Morgunblaðið - 07.08.1953, Blaðsíða 4
MOKGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 7. ágúst 1953
219. dagur ársins.
ÁrdegisflæSi kl. 3.55.
Síðdegisflæði kl. 16.30.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1616.
Rafmagnstakmörkunin:
1 dag, föstudag, er skömmtun
í 4. hverfi frá kl. 9,30 til 11,00, í
5. hverfi frá kl. 10,45 til 12,15, í
l'. hverfi frá kl. 11,00 til 12,3Ö, 1
2. hverfi frá kl. 12,30 til 14,30 og
í 3. hverfi frá kl. 14,30 til 16,30.
• Brúðkaup •
í dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Óskari Þorlákssyni
Gyða Jóhannsdóttir, skrífstofu-
mær, Ljósvallagötu 20 og Kristján
Magnússon, húsasmíðameistari,
Óunnarsbraut 32. —
Föstudaginn 31. júlí s.l. voru
gefin saman í hjónaband af séra
Sigurjóni Þ. Árnasyni, ungfrú
Kakel Margrét Viggósdóttir,
Skipasundi 27, og Sigurður
Sveinn Jónsson, skrifstofumaður,
Lönguhlíð 21.
Síðastliðinn laugardag voru gef
in saman í hjónaband ung-frú
Jóna Þórðardóttir og Ingvar Gísli
Sigurðsson, innheimtumaður, —
Grettisgötu 71. Séra Sigurjón Þ.
Árnason framkvæmdi hjónavígsl-
úna. —
, Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Sigurjóni Þ.
Árnasyni ungfrú Dagný Halldórs
dóttir og S i gu rðu r Jóhannsson,
yerkamaður, Hellú, Ytri-Njarð-
vík. —
Dagbók
** • Hjónaefni •
; Sunnudaginn 2. ágúst opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú '-igrún
Gústafsdóttir ’Sveinsson, Melhaga
16 og stúdent Leifur Magnússon,
Skólavörðustíg 3.
; S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Þorgerður
Blandon, Háteigsvegi 16 og Sig-
jisður E. Haraldsson, verzlunar-
maður, Grundarstíg 5.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag Islands h.f.:
; Brúarfoss er í Hamborg. Detti-
foss fór frá Reykjavík 5. þ.m. til
Hull, Hamborgar og Rotterdam.
Goðafoss kom til Reykjavíkur 3.
þ.m. frá Hull. Gullfoss kom til
Kaupmannahafnar í gærmorgun,
frá Leith. Lagarfoss fór frá New
Jfork 31. f .m. til Reykjavíkur. —
Reykjafoss fór frá Rotterdam í
gærdag til Antwerpen og Flekke-
fjord. Selfoss kom til iSeyðisfjarð-
ar 6. þ.m., fer þaðan til Norðf jarð
ar, Bakkafjarðar, Vopnafjarðar,
Þórshafnar og Raufarhafnar. —
Tröllafoss kom til New York 5. þ.
m., fer þaðan væntanlega 13. þ.m.
til Reykjavíkur.
i
Ríkisskip:
Hekla er væntanleg til Reykja-
víkur árdegis á morgun frá Glas-
gow. Esja fer frá Reykjavík kl.
20,00 í kvöld vestur um land í
hringferð. Herðubreið fer frá
Reykjavík kl. 24 í kvöld austur
um land til Raufarhafnar. Skjald
breið er væntanleg til Reykjavík-
ur árdegis í dag að vestan og
norðan. Þyrill er á Austfjörðum
á suðurleið. Skaftfellingur fór frá
Reykjavík í gærkveldi til Vest-
mannaeyja. —
Skipadeild SÍS:
Hvassafell kom til Siglufjarðar
í dag. Arnarfell fór frá Hauga-
sund 6. þ.m. áleiðis til Faxaflóa-
hafna. Jökulfell fór frá Keflavík
í gær áleiðis til Álaborgar. Dísar
fell fór frá Haugasund 4. þ.m.
áleiðis til Norð-Austurlands. Blá-
fell fór frá Stettin 1. þ.m. áleiðis
til Bakkafjarðar.
