Morgunblaðið - 18.07.1954, Síða 6

Morgunblaðið - 18.07.1954, Síða 6
6 MOKGI BLAÐIÐ Sunnudagur 18. júlí 1954 Að Holti. — íbúðarhúsið, „gamla fjósið“ (í miðju) cg verkfærahúsið. Votheysturninn gnæfir þar yfir. ¥ið búskapinn þnrf ekki i§ sníðn F ERÐINNI var heitið austur yfir Fjall, að Holti í Stokkseyrar- hreppi. Sigurgrímur Jónsson, bóndi og oddviti, hafði fyrir á- eggjan Árna G. Eylands sáð þar í reiti fimm mismunandi tegund- um af vallarfoxgrasi. Jarðvegur er sá sami í öllum reitunum og sama áburðarmagn borið á þá alla, þannig að ytri skilyrði eru hin sömu allsstaðar. Skyldi nú slegið þennan dag og fengið úr því skorið, hver tegundin sprytti bezt, það sem af er, en auðvitað þarf margra ára reynslu til þess að fá staðfest hið endanlega nota- gildi tegundanna. Þetta var tilefni þess, að Árni hélt nú austur að Holti ásamt Matthíasi Þorfinnssyni og kon- um þeirra. Fékk ég að fljóta með. Það dylst engum að á Holti er rekið myndarbú. Hver nýbygg- ingin er þar annarri meiri, stórt og vel búið íbúðarhús, stórt verk- færahús, votheysturn, og fjós í smíðum. „Gamla fjósið“, sem er elzta byggingin á bænum fyrir utan hlöðu og fjárhús, sem standa út í túninu, var reist 1942. Hinar byggingarnar hafa risið stig af stigi. Undir hlöðuveggnum og við votheysturninn standa tvær drátt atvélar og aðrar nauðsynlegar búvélar eru þar einnig. aðdAunarverð SAMHELÐNX FJÖLSKYLDUNNAR Hér blasir við ctugnaður og sam heldni einnar fjölskyldu. Sigur- grímur bóndi þarf ekki að kvarta undan einyrkjabúskap, eins og margur góður bóndinn á síðari árum, þegar „ungarnir hafa íiog- I ið úr hreiðrinu“. Börn Holts-1 hjóna, Sigurgríms og Unnar Jóns dóttur eru níu (sex synir og þrjár dætur), og eru flest þeirra að meira eða minna leyti við heim- j ilið (það yngsta er 16 ára). Ein dóttirin er gift úr föðurgarði. Það eru ekki sístritandi heim- alningar, sem bera uppi búskap- inn í Holti. Tveir af sonum þeirra hjóna hafa lokið búnaðarnámi á j Hvanneyri og stunuað 6 mán. ' verknám í Bandaríkjunum. Sá [ þriðji brá sér til Norðurlanda í bændaför í fyrra, eins og Sigur- giímur gerði sjálfur 1948 Dæt- urnar hafa notið húsmæðramennt unar og ein þeirra hefir lokið húsmæðrakennaraprófi og dvalið í Englandi, o. s. frv. Og það er í frásögur færandi að síðastlið- inn vetur brugðu tvö af börnun- um sér vikulega til Reykjavíkur til þess að fá tilsögn í tónlist. — nærtækara er ekki til slíkra hluta þó að fjölbyggt sé fyrir austan fjall. Hér í Holti hefir þannig tekizt vel að samræma að hleypa heimdranganum og að halda tryggð við óðalið og efla það. HEIMILISVÉLARNAR ÞURFA EINNIG GÓÐRAR UMHIRÐU — Það er ómissandi að hafa aðstöðu á heimilinu til að gera við verkfæri og annað siíkt, sagði Sigurgrímur, er við gengum inn í verkfærahúsið þar á hlaðinu, en það er um leið verkstæði heimilisins. — Strákarnir gera Hressandi heimsókn að Holfi i Stokkseyrarhr. I Vallarfoxgrasið í tilraunareitunum að Holti lagt að velli. það allt sjálfir, bætti hann við. Fyrir ókunnugan áhorfanda er hitt ef til vill ekki minna virði, að hér eru vélarnar „hýstar" á haustin, en ekki „beitt á gadd- inn“, eins og því migur er alltof algengt hjá okkur, eigendunum til stórtjóns og öllum til leiðinda YFIF, 20 KÝRFÓBUR >: votheysturní: — OC 60 KÚA FJÓS Votheysturninn er hið fyrsta á bænum, sem sést úr fjarlægð, enda er hann 16 metrar að hæð og 5 metrar í þvermál. Hann rúm ar 20—24 kýrfóður. Heyið er skorið í saxblásara, sem skilar því „tilreiddu" í turninn allt upp í hæstu hæð. Við göngum í gamla fjósið. sem er fyrir 28 kýr, en það nýja verð- ur fyrir 32, þannig að 60 kúa fjós rís vær.tanlega af grunni að Holti með hausíinu. Undir því verður mykjuhús og safnþró og einnig er úthýsi þar sem mjólkurkæling og geymsla fer fram. Auk bása eru stórar stíur fyrir ungviði og í þeim hluta fjóssins er sú merki: lega nýjung, að gólfið verður grindagólf svo að saur og þvag skilar sér fyrirhafnarlaust niður í mykjukjallara. Hlaðan er elzta mannvirkið að Holti. Einn veggur hennar, hlað- inn úr torfi og grjóti, er frá 1896. Hann var gerður skömmu fyrir jarðskjálftana miklu það ár og stóðst þá raun. Annars var hlað- an í þeirri mynd, sem hún er nú að yfirbyggingu reist 1909—1910. „FALLEGT HEIMILI HVAF SEM V/ERT“ -— Finnst þér þetta ekki reisu- legt hús'og vistiegt sveitaheimili? spurði Árni Eylands Matthías Þorfinrsson, er við vorum setzt inn í stofu og nutum góðra veit- inga. — Jú, vissulega, sagði þessi vestur-íslenzki búnaðarráðunaut- ur, sem einnig hefir verið stór- bóndi, þetta er fallegt heimili hvar sem væri. — Og það er orð að sönnu. Sigurgrímur og synir hans þafa reist húsið að miklu leyti með eigin vinnu, en fengu þó smá- vegis aðstöð fagmanna, það sem með þurfti. Ekki er þó að sjá að neinir ,,fúskarar“ hafi verið þar að verki. Mun óvíða jafn vel hýstur bær í sveit. Rafmagn til ljósa og ifyrir heimilisvélar er fengið frá diesel-mótor. — Við gerum oftkur vonir um, segir Sigurgrírrirr, að fá rafmagn frá Soginu fljjitlega. Það er nú kom- ið hér í n?esta nágrenni við okk- ur, í Gaulf/erjabæjarhreppinn og á Stokkseýri. Vegna flatlendisins þarna eru erfiðleikar á því að rafa rennandí vatn til heimilisþarfa, en það vandamál hafa þeir feðgar leyst með því að koma fyrir tveggja tonna vathsgeymi í rishæð húss- ins. Er vatni dælt upp í hann með dieselmótornum. NÆF ALLUF HEYSKAFUR Á RÆKTUÐU LANDX Þegar Sigurgrímur tók við búi að Holti 1921 voru þar 4 ha af ræktuðu landi, en nú er þar 30 ha tún, en áveituengi jarðarinn- ar eru 150 ha. Hafa þau lítið ver- ið nctuð til heyskapar síðan hið ræktaða lar.d jókst. Túnið gefur | nú af sér 1500—1600 hesta af j heyi. — Takmar-að er hva.j við J getum ræktað meira, án mikillar j framræðslu, sagði Sigurgrímur, en hún er erfið vegna þess, hve J flatt er hér, o hraun grunnt ] undir öllu lanriinu. Til fram- ‘ ræslu svo um mu iar þarf sameig- | inleg átök heilla sveita hér í Fló- anum. 3100—3200 LÍTRA MEÐALNYT í gamla fjósi; i á Holti er nú Framh. á bls. 12 Goifþingid verður seff á fimðnfudagin,] NÆSTKOMANDI föstudag hefst landsmót Golfsambands íslands. Mótið fer að þessu sinni fram í Reykjavík. í sambandi við landsmótið fer fram aðalfundur Golfsambandsins. Fsr hann fram á fimmtudaginn. MARGIR ÞÁTTTAKENDUR Mikil þátttaka er í mótinu að þessu sinni. Fjölmenna Revk- víkipgar til mótsins, svo og Ak- ureyringar og Vestmannaeying- ar, en þar er áhugi á golfi mikill. KENNARINN FEF VÍÐA UM Eins og áður hefur verið skýrt |frá réði Golfsambandið