Morgunblaðið - 05.06.1953, Page 11
Föstudagur 5. júni 1953
MORGUNBLAÐIÐ
Fisksalan í Grimsby virðisf Nemendur braul
vera í hinum mesta ólesfri
Þýzkur skipstjóri segir frá söluferð
AKUREYRI, 28. maí: Á annan í
hvítasunnu kom hingað til Ak-
lireyrar, vegna bilunar, þýzki
togarinn Otto Bertram frá Cux-
haven. Þessi þýzkí togari var
fyrir nokkru í Grímsby og sagði
skipstjórinn mér, að sér virtist
fisksölur þar vera í hinum mesta
ólestri og var hann mjög óánægð-
ur með söluferð sína þangað.
5000 STP. LAGMARKSVERÐ
Togarinn var í Grimsby þ. 25.
apríl. Hafði hann verið á veið-
um hér við land og var með
afla á útleið, er skípstjóranum
bárust fyrirmæli um að selja í
Grimsby. Þar var okkur tryggt
lágmarksverð fyrir fiskinn, sagði
skipstjórinn 5000 pund, en ég
hafði þá gefið upp magn og fisk-
íegundir.
RÚM 2000 KIT f FISKIMJÖL
Þegar komið var á sölumark-
aðinn, var landað úr þýzka tog-
aranum 3360 kittum af fiski. Af
því seldust til neyzlu 1060 kit
fyrir 2218 pund, en afgangurinn
fór allur í fiskimjöi, 2200 kit fyrir
705 sterlingspund. Sýndi skip-
stjórinn mér reikninginn yfir
söluna, og að fiskurinn hefði
verið í prýðis ásigkomulagi og
allt góðfiskur.
Skipstjórinn sagði, að heima í
Þýzkalandi myndi hann hafa
fengið um 40% hærra verð fyrir
þennan afla. Lét hann mjög illa
yfir þessari söluferð og viðskipt-
um sínum við hina brezku fisk-
kaupmenn. —Vignir.
Fréttir frá
í. s. í.
ÍÞRÓTTARÁÐSTEFNA Rikis-
íþróttasambanda Norðurlanda,
verður haldin í Reykjavík 23. og
24. júlí n.k.
Þar mæta fulltrúar frá öllum
Norðuriöndunum. — Um 35 ára
skeið hafa slíkar ráðstefnur ver-
ið haldnar og þá til skiptis í höf-
uðborgum Norðurlanda. Þetta er
í fyrsta sinn sem ráðstefna Ríkis-
íþróttasambanda Norðurlanda er
haldin hér á landi.
ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ verður hald-
ið á Akranesi 4. og 5. júlí n.k.
GULLMERKI ÍSÍ hafa þessi ver-
ið sæmd: Frú Katrín Viðar,
Reykjavík, Hermann Stefánsson,
íþróttakennari, Akureyri. Guð-
mundur Hofdal, íþróttaþj., Rvík.
NORRÆNT skautamót í list-
i hlaupi verður haldið á Grænlandi
| í febr. 1954. í sambandi við þetta
j mót er gert ráð fyrir að þátttak-
| endur frá Norðurlöndunum komi
við hér í Reykjavík og hér verði
j sýnt listhlaup.
Straumur flóttafólks
BERLÍNARBORG — í flótta-
mannabúðunum í Vestur-Berlín
eru í svip 30 þús. flóttamenn.
S. 1. mánuð flýðu um 40 þúsund
manns til borgarinnar undan
stjórn kommúnista.
Jóhonn Sigurðsson
ÚHsstoðum sjötufur
í DAG er heiðursbóndinn Jóhann
Sigurðsson, Úlfsstöðum, Skaga-
firði, sjötugur. Jóbann er fæddur
á Bjarnastöðum í Blönduhlíð, son
ur hjónanna Sigurlaugar Sveins-
dóttur frá Minni-Ökrum og Sig-
urðar Jónssonar bónda á Bjarna-
.stöðum og Yztu-Grund.
