Morgunblaðið - 17.12.1953, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. des. 1953
Minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins
grundvöll að mikilvægri stefnubreytin
Herra forseti!
Góðir áheyrendur.
VIÐ þá umræðu sem hér fer fram '
sem heitir eldhúsdagsumræða, er :
eðlilegast að ræða um fjárlögi.n
og fjárhagsástandið í landinu. !
Það heyrist um það sitt á hvað
hvort fjármálaástandið og fjár-
málastjórnin sé í góðu lagi eða
ekki. Er því mikils um vert, að
þjóðinni séu gefnar sannar lýs-
ingar á því sviði frá fleiri en
einni hlið. Okkar hag er nú
komið svo þrátt fyrir allar fram-
farir, að allir okkar atvinnuvegir
eru í vanda staddir. Þeir þurfa
meiri aðstoð með lánsfé og á
annan hátt til þess að geta starf-
að. Mega þó allir vita, að þeir og
þeirra framleiðsla er undirstaða
allra okkar fjármála. En að svo
er komið sem er, stafar af óhofi
í lifnaðarháttum, sköttum, toll-
um, launum og um leið marg-
víslegri eyðslu, sem er atvinnu-
vegunum um megn.
HÆKKUN ÚTGJALDA
OG DÝRTÍÐAR
Útgjöld ríkisins hækka frá ári
til árs og svipað gerist víða ann-
i ars staðar. Rekstrargjöld þessara
fjárlaga eru áætluð 403 milljónir
króna og gjöld á sjóðsyfirliti 443
milljónir, en það eru samanlögð
gjöld. Þau urðu samkvæmt reikn-
ingi síðasta árs, 1952, 550 mill-
jónir króna. Enda hætt við að
gjöld ársins 1954 verði all veru-
lega hærri þegar sjást fjárauka-
lög fyrir það ár. Fjáraukalögin
sem nú liggja fyrir eru upp í
114 milljónir króna. Þau eru frá
1951.
Til samanburðar vil ég nefna
gjöldin á árinu 1946. Þá urðu
rekstrargjöld 170 milljónir og öll
gjöldin 228 milljóhir. Gjöldin
hafa því meira en tvöfaldazt.
Byggingarkostnaður hefur frá
1946 rúmlega tvöfaldazt eftir
skýrslum Hagstofunnar.
Ég nefni árið 1946 af því að
fyrir það ár skilaði hinn vitri
maður Pétur Magnússon síðasta
reikningi um leið og hann lét
af fjármálastjórn. — Hann var
allra manna mest ásakaður um
eyðslu og hvað mest af sumum
þeim er mestu hafa ráðið um
fjárstjórnina síðan. Það er því
nauðsynlegt að fólkið fái rétta
mynd af breytingunni. Það er
umhugsunarefni fyrir allan lands
lýð. En hvernig stendur svo á
allri þessari hækkun? í því efni
þýðir lítið að kasta hnútum milli
manna og flokka. Staðreyndirnar
tala sínu méli. Allt hefur skrúfað
hvað annað upp. Vöruverð, flutn-
ingar innanlands og utan, opin-
ber gjöld, laun og kaupgjald. —■
Gengi okkar krónu hefur orðið
að fella og það neyðarúrræði
verkaði til hækkunar ekki lítið.
Allt hefur þetta stefnt í sömu
átt. Sumt af því hefur verið okk-
ur sjálfrátt. Annað ekki. En höf-
uð orsökin er vísitöluskrúfan og
verðuppbótareglan. Á því eiga
allir flokkar og allar stéttir ein-
hverja sök, en embættis- og fast-
launastéttin mesta. Ég hygg að
nú séu allir gætnari og skynsarn-
ari menn í öllum stéttum farnir
að sjá, að þessi leið var ógæfu-
leið. En við þeir fáu, sem á móti
höfum hamlað, höfUm engu feng-
ið að ráða í þessu efni. Þjóðin
hefur runnið á svellglærunni og
rennur enn hvernig sem land-
takan verður.
