Morgunblaðið - 26.08.1952, Síða 1
16 siðiar
| 39. árgangur.
191. tbl. — Þriðjudagur 26. ágúst 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Mj7nd þessi var tekin í desember í fyrra er Tore Hedin (í miðið)
klœddur lögreglubúningi vann að rannsókn morðmáls, þar sem hann
var sjálfur hinn seki.
r
Ohugnanlcg fiöldamor
O ö <3
I framin í Stiður-Í
25 ára gamall lögregluþjónn a5 verki
KAUPMANNAHÖFN — Aðfaranótt síðastliðins föstudags voru
iramin í tveim bæjum á' Norður-Skáhi hin ægilegustu glæpaverk,
sem um getur í sakamálasögu Svíþjóðar síðustu hundrað ár, að
sögn blaða. Með öxi að vopni vó 25 ára gamall lögregluþjónn Tore
Hedin að nafni fyrrverandi unnustu sína, sem brugðið hafði hjú-
skaparheiti við hann, aldraða foreldra sína og forstöðukonu elli-
heimiiis í bænum Hurva, sem reyndi að koma unnustunni til
hjálpar, en hún starfaði þar sem hjúkrunarkona. Til að dylja
óhæfuverkin kveikti hann síðan í húsum og fórust 5 vistmenn
elliheimilisins af völdum elds og reyks. Loks réði morðinginn sér
bana og í játningu, sem hann skildi eftir í bifreið sinni, lýsir hann
ennfremur sök á hendur sér fyrir óupplýst morð framið í nóvember
í fyrra, en sem lögreglumaður hafði hann sjálfur unnið að rann-
sókn þess máls á sínum tíma.
Rás hinna válegu atburða er í
stuttu máli þessi: — Síðastliðið
þriðjudagskvöld kom Hedin á
fund-fyrrverandi unnustu sinnar
ungfrú Östberg og mis-
þyrmdi henni. Kærði hún það
atferli tafarlaust til yfirmanna
hans ■ og var honum vikið frá
störfum í lögregluliðinu á mið-
vikudag. — í hefndarskyni lagði
hann léið sína til Hurva siðla
kvölds á fimmtudag, brauzt inn
um glugga elliheimilisins og
vann á ungfrú Östberg með öxi,
þar sem hún svaf í rúmi sínu.
— Forstöðukona stofnunarinnar
kom á vettvang í sömu svifum
og laust Hedin hana umsvifa-
laust banahöggi með öxinni.
BRENNA
Að því búnu ók Hedin í bifreið
sinni til heimilis foreldra sinna
í Kvarlöv, þar sem hann komst
inn óséður. Kom hann einnig að
þeim sofandi og urðu skjót um-
skipti. Áður en hann laumaðist á
brott bar hann eld að húsinu og
varð ekki ljóst fyrr en um morg-
uninn er farið var að grafa í
rústunum hvers kyns var. Fund-
ust þar lík hjónanna Pers Hedins,
74 ára og Hildu Maríu 57 ára, en
tóorðinginn var einkasonur
þeirra óg eftirlæti.
JÁTNINGIN
Hedin sneri nú aftur til elli-
heimilisins í Hurva í brennuhug.
Er skemmst frá að segja að af
17 vistmönnum tókst að bjarga
12 úr eldinum, en fimm létu líf
gitt af völdum reyks, f jórar gaml-
Skur vRS Kleppsveg
brann iil ösku 7
Á ELLEFTA tímanum í gær-
kvöldi var slökkviliðið kvatt
inn á Kleppsveg, en þar hafði
kviknað í skúrræfH, sem eitt
sinn var hænsnahús í eigu
dansks manns er Bertelsen
hét.
í skúr þessum hefur áður
komið upp eldur og nú stóð
hann auður. Varð því elckert
tjón á verðmætum, því skúr-
inn var mjög lélegur. Eldur-
inn var mjög magnaður, er
slökkviliðið kom á vettvang
og sást víða að.
Við enda skúrsins er ný-
bygging og íbúðarhús en
þangað komst eldurinn ekki.
— Ekki er vitað um eldsupp-
tök, en ýmislegt bendir til að
hér sé um íkveikju að ræða,
því ekkert það var í skúrnum
er valdið gæti eldinum.
-þýika lögreglan
endurskipnlögð
BERLÍN, 25. ágúst — Frá Vestur
Berlín berast þær fregnir, að í
ráði sé að gera breytingar á
austur-þýzku ríkislögreglunni.
