Morgunblaðið - 21.10.1954, Page 12

Morgunblaðið - 21.10.1954, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fixnmtudagur 21. okt. 1954 Olíuæði Framh. af bls. 7 1 hneiginga, og spyrja:' Er niður- læging ítalá slík, að þegar loksins eru horfur á stórgróða, sem geti gert landið að fjármálalegu stór- veldi eftir auðmýkingar margra ára, þá skuli það ekki geta sjálft tekið málin í sínar hendur og njóta gróðans í stað þess að sætta sig við að vera ensk-bandarísk nýlenda? Afstaða kommúnista er stór- furðuleg: Eftir að Gulf-félagið hafði fundið lindirnar, „il gatto selvatio“ (Villikötturinn) eins og þær eru venjulegast kallaðar, báru þeir að sjálfsögðu fram kröf una um ónýtingu einkaréttarins og kröfðust þess, að öll olía á Ítalíu yrði þjóðnýtt — sem er ; alveg eftir þekktum línum, en þeir, sem fylgzt hafa með háttum kommúnista í málinu, eru sann- ; færðir um, að eitthvað meira búi undir. ! Kommúnistar hafa alls ekki í hyggju að þjóðnýta olíuiind- irnar í þágu ítalska ríkisins, heldur er markmið þeirra að leggja þær hindranir í veg vinnslunnar, að hún stöðvist! Hversvegna? Skipanir frá Moskvu? í fyrsta lagi óttast Rússar að glata olíuútflutn- ^ ingnum tii Itaiíu, sem er eitt helzta viðskiptaland þeirra — 1 og í öðru lagi er þeim ekkert um, að eyja á Miðjarðarhafinu eignist jafn nauðsynlegt hrá- efni og olía er í hernaði. En æðið geisar áfram — og eftirfarandi tölur gefa lesand anum góða hugmynd um þýð- ingu olíunnar fyrir efnahag j Ítalíu. Eins og er flytja ítalir inn rúmlega 13*milljónir tonna af olíu á ári. Það liggur því í augum uppi, hvað það mvndi hafa fyrir þá að segja, ef þeir gætu orðið sjálfum sér nægir á því sviði. 30 þús, krónur frá kvennadeild SVF! EINS og kunnugt er, þá er hin árlega hlutavelta Kvennadeildar Slysavarnafélags íslands í Reykja vík nýafstaðin. Varð verulegur ágóði af hlutaveltunni. Þær frúrn ar Guðrún Jónasson og Gróa Pétursdóttir, formaður og vara- formaður kvennadeildarinnar, af hentu nýlega stjórn Slysavarna- félagsins 30.000.00 krónur er voru ágóði af þessari hlutaveltu. Þess var sérstaklega óskað að þessu fé yrði .skipt milli þriggja framkvæmda, sem fyrirhugaðar hafa verið á vegum Slysavarna- félagsins. Það er vitaljósaútbún- aðar í hið nýbyggða skýli á Breið dalsheiði, milli ísafjarðar og Ön- undarfjarðar, björgunarskýli, sem þegar er byrjað að reisa á Austurfjörutungum við Horna- fjörð og svo til nýs skipbrots- rnannaskýlis, sem ákveðið hefur verið að reisa að Þönglabakka við Þorgeirsfjörð, gamalli kirkju- jörð, sem öll er komin í eyði. Hið mikla og giftudrjúga starf hinna ágætu slysavarnakvenna ber þannig ríkulega ávöxt til gagns og blessunar fyrir slysa- varnastarfið í hinum ýmsu lands- Fursli kynnlr sér il LONDON 20. okt — A1 Salim fursti olíuríkisins Kuwait í pers- neska flóanum, kom til Lundúna í dag. Ferð hans er gerð til þess að kynna sér menntamál í Bret- landi, en furstinn sem er stór- ríkur, leggur mikla áherzlu á að þegnum hans líði vel og vinnur hann nú að setoingu fullkominna fræðslulaga í Kuwait. —Reuter. Kyrrð mun komasl - Parísarfundcr Framh. af bls. 1 málanum ekki fyllilega útkljáð, þ. e. réttur stórveldanna þriggja til að hafa hversveitir á þýzkri grund að hernámi V.