Morgunblaðið - 07.09.1954, Qupperneq 2
a
MORGUNBLAÐIÐ
Sovét-iistameiui í Þjóðleikhúsinu
ÞAÐ er orðinn fastur liður í tón- j
listarlífi okkar að hingað komi j
listamenn frá Sovétríkjunum. J
i>eir koma hingað á vegum ,,Mír“
og halda árlega nokkra tónleika.
í>ar er af nógu að taka, þar sem
eru rússneskir tónlistarmenn, og
þá ekki síður þar sem um er að
xæða hinn rússneska ballett. —
Músík og dans er þessari miklu
þjóð (sem raunar er margar
þjóðir) í blóð borin, og enda þótt
tónlistin sé tiltölulega ung þar
í landi (nema þjóðlög) þá er
líkast því sem Rússar séu að
verða arftakar Þjóðverja, sem
hingað til hafa, sem kunnugt er,
h’aft forystuna og átt mestu meist
arana. Frægð margra hinna ungu
rússnesku tónskálda hefur borizt
um víða veröld og verk þeirra
eru flutt um heim allan. Því
miður höfum við háft of lítil
kynni af þessum höfundum og
list þeirra til þessa, þó nokkur
séu. Þess mætti vænta, að savét-
distamenn flyttu tónlist síns
lands — og þá einkum nútíma-
iónlist — er þeir gefa öðrum
þjóðum kost á að heyra sig og
sjá. Það voru mér nokkur von-
brigði nú, að fá ekki að heyra
meira af nútímatónlist frá Sovét,
þegar jafn stórbrotnir listamenn
og þéir sem hér eru á ferðinni,
létu til sín heyra í Þjóðleikhús-
inu, síðastl. miðvikudagskvöld.
Hér var um að ræða tónleika
®g dans.
Fyrst lék Tamara Gúséva á
píanó verk eftir Rachmaninoff
(cis-moll prelúdíuna), Khasja-
túrían (tokkötuna), Chopin og
Liszt. Það er skemmst af að segja,
að leikur ungfrúarinnar var
framúrskarandi, sannfærandi og
þrunginn af lífi og krafti. Chopin
túlkaði hún á mjög skáldlegan
hátt, en í Tokkötu Khatsjatúrí-
ans og Mefistó-valti Liszts var lík
ast því sem eldglæringar færu
um salinn.
Celloleikarinn Rostropovitsj er
íullkominn á sínu sviði. Leikur
lians í verkum eftir Glasunov,
Grieg (fyrsti þáttur hinnar förgu
cellosónötu), Borodin, Skrjabin
og Popper va rsvo meistaralegur,
að vart verður lengra komizt.
Hér er það ekki tæknin (sem er
þó eins og fis í höndum hans)
sem athyglina .vekur. Maður
gleymir henni, því sjálf músíkin
býr í þessum listamanni í óvenju
ríkum mæli og verður leikur
has ógleymanlegur öllum sem á
Irlýddu.
Rostropovitsj til „aðstoðar"
var Abram Markov. Einnig hann
vakti sérstaka athygli sem píanó-
leikari. Var samleikur þeirra fé-
Iaga hinn fullkomnasti og kom
„Fós!bræ?ur" fá
égslar mótlðkur
í Þýzkalandi
HAMBORG, 5. sept. — Fóstfræð-
ur héldu fyrstu hljómleika sína
í utanferðinni í Liibeck við mjög
góðar undirtektir og fagnaðar-
læti áheyrenda, sem voru 600. —
-Árni Siemsen, ræðismaður, tók
á móti kórnum, en einnig var
móttaka hjá borgarstjóra Liibeck
Og var honum þar afhentur heið-
nrsskjöldur borgarinnar.
Frá Liibeck var haldið til
IHamborgar, þar sem kórinn hélt
næstu söngskemmtun sína í
okemmtigarðinum „Planten und
Blummen“. Áheyrendur voru
3500 og hlaut kórinn og ein-
söngvari glæsilegar móttökur.
Hlaðaummæli voru mjög lofsam-
Jeg í báðum borgum. í Hamborg
var móttaka hjá borgarstjóran-
um.
Hijómleikar verða í Kiel á
morgun. Við förum til Hollands
á þriðjudag. Líður öllum vel.
—Ágúst.
skírast og bczt í ljós i sónötu-
þætti Griegs.
Þriðja aðalpersóna kvöldsins
var dansmærin Írína Tíkhomérn-
óva, en dansfélagi hennar var
Germadi Ledjakks. Hér ætti Sig-
urður Grímsson að taka við, því
hann dansar miklu betur en ég,
og hefur meira vit á slíku. En
mér fannst sem sjálf músíkin
væri þarna holdi klædd, svo listi-
lega dansaði Írína, og hef ég
aldrei séð þvílíkan dans, síðan ég
sá sjálfa Karsavínu í Berlín á
árunum.
