill drengur með rauða
húfu og grátbóigið andlit fylgdi
þeim, þegar þeir komu að húsi
frú Lacey sáu þeir hvar blóma-
kransar héngu enn á dyrunum.
„Guð minn góður, er jarðarförin
ekki yfirstaðin?" sagði Morey I
hálfum hljóðum.
„Hún átti ekki að vera fyrr en
klukkan tvö. Okkur er bezt að
koma okkur burt“. Þeir voru rétt
komnir af stígnum og í gegnuirl
runnaiía þegar kistan var borin
út. Fámennur hópur fylgdi á eft-
ir niður götuna. Amos gekk út-úr
hópnum og kom til þeirra. Hann
fylgdi þeim á bak við húsið.
„Hvar eru Bessy og Beulah'1?
spurði Mark.
„Þær fóru á undan til kirkj-
unnar“. Hann ræskti sig. „Hitt
.. hitt skeði ekki fyrr en þær
voru farnar“.
Nokkrir mcnn stóðu í hóp við
dyrnar að geymslunni. Þeir viku
til hliðar þegar Morey og Mark
komu.
Það var Ijót sjón sém blasti
við. Florrie lá á gólfinu og hélt
höndunum fyrir andlitið eins og
hún hefði ekki getað afborðið að
sjá það sem blasti við henni síð-
ustu augnablikin sem hún. lifðiT
„Getur nokkur sagt um það,
hvenær það skeði“, spurði Mörev,
Cummings læknir þurrkaði sér
um hendurnar. „Ekkí nákvæm-
lega“, sagði hann. „En líklega
fyrir klukkan tólf í gærkveldi.
Eftir því sem mér er sagt, voru
engin fótspor hér í snjónum“.
„Nokkur fingraför á hálsin-
um?“ spurði Mark. ~ '
„Nei, engin fingraför. Hann
hefur notað hálsklút eða eitthvað
slíkt“.
„Hefur verið nokuð um ókunn-
uga flækinga hér upp á síðkastið“
spurði Morey og snéri sér að lág-
vöxnum manni sem stóð við hlið
Amos. „Patridge mundi vita það
ef einhverjir slíkir menn hafa
komið með lestinni”.
„Það hefur enginn komið hing-
að, sem ég þekki ekki eða veit
ekki einhver deili ,“ sagði Amos.
„Hvers vegna haldið þér að það
hafi verið einhver ókunnugur“,
spurði litli maðurinn.
„East, þér munið efti? Wilcox
.. má ég kynna East“, sagði
Morey áður en hann svaraði
spurningunni. „Jú, ég get ekki
trúað því að nokkur af þeini
sem búsettir eru hér geti gerzt
sekir um slíkt ódæði. Ef hún hef-
ur verið myrt í Crestwood, þá
hlýtur morðinginn að Vera' að
komumaður. Einu karlmennirnir
eru þeir sem ég hefi í þjónustu
minni og Patridge. Við geturn
ekki talið Bittner gamla með því
hann kemst ekKert úr hjólastóln
um“. • ' *
,|Hann kemst ferða sinni í hon-
urw1, sagði Amos. „Hafið þér elcki
gera sér úr stofuglugganum".
Amoa vissi að Bittner var sak-
laus, én hann varð að ásaka ein-
hvern. -Hann sagði þetta bara af
því hann hafði séð til hans með
kíkjrinn, í g^jugganum í rúman
hálftfma, og végna þess að hon-
um var illa við áætlunarbílana.
„Og þó að Bittner hafi ekkert
gert, þá hefur hann að minnsta
kosti séð eitthvað“.
Hinir létu eins og þeir heyrðu
ekki til hans. „Einhver hefur get-
að tekið hana upp í bíl, ekið burt,
myrt hana og komið svo með
hana hingað“, sagði Morey.
„Nei“, sagði Wilcox. „Cumm-
(ings læknir segir að hún hafi
verið myrt hér. Hann getur séð
það. Og hvað aðkomumenn snert
ir þér.eruð sjálfur aðkomu-
maður".'Hann snéri sér undan og
gekk burt.
Moreyh'óffði á eftir Wilcox.
„Mér Jíkar ekki frarukoma hans“,
hvíslaði hann að Mark. „Hann
var ékkfert nema kurteisin um'
daginn eftir brunann, en honum
líkar auðsjáanlega ekki þetta“.
„Ef til vill finnst honum
að tvær konur hafa látið líf’ð
með nokkurra daga millibili. Ég
ætla'að;tala-vi5*þá“. •
Hann gekk til Wilcox og Cumm
ings og kom síðan aftur til Morey.
„Við eigum að fara heim“, sagði
hann. „Þeir koma á eftir. Wilcox
og aðstgðarmaður hans, Amos,
ætla að yfirheyra okkur. Við
megum ekki segja neitt um það
hy&rnig,, Flörrie *dó. Hann • lagði
mlkla áfierzlú á þáð“.
. - „Hanivætlar auðvitað að segja
það sjálfur og athuga hvaða áhrif
það hefur. Mér þætti gaman að
sjá upplitið á Stoneman þegar
hann fréttir það. Hvað Lauru
snertir, þá vona ég þetta hafi ekki
þau áhrif á hana að hún vilii
ekki fara. Þá týni eg vítinu. Ég
«kil ekki hvers vegr.a við megum
ekki segja henni að Florrie hafi
orðið skýndilega veik og orðið
að faralá sjúkráhús. .. Ég bjóst
satt að segja við hinu versta ..
en ég vonaði að ég kæmi Lauru
burt áður en það upplýstist".
