Morgunblaðið - 05.06.1953, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 5. júní 1953
Tónlistarskóli Isafjarðar
hefur unnið ágætt starf
FIMMTU nemendahljómleikar
Tónlistarskóla ísafjarðar voru
haldnir í Alþýðuhúsinu á Isa-
firði s.l. fimmtudag, og komu þar
fram 22 nemendur skólans, en
skólanum var slitið í samkomusal
Gagnfræðaskóla ísafjarðar sunnu
daginn 30. maí s.l., og lauk þar
með 5. starfsári skólans. Skóla-
stjórinn Ragnar H. Ragnars flutti
þar ávarp og gerði grein fyrir
starfsemi skólans, en síðan léku
nokkrir nemendur skólans á
píanó og orgel. Að því loknu af-
henti skólastjórinn nokkrum
nemendum verðlaun, sem fyrir-
tæki og einstaklingar í bænum
höfðu gefið í því skyni og þakk-
aði þeim, sem rétt hefðu skólan-
um hjálparhönd og styrkt starf-
semi hans á liðnum árum. Verð-
laun fyrir píanóleik hlutu þessir
nemendur: Elsa Finnsdóttir, Sig-
urborg Benediktsdóttir og Frank
Herlufsen. Fyrir orgelleik: Guð-
laugur Jörundsson og fyrir góða
frammistöðu í tónfræði Þorbjörg
Kjartansdóttir, Arni Sigurðsson
og Þui íður Eggertsdóttir. Einnig
hlaut Anna Knauf minningargjöf
En Itann vankgsr ennþá m margt
Samtal við Ragnar H. Ragnars söngstjéra
Nemendur Tónlistarskóla ísafjarðar s.l. vetur
Árshátíð Sjálfstæiis-
maiuia á Aknreyri
Husfyllir í tvö kvöld — Frébærar undirtekfir
AKUREYRI, 3. júní — í vetur
urðu Sjálfstæðisfélögin hér í
bænum að fresta árshátíð sinni
V£gna ótíðar. Ekki hefír síðan
gefizt hentugt tækifæri til þess
að halda hátíðina fyrr en um síð-
ustu helgi. Stóð hátíðin tvö
kvöld að Hótel Norðurlandi og
var húsfyllir bæði kvöldin. Á 6.
hundrað manns sátu hátiðina.
ÁVÖRP ÞINGMANNANNA
Svo sem venja er til þegar
stjórnmálasamtök halda hátíðir
voru á skemmtunum þessum
fluttar ræður stjórnmálalegs
eðlis. Fyrra kvöldið talaði þing-
maður bæjarins, Jónas G. Rafn-
ar. Gerði hann samstjórnir
margra flokka og afstöðu Sjálf-
stæðisflokksins til þeirra að um-
talsefni. Ennfremur stjórnmála-
viðhorfið, eins og það er í dag..
Hvatti hann alla Sjálfstæðismenn
til ötullar samvinnu við kosn-
ingar þær, sem fram undan eru.
Á sunnudagskvöldið flutti
Magnús Jónsson alþingismaður
ávarp. Ræddi hann sjálfstæðis-
stefnuna og undirstöðu hennar,
frelsið. Hvað hann frelsi á öll-
um sviðum þjóðlífsins frum-
skilyrði mannlegrar farsældar.
En írelsið kvað hann hafa sína
takmarkanir, þær takmarkanir,
að það sé einungis notað til
góðs. Ræðum beggja þingmann-
anna var afburða vel tekið, enda
einkenndi þær rökfesta og drengi
legur málflutningur.
Þá fóru fram skemmtiatriði,
þar sem fram komu: Haraidur
Á. Sigurðsson, Alfreð Andrés-
son, norska söngkonan Jeanita
Melin og Carl Billich. Var þeim
öllum mjög vel tekið. — Þau
skemmtu einnig á skemmtun, er
Vörður, félag ungra Sjálfstæðis-
manna á Akureyri hélt á mánu-
dagskvöldið.
Ragnar H. Ragnars, skólastjóri.
frá skólanum, en hún hefir stund-
að nám við skólann s.l. 3 vetur.
5 ÁRA STARF
Að lokum talaði formaður
skólanefndar Tónlistarskólans,
sera Óli Ketilsson, og gerði grein
fýrir starfsemi skólans á liðnum
5 árum og þakkaoi skólastjóra og
kennurum fyrir gott starf og bað
skólanum blessunar í framtíðinni.
í tilefni þessa hefir fréttarit-
ari Morgunblaðsins á Isafirði átt
stutt viðtal við skólastjóra Tón-
listarskólans, Ragnar H. Ragn-
ar, og innt hann frétta af starf-
sémi skólans á liðnum 5 árum.
— Tildrög skólastofnunarinn-
ar?