Milli dansþáttanna lék Gísli
Magnússon af mikilli prýði og
nákvæmni „Slátter" eftir Grieg
og „Kjempeviseslátten" eftir
Læverud, en Guðmundur Jóns-
son söng nokkur íslenzk lög með
aðstoð Fritz Weisshappels. Naut
söngur þessa mikla söngvara sín
ekki fyllilega að þessu sinni
vegna lasleika hans.
Þorvaldur Steingrímsson og
Abram Makarov léku undir dans-
inum.
Salurinn var þéttskipaður og
fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að
linna. Margir blómvendir bárust.
P. í.
Síld dfúpt út a!
Isafjarðardjúp!
ÍSAFIRÐI, 6. sept. — Síðast-
liðinn laugardag fékk vélbát-
urinn Einar Hálfdáns frá Bol-
ungarvík 50 tunnur af síld í
reknet djúpt út af ísafjarðar-
djúpi. í gær fengu nokkur
skip einnig ágæta veiði, 114
—2 tunnur í hvert net. Ver
lagði upp 60 tunnur í fryst-
ingu hér á ísafirði og Mímir
lagði upp 88 tunnur í Hnífs-
dal. í Bolungarvík lögðu 4
bátar upp. Voru það þeir Stíg-
andi 85 tunnur, Smári frá
Hnífsdal 99 tunnur, Pétur
Jónsson 53 tunnur og Flosi 80
tunnur. Var veiðin bæði fryst
og söltuð.
í nótt var hvasst á miðun-
um og fengu aðeins 3 skip
veiði. Hagbarður 70 tunnur,
Sæunn 25 tunnur og Mímir
40 tunnur. Sildin var yfirleitt
jöfn og góð. Stendur hún mjög
djúpt, svo að erfitt er að eiga
við veiði nema í góðu veðri.
Keilir méð 217 hinn-
ur síldar í róðri
AKRANESI, 6. sept.: — í gær
komu hingað 17 reknetjabátar
með samtals 1700 tunnur síldar.
Aflahæstur var Keilir með 217
tunnur.
í dag voru reknetjabátarnir 12,
sem hingað komu og höfðu þeir
alls 1218 tunnur síldar. Mestan
afla hafði Farsæll 138 tunnur.
Báða þessa daga hefur síldin
verið miklu betri en undanfarið,
enda var öll sildin í gær söltuð
og mestallur síldarfengurinn í
dag. — Oddur,
Dregíð í vöruhepp-
dræfli SÍBS
í GÆR var dregið í 9. flokki
vöruhappdrættis SÍBS. Vinning-
ar voru 540, að upphæð kr. 234
þús.
Hæsti vinningurinn 50 þús. kr.
kom upp á miða nr. 37115 (í um-
boði Austurstræti 9). Tveir 10
þús. kr. vinningar, nr. 26544 (í
umboði Votamýri á Skeiðum) og
40563 (í umboði Austurstræti 9).
Þá voru 5 vinningar á 5 þús. kr.
sem komu upp á eftirtöld númer.
3035 (Grettisgötu 26) 11337
(Eskifjörður) 13818 (Dalvík);
35164 (Austurstræti 9) og 44585
(Austurstræti 9).
Þriðjudagur 7. sept. 1954
r ...... j,; j
Okennilegt
1 LAUGARDAGSKVOLDIÐ
bárust af því fréttir hingað
til Reykjavíkur, að austur á
Fljótsdalshéraði hefðu menn
nokkrum dögum áður orðið var-
ir við ókennilegan hlut á lofti,
er hefði þotið yfir sveitir með
hvin miklum og lent skammt
frá Lagarfljóti.
Vakti þessi atburður að von-
um nokkra furðu manna, bárust
fregnir af honum brátt út um allt
Hérað og gerði hreppstjórinn á
Fljótsdal sýslumanninum á
Seyðisfirði skjótt aðvart um at-
burð þennan. Símaði hann frétt-
ina hingað suður og stendur nú ’
fyrir dyrum rannsókn máls þessa
og mun liðssveit úr varnarlið-
inu á Keflavíkurvelli halda aust-
ur einhvern næstu daga með leit-
artæki og mæliáhöld til þess að
kanna það hvað hafi hér verið
um að vera, og hvers eðlis send-
ing þessi hafi verið.
Á sunnudaginn kom blaða-
maður Mbl. ásamt fréttaritara'
þess og Ijósmyndara á Akureyri,'
Vigni Guðmund.ssyni austur og
leituðu sér fregna um málið. Við
komum austur að Lagarfljóti að
áliðnum degi, ókum fram Fellin
og heimsóttum Vigfús G. Þormar
bónda í Geitagerði og hrepp-
stjóra í Fljótsdalshreppi. Inntum
við hann eftir því með hvaða
hætti atburður þessi hefði gerzt,
og hvað menn héldu um hann
þar í sveitinni.
