Morgunblaðið - 07.08.1953, Page 2
MORGUNBLAÐID
Föstudagur 7. ágúst 1953 ^
- DANMERKURBREF -
■Gott árferði. — Met uppskera. — Síldveiðar í Norðursjó. — Dýrtiðin lækk-
andi svo dregur úr launagrciðslu og mælist vel fyrir. — Aðstaða núver-
4indi stjórnar styrkist enn. — Jafnaðarmenn geta gert sér vonir um að
vinna fylgi frá kommúnistum.
GÓÐUR HEYSKAPUR
DANMÖRK í ágúst. — Bændur
-erú nú í þann veginn a'ð hirða
þann mesta heyfeng, sem þeir
nokkru sinni hafa fengið í sögu
landsins. Veðráttan hefur verið
hin hagstæðasta sem hugsast
getur fyrir landbúnaðinn.
; Fyrsta uppskeran, heyið var
svo langt fram úr meðallagi, að
áætlað er að það muni samtals
vera að verðgildi um 200 millj.
danskra króna frá fyrsta slætti.
En auk þess er sýnilegt, að háin
ye.rður svo mikil, að í sumum
hciuðum fá menn að slá hana,
sem vilja, án endurgjalds. Þetta
hefur orsakað það, að mjólkur-
framleiðslan í ár hefur orðið
inelri en nokkru sinni áður eftir
síyrjaldarárin.
KORNVERÐ LÆKKAR
Talið er að kornuppskeran
muni jafngilda 115 stigum sé
meðaluppskeran reiknuð 100. —
Kornverðið er því fallandi. Bygg
•Ov t. d. komið niður úr 53 dönsk-
Tirrt krónum 100 kg í 43 krónur.
Hafrarnir og rúgurinn, sem voru
í 45 kr. eru komnir niður í 38
Jcr, 100 kg. Þetta er þó ekki op-
inber verðskráning, því verð-
skráningar á Kauphöllinni á
korni hafa legið niðri um stund-
arsakir. Uppskeran verður taf-
Éöm sakir þess hve mikið af korn
iinu hefur lagzt í legur. En að
þessu sinni verður kornuppsker-
mmi óvenju snemma lokið.
BRETAR VILJA
AO UÚSAIT RÐIR LÆKKI
En nokkuð dregur það úr
átiægju bóndans, að Bretar hafa
gert þá kröfu, að verðið á fleski
lækki um 10%, og á sú verð-
Ijækkun að ganga í gildi 1. októ-
ber í haust. En þessari kröfu
hcfur fyrst um sinn verið mætt
með gagnkröfu um að verðið
Skuli hækkað um 10%.
. Bretar vilja líka lækka smjör-
verðið, en talið er, að danskir
Dasndur standi vel að vígi að fall-
dkt ekki á þessa verðlækkun, þar
Óð vöntun á smjöri er tilfinnan-
jcgri en á fleski.
, Kaupverðið á kjöti til suðlæg-
ari. Evrópulanda hefur fallið
nokkuð. Er það bót í máli fyrir
bændurna, að sláturpeningurinn
hefur komizt í hold með fyrra
móti. Þjóðverjar og ítalir eru
helztu kaupendurnir. Er einnig
liokkur eftirspurn í Bretlandi.
Útflutningur á fuglakjöti er
méiri nú frá Danmörku en
nokkru sinni áður, og er fiðurféð
einkum selt til Ítalíu, Sviss og
úuxemburg svo og til Bretlands.
— Er útflutningur þessi drjúg
tekjulind fyrir Dani, í sambandi
við eggjaútflutninginn, sem sjald
an hefur verið meiri en nú.
ú
SÍLDVEIÐAR f NORÐURSJÓ
Fiskiveiðarnar hafa ekki verið
eing, arðbærar eins og í fyrra.
En litlu munaði þó, og útlit fyrir,
að í síðsumarmánuðunum verði
síldveiðar í Norðursjó meiri en
nokkru sinni, þar eð Danir hafa
nú lært þessar veiðar til fulln-
ustu. Reistar hafa verið miklar
síldarbræðslustöðvar í Esbjerg á
Jótlandi og þar einnig framleitt
fiskimjöl og síldarmjöl, sem nú
er mikið notað til fóðurs handa
grísum og ungsvínum, en bann-
að er að nota það handa alisvín-
um.
