Morgunblaðið - 17.12.1953, Qupperneq 16
16
M O Ii G U N B L ÁÐ I Ð
Fimmtudagur 17. des. 1953 ]
Slysavarnadeiidin
Björg25ára
SANDUR, 7. des.:— Slysavarna-
deildin Björg á Hellissandi, varð
25 ára 3. desember s.l. og minnt-
ist þessa merka afmælis s.l. laug-
ardag með kaffisamsæti, er 120
tnanns tók þátt í.
Formaður deildarinnar, Bene-
dikt Benediktsson, flutti aðal-
yæðuna. Rakti hann undirbúning-
»nn að stofnun Slysavarnafélags
Islands og minntist helztu þátt-
anna í starfi þess. Þakkaði hann
ábúum á Sandi fyrir stuðning
þeirra við starfsenji félagsins og
deildina og færði Slysavarnafé-
laginu þakkir fyrir þá aðstoð,
■ sem það hefur veitt bátum héðan.
Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi
SVFÍ, var viðstaddur og færði
hann deildinni kveðjur og árnað-
aróskir Slysavarnafélagsins og
flutti síðan fróðlegt erindi um
starfsemi félagsins.
Jóhanna Vigfúsdóttir, formað-
ur Kvenfélags Hellissands, flutti
kveðjur félagsins og færði slysa-
varnadeildinni • 1000 krónur að
gjöf frá kvenfélagskonum. Skúli
Alexandersson formaður ung-
mennafélagsins Reynis flutti
kveðjur félags síns og tilkynnti
að félagið myndi gefa slysavarna-
deildinni bikar, sem keppa skyldi
ura í sundi á sjómannadaginn.
Hjörtur Jónsson hreppstjóri, tal-
aði um slysavarnamálin og flutti
kveðjur frá hollenzkum sjómanni
scm deildin hafði bjargað frá
drukknun.
Stjórn slysavarnadeildarinnar
Bjargsr, en hún er skipuð Bened.
Bencdiktssyni, Magnúsi Arngríms
syni og Maríusi Guðmundssyni,
hefur beðið Mbl. að færa öllum
þeim mörgu, sem sýnt hafa deild-
inni velvild og vinarhug, kærar
þakkir. Veitingar voru bornar
fram af kvenfélagskonum. — í
sambandi við afmælið var sýnd
kvikmyndin Björgunarafrekið
við Látrabjarg. —S.
V.' -
Karfákór tssfjarðar
son
s.l, laugardag
ÍSAFIRÐI, 6. des. — Karlakór
ísafjarðar efndi til tónleika í
Alþýðuhúsinu á ísafirði í gær-
kveldi. Á söngskránni voru 14
lög eftir innlenda og erlenda
höfunda og voru það flest lög,
sem kórinn hefur ekki sungið
áður.
í kórnum eru nú 34 söngfélag-
og hefur kórinn undanfarið
jiotið leiðsagnar frk. Ingibjarg-
ar Steingrímsdóttur, söngkenn-
ara Sambands ísl. karlakóra, en
söngstjóri kórsins er Ragnar H.
Ragnar, skólastjóri.
Einsöngvarar með kórnum í
gær voru Gísli Kristjánsson og
Sigurður Jónsson, en undirleik
annaðist frk. Elísabet Kristjáns-
dóttir.
Söngnum var ágætlega vel tek-
ið og varð kórinn að endurtaka
rnörg lögin og að lokum varð
hann að syngja aukalög, eftir
að áheyrendur höfðu hyllt kór-
inn ákaft.
Formaður Karlakórs ísafjarðar
er nú Gísli Kristjánsson for-
stjóri. — J.
Skæruliðar hrakfir
úr greni
BINGAPORE, 14. des. — Komm-
úniskir skæruliðar voru í dag
svældir út úr greni sínu í Johore
ríki á vesturströnd Malakka-
skaga. Það var flugmaður í lítilli
könnunarflugu, sem varð þeirra
var. Hann fór til bækistöðvar
sinnar og sótti handsprengjur og
litlar eldsprengjur. Kastaði hann
sprengjunum yfir greni skæru-
liðanna með þeim afleiðingum að
það gereyðilagðist. —Reuter.
Þyrilflugurnar eru sérkennilega flugtæki, sem geta lení og hafið sig til flugs lóðrétt.
því hentugar til farþegaflutninga í stórborgum.
Þær eru
S.0. S. gengst fyrir
verOi
ÁRSÞING Sambands bindindis-
félaga í skólum samþykkti tillögu
þess efnis, að sambandið tæki í
sínar hendur frumkvæðið að
byggingu hælis fyrir ofdrykkju-
sjúklinga. Mun sambandið m. a.
skipuleggja alisherjarfjársöfnun
í því skyni. Samþykkt þings S.