Ég verð að segja það hér, að
þeir sem telja fjármálastjórnina
góða og fjárhagsástandið í land-
inu á góðri leið, þeir eru mjög
nægjusamir menn. Þetta er af
því hve eyðslan er mikil á öll-
um sviðum og óvissan um fram-
tíðina.
IIAGUR RÍKISSJÓÐS GÓÐUR,
EN AF HVERJU?
En fólkinu líður vel og hagur
rikissjóðs er góður, segja menn.
Þetta er satt og er hvorutveggja
mikils virði. Sú undantekning er
I skjóll hennar feefisr sfórfelBduin
umhófnm verið hrnnáið i framkvæmd
ÚfvarpsræSa Jéns Pá!mascnar þm. A.-Húnyafninga
þó frá þessu, að þar sem veiði-
brestur hefur þjakað sjávar-
byggðir, þar er ástandið með at-
vinnu ekki álitlegt.
En hagur ríkissjóðsins er géð-
ur og það skiptir miklu, en staf-
ar af nokkuð óvenjulegum or-
sökum. En þakkaverður eigi að
síður.
Árið 1950 voru tekin upp ný
úrræði fyrir atbeina minnihluta-
stjórnar Sjálfstæðisfnanna með
viðurkenningu á falli krónunnar
og fleiri ráðstöfunum. Þess vegna
hefur útflutningsframleiðslan
verið möguleg síðan. Árið eftir
1951 voru innflutningshöftin leyst
upp að miklu leyti. Það var eins
og að taka stíflu úr á. Innflutn-
ingui’inn á því ári óx um 314
milljónir króna frá því árið áður.
Þetta hvorttveggja mokaði ó-
hemju tekjum í ríkissjóð og síð-
an hefur haldið áfram með öll-
um tollum og sölusköttum af efni
til áburðarverksmiðjunnar og
Sogs- og Laxárvirkjunar. Þessa
vegna hafa tekjur ríkissjóðs ver-
ið geysi miklar þessi ár. í þessu
felst bætt fjármálastjórn síðuscu
ára. Þess vegna hefur verið hægt
að leggja mikið fé til margvís-
legra framfaramála, sem ella
hefði ekki verið mögulegt. Þetta
ber að þakka fyrrverandi ríkis-
stjórn, og ekki sízt hæstvirtum
fjármálaráðherra Eysteyni Jóns-
syni. Hvers vegna honum munu
menn spyrja? Því er þannig var-
ið, að meðan Jóhann Jósefsson
var fjármálaráðherra þá stóð Ey-
steinn Jónsson, sem veggur gegn
allri rýmkun á innflutningi og
þar með öllum auknum tekjum
ríkissjóðs. Hann hefur frá byrj-
un verið höfuð forystumaður
haftastefnunnar á íslandi. Barizt
fyrir henni á öllum sviðum og
framkvæmt hana allra manna
mest. Þegar þessi valdamikli
maður snýr alveg við blaðinu til
að moka tekjum í ríkissjóðinn
eins og hann gerði 1951, þá er
það vissulega þakkavert. Það er
alltaf þakklætisvert þegar menn,
sem lengi hafa fylgt rangri stefnu
snúa við og taka rökum reynsl-
unnar. Enda hefur þessi snúning-
ur hæstvirts fjármálaráðherra
haft mikilvægar afleiðingar. —
Meðal annars þá, að gera okkur
Sjálfstæðismönnum mögulega
samvinnu við Framsóknarflokk-
inn. Ella hefði sú samvinna ekki
getað verið fram á þennan dag.
i Eins og gefur að skilja eru
þessi stefnuskipti til orðin fyrxr
fortölur og forgöngu Sjálfstæðis-
manna, sem alla tíð hafa talið
frjálsa verzlun sína aðal stefnu.
En breytingin af hálfu samstarfs-
flokksins er jafn þakkaverð fyrir
því, og þáð að hagur ríkissjóðs
er nú góður gefur hæstvirtri rík-
isstjórn og Alþingi færi á að
bjarga mörgum vandræðum. —
Vandræðamálin eru líka í öllum
áttum og von er til, að úr mörgu
verði greitt. Það þykir mér og
fleirum þó ærið hart, að einkum
I skuli nú haldið niðri þeim fram-
kvæmdum, sem víða er hvað mest
þörf fyrir, þ. e. vegabótum, brú-
argerðum, hafnar- og lenaingar-
bótum og sjúkrahúsbyggingum.