Árið 1908, 28/4., giftist Jóhann
Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur frá
Miðgrund og hófu þau búskap
sama ár að Borgargerði í Norður
árdal, en fluttust að Úlfsstöðum
1917 og bjuggu þar til ársins
1943, en þá tók við jörðinni sonur
þeirra hjóna Sigurður, og jörð-
in gerð að ættaróðali. Þegar þau
hjón fluttu að Úlfsstöðum mun
sú jörð hafa verið talin með lé-
legri býlum í Blönduhlíð, en nú
þarf ekki glöggan mann til að sjá
áð þar hefir hugur og hönd verið
að verki, þrotlaust starf til að.
fegra og bæta, rækta og græða,
enda mun óhætt að fullyrða að
Úlfsstaðir er nú ein af byggileg-
ustu jörðum Blönduhlíðar og ber
húsbændunum glöggt vitni. Jó-
hann er maður greindur og i
gjörfulegur enda verið falin ýmis
trúnaðarstörf fyrir sveit sína. j
Hreppsnefndarmaður í 11 ár, for
maður búnaðarfél. Akrahrepps í j
15 ár, í stjórn rekstrarlánafél. j
\krahrepps. í stjórn Verzlunar- j
fél. Skagfirðina, í skólanefnd, '■
’áttanefnd. í Hólanefnd, (er starf
iði að uppsetningu Jóns Ara-
■onar turnsins), svo að eitthvað
é nefnt. Árið 1935 hlaut hann
æiðurslaun úr styrktarsjóði
Kristjáns konungs 10. Jóhann er
naður höfðingí í lund enda er
Ýlfsstaðaheimilíð römað fyrir
■'estrisni og myndarskap. Jóhann
t orðlagður dugnaðar- og ráð- .
ieildarmaður, enda notið stuðn-
ngs sinnar framúrskarandi vel
erðu og glæsilegu konu. Sá er
’etta ritar hefir átt því láni að
agna að þekkja Jöhann um langt
vrabil og veit að fátt er honum
óljúfara en að borið sé á hann
hól, enda tilgangur minn að
eins sá að þakka þér Jóhann alla
tryggðina og vináttuna gegnum
árin, um leið og ég flyt þér inni-
legustu hamingjuóskir á þessum
merku tímamótum ævi þinnar.
Ég veit að gestkvæmt verður á
Úlfsstöðum i dag og margir fjar-
staddir vinir og kunningjar munu
senda þér í huganum árnaðar-
óskir um leið og minnst er lið-
j inna gieðistunda.
Ég óska þér og fjölskyldu gæfu
j og gengis á ókomnum árum með
kærri þökk fyrir það liðna.
Vinur.
skréðir úr Kennara-
skólanum
KENNARASKÓLANUM var slit
ið 29. maí eins og áður hefir verið
sagt frá hér í blaðinu. Þessir
brautskráðust:
ÚR 4. BEKK:
Arnaldur Árnason, Akureyri,
Árni Gunnarsson, Reykjavík,
Bjarni Rögnvaldsson, Reykjavík,
Emil Emilsson, Seyðisfirði
Eyjóifur Jónsson, Keflavík
Guðjón Jónsson, Hólmum í Reyð-
arfirði
Guðlaugur Torfason, Hvammi í
Hvítársíðu
Hákon Magnússon, Reykjarfirði.
Heimir Gíslason, Selnesi í Breið-
daisvík
Helgi Seljan, Seljateigi, Reyðar-
firði
Indriði Úlfsson, Héðinshöfða á
Tjörnesi
Ingi Bergmann, Reykjavík
Kjartan Bjarnason, Reykjavík
Kristinn Einarsson, Reykjavík
Magnús Þorsteinsson, Akranesi
Ólafur Einarsson, Reyðarfirði
Ólafur Jónsson, Árósum í Fljót-
um
Páll Guðmundsson, Borgarnesi
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Glæsibæ í Eyjafirði
Sigfús Johnsen Vestmannaeyjum
Sigrún Gunnlaugsdóttir, Sunnu-
hvoli í Bárðardal
Sigurður Flosason, Hrafnsstöðum
í Ljósavatnshr.
Sæmundur Guðmundsson, Stykk
ishólmi
Úlfljótur Jónsson, Ólafsvík.
ÚR STÚDENTSDEILD
BRAUTSKRÁÐUST:
Aðalsteinn Kjartansson, Reykja-
vík
Ása Hauksdóttir, Akureyri
Elís Guðnason, Berserkseyri,
Snæf.
Erla Adamsdóttir, Akureyri
Eria Emilsdóttir, Reykjavík
Herdís Egilsdóttir, Húsavík
Hildur Þórisdóttir, Húsavík
Jón Friðriksson, Hofsósi
Kristmundur Breiðfjörð, Rvík
Margrét Sigþórsdóttir, Rvík
Sigríður Jónsdóttir, Akureyri
Þorsteinn Jónsson, Vatnsholti,
Staðarsveit
Þórarinn Guðmundsson, Akur-
eyri
Þórir Einarsson, Höfðakaupstað.