B. S. er svohjóðandi:
„Þar sem ríkisvaldið hefur ár
eftir ár brugðist þeirri skyldu
sinni að reisa hæli fyrir of-
drykkjusjúklinga, þrátt fyrir
brýna og auðsæja nauðsyn, og
þar sem bæði einstaklingar og
ýmis félagssamtök munu vera
reiðubúin til þess að hefjast
handa í þessu nauðsynjamáli, svo
að það eitt virðist vanta, að ein-
hver verði til að hefja merkið og
taka að sér íorystuna, — þá sam
þykkir 22. þing Sambands hir.d-
indisfélaga í skólum að taka að
sér forystuna urn sinn um bygg-
ing heilsuhælis fyrir áfengissjúkl
inga, m. a. með því að skipu-
leggja og sjá um aimenna fjár-
söfnun í landinu í þessu skyni.
Jafnframt ákveður sambandið að
leggja fram fé til þess fyrirtækis
eftir því sem geta þess leyfir.
Sambandið skorar á alla ein-
staklinga og félagssamtök í land
inu að ljá máli þessu lið og starfa
að því í samráði við sambandið.
Sambandið hyggst gangast fyr-
ir róðstefnu á næsta ári, þar sem
óskað væri eftir að íulltrúar frá
sem flestum félögum kæmu áam-
an, þeirra sem áhuga hefðu fyrir
málinu, og yrði á þessari ráð-
stefnu nánar ákveðið, hvernig
þessu mannúðar- og nauðsynja-
máli verði bezt hrundið áleiðis.
Sambandsþingið samþykkir að
kjósa 11 manna ráð til þess að
hefja undirbúning málsins og
skipuleggja frekari framkvæmd-
ir.“
í sambandi við tillöguna vill
S.B.S. taka fram eftirfarandi- i
Undanfarið hafa samtök bind-
indismanna, sér i lagi Góðtempl-
arareglan, sætt harðri gagnrýni
og ásökunum fyrir afskiptaleysi,
af högum oídrykkjumanna.
Á bak við slíkar ásakanir hlýt-
ur að liggja sú skoðun, að bind-
indismenn séu öðrum fremur
ábyrgir fyrir því böli og niður-
lægingu, er áfengisneyzla leiðir
yfir suma þegna þjóðfélagsips.
Hefur sú skoðun að visu e’.*i
verið studd neinum réttum rök-
um, enda virðist öllu meiri san s-
girni að dæma hér höfuðábyrjS í.
bá aðila, sem fá því ráð:ð —- í
fullri óþökk bindi«edissamtak-
anna — að vínsala *" leyfð í íand
inu.
Samt sem áður hafa eir.mitt
bindindismenn átt frumkvæði og
rnsginþátt í nær öllu því, sem
gert heíur verið hér á lahdi of-
drykkjumönnum til viðreisnar.
Kafa bindindismenn talið og
telja, að mál þessi séu af mann-
úðarástæðum engum óviðkom-
andi.
Einmitt af þeim ástæðum
hyggst nú Samband bindindis-
féiaga í skólum ganga fram fyrir
skjöldu og berjast fyrir stofnun
hælic fyrir drykkjusjúklinga.
Vill S. B. S. gefa öllum lands-
mönnum kost á að sýna í verki
hug sinn til þessa . máls —- svo
sem fram kemur í dfanritari sam
þykkt Sambandsþings.
Hir.s vegar er S. B. S. ljóst, að
slíkt hæli, þótt rekið væri rneð
góSum árangri, drægi ekki nema
að litlu leyti úr því ógnarböli,
sem áfengisneyzlu fylgir og birt-
ist í mörgum myndum fleirum en
drýkkjusýki.
Þcss vegna mun S. B. S. hér
eftir sem hingað til leggja megin-
áherzlu á aðaistefnumál sitt: að
vinna æskufólk til fylgis við
bindindishugsjónina, þá hugsjón,
er felur í sér hina einu algildu
lausn áfengismáisins.
LONDON, 14. des. — Stjórnar-
frumvarp hefur verið lagt fram
varðandi kanínueyðingu. í frum-
varpinu er kveðið svo á að á
vissum svæðum Bretlands verði
allir íbúar að gera allar ráðstaf-
anir til að hreinsa og eyða kanín-
um, eyðileggja bólstaði þeirra og
kanínurækt er bönnnuð. Ætlast
er til að landbúnaðarráðuneytið
geri ráðstafanir til að útvega
mönnum kanínuheldar girðingar
og gildrur. —Reuter.
Brjóitiíkan af Snorra
Stgfússyni í Bama-
skóla Akureyrar
AKUREYRI, 3. des.: — Bæjar-
stjórn Akureyrar hefur látið gera
brjóstlíkan af Snorra Sigfússyni,
námsstjóra, er var skólastjóri
Barnaskólans á Akureyri í sam-
fleytt 17 ár, og var hér vinsæli
og virtur skólafrömuður.
|í dag var brjóstlíkanið af-
hjúpað við hátíðlega athöfn í
barnaskólanum. Viðstaddir voru
forseti bæjarstjórnar, fræðslu-
ráð bæjarins, kennarar skólans
og ýmsir aðrir gestir.