Eimskipafclag Rvikur li.f.:
M.s. Katla lestar , timbur í
Finnlandi. —
• Flugferðir •
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2), Vest
mannaeyja, Fagurhólsmýrar, —
Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju-
bæj arklausturs, Patreksf j arðar,
Sauðárkróks og Sigluf jarðar. —Á
morgun eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar (2), Vestmannaeyja
Egilsstaða, ísafjarðar og Sauðár-
króks. — Millilandaflug: — Gull-
faxi fer til Osló og Kaupmanna-
hafnar kl. 8.30 í fyrramálið.
• Blöð og tímarit •
Stjörnur, júlíhefti, hefur borizt
blaðinu. Eru fjölda margar grein-
ar í því um kvikmyndir og leikara
svo og sögur og rabbþættir. M. a.
er grein um Doris Day, Vincent
Price og Rosemary Clooney. Þá
er grein um nýjungar í kvik-
SVIIMAKJOT
í steik og kótelettur.
Kjötverzl. BÚRFELL
Sími: 82750.
Ensk fataefni
Tökum upp í dag vönduð ensk karlmannafataefni
— einlit og röndótt.
Jón & Þorgils, klæðskeram.
Hafnarstræti 21 — Sími 82276.
K V E N-
Dragtir og kápur
Nokkrar enskar ullardragtir og kápur verða seldar
með tækifærisverði í dag og næstu daga.
Pétur Pétursson,
Laugaveg 38.
myndagerð, tízkusíða, innlendir og
erlendir danslagatextar og fjölda
margt fleira. Heftið er vandað að
frágangi, smekklegt og skreytt
fjölda myn(Ja. — Ritstjóri er Bald
ur Hólmgeirsson.
;
Bókmenntir
1 upphafl greinarinnar um bók-
ina „Könnun andaheima“ í biað-
inu s.l. miðvikudag, misritaðist
nafn þýðandans, sem er Ágústa
Björnsdóttir Thors.
Ungbarnavemd Líknar
Templarasundi 3, er opin
þriðjudaga kl. 3,15—4 e.h. — Á
fimmtudögum verður opið kl. 3,15
til 4, ágústmánuð. Kvefuð börn
mega einungis koma á föstudög-
um kl. 3,15—4.
I
Hellisgerði í Hafnarfirði I
er opið a]la daga kl. 13—18 og
kl. 18—22 þegar veður leyfir.
• Gengisskrdning •
(Sölugengi):
1 bandarískur dollar ..
1 kanadiskur dollar ..
1 enskt pund .......
100 danskar kr......
100 sænskar kr......
100 norskar kr......
100 belsk. frankar ..
100 finnsk mörk ....
1000 franskir fr....
100 svissn. frankar ..
1000 lírur .........
100 þýzk mörk ......
100 gyllini ........
(Kaupgengi):
bandarískur dollar kr.
16.32
16.46
45.70
kr. 236.30
kr. 315.50,
kr. 228.50
kr. 32.67,
7.09
46.63
kr. 373.70
kr. 26.1f i
kr. 388.60
kr. 429.9
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
1 kanadiskur dollar
1 enskt pund .
100 norskar kr.
100 sænskar kr. .
100 belgiskir fr.
100 svissn. fr. .
1000 franskir fr.
100 gyllini .....
100 danskar kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
16.26
16.40
45.55
227.75
314.45
32.56
372.50
46.48
428.50
235.50
• Söfnin •
ÞjóðminjagafniS er opið á sunnu
dögum frá kl. 1—4 e.h., á þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 1—3 e. h.
VaxmyndasafniS og Listasafn
ríkisins eru opin á sama tíma og
Þjóðmin j asaf nið.
Landshókasafnið er opið alla
daga frá kj. 10—12 f.h., 1—7 og
8—10 e.h. 4- ÞjóðskjalasafniS er
opið alla virka daga kl. 10—12
árd. og kl. §2—7 síðdegis, nema á
laugardögum sumarmánuðina. Þá
er safnið áðeins opið kl. 10—12
árdegis. —
NáttúrugripasafniS er Opið á
sunnudögum kl. 1.30—3 e.h. og á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
2—3 e. h.