ÚR HANDAVINNUDEILD
SKÓLANS
Stúlkur:
Aldís Bjarnadóttir, Selfossi
Anna Hallgrímsdóttir, Grafargili
V-ísaf.
Anna Jónsdóttir, Sólgarði í
Vopnafirði
Erla Ásgeirsdóttir, Reykjavík
Gerður Sigurðardóttir, Árgerði
í Ólafsfirði
Hallfríður Pétursdóttir, Sigluf.
Ingíbjörg Sigurðardóttir, Hafnar
firði
Ingileif Zoega, Reykjavík
Ingunn Arnórsdóttir, Reykjavík
Ólöf Þórarinsdóttir, Hlíð í Mos-
fellssveit
Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Tungu í Fáskrúðsfirði
Rósa Árnadóttir, Jódísarstöðum
í Eyjafirði
Sigriður Guðjónsdóttir, Eyrar-
bakka
Sólveig Jónsdóttir, Akureyri
Vilborg Björgvinsdóttir, Rvík
Vilborg Vilmundardóttir, Króki
í Gai'ðahreppi.
Piltar:
Erlingur Jónsson, Hafnarfirði
Halldór Sigurðsson, Eiðum
Hróar Bjarnason, Brún í Reykja
dal
Ingimundur Magnússon, Bæ í
Króksfirði
J.ónas Tómasson, Sólheimatungu
Sigúrjón Hilaríusson, ísafirði
Tryggvi Eyjólfsson, Lambavatni
á Rauðasandi.
SÖNGKENNARAPRÓFI LUKU:
Ástríður Björnsdóttir og
Jón Þórarinsson.
lií.
Lindgren í hlutverki
Violettu í „Ln Truviuta
UNGFRÚ Dóra Lindgren syngur
nú hlutverk Violettu í „La Tra-
viata“ í stað Hjördísar Sehym-
berg, sem skrapp til Stokkhólms
í nokkra daga. Vekur söngur
ungfrú Dóru Lindgreen miklá
athygli. — Röddin er ekki ýkja
mikil, en skær og mjög fögur og
glitrandi á háu tónúnum og beit-
ir ungfrúin henni af mikilli list
og smekkvísi. Er píanó-söngur
hennar sérstáklega töfrandi,
mildur og þýður. Leysti ungfrúin
hlutverk Violettu glæsilega af
hendi, þó bezt nyti hún sín í síð-
asta þættinum. Mun ungfrúin
syngja enn í nokkur skipti, eða
þar til Hjördís Schymberg kem-
ur aftur. Er fróðlegt að bera sam-
an hvernig tveir ágætir söngvar-
ar móta sama hlutverk, að ýmsu
leyti á ólíkan hátt, en þó báðir
framúrskarandi vei.
P. í.
★
SVO virðist sem vorkvöldin ís-
lenzku og hinar gömlu og góðu
óperur fari sérstaklega vel sam-
an. Þegar komið er fram í júní-
mánuð og farið er að draga úr
aðsókn að venjulegum leiksýn-
ingum, bregzt það ekki, að óperu
sýningar fylla Þjóðleikhúsið á ný
Dora Lindgren og
Einar Kristjánsson
kvöld eftir kvöld jafnvel þó að
veðrið sé eins fagurt og verið
getur. Þannig hefur reynslan ver-
ið um óperurnar tvær, Brúðkaup
Figaros og Rigolettó og óperett-
una Leðurblökuna, sem sýndar
hafa verið í Þjóðleikhúsinu og
svo mun einnig verða um La
Traviata nú.
Atvikin hafa hagað því til svo
skemmtilega, að Reykvíkingum
gefst nú kostur á að sjá tvær af
fremstu óperusöngkonum Svía
fara með aðalhlutverkið, Violettu
í La Traviata. Hef ég áður getið
að nokkru frábæi’s leiks Hjör-
dísar Schymberg í hlutverki
þessu á frumsýningunni. — Hún
hefur nú orðið frá að hverfa í
bili, vegna Stokkhólmshátiðar-
innar, en í hennar stað er hingað
komin Dora Lindgren, hin mikil-
hæfasta söng- og leikkona. Hér
verður vitanlega ekki farið í
neinn mannjöfnuð milli þessara
ágætu listakvenna, en þó er fróð-
legt og skemmtilegt að bera sam-
an túlkun þeirra á hlutverkinu,
sem er næsta ólík að mörgu leyti.
