Morgunblaðið - 22.09.1953, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. sept. 1S53 j
rjogofr ný leikrit a dotmni
hjá Þjóðleikhúsinu
4M)*>
15 faslráðnir leikarar — Bidsfeds-hjónin
i væntanleg á ný til balletskólans
u’pj ■
JhJÓÐLEIKHÚSSTJÓRI, Guðlaugur Rósinkranz, kvaddi fréttamenn
á sinn fund í gærdag og skýrði þeim frá ýmsu varðandi starfsemi
JÞjóðleikhússins á komandi vetri, en það er nú um það bil að hefja
lúð 5. starfsár sitt og verður fyrsta viðfangsefni þessa leikárs leik-
ritið „Einkalíf“, sem getið er á öðrum stað í blaðinu.
JKOSS I KAUPBÆTI
Eftir að sumarleyfum lauk
tiafa verið teknar upp sýningar
á ný á leikritinu „Koss í kaup-
gæti“ og hefir það sem áður
fengið ákaflega góðar viðtökur
á hinum þremur sýningum þess
jaú í haust.
VÓPAZ 73 SINNUM
„Tópaz“ hefir verið sýndur
4tta sirinum utan Reykjavíkur í
jttaust og hefir honum hvarvetna
¥érið tekið með miklum kostum
«og kynjum. Hafa þessar leiksýn-
ángar Þjóðleikhússins út um land
iriælzt mjög vel fyrir og þykir
lún ánægjulegasta ráðstöfun, —
„Topaz“ hefir nú verið sýndur
ækki sjaldnar en 73 sinnum og í
láði er að hafa á honum tvær
sýningar hér í Reykjavík, þegar
Jjann „kemur heim úr sveitinni"
eins og þjóðleikhússtjóri
komst að orði. Verður fyrri sýn-
ingin njc. laugardagskvöld.
NÝ LEIKRIT
Næsta leikrit á döfinni verður
leikritið „Sumri hallar" (Summ-
•ei and Smoke) eftir Tennessee
Williams undir leikstjórn Indriða
Ýifaage. Þá eru og æfingar hafn-
-ai á íslenzka leikritinu „Valtýr
á grænni treyju“ eftir sam-
nefndri skáldsögu eftir Jón
Björnsson. Hefir höfundurinn
sjálfur fært hana í leikritsform.
JLárus Pálsson mun annast leik-
íitjórn á þessu leikriti.
Síðan kemur amerískt leikrit,
„Harwey" eftir Mary Chase. —
Hefir verið gerð eftir því kvik-
snynd og leikritið náð miklum
•vinsældum.
Jólaleikritið verður í ár „Pilt-
•ur og stúlka“ eftir skáldsögu
Jóns Thoroddsens, óskabarnsins
meðal íslenzkra skáldsagna. —
Emil heitinn Thoroddsen færði
áöguna í leikritsform.
<JÓÐAR FRÉTTIR
Þjóðleikhússtjóri sagði þær
góðu fréttir, að von væri aftur
á Erik Bidsted og konu hans, sem
Xslendingum eru að góðu kunn
íyrir hið mikla starf, sem þau
unnu hér s.l. ár með stofnun ball-
dttskóla Þjóðleikhússins og stór-
inerkum árangri í danskennsl-
iinni.
Hjónin eru væntanleg nú um
mánaðamótin og mun starfsemi
■ballettskólans þá hefjast á ný.
Sagði þjóðleikhússtjóri, að vonir
stæðu til að hægt yrði að taka
aftur upp sýningar á íslenzka
ballettinum „Ég bið að heilsa",
sem féll niður fyrr en skyldi í
fyrra vegna meiðsla dansmeistar-
ans Bidsteds, sem lesendur mun
reka minni til. Bidsted er nú
fullkomlega jafngóður orðinn eft
jr slysið.
15 FASTIR LEIKARAR
Leikskóli'þjóðleikhússins mun
og starfa, þ.e.a.s. síðari deild
,.hans, með sjö nemendum. Hins
' vegar munu engir nýir nemend-
rrur teknir í skólann í vetur og er
Tsú ráðstöfun ætluð til að koma í
veg fyrir of mikið framboð af
“leikurum.
