Morgunblaðið - 22.09.1953, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1953, Blaðsíða 1
16 síður Prentsmiðja Morgunblaðsins Orrostan um fiskmarkaðinn Vishinskí Þessa spaugilegu teikningu birti brezka blaðið Daily Despasch á sunnudaginn. Texti xnyndarinnar var: Jæja, góða mín, nú hefur Geórge Dawson gert innrás! vígmóður NEW YORK, 11. sept. — Vish- inskí réðist í dag harkalega á Bandaríkin í langri ræðu, sem ’ hann flutti á Allsherjarþinginu • í dag, sagði hann stefnu þeirra miða að heimsyfirráðum. Vishinskí sagði enn fremur, að svo liti helzt út sem árásarstefna Atlantshafsríkjanna væri alls- í ráðandi á þingi S. Þ. og kvað j ákvarðanir þingsins í Kóreumál- um í algerri andstöðu víð fyrir- j mæli vopnahléssáttmálans. •— Hann krafðist og eftirlits með atomvopnum. —Reuter-NTB. Hafa gerf verkfal! IlUNDÚNUM, 21. sept. — Um ! 100 eftirlitsmenn við Hawker- Hunter verksmiðjurnar í Lundún I um gerðu í dag verkfall og krefj- ast hærri launa. — Þykir ein- hlítt, að verkfallið leiði til stór- minnkandi framleiðslu á einni beztu flugvélagerð Breta, Hawk- er-Hunter þrýstiloítsflugum. Kreist þess, að Mossa- dek verði látinn lans Borgarastyrjöld yfirvofandi í Persíu Q TEHERAN, 21. sept. — Nú má búast við borgarastyrjöld f Persíu, ef stjórnin gengur ekki að skilmálum ættarhöfðingja nokkurs í Suður-Persíu, Nasser Khan, þess efnis, að Mossadek verði þegar látinn laus; að öðrum kosti kveðst hann hertaka allan suðurhluta Persíu, en hann hefur yfir að ráða um 70 þús. her- mönnum. 150 ÞÚS. MANNA LIÐ 0 Fleiri suður-persneskir ættflokkar hafa heitið Nasser Khan liðveizlu og þykir sennilegt, að hann hafi yfir að ráða um 150 þús. manna liði, þegar allt kemur til alls. Aður lent saman £ Er nú beðið eftir svari stjórnarinnar og þykir með öllu óvíst, hvernig máli þessu reiðir af, ekki sízt vegna þess að keisaraættin og ætt Nassers hafa áður eldað saman grátt silfur. Ulbricht framdi tvö morð 1931. og flýði til Rússlands Uppreisn lögreglumanna í Ausfur Þýikalandi Gífurleg ólga í Mecklenburg BERLÍN, 21. sept. — Fréttir berast um þaff frá Austur-Berlín, aff rússneskir hermenn og skriffdrekasveitir hafi bariff niffur uppþot, sem austur-þýzkir alþýðulögreglumenn gerffu í Pinnow viff Mecklen burg; herma fregnirnar enn fremur, aff allmargir rússneskir og austur-þýzkir liffsforingjar hafi falliff í átökunum viff uppþots- menn lögreglunnar, sem voru um 2000 talsins. RÚSSAR SÓTTIR Setuliðið í Pinnow gat ekki ráðið niðurlögum uppreisnar- mannanna og þurfti að senda eftir hjálp til rússneska setuliðs- ins í Mecklenburg; kom það þeg- ar á vettvang með allmarga skrið dreka, réðist inn í herbúðir lög- reglunnar og brytjaði Austur- Þjóðverjana niður. SVlVIRTU AUSTUR-ÞÝZKA KONU Flóttamenn sem komiff hafa nýlega til Vestur-Berlínar hafa sagt, aff mikil ólga sé nú meffal íbúa Mecklenburgar, þar sem rússneskir hermenn1 hafa nýveriff myrt austur- þýzka konu, eftir aff hafa sví- virt hana. — Ekki er þó vitaff, livort nokkurt samband sé á milli uppþotanna í Pinnow og þessa hörmulega atburffar. MIKIL GREMJA Flóttamennirnir segja, að svo hafi gremja almennings rist djúpt, að þúsundir manna hafi verið viðstödd greftrun hinnar myrtu. i>rír Pólverjar flýja fi! Noregs í kössum með rússneska bíla ÓSLÓ — Snemma í vikunni kom tjl Óslóar pólskt farmskip. Með- al annars flutnings voru rússneskir bílar í stórum og góðum köss- um. Þegar til kom, reyndist heldur kvikt í umbúðum þessum, hvorki meira né minna en 3 Pólverjar, sem höfðu laumazt með og leita nú hælis í Noregi. NÖFN EKKI BIRT Pólsku flóttamennirnir komu til Oslóar með