„Þið komist ekki langt úr því
sem komið er. Wilcox er enginn
bjáni. Auk þess held ég að konan
yðar viti undan og ofan af þessu.
Ég sá að hún var í glugganum L
rnorgun".
Það varð verkefni Morey
að segia konu sinni fréttirnar.
Mark langaði til að gera það.
Hann vissi ekki hvers vegna og
hann skammaðist sín fyrir það.
Hann bauðst til þess við Morey,
en Morey lyfti bara brúnum en
svaraði engu.
Stoneman kom niður tröppurr,-
ar um leið og þeir gengu inn I
anddyrið. „East þarf að tala við
þie“, sagði Morey þegar hann
gekk fram hjá honum upp á loft-
ið.
„Hvað gengur nú á?“, sagði
Stoneman.
„AugnabJik", saeði Mark. „Ég
kem strax“. Hann fór niður , eld-
húsið og saeði Violet hvernig
komið væri. Honum fannst hann
sjálfur vera nær dauða en lífi,
begar hann kom upo aftur. En
eitt var hann sannfærður um.
Hann mundi ekki fara héðan fyrr
en málið hefði verið upolýst.
Stoneman beið hans í anddyr-
inu. „Laura hefur verið að gráta
og hljóða“, sagði hann. „Það
heyrist greinilega við og við“.
„Já, ég heyri það“, sagði Mark.
Hann fór með Stoneman inn í
bókaherbergið, „Ég held að okk-
ur veiti ekki af að fá okkur hress
ingu.
„Fallega hugsað, piltur minn.
Ég get fengið mér hana sjálfur.
Já, Laura er grátandi. Jim fór til
hennar“.
Mark leit upp í loftið. Grátur-
inn hafði hljóðnað og heyrðist nú
aðeins ógreinilega. „Skemmtilegt
fyrir börnin, eða hitt þó heldur",
sagði hann. „Hvar eru þau?“
„Perrin fór út með þær fyrir
stundu síðan. Hvað er það sem
þér vilduð tala við mig um?“
„Þeir hafa fundið líkið af
henni“ sagði Mark.
AÐ ROÐLI I KVOLD KLUKKAN 9.
Aðgangur aðeins 15 krónur.
Aðgöngumiðar að Röðli frá kl. 5,30 i dag. — Sími 5327.
«- v*-"i *rv. f ’Hfyrwv'"
ARNALESBOK
! jjlozgmntíaðsins 1
ÆVINTÝRI MIKKA V.
Broftnumdna prinsessan
Eftir Andrew Gladwyn
Mikki dró árarnar inn í Víkingaskipið og lét reka fyrir
hségum straumi árinnar. Veðrið var yndislega gott, logn og
sól skéin í heiði. Mikki var orðinn þreyttur á því að róa
pg sitja lengi í sömu stellingum. — Það hlýtur að vera af-
skaplega gott að fara í land og ganga svolítið um, svona til
þess að liðka sig, hugsaði hann og svipaðist um eftir heppi-
legum stað til að leggja að landi við. Skömmu síðar fann
hann staðinn. Þegar hann kom að landi batt hann bátinn við
tró sem þar var, svo gekk hann af stað.
Hann blístraði glaðlega, þar sem hann ranglaði þarna um.
— Ja háma, sagði hann við sjálfan sig, það verður svei
mér margt sem ég þarf að segja pabba frá, þegár ég kem
heim aftur.. Ég verð vafalaust margar vikur að segja frá
því öllu! Aldrei hefði ég trúað því að nokkur gæti ratað í
svona mörg ævintýri á þetta skömmum tíma. En ég geri ekki
ráð fyrir því, að það gerist fleira. Og svo verð ég líka að
fara að flýta mér heim því annars verð ég of seinn í matínn.
— Krunk, krunk, krunkaði gamall hrafn einhversstaðar I
grendinni. Mikki leit upp, en hvergi sá hann hrafninn!
Mikki fann nú mjóan stíg, sem lá inn í skóginn. Honum
virtist sem það myndi vera svalt og þægilegt að vera inni
í skóginum í skugga trjánni. Hann ákvað þessvegna 'að
ganga ofurlítið eftir stígnum. Trén mynduðu göng, þar sem
þau teygðu sig yfir stíginn frá báðum hliðum. Margvísleg
hljóð bárust til eyrna Mikka: ^öngur fuglanna, smábrestir,
tíi ÍÚW'íVt £>fii SWÍÍt fieirá. Én ýíir öllú hvildi
S. A. R.
Nýju dansarnir
í IÐNÓ í kvöld, laugardaginn 15. marz.
Hljómsveitarstjóri: Óskar Cortez.
Söngvari: Haukur Morthens.
Aðgöngumiðar frá kl. 5 síðd. — Sími 3191.
— Hljómsveitin leikur frá kL 9. —
S. H. V. O.
Almennur dansleikur
I SJÁLFSTÆDISHÚSINU í KVÖLD KL. 9.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins kl. 5—6 e. h.
Húsinu lokað kl. 11 e. h.
NEFNDIN
VETBARGARÐURINN
VETRARG ARÐUKINN
DANSLEIKUR
Í VETRARGARÐINUM í KVÖLD KLUKKAN 9.
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur.
Miðapantanir milli kl. 3 og 4. Sími 6710.
S.R.H.Í.
Litla flugan
EFTIR SIGFÚS HALLDÓRSSON
flýgur í Hljóðfæraverzlanir í dag.
HAFNARFJORÐUR
Slysavarnadeildin Hraunprýði, heldur
gömlu dansana
í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir á sama stað eftir kl. 8.
Hraunprýðiskonur.