Listasafn Eir.ars Jónssonar er
opið daglega frá kl. Í.30 til 3.30.
Listasafn ríkisins: Opið þriðju-
daga, fimmt.udaga og laugardaga
kl. 1—3 og sunnudaga kl. 1—4.
Til lamaða íþróttamannsins
Afh. Mbl.: — Þ J krónur 25,00.
ÍJtva
rp
Föstudagur, 7 ágúst:
8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádeg
isútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veður-
fregnir. 19.30 Tónleikar: Harmon
ikulög (plötur). 19.45 Auglýsing-
ar. 20,00 Fréttir. 20.30 Útvarps-
sagan: „Flóðið mikla“ eftir Louis
Bromfield, XII (Loftur Guðmunds
son rithöfundur). 21.00 Einsöng-
ur: Amelita Galli-Curci syngur —
(plötur). 21.20 Erindi: Frá Finn-
landi: Efnahagur og þjóðmál —
(séra Emil Björnsson). — 21.45
Heima og heiman. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Dans- 3g dæg-
urlög: Nat „King“ Cole syngur
(plötur). 22.30 Dagskrárlok.
Erlendar stöðvar:
Danmörk: Stuttbylgjuútvarpið
er á 49.50 metrum á tímanum
17.40—21.15. — Fastir liðir: 17,45
Fréttir; 18.00 Akuelt xvarter;
21.00 Fréttir. Á sunnudögum kl.
17.45 fylgja íþróttafréttir á eftir
almennum fréttum.
í dag: 19.25 Leikritið Madame
Sans Géne eftir Victorien Sardou
og Emil Moreau, fjallar um Na-
poleon mikla.
Noregurs Stuttbylgjuútvarp er
á 19 — 25 — 31 — 41 og 48 m.
Dagskrá á virkum dögum að mestu
óslitið frá 5.45 til 22.00. Stillið að
morgni á 19 og 25 metra, um miðj-
an dag á 25 og 31 metra ug á 41
og 48 m. þegar kemur fram é
kvöld. — Fastir liðir: 12.00 Frétt-
ir með fiskifréttum; 18.00 Fréttii
með fréttaaukum. 21.10 Fréttir.
í dag: 17,20 Folke Sállström
syngur sænsk lög; 17,40 Knut
Hergel leikhússtjóri segir frá
Shakespeare; 18,35 Kvöld í Tivolí
í Kaupmannahöfn; 19,45 Eroica-
symfónían eftir Beethoven.
Svíþjóð: Útvarpar á helztu stutt
bylgjuböndunum. Stillið t.d. á 25
m. fyrri hluta dagá en á 49 m. að
kvöldi. — Fastir liðir: 11.00
klukknahringing í ráðhústurni og
kvæði dagsins síðan koma sænskir
söngkraftar fram með létt lög;
11.30 fréttir; 16.10 bama- og ungl
ingatími; 18.00 fréttir og frétta-
auki; 21.15 Fréttir.
1 dag: 12,00 iSmásaga eftir O.
Henry; 12,30 Revyulög um lífið
í Stokkhólmsborg; 13,10 Frásögn
af Buffallo Bill; 16,30 Dönsk nú-
tíma ljóðlist. Kvæði eftir Iljitsch
Johansen og Jörgen Sonne; 19,10
Fram'haldssagan Martin gaar i
grásset. —
England: General Overseas Ser-
vice útvarpar á öllum helztu stutt
bylgjuböndum. Heyrast útsending-
ar með mismunandi styrkleika hét
á landi, allt eftir því hvert útvarps
stöðin „beinir“ sendingum sínum.