Dóra Lindgren leysir af hendi
hlutverk sitt, að því er leik snert-
ir, af frábærri snilld. Hún er létt
og mjúk í hreyfingum og vöxtur
hennar fellur einkar vel við hlut-
verkið. Mesta hrifningu manna
vekur þó hinn næmi skilningur
hennar á hlutverkinu, hin sterka
innlifun, sem kemur svo átakan-
lega í ljós bæði í söng hennar og
leik. — Leyndi sér ekki að
söngkonan hafði þegar eftir
fyrsta atriði ieiksins unnið huga
og hjarta allra leikhúsgesta, ei'
fögnuðu henni ákaft eftir hverja
aríu, sem hún söng og hvern þátt.
— Að leikslokun var hún, kölluð
. fram hvað eftir annað og hyllt
með langvarandi lóftaki og fögr-
um blómum.
Misfellur þær sem á sýning •
unni voru í fyrstu, eru nú horfn -
ar að mestu og heildarsvipur
hennar er nú aiiur írjajs'legri óg
öruggari.
Sigurður Grímssor'.
Húsmæðraskóli
Suðurlands að
Laugarvatni tíu éra
10 ÁR eru nú liðin síðan hús-
mæðraskóli tók til starfa á Laug ■
arvatni. Skólinn er til húsa i,
stóru og viðkunnanlegu húsi t
gróðrarstöðinni á Laugarvatni
Hafa húsakynni skólans ■ verið
aukin og endurbætt á undanförn •
um árum, svo að þau svara fylli-
lega þeim kröfum, sem nú ef.tr-
gerðar til skólahúsnæðis.
Nemendur voru færri í vetu.r
en venjulega eða aðeins 14. E.n
auk þess nutu 45 stúlkur úr hér-
aðskólanum að Laugarvatni til- ■
sagnar í matargerð, þvotti og
ræstingu og hannyrðuni. Naut
hver bekkjardeild 3ja stunda
'kennslu vikulega.
Hæstu einkunn við vorpróí
hlaut Guðrún Jósafatsdóttir frá
Sauðárkróki, fyrstu einkunn
9.27. Sýning á handavinnu nem-
enda stóð yfir í 2 daga, 27. og
28. maí. Fjöldi manns sótti sýn-
inguna víðsvegar að og lauk lofs •
orði á vinnu og afköst nemendp
Meðal gesta á miðvikudagmn
voru kennarar og nemendur
Húsmæðraskóla Reykjavíkur og
Húsmæðraskólans á Hverabökk-
um.
Skólanum var slitið s. L föstu-
dag. Forstöðukona skólans, Jen ■
sína Halldórsdóttir, flutti aðal
ræðuna. Rakti hún starfsferil
skólans í stórum dráttum s. T,-
10 ár og flutti skýrslu um skóla C
starfið á nýliðnum vetri.
Að lokum þakkaði hún náros-í
meyjum ánægjulegt samstarf ;i
skólaárinu og árnaði þeim heilla,
Auk forstöðukonu tóku til
máls Halldóra Eggertsdóttix-
námstjóri, Bjarni Bjarnasori
skólastjóri og Vilborg Björna
dóttir, húsmæðrakennari. Talaðr
hún fyrir hönd námsmeyýa-
brautskráðra 1943, en þær fjöt-,
menntu við skólaslit. og færðiC'
skólanum gjafir,
Fjölmennt var við skólaupf .
sögn og þágu allir gestir veit-’
ingar.
Við brottför sunnudaginn 3)
maí heimsóttu kennarar og námu-j
mejrjar Húsmæðraskólann
Hverabökkum.
Nú hefur Húsmæðrakennara- j
skóli íslands setzt að í skólahús-1
inu, en hann hefur skólann. .ij
leigu annað hvort sumar, vegnnl
sumarstarfsemi sinnar. v
Góðir gestir
á Selfossi
SELFOSSI, 31. maí — Karlakór
Reykjavíkur, söngstjóri Sigurður,
Þórðarson, hélt söngskemmtun ,<s
Selfossbió í dag við ágæta að-
sókn. Einsöngvari var Guðmund-.
ur Jónsson, óperusöngvari, við
hljóðfærið Fritz Weisshappel.
Áheyrendur tóku kór og ein- j
söngvara með miklum fögnuði?
og hrifningu. Nokkur lög vardj
kórinn að endurtaka og syngja i
mörg aukalög. Söngstjóranum:
barst blómvöndur.
Hafi þessir góðu gestir þök
fyrir komuna.