Til þessara mála eru framlögin
að minnka raunverulega af því
hve mikið minna verk fæst fyrir
hverjar þúsund krónur, en var
fyrir nokkrum árum. Nýir vegir
um 1000 km. að lengd voru tekn-
ir í tölu þjóðvega í byrjun þessa
árs. En framlögin til vegamála
hækka þó ekki neitt. Ekki einu
sinni til viðhalds vegur.um. Þetta
þýðir því mikla lækkun þegar
allt kemur til alls.
er lengra gengið en hóflegt er í
því að sýnast annað en verið
hefur.
Annars er það mjög ánægju-
legt ef allt það væri rétt, að
Framsóknarmönnum sé nú mikið
áhugamál að fá frjálsa verzlun
og lækka skatta, og svo það sem
hæstvirtur ráðherra bætti við að
lofa athugun á því í alvöru, að
lækka eyðslugjöld ríkisins. Þá
væru burtu fallin stærstu ágrein-
ingsefnin milli Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins og
þá gætum við séð hylla undir
þann möguleika, að gera einn
flokk úr þessum tveimur stjórn-
arflokkum. Gamlar deilur og
syndir yrðu þá að leggjast í
grafai-innar djúp og ættu aldrei
að rísa aftur upp. Þá mundi og
allur grundvöllur fyrir staríi
hæstvirtrar stjórnar verða annar
en er.
Jón Pálmason.
FRAMFARALOFORÐ
STJÓRNARINNAR
Það er kunnugt að í samning-
um hæstvirtrar ríkisstjórnar eru
mörg fögur loforð og við skulum
vona, að þau verði öll frara-
kvæmd. Eitt er þó það sem mér
og öðrum sveitarnönnum er einaa
kærast, en það er loforðið um
raflýsingu héraðanna. Það er
framkvæmd á einu mesta hug-
sjóna- og baráttumáli okkar
Sjálfstæðismanna fyrr og. síðar.
Þau skoplegu orð hrukku fram
úr hæstv. fjármálaráðherra í
gærkvöldi, að raforkumálin væru
meðal þeirra áhugamála Fram-
sóknarflokksins, sem þeir hefðu
þurft að berjast fyrir við Sjálf-
stæðismenn. Þetta er meira en
hægt er að bjóða landsfólkinu.
Saga þessara mála er of kunnug
til þess. Meðal annars það, að
Framsóknarmenn gerðu það að
þingrofsástæðu 1931 að til stóð
að ábyrgjast 6 milljóna króna lán
fyrir Sogsvirkjunina, sem var
fyrsta stórvirkjun hér á landi.
Hins vegar er óþarfi núna, að
stjórnarflokkarnir fari að metast
um þessi dýrmætu hagsmunamál.
Við Sjálfstæðismenn berum hið
bezta traust til raforkumálaráð-
herrans Steingríms Steinþórsson-
ar og bæði ég og aðrir gerum
okkur von um röggsamlegar
framkvæmdir frá hans hendi í
þessum efnum héruðum okkar til
hagsbóta og blessunar.
ERU ORÐIN STEFNUSKIFTI
IIJÁ FRAMSÓKN?
En hæstvirtur fjármálaráð-
herra sagði fleiri skopleg orð í
ræðu sinni í gær. Meðal annars
það, að Framsóknarmenn hefðu
gert sér helzt von um að geía
samið við Sjálfstæðismenn um
frjálsa verzlun og lækkun skatta.
Hlægilegri orð hafa eigi komið
fram í þessum umræðum.