— Árið 1948 var stofnað hér á
ísafirði Tónlistarfélag ísafjarðar
og voru stofnendur þess 12, en
fyrsti formaður félagsins var
Halldór heitirn Halldórsson
bankastjóri. Msrkmið félagsins
var og er að glæða áhuga almenn
ings fyrir list listanna, tónlist-
inni, með því að fá hingað til bæj
arins góða og þekkta tónlistar-
menn og jafnframt með því að
auka músikkunnáttu almennings
með því að koma hér á fót tón-
listarskóla, þar sem ísfirzk æska
ætti þess kost að fá byrjunar-
kennslu í píanó og orgelleik og
í undarstöðuatriðum tónfræðinn-
ar.
MJÓR ER MIKILS VÍSIR
Það var þetta sumar, sem Jón-
as Tómasson, tónskáld, skrifaði
raér vestur um haf, en ég var þá
bpsettur í Vesturheimi, og fór
þfess á leit við mig, að ég tæki að
njér að setja á stofn tónlistar-
skóla á ísafirði og jafnframt, að
ég tæki að mér stjórn skólans.
- Varð ég við ósKúm þessa ágæta
vinar míns og sveitunga, ef til
vill vegna þess, að mér var þá
ekki kunnugt um, við hverja
erfiðleika var að etja, þar sem
hvorki var til skólahús né hljóð-
færi, en hér hefir sannazt hið
fornkveðna, að mjór er mikils
vísir.
— Hvernig hefir svo skóla-
starfið gengið?
— Ég held, að mér sé óhætt að
segja, að skólastarfið hafi geng-
ið eftir öilum vonum og jafnvel
betur, en menn þorðu að gera
sér vonir um- í upphafi. Ég flutti
til ísafjarðar haustið 1948, og var
skólinn stofnaður í október það
ár, og er það því 5. starísán skól-
ans, sem nú var að ljúka. Ég hefi
frá upphafi haft á hendi kennslu
i tónfræði oe píanóleik, en Jónas
Tómasson, tónskáld, hefir haft á
hendi o.geikenns.una. Haustið
1950 var aðsóknin að skóianum
orðin það mikil, að bætt var við
öðrum kennara í píanóleik, og |
hefir f’-v lr'1’''=3bet Kristjánsdótt-|
Jónas Tumasson, tónskáld.
ir verið fastur kennari við skól-
ann s.l. 3 ár, auk okkar Jónasar.
MIKIL AÐSÓKN
— Hvernig hefir aðsóknin ver-
ið?
— Aðsóknin hefir verið með
eindæmum góð. I vetur innrituð-
ust i skólann 45 nemendur, en
alls hafa 118 nemendur stundað
nám við skóiann frá upphafi.
Auk þess hefir skólinn haldið
námskeið í meðferð blásturshljóð
færa, og sá Harry Herlufsen um
þá kennslu og s.l. haust hélt
Ingvar Jónasson námskeið í fiðlu
leik á vegum skólans. Hann
dvaldi þá hér í sumarle.vfi, en
hann stundar nú nám í fiðluleik
í London.
ERFTB AR AÐSTÆÐUR
— Hvernig hefir aðstaðan við
kennsluna verið?
I — Aðstaðan hefir vissulega ver
ið mjög erfið, þar sem skólinn
átti hvorki húsnæði fyrir starf-
semi sína, né hljóðfæri, en kenn-
arar skólans hafa lánað skólan-
um sín hljóðfæri og annazt
kennsluna á heimilum sínum.
Annars stendur þetta allt til
bóta, því að á s.l. hausti festi
skólinn kaup á húseigninni nr. 5
við Smiðjugötu fyrir skólahús og
jafnframt keypti skólinn ágætt
hJjóðfæri, svo að aðstaðan hefir
mikið batnað, þó að ennþá sé j
margt, sem skólann vanhagar í
um, en við væntum þess, að það
komi allt, þegar skólanum vex
fiskur um hrygg. Það hefir frá
upphafi verið meginhugsjón
stjórnar skóians, að stilla náms-
gjaldi mjög í hóf, til þess að
músíkkunnátta yrði ekki nein
séreign efnameira fólks, heldur
til þess að geta gert hana al-
menna. Hefir skólinn notið ágæts
styrks ríkis og bæjar í þessari
viðleitni sinni.
ERAMTÍÐARVERKEFNI
— Verkefni skólans í framtið-
.nni?
— Starfsemi skólans hingað til
íefir að sjálfsögðu aðeins verið 1
jyrjunarstarfsemi. Er það von
ikkar, að í framtíðinni verði
ægt að fjölga námsgreinum við
.kólann og éinnig að koma á fót j
við skólann barna- og unglinga- !
