Morgunblaðið - 21.01.1954, Page 9
Fimmtudagur 21. janúar 1954
MORGUNBLAfílÐ
9
Slökkviliðið í Reykjavík er buið hinum fullkomustu tækjam. T. d. geta dælur þess samtals dælt 14 þúsund lítrum á mínútu.
Staðreyndir
um bæfarmálastjórn Sjállstæðismanna
Slökkvilið Reykjavíkur var fyrst allra í Evrópu
að taka í notkan hin frábæru háþrýstislökkvitæki
Áðaláherzlan lögð á að
að kæfa efd ; fæðingu
Q REYKJAVlK varð fyrst allra borga Evrópu til að taka í notk-
un hin fullkomnu háþrýsti-slökkvitæki, sem valda gerbylt-
ingu í slökkviliðsmálum.
'k—'k—'k
£ Slökkvilið Reykjavíkur hefur notað þessi nýju tæki síðan
1946 með frabæriega góðum árangri, en það er ekki fyrr en
nú á síðustu tveimur árum, sem t. d. slökkvilið Norðurlanda
hafa tekið þessi nýju tæki í notkun og hefur reyndin þar
orðið á sömu lund, mjög góð.
k—k—k
0 Þannig hefur Reykjavíkurbær lagt áherzlu á að fylgjast með
öllum nýjungum á þessu sviði. Að sönnu er brunahætta nú
miklu minni en áður síðan mestur hluti alls húsnæðis eru
steinbyggingar. En þó er hin mesta hætta sem steðjað getur
að heimilum og stofnunummanna, eldsvoðinn, aldrei útilokað-
ur og er þvi sérstök áherzla lögð á að hafa brunavarnirnar í
öruggu lagi. Er enginn vafi á því að á hverju ári hefur Slökkvi-
lið Reykjavíkur með flýti, áræði og hinum fullkomnu slökkvi-
tækjum komið i veg fyrir marga stærri bruna og bjargað
milljónaverðmætum.
TAFARLAUST BYRJAÐ
AÐ DÆLA
Mbl. átti stutt samtal við Jón
Sigurðsson, slökkviliðsstjóra og
komst hann svo að orði:
— Mestu framfarirnar í bruna-
mólum síðustu ára eru í því fólgn
ar að flestir eldar eru kæfðir
þegar í fæðingu. Þetta leggjum
við megináherzluna á og að
þessu leyti hafa háþrýsti-slökkvi-
tækin og vatnsgeymar í slökkvi-
toifreiðunum valdið gerbreytingu.
Hver slökkvibíll hefur stór-
an vatnsgeymi, sem gerir það
að verkum að hægt er að hef ja
slökkvistarfið þegar eftir að á
brunastað er komið og á með-
an geta þá aðrir brunaverðir
lagt slöngur að brunahönum,
svo að ekkert lát verði á
slökkvistarfinu. Það er líka
sérlega mikilvægt að fyrstu
bílar, sem á staðinn koma hafa
háþrýsti-slökkvitæki, sem
eru miklu stórvirkari en önn-
ur slökkviáhöld.
HÁÞRÝSTINGUR GERIR
VATNSÚÐA MEÐ MIKLUM
SLÖKKVIÁHRIFUM
— Hvernig eru þessi háþrýsti-
tæki?
— í iok síðustu heimsstyrjald-
ar fundu Bandaríkjamenn upp
þessi nýju slökkvitæki, sem eru
gerólík því sem tíðkast hafði.
Voru þau fyrst ætluð til að
SLÖKKVILIÐ REYKJAVÍKUR — Myndirnar voru teknar á æfingu slökkviliðsins. Efri myndiu.
sýnir brunaverðina, sem eru á verði allan sólarhringinn. Þeir eru nú með foringjum um 30 tals-
ins. Á neðri myndinni er varaslökkviliðið. Það eru menn, sem stunda sína atvinnu, en eru æfðir
og hvenær sem á þá er kallað reiðubúnir að koma til hjálpar og aðstoða ef eldsvoða ber að hönduns.
slökkva flugvélabruna, en hafa
auk þess reynzt sérlega vel við
smábruna og til þess að hindra
að litlir brunar nái sér upp og
verið að stórum eldsvoðum.
Aðalmunurinn á þessum nýju
tækjum og hinum eldri slökkvi-
tækjum er að í eldri brunaslöng-
um gat þrýstingurinn orðið 100
til 150 pund á fertommu, en í
þessum nýju tækjum er þrýsting-
urinn 800—1000 pund. Þessi
mikli þrýstingur veldur því að
aðgerðir, hafa tekið eftir hia-
um mjóu slöngum, sem líkj-
ast garðslöngum að ytra útliti
en þola geysilegan vatns-
þrýsting. Þetta eru háþrýsti-
slöngur.
HELZTU SLÖKKVITÆKIN
— Hver eru helztu slökkvi-
vatnið breytist i fíngerðan úða, tækin um þessar mundir?
Slökkviliðið er þegar komið á brunastað og sést hér á myndinni fyrsti slökkviliðsbíllinn, sem hef-
ur háþrýstitæki. í honum er stór vatnsgeymir, svo slökkviliðsmennirnir geta tafarlaust snúið sér að
því að dæla háþrýstiúða á eldinn. Á meðan fara aðrir slökkviliðsmenn að leggja slöngur ef með
þarf. En þessi eini bíll hefur komið í veg fyrir tugi og hundruð eldsvoða, með því að kæfa bálið þeg-
ar í upphafi.
sem hefur míklu meiri slökkvi
áhrif en venjuleg vatnsbuna.
Slöngurnar eru mjórri og með-
gjörlegri að flytja þær upp stiga
og inn í þröng rúm. Minna vatns-
magn þarf og skemmdir af völd-
um vatns verða því minni en áð-
ur. Með þeim er eínnig hægt að
slökkva elda í olíum og benzíni,
því að hinn fíngerði vatnsúði
hefur svo miklu meiri slökkvi-
áhrif en stór vatnsbuna.
REYKJAVÍK LANGFYRST
ALLRA t EVRÓPU
— Hvenær tókuð þið að
nota þessi nýju slökkvitæki?
— Slökkviliðið í Reykjavík
varð langfyrst allra slökkvi-
liða í Evrópu til að notfæra
sér háþrýstitækin. Bæjarbúar,
sem virða fyrir sér slökkvi-
— Aðallega eru það fjórar bif-
reiðar. Þær hafa allar vatns-
geyma til þess að geta tafarlaust
snúið sér að slökkvistörfum og
tvær þeirra eru búnar háþrýsti-
slökkvitækjum. Það eru háþrýsti-
bílarnir, sem alltaf eru sendir
fyrst á eldstað. Þeir hafa og með-
ferðis margskonar önnur björg-
unartæki, lífnet til þess að taka
á móti fólki, sem kastar sér nið-
ur úr brennandi húsum o. s. frv.
Annar háþrýstibílanna hefur
dælu, sem getur dælt 2000 lítrum
á mínútu. Síðan koma tveir aðr-
ir bílar með dælur, sem hvor um
sig getur dælt 2000 lítrum á
mínútu.
Ailir þessir slökkvibílar eru.
búnir slöngum og slökkvistigum.
En síðan kemur fimtnti bíllinn,
Framhu á bla. 12.