Hefur hún hingað til verið álitinn
kjarninn í austur-þýzka hernum.
Verður henni nú breytt eftir
rússneskri fyrirmynd og skipt í
herdeildir, en -í hverri herdeild
verða 3500 manns. — Einnig er
í ráði, að hver herdeild verði
vopnuð fallbyssum og loftvarna-
byssum og öðrum þeim nýtízku
vopnum, sem nauðsynleg eru, ef
til átaka kæmi. — Um 100.000
manns eru nú í austur-þýzku lög-
reglunni.
Þjéðernissmnar gera
slrandhögg í Kína
SEOUL, 25. ágúst. — í dag bár-
ust þær fregnir frá Kóreu, að
engar hernaðaraðgerðir hefðu átt
j-sér stað á vígstöðvunum þar í
j dag vegna úrhellisrigningar. —
Bækistöðvar vopnahlésnefndanna
jí Panmunjom eru umflotnar
| vatni, og árnar San og Imjin hafa
flætt yfir bakka sína, svo að öll
lumferð hefur teppzt á vegum.
I Kínverska Þjóðernissinnastjórn
in á Formósu hefur tilkynnt, að
Þjóðernissinnar hafi gert vel
heppnað strandhögg á kínverska
meginlandið fyrir sunnan Shang-
haí. Voru 125 fangar teknir hönd-
um og höfðu strandhöggsmenn
þá með sér til Formósu.
— NTB-Reuter.
(nnflufningsbönsi Irefs mhk
r
Dönum og IflöKum -erf iðleskum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
I\EW YORK, 25. ágúst. — Hin góða afkoma þeirra vestur-evrópsku
landa, sem hafa ekki búið við einstrengingslega skipulagningu sós-
íolismans í verzlunarmálum, er í algerri mótsetningu við fjárhags-
örðugleika hinna sósíalistisku landa, Frakklands og Englands, segir
í ritstjórnargrein New York Times í dag. Að vísu er ekki jafnaðar-
mannastjórn í Englandi nú sem stendur, en í ritstjórnargreininni
segir, að augljóst sé, að afleiðingar fjármálastefnu hennar gæti mjög
í Bretlandi enn.
Naguib boðar
breinsun
KAIRÓ, 25. ágúst. — Á blaða-
mannafundi í dag lýsti Naguib,
hershöfðingi, því yfir, að hreins-
un yrði að fara fram í öllum
stjórnmálaflokkum landsins engu
síður en í hernum. Yrði hún að
hafa farið fram, áður en stjórn-
málaástandið í landinu kæmist í
það horf, sem ráð væri fyrir gert
og flokkarnir tækju að sér að-
ráða fram úr vandamálunum,
sem að steðjuðu. Er álitið, að
Naguib hafi einkum beint orðum
sínum til WafdflokkSins, en í
þeim flokki hefur sama og engin
hreinsun yerið gerð. — Naguib
lýsti því einnig yfir, að 150 liðs-
foringjar hafi misst stöðu sína í
hernum eftir stjórnlagarofið.
Ulla Östberg, unnustan sem
vegin var með'exi.
ar konur og einn karlmaður. —
Flesf var fólk þetta á níræðis-
aldri.
Er lögreglunni hafði vprið gert
aðvart var þegar hafin víðtæk
leit og bar hún brátt þann ár-
angur, að bifreið Hedins fannst
mannlaus á árbakka skammt frá
og í henni bréf, þar sem hann
segist vera valdur að óhæfuverk-
unum og ennfremur morði mál-
arans Nilssons hinn 28. nóvem-
Frh. á bls. 12.
íranir seija olíu fii
Jandaríkjanna
TEHERAN, 25. ágúst. — Banda-
rískur olíusérfræðingur er nú
staddur í íran samkv. ósk yfir-
valdanna þar. Á har.n að hjálpa
íronum að koma olíuiðnaði þeirra
í samt lag. Forstjóri hinna þjóð-
nýttu olíufélaga írana hefur lýst
því yfir, að hann hafi gert samn-
inga við ítölsk og bandarísk olíu-
félög um sölu á olíu til þessara
aðila. — NTB-Reuter.