Skýrði hann svo frá, að
þriðjudaginn 24. ágúst s. 1.
hefði heimilisfólkið á Hjarð-
arbóli í Fljótsdalshreppi orð-
ið vart við „sendingu“ nokkra
þjóta um loftið skammt fyrir
ofan bæinn og falla niður á
eyrarnar fyrir botni Lagarins.
Hjarðarból er nýbýli og er það
fyrsti bærinn fyrir innan Brekku
þar sem héraðslæknirinn sat áð-
ur.
Þetta er vestan megin við fljót-
ið, nokkru innar en Hallorms-
staðaskógur, sem liggur austan
megin fljótsins.
ÞAUT YFIR BÆINN
f Hjarðarholti er tvíbýli og
búa þeir þar Þórarinn Bjarna-
son og Pétur Gunnarsson. Hitt-
um við Þórarin að máli og fer
frásogn hans af undri þessu hér
á eftir:
— Það var þriðjudaginn 24.
ágúst um kl. 8,30 að ég, Snorri
mágur minn og Ingibjörg
Gunnarsdóttir kona mín vor-
um að koma heim af engjum
og vorum stödd úti á hlaði.
Heyrðum við þá skyndilega
mikinn hvin og litum upp.
Sáum við þá hvar svartan hlut
bar við himininn, er kom
þjótandi úr norðvestri. Svo
háttar til í landi Hjarðarbóls,
að fyrir ofan bæinn er nokk-
urt fell og steypist Hengi-
foss þar fram af hömrum, 110
m. á hæð.
Það sáu þau Þórarinn fyrst til
hlutar þessa, að hann bar í fells-
brúnina skammt frá fossinum.
Þaut hann síðan yfir bæinn og
fór skáhallt niður á við í loft-
inu, allt niður á sandeyrarnar,
sem eru í ósum Jökulsár, þar
sem hún hennur í Löginn.
Fylgdi „sending" þessari mikill
hvinur, sagði Þórarinn, svo hár,
að konur, sem voru inni í bæn-
um heyrðu hann greinilega.
LENTI Á SANDLEIRUM
— Hvernig var hlutur þessi
útlits?
— Hann var gráleitur eða
svartur að lit, ílangur að sjá
og væri hægt að gizka á, að
hann hefði verið 50—80 cm.
að lengd, en annars er mjög
erfitt að ákveða um stærð
hans.
Virtist okkur sumum, að hann
væri dálítið frammjór, en ekki
vil ég fullyrða neitt um það að
svo stöddu. Virtist hann sléttur
leiilr j 6
leirum Lagorins
Sveit úr Varnarliðinu flýg
ur austurtil rannsókna
og einbíur, án ráka eða gára eða J
annarra afbrigða.
Þegar hluturinn var kominn
yfir hlíðina, var eins og að hann
missti ferðina, en hann hafði
þotið mjög hratt yfir, og steypt-
ist hann niður í leirurnar fyrir
botni Lagarins. Lenti hann þar,
að því er þau sáu greinilega, á
sandeyri, um 40 m. frá bakkan-
um.
Var að sjá eins og sandurinn
þyrlaðist upp þegar hluturinn
Þórarinn Bjarnason bóndi á
Hjarðarbóli í Fljótsdal. Hann sá
himinflaugina, ásamt konu sinni
og mági, þjóta með hvin miklum
yfir himininn og hafna í sand-
eyrinni.
(Ljósm. Mbl. Vignir Guðm.)
kom niður og er þeir komu á
bakkann, en bærinn stendur
spölkorn uppi í hlíðinni, sáu
þeir móta fyrir í sandinum, þar
sem h^nn hafði komið en hann
sjálfur var horfinn. Tóku þeir
þá mið á staðinn og gerðu sér
ljósa grein fyrir, hvar sending
þessi hafði snert jörðu.
Milli eyrarinnar og lands
rennur kvísl úr ánni og var hún
ekki væð þennan dag. Héidu
þeir Þórarinn og Pétur því heim
við svo búið og undruðust hver
himnasending þessi gæti verið.
STAÐURINN SJÁLFUR
EKKI RANNSAKAÐUR ENN
Hreppstjórinn frétti af fyrir-
brigði þessu á laugardaginn í
sömu viku. Tilkynnti hann þá
þegar sýslumanninum á Seyðis-
firði um málið og hélt fram í
Hjarðarból Hafði áin þá breytt
sér allmikið að því er virtist,
en Þórarinn skýrir svo frá, að
eyrarnar séu sjaldnast þær sömu
dag frá degi heldur taki sífelld-
um breytingum eftir rennsli ár-
innar.