Norska hvalbræðsluskipið
Clupeia hefur nú lagzt við akk-
eri við Esbjerg, og er þar á
kostnað norsku stjórnarinnar
jinnið mikið af síld, sem danskir
Síldveiðimenn hafa veitt. En sild-
in er um þessar mundir í stórum
torfum á miðunum á milli Horns-
fifs og Doggerbanka, en það síld-
armið er almennt nefnt „Blöden“.
Erik Eriksen forsætisráðherra
(t. h.) og Ole Björn Kraft utan-
ríkisráðherra.
Ilans Hedtoft
Á þessum slóðum veiðist tölu-
vert af síldarhákarli og túnfiski.
MIKLAR SKIPASMÍÐAR
ÞÓ FARMGJÖLD FARI
LÆKKANDI
Skipaútgerðarfélögin eiga nú í
vök að verjast vegna þess hversu
fargjöld hafa lækkað. En skipa-
útgerðarfélögin sýnast sem betur
fer ekki af baki dottin, því hinar
dönsku skipasmíðastöðvar hafa
aldrei fengið meiri pantanir en
einmitt nú.
Hin ósmíðuðu skip þeirra, er
pöntuð hafa verið nema samtals
400.000 brúttótonnum, sem að
verðgildi nema um 800 milljón-
um danskra króna. Þeir, sem eiga
að fá skipin greiða af höndum
aukagreiðslur, ef skipin verða
tilbúin áður en umsaminn tími
er útrunninn. Verksmiðjur og
iðnaðarmenn hafa yfirleitt nóg
að starfa, svo og þeir, sem vinna
við byggingar, enda reynist
danskur iðnaður samkeppnisfær
á heimsmarkaðinum.
LAUNIN LÆKKA
AÐ KRÓNUTÖLU
MEÐ VÍSITÖLUNNI
Enda þótt öll skömmtun og
hömlur séu um garð gengnar í
Danmörku og innflutningurinn
að öllu leyti frjáls nema á bíl-
um, er gjaldeyrisjöfnuðurinn
ágætur og virðist muni heldur
batna haustmánuðina. Enda er
útflutningurinn venjulega held-
ur meiri þá mánuði en innflutn-
ingurinn á sama tíma. Verðhækk
anir hafa yfirleitt stöðvazt, og
eru öll sólarmerki á, að verðlag
muni heldur fara lækkandi. —
Verðvísitalan í júnímánuði féll
um 6 stig, og varð það til þess,
að laun embættis- og starfs-
manna lækkuðu um 120 kr. á ári
fyrir þá, sem lægst eru launaðir
og 192 kr. fyrir þá hæstlaunuðu.
Launþegar hafa lýst ánægju
sinni yfir því, að launin hafa
lækkað sakir þess, að menn gera
ráð fyrir að verðlagið haldi
áfram að lækka. En ríki og bæj-
arstjórnir munu við þetta spara
um 30 milljónir kr. í launagreiðsl
um.
FRÁ
ST J ÓRNMÁL AFLOKKUNUM
Kyrrð er á hinum pólitísku
vígstöðvum. — Svo virðist sem
stjórnarflokkarnir, Vinstri og
íhaldsmenn, ráði við þau vanda-
mál, er bera að, og ekki er bú-
izt við að Fólksþingið verði hvatt
saman fyrir kosningarnar í sept-
ember, en það þing verður hið
fyrsta, sem sezt á rökstóla eftir
að stjórnarskrárbreytingin gekk
í gildi. — Sósíaldemokratar eru
mjög áfjáðir að mynda stjórn
eftir kosningarnar. En -ýmislegt
bendir til þess, að sú stjórn, sem
nú situr að völdum geti haldið
áfram að halda stjórnartaumun-
um, þar er ekki hefur verið mögu
legt fyrir andstöðuflokkana að
koma því til leiðar að draga úr
því trausti, sem þjóðin ber til
þeirrar stjórnar.
