Morgunblaðið - 17.12.1953, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.12.1953, Blaðsíða 1
40. árgangur 291. tbl. — Fimmtudagur 17. desember 1953 Prentsmiðja Morgunblaðsins Auidð freisi mun fera sem heifur straumur alitafiialif þjóðarinBiar • SÁ Á KVÖLINA sem á völina, segir máltækið, og mætti þá ein- :hver ætla, að mér væri nú vandi á höndum að velja mér yrkis- 'efni úr öllum þeim firrum, sem -stjórnarnadstæðingar hafa nú borið á borð. En ég er í engum vanda. Auðvitað væri til sálu- bóta að hirta dálítið suma þess- ara ræðumanna. En við, sem verðum að sitja undir óstöðvandi bunu þeirra nær ævinlega, ef við höldumst við í þingsætunum, er- um löngu búnir að sigrast á freistingum til að greiða höggið aðeins vegna þess, hversu vei ræðumaður liggur við höggi. Og flest sem þeir sögðu í kvöld hafa þeir s£.gt 100 sinnum áður og miklu oftar þó birt það í blöð- um sínum. ! SJÁLFSÁNÆGJA STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR I Ýmsir okkar láta sér nægja að yfirgefa þingsalinn, til þess að gegna áiíðandi störfum þegar það, sem í hliðarherbergjum þingsins er kallað kanínu-plág- an, flæðir yfir, þ. e. a. s. þegar mennirnir, sem minnst hafa að segja, mesta ánægju hafa af að hlusta á sjálfa sig, en síðan að lesa um sjálfan sig grein eftir sjálfan sig í blaði sjálfs sín, trítla eða hoppa upp í ræðustólinn, til þess þar með mikilli mærð, en lítilli skerpu að dýrðast yfir sjálfs sín verðleikum, eða beva aðra ósönnum óhróðri, svo sem Hannibal Valdimarsson áðan gerði, er hann réðist á Bjövn Ólafsson, fyrrv. ráðherra, mig og fleiri út af greiðslu á stóreigna- skatti. Hefir það mál verið marg skýrt í blöðum landsins og vita því allir, sem því hafa viljað kynnast að hér er hvorki uin spillingu eða sakir að ræða. Vil ég þó enn minna á, að enginn þessara aðila óskaði þess að greiða skatt sinn með umrædd- um fasteignum, heldur kröfðust þeir þess þvert á móti allir að eignirnar yrðu undanfelldar mati til stóreignaskatts og hefðu þá ekki getað greitt skattinn með þeim. Og það er ekki fyrr en ríkið neitar að verða við þessari sanngjörnu kröfu að þessir aðilar afhentu ríkinu þessar eignir og við því verði, sem ríkið sjálft ákvað. Ræða hv. þm. Gils Guðmunds- sonar var nokkuð laus í bönd- unum og var þar mörgum stað- reyncíum við snúið. Þannig staðhæfði hann að sjó- menn sköðuðust á bátagjaldeyr- inum. Hann vill kannske sanna það á morgun. Hann sagði að SÍF græddi á lágu fiskverði. — Hann vill kannske sanna það líka á morgun. Flest annað var svip- að. Hann fjandskapast gegn geng- isfellingu og bátagjaldeyri og öllu því, sem haldið hefir skip- unum á floti, öllu því, sem bægt hefir atvin.nuleysi • og böli frá bæjardyrum almennings. -Síðan er sunginn í þúsundasta og fyrsta sinni söngurinn um stórgróðann í því skyni að vekja öfundina. Loks er svo spurt: „Hvað ætlar stjórnin að gera.