Sá Vigfús hreppstjóri engin
ummerki á sandinum, en komst
ekki út á sjálfa eyrina. Hélt
hann heim við svo búið.
Hjarðarholtsmenn gerðu held-
ur enga tilraun til þess að kanna
hvað fallið hefði niður á eyrina
töldu að af því gæti e. t. v. stafað
sprengjuhætta.
Hefur áin síðan flætt tvisvar
yfir sandeyrarnar og hefur ekki
enn verið fundið hvert fyrirbæri
það var, sem barna lenti þriðju-
daginn 24. ágúst.
Sýslumaður sendi fregn þessa
samdægurs, laugardaginn 28.
ágúst suður til stjórnarráðs, sem
kom henni áleiðis til yfirvalda
varnarjiðsins á Keflavikurvelli.
LEIÐANGUR Á STAÐINN
Á sunnudag kom herflugvél
austur og lenti á vellinum við
Egilsstaði. Með henni var höfuðs
maður í bandaríska hernum,
James Driscoll að nafni. Hélt
hann rakleitt til fundar við
Vigfús G. Þormar hreppstjóra og
innti hann eftir atburði þessum.
Mun væntanleg austur önnur
flugvél á morgun eða miðviku-
dag og verða þá með í förinni
ýmis tæki til þess gerð að finna
málmhluti í jörðu og undir
vatni. Er þá ætlunin að sann-
reyna hvað hér hefur verið á
ferðinni.
Á sunnudaginn er við kömurra
að Iljarðarbóli var kvíslin milli
lands og eyrarinnar væð og var
þá gerð tilraun til þess að stinga
niður í sandinn og leita að hlutn-
um, en sú leit bar engan árangur.
Er ekki að vænta að svo verði,
fyrr en fullkomnari tæki geíasfc
til rannsóknanna.
LOFTSTEINN?
Er við inntum Þórarin eftir
því, hvað hann héldi, að hér
heföi verið um að vera Og hverí!
fyrirbæri þetta hefði verið,
kvaðst hann enga skýringu hafa
á reiðum höndum. Gott veður
var þetta kvöld, skyggni ágætí
og útilokað, að um missýningu
hafi hér getað verið að ræða.
Helzt kvaðst Þórarinn geta
látið sér detta í hug„að hér hefði
verið um loftstein að ræða, en
varla gæti það þó verið, þar sem
hluturinn fór skáhalt um loft-
ið, í allmikilli hæð yfir banum.
Aldrei hefur slíkt fyrirbrigði
sézt á lofti í Fljótsdalnum áður
svo menn muni og skortir enra
allar skýringar á því hvað hér
hafi verið á ferðinni. Hugsan-
legt væri að sending þessi hafi
komið ~úr flugvél, en eftir upp-
lýsingum Flugumferðastjórnar-
innar á Reykjavíkurflugvelli var
henni ekki kunnugt um neina
flugvél á þessum slóðum er þetta
bar við.
Er því sú gáta enn óráðiit
hver himnasending þessi hafi
verið og hvert eðli hennar er.
Ævintýragjarnari mönnum
gæti jafnvel til hugar komið,
að hér væri um hina alræmdtt
og alkunnu fljúgandi diska að
ræða, og er lýsing þeirra
Hjarðarbólsbænda ekki ósvip
uð útliti þeirra, cliska, sem
menn hafa talið sig sjá utan-
lands á himni.
Hvað sem lausn málsins líður,
hvort hér er um eitthvert slíki
geimfar að ræða eða loftstein
einn saman, þá hefur fyrirbrigði
þetta vakið hina mestu eftirtekt
og umtal austur í Fljótsdal og
Héraði og bíða menn með nokk-
urri óþreyju nánari rannsókna
af himinflauginni.
ggs.
Sepfembermólið í
s. I. simnudag
HAFNARFIRÐI. — Síðastliðinn
sunnudag hófst hér í Sjálfstæðis-
húsinu svokallað septembermót i
skák. Hófst það kl. 2 e. h. og var
margt áhorfenda. — í fyrstu um-
ferð vann Arinbjörn Guðmunds-
son Sigurð T. Sigurðsson, Jón
Pálsson vann Jón Kristjánsson,
Sigurgeir Gíslason Jón Jóhann-
esson. Biðskákir urðu hjá þeim
Baldri Möller og Eggerti Gilfer
og hjá Ólafi Sigurðssyni og
Trausta Þórðarsyni.
í kvöld kl. 8 heldur mótið
áfram og keppa þá Sigurður T.
og Jón Pálsson, Jón Kristjánsson
og Trausti, Ólafur og Jón Jó-
hannesson, Sigurgeir og Baldur,
Arinbjörn og Eggert.
Mjög vel er til mótsins vandað.
— Skákstjðri er Einar Mathiesen.
— G. S,