Aðalstefna Framsóknarflokks-
ins var í 20 ár verzlunarbaíta-
stefnan og höfuð forsprakki
hennar var allan tímann núver-
andi hæstvirtur fjármálaráðherra
Eysteinn Jónsson. Nú hefur hann
snúið við að miklu leyti og gott
er það ef hann vill snúa til fulls
á rétta leið. En aðal grundvöl!-
urinn fyrir stefnu Sjálfstæðis-
flokksins er frjáls verzlun.
Um skattalækkunina er svipað
að segja. Hæstvirtur fjármála-
ráðherra hefur í 20 ár verið allra
manna fundvísastur á það að
hækka skatta og tolla, stundum
af nauðsyn, en á bak við hefur
þó staðið viðleitnin til að hnekkj a
' frjálsum atvinnurekstri. Þegar
! svo þessi maður þykist þurfa að
j berjast fyrir því við Sjálfstæðis-
I menn, að fá að lækka skatta, þá
AFSTAÐA STJORNAR-
ANDSTÖÐUNNAR
En til þess að þetta sé hugsan-
legt vsrðum við að fá eitthvað
öruggari sannanir um breyttar
aðferðir en komið hafa enn fram.
Annars vil ég segja það hér að
gefnu tilefni að í fyrra um þetta
leyti var það góð samvinna stjórn
arflokkanna að við Sjálfstæðis-
menn gerðum ráð fyrir friðsam-
legum kosningum og framhald-
andi samvinnu brotalaust. En
þetta fór á aðra leið. Framsókn-
armenn samþykktu á flokksþingi
að slíta samvinnunni hvernig
sem kosningarnar færu og sam-
þykktu auk þess ávítur á hæstv.
dómsmálaráðherra fyrir það eitt
að láta lögin ganga jafnt yfir af-
brotamenn úr Framsóknarflokkn
um sem aðra. Út af þessu hvoi~u-
tveggja varð stjórnarkreppa, sem
engin hefði þurft að vera.
Þegar ástandið í fjármálum er
eins og ég hef lýst, þá liggur sú
spurning fyrir til úrlausnar.
Hvers bjargræðis er að vænta
af þeim flokkum sem nú eru í
stjórnarandstöðu? Þeirri spurn-
ingu er nauðsynlegt og skylt að
svara. í Alþýðuflokknum og Sós-
íalistaflokknum er margt
greindra og persónulega geð-
felldra manna. En því miður er
stefna þeirra og framferði þann-
ig, að frá þeim er minna góðs
von, en ætla mætti. Stefna þeirra
beggja er sósíalistastefnan. Stefna
ríkisrekstrar og ríkis yfirráða a
öllum sviðum. Þeir bera á hverju
þingi fram fjölda af útgjalda til-
lögum upp á marga tugi milljóna
í viðbót við allt hitt. Þeir vilja
meiri ríkis afskipti, hærri vísi-
tölu, hærri laun, meiri eyðslu.
En þeir þykjast vilja lægri tolla,
lægri skatta, minni ríkistekjur.
Hjá þeim rekur því eitt sig á
annars horn og er vafið mót-
sögnum og ósamkvæmni, enda
þó sumt af þeirra aðfinningum
sé rétt.
En frá þeim er ekki mikils
góðs að vænta á fjármálasvið-
inu. Aðferð þeirra er kannske
öll eðlileg af því sósíalistastefnan
er það, að eyðileggja núverandi
þjóðskipulag og byggja annað
nýtt á rústunum.
Um hinn nýja flokk, Þjóðvarn-
arflokkinn, er ekki margt að
segja enn sem komið er. Hann
er óskilgetið afkvæmi kommún-
ista og Framsóknar. Hann hefur
sýnilega lært málið af foreldrun-
um, en er að öðru leyti pólitískt
vöggubarn.
STEFNA SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSSNS
Hvað er svo að segja urn að-
stöðu okkar flokks, Sjálfstæðis-
flokksins?
Allir andstæðingarnir kallá
hann íhald. Látum þá um það.
En hvað er það sem þeir kalla
íhald? Það að vilja halda í þjóð-
skipulag eignaréttar og atvinnu-
frelsis. Það að vilja hamla gegn
óhóflegum sköttum. Það að vilja
vinna gegn vaxandi ríkisrekstri.
