Morgunblaðið - 07.08.1953, Page 1
49. árgangur
175. tbl. — Föstudagur 7. ágúst 1953.
Prentsmiðja Msrgunblaðsina
CLARK segir,
að kommúnislar hafi fieiri
fanga í hafdi en þeir gefa upp
Norður-Kóreumeim pyntuðu stríðs-
fanga S. Þ.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
PANMUNJOM, 6. ágúst. — Fangaskiptin í Kóreu ganga eins og í
sögu, að því er hermir í fréttum frá Panmunjom. — í dag afhentu
kommúnistar 392 fanga S. Þ. og kváðust mundu afhenda um 400
fanga á morgun. Hins vegar afhentu S. Þ. 2400 kommúnistaher-
menn, sem teknir höfðu verið höndum. Létu þeir öllum illum lát-
um, slógu fangaverði S. Þ., slitu klæði sín o. s. frv. Varð fanga-
nefnd kommúnista að biðjast afsökunar á framferði þeirra og lofa
að slíkt endurtæki sig ekki.
Framsóknarðlokkurinn heldur
fcist við þriggja flokka viðræður
Flokksráðsfundur Sjálfstæðis-
fiokksins boðaður n.L mánudag
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gær afhentu ráðherrar Fram-
sóknarflokksins bréf það, sem hér fer á eftir. Er það svar
við bréfi Sjálfstæðisflokksins dagsettu 31. júlí s.l.
í bréfi þessu heldur Framsóknarflokkurinn enn fast við,
að vilja draga Alþýðuflokkinn inn í umræður um stjórnar-
myndun og hefur nú verið boðaður flokksráðsfundur í Sjálf-
stæðisflokknum n.k. mánudag til að taka afstöðu til málsins.
Bréfið er svohljóðandi:
Hermaður í 49 ár
ÞEKKTU EKKI DULLES
Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, heilsaði upp á
r.okkra af þeim bandarísku föng-
um, sem sleppt var í dag. Þekktu
þeir hann ekki, enda voru þeir
f lestir teknir ' höndum, áður en
hann tók við utanríkisráðherra-
embættinu.
/ETLA EKKI AÐ SKILA
ÖLLUM
Mark Clark, yfirhershöfð-
ingi S. Þ. í Kóreu, sagði á
blaðamannafundi í Washing-
ton í dag, að ástæða væri til
að halda, að Kínverjar hefðu
fleiri fanga S. Þ. í haldi en
þeir hefðu gefið upp. Væri
hann m. a. þeirrar skoðunar,
að meðal þcirra séu um 3000
Bandaríkjahermenn og þús-
undir Suður-Kóreumanna. —
Kvaðst hann ætla að gera allt,
sem í hans valdi stæði til að
knýja kommúnista til að skila
öllum föngum S. Þ., sem þeir
liafa tekið, en ekki gefið upp.
PÍNDU HARRISON
Einn þeirra fanga, sem komm-
únistar afhentu í dag, var Tóm-
as Harrison, offursti. Kvað hann
kommúnista hafa margreynt að
pína sig til sagna og reyna að
hafa út úr sér hernaðarleyndar-
mál.Var hann t.d. færður hálfnak
inn inn í ískalt herbergi, þar sem
kommúnistar bundu handklæði
fyrir vit honum og heltu vatni í
það, svo að honum lá við drukkn-
un. Einnig brenndu þeir hann
með logandi vindlingum og
sveltu hann í heila viku. — Hins
vegar sagði hann, að meðferðin
hefði verið þolanlegri, eftir að
Kínverjar tóku við fangagæzl-
unni.
Líklegf a$ 19 manns af banda-
ríska flugvirkinu hafi farizf
Leitimii erþó haldið áfram
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LUNDÚNUM, 6. ágúst. — í dag fundust tvö lík af áhöfn banda-
ríska risaflugvirkisins, sem hrapaði í Atlantshafið í fyrrinótt. Hafa
nú fundizt 5 lík af áhöfn flugvirkisins, en 4 mönnum verið bjargað.
