Morgunblaðið - 14.05.1954, Side 11

Morgunblaðið - 14.05.1954, Side 11
Föstudagur 14. maí 1954 MORGUNBLABIB 11 Fríi Guðrún Eriendsdóttir Hinainprorð HÚN lézt 8. maí eftir stutta legu á Landsspítalanum nær níræð að aldri. Guðrún var fædd 29. ágúst 1864 að Brjánsstöðum í Gríms- nesi. Foreldrar hennar voru Er- lendur Guðmundsson, bóndi á Brjánsstöðum og kona hans Guð- rún Þórðardóttir frá Ölvesvatni í Grafningi. Faðir hennar dó, er Guðrún var tveggja ára gömul, en móðir hennar bjó áfram á Brjánsstöðum, og ólst hún þar upp ásamt tveim systkinum sín- um. Árið 1892 giftist Guðrún fyrra manni sínum Marteini Teitssyni, skipstjóra. Hann var ættaður úr Reykjavík, sonur hjónanna Teits Teitssonar og Guðrúnar Þorláks- dóttur, en ólst upp hjá séra Jens Pálssyni í Arnarbæli í Ölfusi og á Þingvöllum. Guðrún fluttist til Reykjavíkur sama árið sem hún giftist og átti þar heima upp frá því. Þau hjón- in eignuðust fjögur börn, en þrjú þeirra dóu mjög ung. Mann sinn missti Guðrún 1899. Var hjóna- band þeirra því stutt en ham- ingjusamt. Marteinn Teitsson var einn af glæsilegustu ungum skipstjórum í þá daga og öllum harmdauði. Var þetta mikið áfall fyrir hina ungu konu, en kjarkur hennar og dugnaður vann bug á öllu. Árið 1911 giftist hún seinni manni sínum, Hákoni Grímssyni frá Dísastöðum í Flóa. Hann hafði futzt til Reykjavíkur með fjöl- skyldu sína nokkrum árum áður, en rnissti fyrri konu sína, Katrínu Ögmundsdóttur, árið 1908. Þau Guðrún og Hákon lifðu i farsælu hjónabandi í 20 ár, unz hann féll frá 1931. Eftir það bjó hún áfram í húsi þeirra á Brekku stíg 14, þangað til haustið 1937, að hún fluttist til sonar síns, Guð- muhdar Marteinssonar, verk- fræðings, og tengdadóttur, Ólafíu Hákonardóttur, og bjó þar við mikið ástríki sonar og tengdadótt ur allt til hinztu stundar. Syni sínum, sem var eina barn Guðrúnar, sem komst á legg, unni hún hugástum og kom honum til mennta með góðri aðstoð vina og vandamanna. Guðrún var mikil mannkosta- og gáfukona. Var gEiman að ræða við hana, því að fróðleikur henn- ar var mikill og áhugi á högum þjóðarinnar. Hún hafði mikla samúð með þeim, sem lágt eru settir í þjóðfélaginu. Hún var gjafmild og kærleiksrík kona og gerði mörgum gott. Hún var starfsöm og mikil hannyrða- kona. Hinn andlega mátt sinn átti hún til hinztu stundar. Hún var tiginmannleg í framgöngu, og prúðmennskan var henni i folóð borin. Heimili foreldra mihna sýndi hún stöðuga tryggð og vináttu. Var sérstök hlýja og góðvild milli tengdamóður hennar og mág- konu, Guðrúnar Þorláksdóttur og Vigdísar Teitsdóttur í Götuhúsum svo að einsdæmi var, og Sýndi Guðrún mikla fórnfýsi og hjálp við veikindi þeirra og dauða, sem við systkinin aldrei gleymum. Göfug kona er til moldar hnig- in eftir langan og farsælan ævi- feril, og hana vil ég nú kveðja með þessum vísuorðum Þ. E.: „Nú opnar fangið, fóstran góða, og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hljótt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar.“ E. O. P. Sumarsfarfið í Valnaskógi NÝLEGA hefur verið gengið frá áætlun um sumarstarf K.F.U.M. í Vatnaskógi. Munu alls níu drengja- og unglingaflokkar dveljast í sumarbúðunum á tíma- bilinu frá 11. júní til 20. ágúst. Þá verður og „karlaflokkur", eins og undanfarin ár, á tímabilinu 20. ágúst til 27. ágúst. Á liðnum þrem áratugum hafa unglingar höfuðstaðarins leitað í Vatnaskóg í sumarleyfinu og not ið þar frjálsrar útiveru við leiki og iþróttir, fjallgöngur og ferða- lög um nágrennið, sund og sigl- ingar á Eyrarvatni. Hefur fjöldi æskumanna lifað þar „hið mikla æfintýri æsku sinnar“, og á það- an ógleymanlegar minningar. Skógarmenn hafa á undanförn- um árum gert margt til þess að bæta aðbúnað starfsins. Eru þeir m. a. að byggja stórt íþróttasvæði með knattspyrnuvelli, hlaupa- braut og öðru þ.h. Verður