Allir fastráðnir leikarar verða
þeir sömu og í fyrra að einum
viðbættum, Baldvini Halldórs-
syni. Eru þeir nú 15 talsins og
auk þeirra eru svo 9 aðrir leik-
arar, sem ráðnir eru samkvæmt
svokölluðum B-Samningi, þ.e.a.s.
þeií- hafa tryggða greiðslu miðað
við vissan fjölda sýningarkvölda.
í þann hóp bætist einn nýr leik-
ari, Rúrik Haraldsson.
Þá hefir og Thorolf Smith,
blaðamaður, verið ráðinn fastur
starfsmaður þjóðleikhússins frá
1. sept. að telja. Mun hann ann-
ast ritstjórn leikskrár, vörzlu
bóka- og myndasafns og sjá um
kynningu leikhússins og starf-
semi þess í hinum daglega
rekstri.
Framh. á bls. 12.
Tvennir ténleikar
Dielric Fischer-
Dieskau
„Einkalíf" - fyrsfa ve
á leikári Þjoðlsi
Fruir&sýnirag ann<b5 kvöSd
LEIKÁR Þjóðleikhússins hefst að þessu sinni með enska leikritinu
„Einkalíf“ (Private Life) eftir Noel Coward, sem frumsýnt verður
annað kvöld. Sigurður Grímsson þýddi leikritið.
FJÖLIIÆFUR
RITHÖFUNDUR
Coward, sem er einn af kunn-
ustu núlifandi leikritahöfundum
Breta, er óvenjulega fjölhæfur
maður. Auk leikritagerðar hefur
hann fengizt við skáldsagnagerð,
leikstjórn og leikstarfsemi, samn-
ingu kvikmyndahandrita og
einnig er hann söngvari göður og
tónskáld.
Leikritið „Einkalíf“ skrifaði
hann árið 1930 og hefur það náð
miklum vinsældum bæði í Lon-
don, þar sem það hefur gengið
ár eftir*ár og í Kaupmannahöfn
var það sýnt fyrir nokkrum ár-
um og hlaut þar sérstaklega góð-
ar viðtökur. Einnig hefur það
verið leikið á hinum Norðurlönd-
unum.
530 kr. fyrir 9 réfta
VEGNA þess hve úrslit margra
leikjanna á síðasta getraunaseðli
urðu óvænt, voru 9 réttar ágizk-
anir bezti árangurinn, sem náð-
ist. Var það á 2 seðlum og var
annar úr Skágafirði með 2 fasta-
röðum. Af röðum með 8 rétturn
var fullur þriðjungur á föstum
seðlum, enda skapa mjög óvænt
úrslit mesta möguleika fyrir það
þátttökuform, en fastir seðlar
geta gilt óbreyttir allt árið.
TONLEIKAR Dietrich Fischer-
Dieskau, sem Tónlistarfélagið
hélt fyrir styrktarfélaga sína
miðvikudaginn 16. og föstudag-
inn 18. þ. m., munu vafalítið
vera stórfenglegasti viðburður
sinnar tegundar, sem nokkru
sinni hefir orðið hér í Reykja-
vík. Sá, sem þessar línur ritar,
hefir um nokkurt árabil hlýtt á
mikinn fjölda söngskemmtana
hér og erlendis, en telur sig þó
aldrei hafa heyrt söngvara, sem
ekki mundi geta lært eitthvað af
þessum 28 ára gamla listamanni.
Rödd hans býr yfir undraverðri
mýkt annars vegar og miklum
dramatískum þrótti hins vegar,
og vald söngvarans yfir röddinni
og margvíslegum blæbrigðum
hennar er fullkomið. Þó er það |
aðeins í byrjun, sem þetta vekur
sérstaka athygli. Fljótlega verð-
ur ljóst að röddin er fyrir söngv-
aranum algert aukaatriði, -— að
vísu atriði, sem verður að vera
í góðu lagi, — en aðalatriðið er
túlkun ljóðs og lags, hin list-
ræna meðferð viðfangsefnanna.