WASHINGTON, 6. ágúst. —
Mark Clark, yfirhershöfðingi
herja S. Þ. í Kóreu, sagði í dag,
að hann hefði farið þess á leit,
að hann yrði leystur frá embætti
sem yfirmaður Bandaríkjahers
austur í Asíu. Kvaðst hann von-
ast til, að lausnarbeiðnin yrði tek
in til greina, svo að hann gæti
látið af störfum fyrir október-
lok. —
Mark Clark er nú 57 ára að
aldri og hefur verið yfirmaður
bandaríska hersins í Japan í eitt
ár, jafnframt því sem hann hef-
ur verið yfirhershöfðingi S. Þ.
í Kóreu.____________________
Umferðarslys
LUNDÚNUM: — Umferðarslys í
júnímánuði s.l. voru rúmlega 20
þús. í Bretlandi. 1 slysum þessum
fórust á 5. hundrað manna. Þetta
er allmikil aukning frá í fyrra. Á
fyrra misseri ársins hafa þá 103
manna lent í umferðarslysum, þar
sem 2.300 fórust.
23 MENN UM BORÐ <
Flugvirkið steyptist logandi í
sjóinn 800 km frá strönd írlands.
Um borð í því voru 23 menn. —
Útlit er fyrir, að þeir hafi flestir
látið lífið, en þó er ekki útilokað,
að einhverjir þeirra séu enn lif-
andi og þá hafi rekið frá þeim
stað, þar sem slysið varð.
LEITINNI HALDIÐ ÁFRAM
í dag var leitinni að hinum
týndu haldið áfram. Þátt í henni
tóku 23 flugvélar og 5 skip. Mik-
ill sjór er á slysstaðnum og
strekkingsvindur.
Þrír þeirra manna, sem björg-
uðust eru um borð í Empress’ of
Australia, sem væntanleg er til
Liverpool á laugardag, en 1 er
um borð 1 Manchester Skipper,
sem bjargaði honum._______
Nýr forseti
Stokkhólmi. —T Svíinn Malm-
gren var í dag kosinn forseti
Alþjóðasambands Esperantista
til næstu þriggja ára. — Al-
þjóðaþing esperantista hefur
úndan farið verið haldið í Za-
greb. — NTB.
Reykjavík, 6. ágúst 1953.
BRÉF FRAMíSÖKNAR-
FLOKKSINS
„Framsóknarflokkurinn hefur
móttekið heiðrað bréf formanns
Sjálfstæðisflokksins, dags 31. f.m.
Framsóknarflokkurinn leyfir
sér um leið og hann svarar bréfi
þessu að vekja athygli á því, að
miklar bréfaskriftir milli flokka
hafa sjaldan reynzt hagkvæmar
vinnuaðferðir til þess að koma
á stjórnarsamstarfi — samtöl
hafa þar reynzt óhjákvæmileg.
Flokkurinn leggur því til, að
viðræður fari fram milli Alþýðu-,
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
ins og með þeim hætti sé reynt að
koma á samstarfi þriggja flokka.
I 1 annan stað bendir Framsókn-
arflokkurinn á, að í öllum flokk-
\ um hafa verið uppi raddir um
það, að breyta þyrfti stjórnar-
skránni og að endurskoðun henn-
^ ar hefur staðið yfir síðan lýðveld
ið var .endurreist. Þar sem núver
! andi ríkisstjórn varð fyrst og
fremst að einbeita sér að ráðstöf-
unum til að koma í veg fyrir rík-
isgjaldþrot og hrun atvinnuveg-
anna, hefur m. a. af þeim ástæð-
um orðið dráttur á afgreiðslu
þessa máls, En nú eru aðstæður
þannig í íslenzku þjóðfélagi, að
til þessa starfs er betra tóm en
lengi hefur verið, og Framsóknar
flokknum virðist það ekki aðeins
eðlilegt, heldur skylt, að flokk-
arnir noti nú tækifærið til þess
að gera ýtrustu tilraun til að
hrinda þessu máli fram og telur
vænlegt til góðs árangurs, að
mynduð sé samstjórn flokkanna
þriggja.
Bréfi þessu fylgir skrá þar sem
upp eru talin nokkur mál, sem
Framsóknarflokkurinn telur að
leggja beri áherzlu á að fram-
kvæma í væntanlegri stjórnarsam
vinnu og munu verða umræðu-
grundvöllur af hans hálfu.