Cceanus gefsf
aldrei upp
NÚ ER hollenski dráttarbáturinn
Oceanus með rammstaða brota-
járnsflakið í eftirdragi loksins
enn einu sinni lagður af stað
áleiðis til Englands. Það er hið
mesta áhættufyrirtæki en -von-
andi gengur allt skaplega að
þessu sinni. Oceanus og flakið
lögðu af stað á sunnudagsmorgun
frá Reykjavíkurhöfn. Dráttar-
teugar hafa verið styrktar frá
því sem áður var.
HEFUR VÁKID MIKLA
ÁNÆGJU
Meðal bandarískra hagfræð-
inga og verzlunarmanna hefur
það vakið mikla ánségju, að Nið-
urlönd, Vestur-Þýzkaland, Dan -
mörk og Ítalía hafa náð hagstæð •
um greiðslujöfnuði með pvi að
hverfa frá skefjalausum ríkis-
rekstri og hefja almenna baráttu
í staðinn gegn síaukinni verð-
bólgu. — Þó hafa tvö þessara
landa, Ítalía og Danmörk, átt við
mikla örðugleika að stríða i utan-
ríkisverzluninni nú upp á síðkas:
ið, því að útflutningur þeirra
hefur talsvert minnkað saman-
borið við innflutninginn, en V,-
Þýzkaland, Niðurlönd og Sviss
hafa haldið við hinum hagstæða
greiðslujöfnuði sínum. Eru hin
ströngu innflutningsbönn Eng-
lands.og Frakklands orsök þeirra
erfiðleika, sem ítalir og Danir
eiga nú við að stríða, og álítur
blaðið, að erfiðara verði að
standa gegn kröfum jafnaðar-
manna í þessum tveimur lönd-
um um aukin afskipti ríkisins
af verzluninni, ef greiðslujöfn-
uður þeirra við útlönd lagast ekki
bráðlega.
Norðmenn á heim-
lelð írá íslandi
ÁLASUNDI, 25. ágúst — Þrír
bátar, sem stundað hafa síldveið-
ar við ísland í sumar, komu heim
til Álasunds nú um helgina og
von er á fleirum innan skamms.
Afli bátanna var frá 500—600
tunnur síldar. — Reknetaveiði
hefur verið ágæt við ísland upp
á síökastið. — Reuter-NTB.
Þrír fórust
SIKILEY, 25. ágúst. — Fimmtíu
mönnum var bjargað, er brezk
) flugvél, sem var á leið til Khar-
tum, höfuðborgar Súdans, nauð-
lenti á Miðjarðarhafi við vestui'*-
strönd Sikileyjar. Þrír fórust og
fjögurra er saknað. Hefur þeirra
iverið leitað í allan dag án ár-
jangurs. —• NTB-Reuter.
Olíisfélögm snaðnðu! Morshall-
aðstððiicn um 800 miEIjónir króna
ÞAÐ hefur nú verið upplýst
að alþjóðaolíufélögin, sem
kærð hafa verið fyrir ólögiegt
framferði við skiptingu mark-
aða og verðuppskrúfun, hafi
aukið útgjöld Marshallhjálp-
arinnar um meira en 800 millj.
íslenzkra króna.
MAS. og dómsmálaráðuneyti
Bandaríkjanna hafa nú höfðað
mál á hendur olíufélögunum, sem
eru 7 talsins. Kröfurnar sem
þessir aðilar gera eru bætur sem
svara áðurnefndri íjárupphæð.
Verknaður olíufélaganna er í i
því fólginn að þau hafa komið
sér saman um að hafa tvöfalt
verð á hráolíu. Afleiðingin er sú
að Marshall-lönd Evrópu hafa
orðið að greiða hærra verð fyrir
|þá olíu sem fyrir tilstilli félag-
anna hefur komið frá Mið-Aust-
urlöndum, heldur en félögin hafa
fengið fyrir olíuna í Bandaríkj-
unum.
Mál þetta hefur verið mjög
umfangsmikið og enn hefur ekki
verið birt opinberlega öll skýrsla
þingnefndar þeirrar er málið
rannsakar. Hins vegar er undir-
strikað í skýrslunni að hið mis-
jafna verð hafi lagt-aukna byrði
á ameríská skattborgara,' sem
greiða starfsemi Marshallaðstoð-
arinnar.
Enska olíufélagið Shell neit
aði því opinberlega i dag að
það væri aðíli að nokkrum al-
þjóða olíuhring, en Shell er
eitt þeirra félaga sem ákært
hefur verið fyrir verðupnskrúl
unina.