Þess vegna er ekkert lag valið
og enginn tónn sunginn til þess
að lofa ljóma raddarinnar að
njóta sín sérstaklega, eins og því
miður vill of oft brenna við hjá
söngvurum. Allt miðar að einu
marki: mótun hinnar listrænu
heildar. Þetta sker úr um það,
að hér er ekki aðeins á ferð á-
gætur raddmaður og söngvari,
heldur gáfaður og þaulmenntað-
ur listamaður. Ekki aðeins mað-
ur, sem í vöggugjöf hefir hlotið
gott barkakýli og hefir ástundað
að seiða fram úr því fagra tóna,
misháa og missterka, heldur
maður, sem býr yfir ríkri og
þrautræktaðri tónlistargáfu og
hefir skygnzt djúpt í leyndar-
dóma tónlistarinnar.
Meðferð Dietrich Fischer-
Dieskau á „Vetrarferðinni" eftir '
Schubert hlýtur að verða öllum
ógleymanleg sem heyrðu. Þar
var enginn blettur eða hrukka á, !
og hin ljúfsára viðkvæmni í
söngvum Schuberts hlýtur að
hafa snortið hvert hjarta. Sá, I
sem orðið hefir fyrir þeirri snert
ingu eins náinni og hér varð, i
verður aldrei samur maður.
Á síðari tónleikunum voru
flutt lög eftir Beethoven, Schu-
bert og Hugo Wolf við ljóð eftir
Göthe. Hér reyndi á fleiri hliðar
söngvarans, en allir strengirnir
á hörpu hans reyndust hafa jafn
hreinan, djúpan og sannfærandi
tón. Þe^sir tónleikar eins og hixi-
ir fyrri voru samfellt ævintýri.
Minningin um þá máist ekki úr
hugum þeirra, sem á hlýddu.
Árni Kristjánsson annaðist
undirleik á báðum tónleikunum j
af djúpu innsæi og næmum skiln
ingi. J. Þ. i
GAMAN OG ALVARA
Leikritið gerist á vorum dögum
á baðstað í Suður-Frakklandi og
í París. Persónur þess eru tvenn
hjón og gengur á ýmsu í hjóna-
bandinu — þau skilja, taka sam-
an aftur og skilja enn á ný. —
Leikurinn er gamansamur, sem
þó fylgir nokkur alvara og ádeila.
Hann er í þremur þáttum og
tekur rúma tvo klukkutíma á
sviði.
Leikstjóri verður Gunnar R.
Hansen, sem íslenzkum leikhús-
gestum er þegar að góðu kunnur
fyrir starfsemi sína undanfarin
þrjú ár hjá Leikfélagi Reykja-
víkur. Er þetta í fyrsta skipti,
sem hann fer með leikstjórn við
Þjóðleikhúsið.
Með aðalhlutverk fara Einar
Pálsson, Inga Þórðardóttir, Ró-
bert Arnfinnsson og Bryndís Pét-
ursdóttir í hlutverkum hjónanna
tveggja og auk þess Hildur Kal-
mann í hlutverki franskrar þjón-
ustustúlku.
Einar Pálsson leikur hér sem
gestur Þjóðleikhússins. Áður hef-
ur hann komið fram á sviði þess
í leikritinu „Konu ofaukið", sem
leikið var á fyrsta starfsári leik-
hússins.
Leiktjöld eru gerð af Magnúsi
Pálssyni.
ÓvenjugéSnr
heysksporí
S.-Þingeyjarsýslu
ÁRNESI, S-ÞING, 21. sept. — Nú
er heyskap lokið hér almennt.
Hirtu menn heyin í ágætum
þurrkum fyrir göngu. Heyskap-
ur mun að þessu sinni vera bæði
meiri og betri en áður heíur
þekkzt. Er áætlað, að töðufengur
sé einum þriðja meiri en síðast-
liðið ár. — Telja bændur þetta
sumar betra og blíðviðrasamara
en komið hefur um langt skeið,
þar sem varla hefur komið hvass-
veðursdagur, frostnótt eða ill-
viðriskast síðan fyrir sauðburð í
vor.
Fyrstu fjallaleitir fóru fram í
síðustu viku og gaf ágætlega,
baeði bjartviðri og stillt.