Virðingarfyllst,
Hermann Jónasson“.
□-
-□
250 þús.
flóttamenn
BERLÍN, 6. ágúst. — Sam-
kvæmt síðustu fréttum
vestur-þýzku flóttamanna-
stjórnarinnar hafa meira
en 250 þús. austur-þýzkir
flóttamenn flúið til Vestur-
Þýzkalands, það sem af er
þessu ári.
□-
-□
Setjast að í Río
Ósló. — Ragnhildur prinsessa
og maður hennar, Erlingur Lor-
entzen, komu í dag til Río De
Janeiró, þar sem þau hyggjast
setjast að. — NTB-Reuter.
SEMUR MOSSADEK
VIÐ KOMMÚNISTA!
TEHERAN, 6. ágúst. — í frétt-
um héðan segir, að Mossadek, for j
sætisráðherra, hafi í hyggju að
svipta íranskeisara öllum þeimj
völdum, sem hann hefur haft til
þessa.
★ Einnig eru stjórnmálafrétta-
ritar á því, að Mossadek hafi
verið svo ánægður með úrslit
„kosninganna“, sem hann lét fara
fram í Teheran s.l. sunnudag, að
hann muni beita sér fyrir nýjum
kosningum til Iransþings á næst-
unni.
★ Þá er það skoðun stjórnmála
fréttaritara hér í Teheran, að
Mogsadek muni innan skamms
endurskipuleggja stjórn sína. Er
jafnvel búist við, að hann veiti
kommúnistum (Tudeh-mönnum)
mikilvæg ráðherraembætti.
NTB-Reuter.
IUálgagn kommúnista segir:
Stríðsæsingasinamð brot að sækja
matvælaböggla til Vestur-Berlímax
Einkaskeyti frá NTB, Reuter og dpa.
BERLÍN. — Rúmlega einni milljón matvælaböggla hefur nú verið útbýtt meðal hungraðra
íbúa Austur Berlínar og Austur-Þýzkalands. Þetta mun nema um 5000 smálestum mat-
væla og er enginn vafi á því að það hefur komið sér vel í hungursneyðinni í Austur-
Þýzkalandi, þótt yfirvöld kommúnista (umboðsmenn fólksins!!) hafi gert allt sem í
þeirra valdi stóð til að tálma matvælaflutningunum. Hefur málgagn kommúnista kallað
það stríðsglæpasinnað brot að sækja matvælaböggla til Vestur-Berlínar.
Tálmanir kommúnista eru fólgnar í því, að stöðva sölu farmiða með járnhrautum frá
Austur-Þýzkalandi til Berlínar og einnig í því, að vopnað lögreglulið þeirra stendur á
markalínunni við Vestur-Berlín og á járnbrautarstöðvum, sem þaðan liggja. Gera lög-
reglumennirnir upptæka alla matvælaböggla, sem þeir koma auga á.
Þessar ráðstafanir kommúnista hafa vakið megna gremju almennings í Austur-Þýzka-
landi. Birtist það m. a. í víðtækum innisetuverkföllum, mótmælagöngum og að fólk hef-
ur safnazt saman og beitt valdi til að koma matvælabögglum gegnum varðlið kommún-
ista. Einstöku sinnum hefur fólki tekizt með því móti að brjótast gegnum tálmanirnar, en
oftar hafa lögreglumennirnir borið það ofurliði. Hafa nú borizt fregnir frá miklum óeirð-
um á sunnudag og mánudag, ekki aðeins í Austur-Berlín, heldur víðsvegar um allt Aust-
ur-Þýzkaland. Viðurkennir austur-þýzka fréttastofan og austur-þýzk kommúnistablöð
þetta, en saka að sjálfsögðu „fasista“ um rósturnar. Sjónarvottar skýra frá því, að austur-
þýzk lögregla hafi beitt vægðarlausum aðgerðum, látið kylfuhögg dynja á verkamönnum,
skotið á múginn og mikill f jöldi manna hefur verið fangelsaður.
Á bls. 7 eru nánari fréttir af atburðunum í Austur-Þýzkalandi.