ór. Einnig ér ennþá margt, sem i
cólan vanhagar um, svo sem j
>óka- og plötusafn til notkunar j
dð kennsluna og fleiri hljóðfæri.
leð aukinni atvinnu, sem nú er i
orðin hér á Isafirði, og þar af ,
íðandi aukinni velmegun fólks- j
■>s, sem bæinn byggir, leyfi ég
mér að vænta þess, að þessar von
ir okkar, sem nú eru, geti allar
orðið að veruleika á skemmri
tíma en okkur órar fyrir og skól-
inn eigi eftir að blómgast og
v rnrnt> - M> j
OlafuM Björnsson:
Lánsfjáreínokun og
innflulningshöft
í TÍMANUM 3. þ. m. er reynt
að þvo Framsóknarflokkinn af
öllum ámælum um það að hann
sé haftaflokkur, en jafnframt
reyna að sanna, að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé í rauninni versti
haftaflokkurinn! Þessu til sönn-
unar nefnir Tíminn það, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi nú í raun-
inni einokun á útlánum bank-
anna, vegna þess að 2 af banka-
stjórum Landsbankans og 1
bankastjóri Útvegsbankans séu
Sjálfstæðismenn. Þau höft, sem
af þessu leiði, séu í rauninni
miklu verri en innflutnings- og
gjaldeyrishöft, sem sett séu af
því opinbera!
Hér er vissulega um mjög vill-
andi málflutning að ræða, sem
ekki verður komizt hjá að leið-
rétta. Það verður nú i fyrsta lagi
ekki komið auga á það hvernig
þessir 3 bankastjórar hefðu getu
til þess að einoka lánastarfsemi
þessara banka í þágu Sjálfstæð-
isflokksins, jafnvel þótt þeir
hefðu fullan hug á því að mis-
nota þannig aðstöðu sína sem
bankastjórar í þágu flokks síns.
Menn eins og Helgi Guðmunds-
son og Jón Árnason hafa þó
hingað til verið taldir hafa bein
í nefi. En jafnvel þótt Sjálfstæð-
ismenn hefðu nú yfirráð yfir
báðum þessum lánastofnunum,
færi því víðs vegar fjarri, að þeir
hefðu með því einokun á allri
lánastarfsemi í landinu. Það eru
þó í fyrsta lagi til 3 bankar aðrir
en þessir, auk þess eru spari-
sjóðirnir, tryggingarstofnunin,
vátryggingarfélögin, kaupfélögin
og f jölda margir aðrir aðilar, sem
hafa yfir fjármagni að ráða. Auk
þess má á það benda, að bank-
arnir ráða ekki yfir öðru fjár-
magni en því, sem almenningur
trúir þeim fyrir til ávöxtunar.
Það er ólíklegt að allir myndu
til lengdar sætta sig við það, að
trúa þessum bönkum fyrir spari-
fé sínu, ef þeir tryðu því, að öll
starfsemi þeirra væri einokuð í
þágu eins stjórnmálaflokks, en
auðvitað standa sparifjáreigend
um ótal leiðir opnar til þess að
ávaxta sparifé sitt á öruggan
hátt.
Jafnvel þótt um slíka einokun
væri að ræða, sem Timinn talar
um, er hún á engan hátt sam-
bærileg við gjaldeyriseinokun
innflutningsfyrirkomulagsins. —
Þegar gjaldeyrishöft eru, er það
aðeins einn aðili, sem hægt er að
snúa sér'til fyrir þá, sem kaupa
vilja gjaldeyri. Slík einokun er
því alger, þar sem ítök einstakra
stjórnmálaflokka í lánastofnun-
um geta aldrei veitt þeim nema
mjög takmörkuð yfirráð yfir fjár-
magni landsmanna, vegna þess
hve því er ávallt dreift á margar
hendur.
Annars er það athyglisvert, að
málgögn bæði Framsóknarmanna
og Alþýðuflokksmanna hér í
Reykjavík virðast nú keppast við
að sverja það af sér, að þeir hafi
í hyggju að mynda stjórn saman
eftir kosningar. Þar sem báðir
erú hins vegar sammála um, að
„íhaldið'* sé óalandi og óferjandi,
en samstjórn áðurnefndra tveggja
flokka er bersýnilega eini mögu-
leikinn, sem fyrir hendi er til
þess að mynda stjórn án þátttöku
1 Sjálfstæðismanna, þá hljóta kjós-
endurnir að spyrja: Hvað er það
eiginlega, sem fyrir þessum
flokkum vakir varðandi stjórn-
arfarið eftir kosningar? — Á að
stefna út í algert stjórnleysi, þar
sem allt yrði logandi í verkföll-
um og upplausn? Þess er að
vænta, að ekki verði langt að
bíða, að skýrt og greinargott svar
fáist við þessari spurningu.
Ólafur Björnsson.
Bilreiðastjóri
getur fengið atvinnn
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS
Elísabet Krist;-ánsdóttir, kennari. ~ AUGLYSING ER GULLS JGILDJ —