Það að vinna gegn óhóflegri
eyðslu. Það að vilja hi’inda ssm
bezt fram nytsamlegum fram-
kvæmdum í sveitum og kaup-
stöðum, og þó fyrst og fremst
; það, að búa þannig að fram-
J leiðslunni, að hún beri sig styrkja
laust.
Við teljum frjálsa verzlun
undirstöðuna og álítum þessa
J stefnu þá frjálslyndustu sem til
j er. En við höfum verið á undan-
1 haldi, í mörgu, undanfarin ár
; vegna samvinnu við aðra, og þó
| gert meira gagn en nokkur ann-
: ar flokkur þessa lands.
En sé okkar viðleitni íhald eins
og andstæðingarnir vilja vera
láta, þá hefur það íhald ekki
megnað nema í takmörkuðum
1 skilningi að reisa rönd gegn
þeim öfgum breytinga og bylt-
inga, sem öllu vilja umturna, og
gera ríkisvaldið alls ráðandi, en
einstaklingana valdlausa og
sjálístæðisrúna þjóna.
Síðustu kosningaar sýndu, að
þjóðin er að átta sig á þessum
sannleika. En hún verður að átta
sig betur. Ef veruleg von á að
| vera um mikla breytingu á þeirri
fjármálastefnu, sem haldið hefur
verið að undanförnu, þá verður
samstæð heild og helzt einn
flokkur að fá færi á að gera þær
ráðstafanir sem gera þarf og
bera þá á þeim alla ábyrgð. —■
Samsteypustjórna fyrirkomulag-
ið er búið að valda mikilli ógæfu.
Það þarf hið fyrsta að hverfa.
Þá mundu okkar stjórnmál fá
allt annan svip.
Enska knathpyrnan
STAÐAN er nú:
I. deild:
L U J T Mörk St.
WBA 22 15 3 4 60-30 33
Wolves 22 14 5 3 55-31 33
Huddersfld 22 12 5 5 40-23 29
Burnley 21 14 0 8 45-39 28
Bolton 21 8 8 5 37-31 24
Arsenal 22 9 5 8 43-41 23
Charlton 22 11 1 10 46-42 23
Cardiff 22 9 5 8 27-37 23
Blackpool 21 9 4 8 38-38 22
Manch. Utd 22 6 10 6 34-32 22
Preston 22 9 3 10 49-33 21
Tottenham 22 10 1 11 36-39 21
Sheff Wedn 23 9 3 11 40-51 21
Aston Villa 21 9 2 10 35-37 20
Newcastle 22 6 7 9 35-40 19
Chelsea 22 75 10 37-47 19
Portsmouth 22 6 6 10 45-54 18
Sheff. Utd 21 7 4 10 36-42 18
Manch City 22 6 5 11 28-42 17
Middlesbro 22 6 4 12 33-43 16
Sunderland 21 5 5 12 38-55 15
Liverpool 22 5 5 12 42-56 15
II. deild:
L U J T Mörk St.
Leicester 22 11 7 4 54-30 29
Doncaster 22 13 3 6 37-24 29
Everton 22 10 8 4 44-37 28
Luton 22 10 7 5 40-34 27
Birmingh. 22 10 6 6 48-30 26
Nottingh. 22 10 6 6 48-34 26
Rotherham 23 12 2 9 42-40 26
Stoke City 23 6 11 6 35-34 23
Blackburn 21 8 6 7 38-33 22
Bristol Rov 22 7 8 7 44-35 22
West Ham 22 9 4 9 40-34 22
Leeds Utd 22 7 8 7 45-42 22
Lincoln 22 8 5 9 36-39 21
Swansea 22 9 3 10 30-38 21
Fulham 22 7 6 9 46-44 20
Derby Co 21 8 4 9 41-45 20
Notts Co 22 7 5 10 26-43 19
Plymouth 22 4 10 8 28-39 18
Hull City 22 8 2 12 26-34 18
Brentford 22 5 6 11 17-42 16
Bury 22 4 8 10 29-46 16
Oldham 22 4 5 13 23-40 13