I dag hófst slátrun í Ilúsavík.
Mun þar verða slátrað 13000 fjár
í haust. Það er með færra móti,
því að bændur hyggja fjárfjölg-
un vegna hins óvenjugóða hey-
skapar. Sunnlendingar kaupa hér
500—600 lífgimbrar af svæðinu
milli Jökulsár og Vaðlaheiðar.
Standa nú þessi fjárkaup yfir
þessa daga. Dilkar eru taldir
fremur vænir. — Vænleiki þeirra
virðist þó ékki framúrskarandi.
— Kenna bændur því um, að
snemma hafi sölnað í afréttinni
vegna þess hve óvenju fljótt
greri í vor til fjalla í hitunum.
— Fréttaritari,
Sjúkraflugvél Björns Pálssonar. Hann notaði aðeins 30—40 metra
til að hefja fluguna á loft.
Fkigsýningin í tilefni af 50 ára
afmæli flugsins tókst mjiig vel
á fyrirfram
án aðstoðar
FLUGDAGURINN 1953 var hald- jarðar og lentu
inn s.l. sunnudag á Reykjavíkur- ákveðnum stað
flugvelli. Þetta var 5. flugdagur- hreyfilsins.
inn, sem hér hefur verið haldinn. Douglasflugvél Flugfélags ÍS'
Fjöldi fólks var s«man kominn' lands, flugmaður Gunnar Fred'
á flugvellinum. Meðal gesta voru riksen sýndi 1 c~: ”~1 : ’
hæfni vélarinnar
forsetahjónin.
RAKTI SÖGU FLUGSINS
Agnar Kofoed Hansen flug-
vallastjóri ríkisins setti hátíðina,
sem var að þessu sinni haldin í'
minningu um 50 ára afmæli vél-'
flugsins. — Hinn 17. des. 1903
flaug Orvill Wright fyrstur
manna. Flaug hann yfir Kitty
Hawk hæðinni fyrir utan borg-
ina Dayton í Bandaríkjunum. —
Flugvallastjóri rakti síðan helztu
atriði úr sögu flugsins fram á
þennan dag.
Dagskráin hófst með því, að
allmargar vélflugur hófu sig til
flugs, og flugu lágt yfir áhorf-
endum, en Björn Jónsson yfir-
flugumferðarstjóri skýrði jatn-
framt frá því, sem fram fór.
Magnús Guðbrandsson flug-
maður sýndi listflug á svifflugu,
af mikilli leikni.
Sigurður Jónsson handhafi
flugskírteinis númer eitt sýndi
listflug á vélflugu.
Tvær flugvélar frá flugskólan-
um Þyt sýndu marklendingar. en
flugmennirnir stöðvuðu hreyfla
vélanna í lofti og svifu síðan til
með aðeins einum hreyfli.
BALDUR OG KONNI
í FLUGFERÐ
Baldur og Konni fengu sér
flugferð og var henni útvarpað
áhorfendum til mikillar skemmt-
unar.
Björn Pálsson sýndi flugtak og
lendingu og undrðust margir,
hve flugvél hans þurfti lítið
svæði, eða um 30—40 m., til lend-
ingar og flugtaks.
Einnig komu 4 þrýstiloftsflug-
vélar frá Keflavík. í heimsókn,
og flugu þær í fylkingu yfir
flugbrautinni.
Bandarísk björgunarflugvél
sýndi flugtak með aðstoð tveggja
rakettna, sem styttir flugtakið
mjög mikið. Einnig sýndu banda-
rísku flugmennirnir með mikilli
nákvæmni, hvernig vistum ei!
kastað úr flugvél.
Flugdagur þessi heppnaðisti
mjög vel og varð öllum, sem a'ð
honum stóðu til sóma. — Munu
áhorfendur, sem voru mjög
margir, ekki hafa orðið fyrir:
vonbrigðum.
Ameríska björgunarflugan í flugtaki. Sjást reykjarstrókarnir úr
rakettunum, sem komið er fyrir sitt hvorum megin á flugunní,
— Ljósmyndirnar tók ljósm. Mbl.: Ól. K. M,