, Brynjólfur Sveinsson, mennta-
skólakennari, formaður fræðslu-
ráðs, sagði frá því, að Ríkarður
Jónsson, myndhöggvari, hefði
verið fenginn til þess að gera lík-
an af Snorra. Síðan ávarpaði
hann heiðursgestínn og þakkaði
honum starf hans í þágu skóla-
mála bæjarins.
| Síðan tók Þorsteinn M. Jóns-
son, forseti bæjarstjórnar, til
máls og afhenti barnaskólanum
! gjöfina fyrir hönd bæjarins. Þá
I ávarpaði hann Snorra Sigfússon
og fór mjög lofsamlegum orðum
um hann sem skólamann og
menningarfrömuð.
Hannes J. Magnússon, skóla-
stjóri, tók því næst til máls.
Þakkaði hann bæjarstjórn hina
góðu gjöf. Ávarpaði síðan sinr»
fyrra samstarfsmann og flutti
honum þakkir frá kennaraliði
skólans.
Loks talaði Snorri Sigfússon og
þakkaði þá virðingu, sem honum
væri með þessu sýnd og minntist
loks skólans og þess mikla hlut-
verks, er hann hefur að gegna
í menningarlífi bæjarins. Síðan
var bljóstlíkanið afhjúpað.
Að siðustu var setzt að kaffi-
drykkju í boði barnaskólans og
voru fluttar þar margar ræður.
Snorri Sigfússon var skólastjórs
Barnaskólans á Akureyri á ár-
unum 1930—1947, en síðan hefur
hann verið námsstjóri í N»rð-
lendingafjórðungi. — Vignir.
vopnahléi
SAIGON, 14. des. — Útvarpsstöð
Viet-minh uppreisnarmannanna
í Indó-Kína útvarpaði í dag til-
boði frá Ho Chi Minh uppreisn-
arforingja um að koma á vopna-
hléi í landinu. En sem kunnugt
er birti sænska blaðið Expressen
nýlega viðtal við Ho, þar sem
j hann minntist fyrst á slíkt vopna-
I hlé. Síðan hefur franska stjórnin
j tilkynnt að hún vilji ræða við
uppreisnarmennina, ef þeir bjóði
, vopnahlé opinberlega og mun Ho
I Chi Minh hafa veið að svara
j frönsku stjórninni með tilkynn-
I mgunni í dag. —Reuter.
inga-id B-ergman vinnur
einisfæðan [íeiksigipr
Leikur hennar fyrir ofan alla gagnrýní.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
NAPOLI, 10. des. — Mesti leiklistarviðburður ársins er flutning-
ur Ingrid Bergmann á Jeanne d’Arc eftir Claudel. Hefur það verið
sýnt hér í Napoli við fádæma hrifningu og er talið stórkostlegur
leiksigur fyrir Ingrid.
FLUTT SEM LEIKRIT
Kvæði Claudels um Jeanne
d’Arc á bálinu og tónlist Honegg-
ers er upphaflega hugsað sem
Oratoríum. Að þessi sinni er það
þó flutt á nýstárlegan hátt sem
leikrit. Leikstjóri er Roberto
Rosselini, maður Ingrid.
EINSDÆMI í SÖGU
LEIKLISTAR
Leikur Ingridar töfraði áhorf-
endur svo gersamlega, að þess
eru engin dæmi í sögu leiklistar-
innar. Var það einróma álit allra
leikgagnrýnenda að leikur henn-
ar væri fyrir ofan alla gagnrýni.
FAGNAÐARLÆTIN
í fremstu röð sátu Fectheler,
yfirmaður flota Atlantshafs-
bandalagsins á Miðjarðarhafi og
Achille Laure borgarstjóri Na-
poli. Við sýningarlok gættu þeir
ekki virðuleika síns heldur þustu
á fætur til að hylla leikkonuna,
sem var kölluð 15 sinnum fram.
Hópur gagnrýnenda sýndi sömu
óviðráðanlega hrifningu.
Elleffa þing !3n
11. ÞING Iðnnemasambands ís-
lands var sett laugardaginn 12.
des. kl. 3,30 í Eddu-húsinu við
Lindargötu.
Varaformaður sambandsins,
ItreinVi Hauksson, setti þingið í
veikindaforföllum formannsins,
Þórkels G. Björgvinssonar.
Að lokinni kosningu ritara,
fundarstjóra og nefnda flutti
Sigurður Guðgeirsson prentari
erindi um stofnun sambandsins
og störf þess fyrstu árin, en hann
var einn af stofnendum sam-
bandsins.
Ákveðið var að halda fram-
haldsþing - og verður það haldið
fyrstu helgina í febrúar.
Skýrsla og reikningar ritnefndl
ar Iðnnemans voru til umræðu og
sýndu uhiræðurnar að mikill
áhugi er fyrir Iðnnemanum.
Voru menai hvattir til að senda
honum efni til birtingar.
Að lokúm var gegnið til kosn-
inga í sambandsstjórn.
Uppstillinganefnd skilaði álitú
og voru þessir menn kosnir: Þór-
ólfur Daníelsson, prentnemi, for-
maður. Hreinn Hauksson, járn-
smiðanemí, varaform. Ólafur
Eiríksson,1 Egill Óskarsson og
Haukur Jónsson. — Til vara:
Guðmundúr Þórðarson, Sigurður
Kristjánsson, Klemenz Guð-
mundsson og Sæmundur Ingólfs-
son.