Að jafnaði mun bezt að hlusta á
25 og 31 m. bylgjulengd. Fyrri
hluta dags eru 19 m. góðir en þeg
ar fer að kvölda er ágætt að
skipta yfir á 41 eða 49 m. Rúss-
neskar útvarpstruflanir eru oft til
leiðinda í nánd við brezkar útvarps
stöðvar. — Fastir liðir: 9.30 úi
forustugreinum blaðanna; 11.00
fréttir og fréttaumsagnir; 11.15
íþróttaþáttur; 13.00 fréttii; 14.00
klukknahringing Big Ben og
fréttaaukar; 16.00 fréttir og
fréttaumsagnir; 17.15 fréttaauk-
ar; 18.00 fréttir; 18.15 íþrótta-
fréttir; 20.00 fréttir; 23 fréttir.
1 dag: 11,30 Erindi um hvíta
harmonikku; 13,16 Nýjar grammo-
fónsplötur kynntar; 16,15 Erindi
um alþjóðastjórnmál; 16,30 Pa-
blo Casals leikur á selló og rabb-
ar við hlustendurna; 18,30 Sym-
fóníuhljómsveit Lundúna leikur
symfoníur nr. 1 og 8 eftir Beet-
hoven og píanókonsert nr. 2 eftir
Beethoven. Útvarpað frá Albert
Hall, Basil Cameron stjórnar.
Nagíb fer pílagríms-
göngu !il Mekka
KAIRÓ, 6. ágúst. — Tilkynnt
var hér í borg ,í dag, að Nagíb,
forseti, hefði í hyggju að fara
pílagrímsför til Mekka „og
mundi hann borga ferðina sjálf-
ur, en ekki láta ríkið gera það“,
eins og komizt er að orði í til-
kynningu stjórnarinnar. Nagíb
fer flugleiðis til Hedjas og ætlar
að vera vikutíma í ferðinni.
Gert er ráð fyrir, að Nagíb eigi
viðræður við ýmsa Arabahöfð-
ingja á þessu ferðalagi sínu. —
Er þetta í fyrsta sinn, sem hann
er að heiman, síðan egypzki her-
inn gerði stjórnarbyltinguna í
júlí í fyrra.
NTB-Reuter.
GÆFA FYLGIR
trúlofunarhring-
unum frá
Sigurþór
Hafnarstræti 4
— Sendir gegn
póstkröfu. —
Sendið nákvæmt
mál. —
Piltur, sem las undir stúdents
próf (við bróður sinn): — Ef ég
er að lesa, þegar þú kemar heim
í kvöld, viltu þá vekja mig.
★
— Mamma, hefur haninn hár?
— Nei, kjáninn þinn.
— Nú, af hverju hefur hann
þá kamb?
★
— Nei, ósköp ertu komin í fal-
legan pels. Hvað kostaði hann?
— Mjög ódýr, aðeins einn koss.
— íSem þú kysstir manninn
þinn?
— Nei, sem hann kyssti vinnu-
konuna.
★
Liðsforinginn: — Hvað er
fyrsta skilyrði til þess að hægt
sé að grafa hermann með sóma?
Nýliðinn: — Að hann sé dauð-
ur.
★
— Frænka, þú ert galdramaður.
— Hvað ertu að bulla, krakki.
Hvers vegna heldurðu það?
— Mamma sagði, að þú gerðir
úlfalda úr mýflugu.
★
— Hjólinu mínu hefur verið
stolið þrisvar sinnum meðan ég
he' verið hjá hárskeranum. Hvað
á ég að gera við þessum skramba?
— Láta hárið vaxa.
★
— Auðæfi mín eru gáfur mín-
ar.
— Ja-há, það er sko engin
skómm að því að vera fátækur.
★
Vitur maður man fæðingardag
konu, en gleymir aldri hennar.
★
— Ég losna aldrei við ótætis
gigtina mína, frú Droplaug.
— Hafið 'þér reynt heitu böðm?
— Já, ég fékk mér eitt í fyrra,
en það dugði ekkert.
★
Úr fórum fræg'ra mannæ
Peningar eru góður þjónn, en
slæmur húsbóndi.
— Tileinkað Bacon.
★
Það hefur verið með sanni sagtf
að múgur hafi mörg höfuð, en
enga heila. — Rivarol.
★
Gerðu ekkert, segðu ekkert og
vertu ekkert, þá verður þú ekki
gagnrýndur. -— Schpenhauer.