vænt- anlega sú nýbreytni tekin upp, að hver þátttakandi í sumarbúðun- um leggi fram 2—3 stunda vinnu á viku til þess að fullgera svæðið. Skógarmenn hafa lagt mikla áherzlu á skógrækt síðari árin. Hafa verið gróðursettar 35—40 þúsund trjáplöntur í skóginum á liðnum árum, og í sumar hafa þeir hug á að bæta við nokkrum þúsundum. Skógræktarflokkur, skipaður drengjum og unglingum mun vinna þetta starf síðast í maí mánuði eða í byrjun júní. Þátttaka drengja utan Reykja- víkur hefur verið sívaxandi und- anfarin ár, og má segja að nú séu „Skógarmenn" til í flestum kaup stöðum og sýslum landsins. Umsóknir eru þegar farnar að bérast skrifstofu K.F.U.M., sem er opin virka daga kl. 5—7. Kirkjumófað Presfbakka í sumar VÍK í Mýrdal, 12. maí: — Aðal- fundur Kirkjukórasambands V.- Skaftafellsprófastsdæmis var haldinn í Vík í Mýrdal sunnudag- inn 9. maí s.l. Mættir voru á fund inum fulltrúar allra kirkjukóra prófastsdæmisins sjö að tölu. I stjórn voru kjörnir: Óskar Jónsson organisti í Vík, formað- ur, Astríður Stefánsdóttir organ- isti, Litla-Hvammi, ritari og Sveinn Einarssoh organisti, Reyni gjaldkeri. — Meðstjórnendur eru þeir Elías Pálsson, Seglbúðum og Runólfur Runólfsson organisti, Bakkakoti. Rædd voru ýmis þau mál er varða eflingu kirkjusöngs í prófastsdæminu m. a. var ákveð ið að halda sameiginlegt kirkju- mót á sumri komanda að Prest- bakka á Síðu. Einnig létu menn i Ijós óskir um að fá söngkennara til að ferðast milli kóranna til undirbúnings undir söngmót síð- ar. Fundurinn var hinn ánægju- legasti. Fyrir fundinn var guðs- þjónusta í Víkurkirkju, þar sem prófasturinn, Gísli Brynjölfsson, prédikaði. Síðan bauð kirkjukór Víkurkirkju fundarmönnum til kaffiflrykkju. TrjáplöfGtur Lerki, greini, birki. í lim- girðingar: aiparifs, rósa- rubiginosa og birki. Sömu- leiðis flestar vanalegar skrúðgarðaplöntur. Það er ekki krókur að koma í Garðs horn. j Gróðrarstöðin Garðshom við Sléttuveg, Fossvogi. ÍBIJO Einhleyp, kyrrlát og þrifin eldri kona, sem búið hefur 14 ár í sama húsi, óskar eftir tveggja herbergja íbúð sem næst miðbænum. Hús- hald fyrir 1—2 reglusama menn gæti komið til greina. Upplýsingar í síma 6946. íbúð óskast Sá, sem getur leigt okkur 3ja herbergja íbúð frá næstu mánaðamótum, getur fengið til umráða 2—3 herb. og eldhús á fallegum stað í sveit í sumar. Uppl. í síma 4920 til kL 7 í dag og kl. 9—12 f. h. á laugardag. Studebaker mótor með gírkassa, kúpl- ingu, startara, kveikju, til sölu. Verð kr. 1000,00. — Reykjanesbraut 19. HA6NETUR 2 og 4 cyl. Ennfremur: Startarar, Kveikjur, Dynamóar, Startrofar, Bretta- lugtir, Afturlugtir, Þéttar, Hamrar, Platirpur, Anker, Þurrkumótorar, Coil, Lok. • Auk þess eru fyrirliggjandi ýmsir aðrir varahlutir í rafbúnað brezkra bifreiða. Bif reiða vör uve rzl un Friðriks Berfelsen Hafnarhvoli — sími 2872. Mi Erum kaupendur að góðri þriggja til fjögurra herbergja íbúð, helst á j hitaveitusvæðinu. — Tilboð, er greini verð og útborgun, ; sendist til afgr. Mbl. fyrir n. k. fimmtudagskvöld, rnerkt: J „H. H. — 89“. I Kvennaskö|la- sHúlkð óskar eftir atvinnu í sumar. Upplýsingar í síma 5071 kl. 1—6 í dag. ! . | | Barnavinafélagið Suntargjöf ; ■, * vantar lærðar fósti ur. í ! i Uppl. í skrifstofu félagsins Laufásvegi 36, sími 6179. 5 GEFJUN- Kirkjustræti 8 ReYkjavik œU. Aav SÓLÍD ’54 Sólíd-sumarfötin eru merk nýjung í klæðamálum Islendinga. Þau eru glæsilegur búningur, enda sniðin eftir nýjustu tízku, og hafa þegar unnið sér miklar vinsæídir. Þau eru hentug, þar sem kaupa má jakka og buxur hvort í sínu lagi, og jafnvel fá jakka og tvennar buxur fyrir lægra verð en nú er á flestum venjulegum karlmannafötum með einum buxum. Jakkar kr. 550 og 575f buxur kr. 200 og 330. Beztu fatakaup ársins eru S ó 1 í d—s u m a i* f ö t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.