skipinu Okzywia, fóru um borð í Gdynia. Gáfu þeir sig fram við lögreglu Óslóar. Lög reglan hefir ekki enn gefið upp nöfn flóttamannanna og þegir um málið að mestu. FASTAR ÁÆTLUNARFERÐIR Okzywie hefir fyrr verið um- ræðuefni manna á Norðurlönd- um. Það var í fyrra, þegar banda- ríski útvarpsfyrirlesarinn Moore hvarf í Ósló, og þótti margt benda til, að kommúnistar hefðu rænt honum. Féll þá helzt grun- ur á skipið Okzywie, sem heldur uppi áætlunarferðum milli Ósló- ar og Glynia. Leitaði norsk lög- regla þá í skipinu árangurslaust. Seinna fannst þó lík Moores í Óslófirði. Útgjöld til landvarna hækka STOKKHÓLMI, 21. sept. — Yfir- menn sænska hersins hafa farið þess á leit, að varið verði 2,2 milljörðum sænskra króna til hernaðarþarfa á næsta ári. — Er það 185 milljónum króna meira en s, 1. ár —Reuter-NTB. Dómur hans fellur ekki úr gildi fyrr en 1967 BERLÍN, 21. sept. — Fyrrverandi dómari dr. Wilhelm Kuhnast hefur lýst því yfir, að Ulbricht hinn austur-þýzki hafi fyrir löngu i verið dæmdur fyrir morð á tveimur þýzkum lögregluþjónum og ! sé sá dómur ekki fallinn úr gildi; morðin voru framin fyrir 22 arum. Fhittir brott TEHERAN, 21. sept. —. Zahedí, forsætisráðherra Persa, lét í dag flytja um 150 kommúnista til vesturhluta Pehsíu, þar sem þeir verða hafðir í haldi. Með þeim var sendur Khalil Meleki einn helsti stuðningsmaður og sam- herji Mossadek. ■—Reuter-NTB. ikil síld í Grinda- ^FELLUR ÚR GILDI 1967 Kuhn sagði enn fremur, víkursjó Flugdagurinn 'ii FRETTARITARI MBL. á Akra- nesi símaði í gærkvöldi, að þang- að hefðu komið sunnan úr Grindavíkursjó Arnfinnur og Ag. Þórarinsson, báðir frá Stykkis- hólmi. Landaði sá fyrri 200 tn. í salt, en hinn 300 tn. í bræðslu. — Sögðu skipverjar mikla síld vera í Grindavíkursjó. — C. Nýr a&alritari PARÍS, 21. sept.—Franski stjórn- málamaðurinn Leon Marchal var í dag kosinn aðalritari Evrópu- ráðsins. — Hann er hálfsextugur að aldri. Fyrirrennari hans Jacques Camille lézt í bílslysi í sumar. —Reuter-NTB. aS samkvæmt þýzkum lögum mundi dómurinn ekki falla úr gildi fyrr en 1967. FLÚÐI TIL RÚSSLANDS Morff lögregluþjónanna tveggja var framiff 1931; eftir þaff flúffi Ulbricht til Sovétríkjanna til þess aff komast hjá refsingu. — Þrír affrir kommúnistar voru í vitorffi meff Ulbricht og voru hengdir 1931 fyrir hlutdeild í morðunum. Sökk á Allantshali PARÍS, 21. sept. — Líberíuskipið Greenvill, sem er rúmar 6000 lest ir að stærð sökk í dag um 800 sjómílur suð-vestur af Englandi. Skipið var á leið til Kanada. Áhöfnin komst í björgunar- báta og var bjargað um borð t hafskipið Ile de France. —Reuter-NTB. Er Bería í Vestur-Evrópu ? Bandarísku þrýstiloftsflugurnar yfir Reykjavíkurflugvelli, er þær komu í heimsókn á flugdaginn. — Sjá frétt á bls. 2. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB. NEW YORK, 21. sept. — Þær fregnir hafa borizt út frá örugg- um heimildum, aff Bandaríkja-' stjórn hafi sent sérstakan sendi- mann sinn til Evrópu til að ganga úr skugga um þaff, hvort nokkuff sé hæft í fregnum þess efnis, aff Bería hafi komizt undan og sé nú einhvers staffar í Vestur- Evrópu. FRÁ FLÓTTAMANNI Fregnirnar um þaff, aff Bería hafi sloppið undan Malenkóv og hans fylgifiskum, eru komnar frá flóttamanni, sem þykist hafa um þaff öruggar heimildir. í SVISS? Fullyrðir hann, aff Bería hafl flúiff í rússneskri flugvél meff affstoff þriggja samherja sinna, og sé hann nú í hlutlausu landl í Vestur-Evrópu. — Frá Sviss- landi berast fregnir þess efnis, aff hann dveljist þar, svo aff lög- reglan viti til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.