hingað enskan golfkennara. Hefur hanrt | starfað hér um tveggja mánaða skeið og verið bæði í Reykjavík, Vestmannaeyjum og á Akursyri. Nú er kennarinn hjá hinum ný- stofnuðu golfklúbbum í Hvera- gerði og á Ilellu, en þar er unnið að því að koma upp golfvöllum, og er áhugi klúbbfélaga mikill. Fimleikaflokkur Maut viðurkenmngu i Noregi Benedikf 6. Waage sæmdiir heiðursmarkl AÐ undanförnu hefur fimleika- flokkur KR undir stjórn Bene- dikts Jakobssonar dvalið á 15. Landsmóti Norðmanna í Halden, en er nú nýkominn heim aftur. P’er hér á eftir stutt frásögn af mótinu. Halden er gamall sögufrægur staður er liggur rétt við sænsku landamærin. Nægir að minna á að þar lét Karl XII. lífið í styrj- öldinni við Noreg þann 11. des. 1718. Halden er fagur bper, en lítill, 10—11 þús. íbúar, en móts vikuna voru þúsundir gesta í bænum og á 5. þúsund fimleika- menn og konur. NOKKUR BLAÐAUMMÆLI UM ÍSLENZKA FLOKKINN Halden Arbeiderblad 5. júlí: Glæsileg fimleikahátíð opnuð í gær. Sjö þúsund áhorfendur og 4000 fimleikamenn á grasvellin- um. Mót af stórfelldri þýðingu fyrir íimleikaíþróttina. Landsmótið er góður áróður fyrir fimleika og líkamsrækt, um það gátu ekki verið skiptar skoð- anir. Við opnun mótsins, gat að líta karlmannlegan þrótt, kven- legan yndisþokka og mýkt, eftir- breytnisverða nákvæmni og ör- ; ggi á sýningunni. Smaalenes Amtstidende ritar þann 5. júlí um opnunardaginn, en þá sýndi KR ílokkurinn og því blaðaummæli um þann dag tekin sérstaklega. Eftir opnun mótsins sýndi flokkur frá Færeyjum leikfimi og var honum vel fagnað af áhorfendum. Þá sýndu 600 dömur er gripu hjörtu áhorfendanna með mýkt sinni og nákvæmri útfærslu erfiðra viðfangsefna. Að lokum kom svo hinn sterki 8 manna flokkur frá Reykjavík. Þeir heilsuðu áhorfendum með glæsibrag með íslenzka fánanum og hlutu hjartanlegar móttökur með dynjandi lófataki. Flokkur- inn sýndi frá því hann steig á völlinn og gegnum leikfimiæfing ar og staðæfingar að íslenzkur „Turn“ og leikfimi eru á háu þroskastigi. Sérstaklega dáðumsit víið að æfingum í hringjum og hinum mjög vel samsettu æfingum á dýnu. Sýningin var glæsilegur endir á stórfenglegum degi á „Halden Station“. Sportsmanden 8. júlí: íslandsflokkurinn sýndi marg- ar og fagrar æfingai-, sérstak- lega í staðæfingum og líka á áhöldum, svifrá, hringjum, tví- slá og dýnu, þó eiga þeir ýmislegt ólært á stökkbretti. (Það skal k Jón Júlíusson, einn af fimleika- mönnum KR í hringjunum. tekið fram að hér fer víst eitt- hvað á milli mála hjá Tönsberg, því flokkurinn sýndi engar æfing ar á stökkbretti (trampolin). — Sænski herra flokkurinn var mjög duglegur og sér í lagi í dýnu, stökkum á kassa og í stað- æfingum. Færeyski flokkurinn á margt ólært og gefst honum tæki- færi til þess hér. Virðingarvert er að fara svo langa ferð, til að sýna hvar þeir standa í leikfimi. Reidar Tönsberg. FLOKKURINN FÆR VIÐURKENNINGU Erlendir karla flokkar voru ekki fleiri en þessir þrír er hér hafa verið nefndir og blaðaum- mæli birt um. Sýna þau ljóst að islenzki flokkurinn vakti á sér óskipta athygli vegna getu sinnar. Eftir sýningu KR flokksins var kallaður saman furidir í fram- kvæmdanefnd mótsins og stjórn Framh. á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.