“ Ég svara Gils Guðmundssyni: Stefna og aðgerðir stjórnar- flokkanna er kunn og hefir leit.t til blómlegs atvinnulífs í stað böls atvinnuleysisins, sem ella hefði sorfið að landsfólkinu. En Gils Guðmundsson gleymui að segja hvað hann vill láta gera. S-'ffáísllyssd og ranhæf stjómarsfiefna ntirii færa landkirciör.iitTcm framfarir O0 afkomme >• >> liiv.srps^æða Oiafs Th©-5 far- sæflsráðherra s.fl. mánudagskvöld ar liggi óvarið fyrir árásarhættu ofbeldisaðilanna, sem svíkjum ættjörð okkar, eða hinir, sem af ráðnum hug og fyrir opnum tjöldum, hafa valið Rússland en ekki ísland. sem föðurland sitt og einfeldningarnir, sem þenn leggja lið. — ★ — Samningur sá, sem stjórnar- flokkarnir gerðu með sér þegar núverandi stjórn var mynduð, var þegar í stað birtur almenn- ingi í blöðum og útvarpi. Leyfi ég mér því að ætla að háttvirt- ir hlustendur þekki hann í aðal- efnum, og rek því ekki einstök ákvæði hans, umfram brýnustu þörf til þess að skýra loforð og fyrirhugaðar efndir. Ég tel víst, að allir viðurkenni, að þess er ekki að vænta, að rík- isstjórn, sem við völdum tekur i byrjun kjörtímabils og rétt í sama mund, sem Alþingi kemur saman, og þessvegna engan starfs frið hefur haft til að klæða hug- myndir sínar og fyrirheit holdi, geti á fyrsta þingi efnt megin- hluta, hvað þá öll fyrirheit sín. Því meiri gleðiefni er að geta skýrt frá því, sem skeð hefir. Frfáisræði í viðskJgsfa- tslífi Ólafur Thors forsætisráðherra. IIVAÐ A AÐ KOMA í STAÐINN Ég skora nú á Gils Guðmunds- son að leiða rök að því að hægt sé að hverfa frá stefnu stjórnar- flokkanna og segja til, hvað hann ætli að gera í staðinn. Þá dugir ekki að segja: „Leið- ir má finna“ eins og hann áðan gerði. Hann verður að finna þessa leið og sýna mönnum hana, því á neikvæðum belgingi lifir eng- inn til lengdar. En annars get ég látið mér í léttu rúmi liggja flest það; sem stjórnarandstæðingar eru að hampa. Við Sjálfstæðismenn höfum aldrei ætlað okkur að mæla okk- ur við slíka menn, hvorki við mikilleik þeirra í sjálfsmeðvit- und þeirra, né smæð þeirra í aug- um margra annara. Stjórnmála- baráttan á íslandi er ekki og get- ur aldrei orðið metingur við þessa menn, heldur barátta við þá örðugleika, sem vanefni og fjárskortur leggja í götu allra þeirra, sem sækja fram til bættra lífskjara þjóðinni til handa. Við þessa örðugleika eru stjórnarliðar nú að glíma. Og ég segi cnn við nöldrarana eins og Clemenceau gamli forðum, þegar Frakkar lögðu taumana í hans hendur 1917 og fólu honum að vinna styrjöldina: „Je fais la guerre“, — Ég er í stríði. — Hann virti þvaður ráðleysingj- anna að vettugi, sneri sér beint að verkefninu, eins og við erum að gera, tók á af alefli, eins og við ætlum að gera og sigraði, eins og við vonum að gera. FYRIRHEIT STJÓRNARSAMNINGSINS Ég þykist vita, að flestir hátt- virtir hlustendur skilja þetta sjónarmið. Ég hygg einnig, að þess sé öðru fremur af mér vænzt, að ég skýri frá, hvar stjórnarflokkarnir séu á vegi staddir um úrræði til þess að efna þau fyririheit, sem gefin eru í stjórnarsamningnum, fyrirheit. sem svo margir landsmenn eiga svo mikið undir, að séu flutt frá pappírnum yíir í framkvæmdir. Um hitt ættu menn að vera ein- færir að dærna, hvort stjórn, sem gefið hefir fyrirheit stjórnar- samningsins og ætlar sér að efna þau, sé afturhaldsstjórn, eða stjórn stórhuga framfara ng frelsis, og þá einnig hvort held- ur það séum við, sem af raun- sæi viljum forðast að land okk- Stjórnarsamningurinn hefst á þessari yfirlýsingu: Það er höfuðstefna ríkis- stjórnarinnar að tryggja lands mönnum sem öruggasta og bezta afkomu. Til þess að því marki verði náð telur ríkisstjórnin nauð- synlegt að sem mest frjálsræði ríki í viðskipta- og atvinnuíííi þjóðarinnar, en skilyrði þess, að svo megi verða, er að tryggt