Hin styrka fjármálastjórn
Vinstri og Hægri flokltsins, sem
hún hefur komið á, þau 3 ár, sem
hún hefur verið við völd, mun
gefa stjórnarflokkunum styrka
aðstöðu í hinni tilvonandi kosn-
ingabaráttu.
Helztu sigurmöguleikar Sósíal-
demókratanna eru í því fólgnir
að þeim takizt að vinna til fylgis
við sig mikinn hluta af þeim, sem
fylgt hafa kommúnistum áður.
Þröunin í nágrannalöndum okkar
getur vissulega bent til, að þetta
takist. Svo mikill er ókyrrleikinn
meðal kommúnista á síðustu tím-
um, og sennilegt, að fráhvarf frá
flokki þeirra er stöðvaðist við
síðustu kosningar muni nú halda
áfram. Enda virðist andstaðan
gegn Atlantshafsbandalaginu í
ýmsum stéttum þjóðfélagsins
vera í rénun. — Er nú komin
reynsla fyrir því, að,það reynist
ekki sigurvænlegt að reka áróð-
ur gegn samtökum Atlantshafs-
þjóðanna. Danir virðast nú hafa
náð styrk sínum eftir styrjöldina
og erfiðleika þá, er af henni stöf-
uðu. Standa þeir nú fullt eins vel
að vígi eins og Norðmenn og
Svíar.
Balslev Jörgensen.
Hólmfríður Friðgeirsdóttir tekur við verðlaununum, sem Hafsilfur
veitti, er saltað hafði verið í 10 þúsundustu síldartunnuna í sölt-
unarstöðinni. (Ljósm. Sævar Halldórssón, Akureyri)
Salfað í rúml. 10 þús.
tunnur h|á Hafsilfri —
Húsmóðir á Raufarhöfn
fær 500 króna verðlaun
Skipaður nýr yiirmaður
flola
RAUFARHÖFN, 3. ágúst. — í
nótt er leið um klukkan 3 var
saltað í 10 þúsundustu síldar-
tunnuna á þessari vertíð á Sölt-
unarstöð Hafsilfurs hér í Raufar-
höfn. Er Hafsilfur fyrsta söltun-
arstöðin á landinu, sem nær
þessu marki nú í ár. — í því til-
efni veitti söltunarstöðin konu
þeirri, er í tunnu þessa saltaði,
sérstaka viðurkenningu, 500 kr.
í peningum. Var henni afhent
þessi síldarpremia í morgun. —
Konan, sem þessi mikla heppni
var með, er þriggja barna móð-
ir búsett hér í þorpinu, Hólm-
fríður Friðgeirsdóttir, Kvöld-
bliki.
Sumarið 1951, sem var allgott
síldarsumar, tók Hafsilfur upp þá
venju, að veita slíka viðurkenn-
ingu fyrir 10.000 tunnuna. Þá
hlaut verðlaunin Kristín Guð-
rún Ingvarsdóttir, einnig héðan
frá Raufarhöfn.
Hólmfríður x Friðgeirsdóttir,
sem nú hlaut verðlaunin, hefur
saltað hjá Hafsilfri síðan stöðin
tók til starfa fyrir 3 árum. Hún
er í tölu hinna allra röskustu
við síldarsöltun á stöðinni og
hefur á þessari vertíð saltað í
nokkuð á fjórða hundrað tunn-
ur. —
IIVÍLD OG ÁNÆGJA
í stuttu samtali við Morgun-
blaðið, sagði frú Hólmfríður, að
hún hefði af því mikla ánægju
g um hreina hvíld væri að
æða að fara í síldina, þó stund-
tm sé erfitt þegar langar „tarn-
ir“ koma. Það er hvíld frá
hinum daglegu störfum heimilis-
ins, sagði hún. Þó að sjálfsögðu
sé ekki hægt að leggja þau störf
á hilluna, sagði Hólmfríður. —
Börnin þurfa sitt þó „tarnirnar"
standi lengi.
Börnin á Raufarhöfn tr.ka
strax og þau koma til vits og ára
meiri og minni þátt í síldarsölt-
vninni, t. > d. með því að færa
mömmu sinni kaffi að söltunar-
kössunum. Oft hefi ég séð börn
Hólmfríðar koma niður á
bryggju með kaffibrúsa og kök-
ur handa mömmu sinni.