verði jafnvægi í efna- hagsmálum inn á við og út á við. Ríkisstjórnin mun því beita sér fyrir hallalausum ríkisbuskap og fyrir því, að atvinnuvegirnir geti orðið reknir hallalaust þannig að þeir veiti næga atvinnu". Hér heitir stjórnin m. a. því, að beita sér fyrir hallalausum ríkisbúskap. Efndir þess fyrir- heits felasfí því, að fjárlög verði afgreidd án greiðsluhalla. Það er nú verið að leggja síðustu hönd á fjárlagafrumvarpið og er mér óhætt að staðhæfa, að stjórnin hefir einskis og mun einskis láta ófreistað til þess að standa við þetta loforð. Vita allir, sem til þekkja, að slíkt skeður ekki á- takalaust hér á Alþingi, enda kallar það á mikinn þegnskap allra stjórnarliða. Get ég um þétta að öðru leyti vísað til þess sem hv. framsögumaður fjár- veitingan. Magnús Jónsson, ný- verið sagði um það í framsögu- ræðu sinni við 2. umræðu fjár- laganna. Hefir ræða þessi verið prentuð í víðlesnustu blöðum landsins og skal ég því eigi end- urtaka þær staðreyndir og rök, sem þar greinir. Hæstvirtur fjár- málaráðherra mun ræða þetta mál nánar í kvöld. FJÁRHAGSRÁÐ AFNUMIÐ Þá hefir stjórnin, eins og þjóð- in veit, lagt fram frumvarp til efndar því fyrirheiti „að fjár- hagsráð sé lagt niður, enda séu nauðsynlegar ráðstafanir gerðar af því tilefni“, svo sem segir |í stjórnarsamningnum. Um þetta frumvarp þarf ég síður að fjöl- 1 yrða fyrir það, að efni þess hef- ir verið skýrt í blöðum lands- ins. Kjarni málsins er þessi: Með lögum um fjárhagsráð, sem sett voru á Alþingi 1947, var 5 manna nefnd falið meira vald yfir atvinnu- og fjármálalíii þjóðarinnar en dæmi munu til í sögu þjóðarinnar. Þessi lög verða nú afnumin, og ráð þetta lagt niður, en vald þess ýmist afhent þjóðfélagsþegnunum sjálf um eða þeim stjórnvöldum, sem þjóðin á hverjum tíma felur að fara með völdin í landinu. Þó skal ríkisstjórnin skipa tvo menn, er fari enn um skeið með brot af því valdi, sem fjárhags- ráði var falið. Verður hlutverk þessara tveggja manna aðallega að úthluta milli manna réttind- um til innflutnings á þeim vör- um, sem af gjaldeyrisástæðum hefir enn ekki verið talið mögu- legt að gefa frjálsan innflutn- ing á. Ennfremur fjalla þessir sömu menn um þá fjárfest- ingu, sem enn verður háð leyfum, en almenningur öðl- ast nú fullt frelsi til þeirra húsabygginga og annarra framkvæmda, sem hann helzt þarfnast, og kaup og sala á byggingarefni á hérlendum markaði er nú með öllu gefin frjáls. RÁNDÝRU BÁKNI LÉTT AF ÞJÓÐINNI Auk þessara gerbreytinga fylgja hinni nýju skipan ýmsir , ágætir kostir. Nefni ég þar til | m. a., að miklu og rándýru bákni er létt af þjóðinni, sem og, að mikil trygging fyrir ábyrgri og | réttlátri meðferð þess valds, sem ' enn hefir ekki verið afhent borg- ! urunum sjálfum, felzt í því, að í stað 5 manna, sem alltaf gátu skotið sér hver að annars baki í beitingu hins ótakmarkaða valds, fara nú aðeins tveir menn með takmarkað vald. Séu þeir sammála, eru þeir báðir ábyrgir j fyrir teknum ákvörðunum. Beri , á milli, ber hvor um sig opin- j bera ábyrgð á samþykki sínu eða synjun, og sker þá ríkisstjórnin úr. Hér er því viðureignin fyrir j opnum tjöldum. Hér ber hvsr og einn ábyrgð á eigin gjörðum og getur ekki falið skoðun sína eða tillögur. En sú skipan og sú skipan ein tryggir almenningi Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.