Fregnin um 10 þús. tunr.una
spurðist fljótt út meðal fólks hér
á Raufarhöfn og samglöddust
menn Hólmfríði og voru sam-
mála um að verðlaunin hefði
hún hlotið að makleikum.
Myndina hér að ofan tók Sæv-
ar Halldórsson, ljósmyndr"i á
Akureyri, ,er Kristinn BaHurs-
son, gjaldkeri hjá Hafsilfri, af-
henti Hólmfriði fimm hu druð
krónu seðil, en með þeim eru á
myndinni Sigmar Björ-sson,
verkstjóri Söltunarstöðva' 'nnar
og Hörður Björnsson frá Borg-
arfirði eystra, sem „trillað’ frá“
og nokkrar ungar síldarstú kur.
Sv. Þ.
Jflllgg
F|ölsnesass Vesflisrð-
ingoivaka á IselifSii
John Ruhsenberger
NÝLEGA var skipaður nýr yfir-
maður bandarískra flotaeininga,
sem staðsettar eru við ísland.
Heitir hann John R. Ruhsen-
berger. Kemur hann í stað Ge-
orge Walkers. Ruhsenberger var
áður yfirmaður flotastöðva í
New York. Hann starfar sem
ráðunautur og aðstoðarmaður yf-
irmanns varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli.
ISAFIRÐI, 6. ágúst. — Vestfirð-
ingavaka 1953 fór fram að til-
hlutan íþróttabandalags ísfirð-
iinga um verzlunarmannahelgina.
Hófust hátíðahöldin laugardag-
inn 1. ágúst kl. 2 e. h. með skrúð-
igöngu íþróttamanna frá íþrótta-
húsinu upp á handknattleiksvöll.
Þar setti formaður IBI vökuna og
Jóhann Gunnar Ólafsson, bæjar-
fógeti, flutti ræðu. Síðan hófst
fyrsti leikur Vestfjarðarmóts í
handknattleik kvenna í 1. fl. og
kepptu NIBI og Hörður. Sigraði
Hörður með 5 mörkum gegn 4.
Um kvöldið kl. 9 kepptu ísfirð-
ingar við 1. fl. úr Val frá Reykja
vík. Leiknum lauk með jafntefli,
2 mörk gegn 2. Dansað var í Al-
þýðuhúsinu frá 11 til 2.
| Sunnudaginn 2. ágúst hófust
hátíðahöldin kl. 11 f. h. með hand
(knattleikskeppni milli UIVB og
jVestra. Jafntefli varð, 3 mörk
gegn 3. Gengið var til kirkju kl.
2 e. h. og hlýtt á messu hjá sera
^ Magnúsi Guðmundssypi. Kl. 414
^fór fram úrslitaleikur í hand-
knattleiksmótinu og urðu úrslit
þau að Hörður varð Vestfjarða-
meistari í handknattleik kvonna
1. fl. 1953, eftir jafntefli við
Vestra í úrslitaleik. Að loknum
leiknum fóru fram ýmis boð-
hlaup, m. a. kepptu ísfirðingar
og Valsmenn í naglaboðhlaupi og
lauk því með knöppum sigri
Valsmanna. Einnig kepptu knatt-
spyrnumennirnir við handknatt-
leiks stúlkurnar í nálaboðhlaupi
og sigruðu stúlkurnar auðveld-
lega. Kl. 6 fór fram knattspyrnu-
kappleikur milli eldri starfs-
manna Kaupfélagsins og opin-
berra starfsmanna. Mörg spaugi-
leg atvik komu fyrir í leiknum,
sem lauk með sigri samvinnu-
manna, 3—0. Um kvöldið. var
dansað í Alþýðuhúsinu frá kl. H
til 2.
Mánudaginn 3. ágúst fór fram
síðasta skemmtiatriði vökunnar.
Var það kappleikur milli ísfirð-
inga og 1. fl. úr Val. Sigruðu
Valsmenn með 5 mörkum gegn 2.
Mjög mikill fjöldi sótti skemmt-
anirnar alla dagana, enda var
veður einmuna gott, logn og sól-
skin. — Albert.