-Þýzkalands loknu. Lagafróðir menn munu nú fjalla um málið og utanríkis- j ráðherrarnir síðan ræða það frek- ar síðdegis á fimmtudag •— Al- mennt er samt álitið að þar sé ekki um neitt ágreiningsatriði að j ræða og að lagasérfærðingarnir eigi aðeins að orða sáttmálann ýtarlegar. SARR-DEILAN RÆDD ENN Þegar eftir fund utanríkisráð- herranna og Adenauers ríkis- kanslara ræddust Mendes-France og Adenauer við um Saar-deil- una. Viðræður þeirra um Saar- héruðin hófust í gær og þörf er' á skjótri lausn þeirra mála, þar sem franska þingið hefir gert sam komulag að skilyrði fyrir sam-1 þykkt þess um endurhervæðingu Þýzkalands. ÞÝZKALAND OG ÍTALÍA AÐILAR AÐ BRIÍSSEL- SÁTTMÁLANUM Aður en utanríkisráðherrarnir og Adenauer ræðast aftur við á morgun, munu þau níu ríki ,er eamþykktu hið nýja varnarbanda lag vestrænna þjóða á Lundúna- ráðstefnunni, bjóða V.Þýzkalandi og Ítalíu aðild að Brússel-sátt- málanum frá 1948. Á föstudaginn mun V.-Þýzka- landi verða boðin aðild að NA TO á fundi ráðgjafasamkundu þess. Eden, utanríkisráðherra Breta, kveðst vona, að í lok þessarar viku hafi náðst samkomulag í flestum atriðum vestrænnar sam- Vinnu, er svo góður grundvöllur ■var lagður að á Lundúnaráðstefn unni. Miðjarðarhafs LONDON, 20. okt. — Brezka stjórnin lýsti því yfir í orðsend- ingu til ísraelsmanna, að með samningunum um brottflutning herliðs frá Súez-skurði, megi vænta meiri kyrrðar, en verið hefur í löndunum fyrir botni Miðj arðarhafsins. Var þetta svar við orðsendingu frá Gyðingum, þar sem þeir létu í ljósi ótta sinn við afleiðingar brottfarar Breta frá Súez-skurði. Héldu þeir að Egyptar myndu nú vekja upp fornan fjandskap við Ísraels-ríki og neyta aðstöðu sinnar til að gera Gyðingum erfitt fyrir. Bretar fullvissa Gyðinga enn frefnur um það, að ekkert veru- legt magn af vopnum verði selt til Egypta. —Reuter. Þegar þér Biðjið um LILLU kryddvörur eru ekta og þess vegna líka þær bezt. Við ábyrgj- umst gæði. gerið innkaup: LILLU-KRYDD BEZT AÐ AVGLÝSA t MORGVNBLAÐimi Tilkynning frá Þórscafé Höfum tekið í notkun salarkynni sem taka allt að 120 manns. Verða leigð út fyrir veizlur, fundarhöld og annan félagsskap. Vinsamlegast talið við mig sem fyrst. ■ *-■ MQOI Ingólfs Café Dansleikur í kvöld kl. 9. Öskubuskur syngja með hljómsveifinni. Aðgöngumiðar frá kl. 8. Sími 2826. VETRARGARÐURINN VETRARGARÐURINN DANSLEIKUR í Vetrargarðinum í kvöld klukkan 9. Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur. Miðapantanir í síma 6710, eftir kl. 8. V. G. Átthagafélag Strandamanna Spilakvöld í Tjarnarcafé uppi, næstkomandi föstudagskvöld klukkan 8,30 síðdegis. Mætið stundvíslega. Nefndin. Spilakvöld FELAGSVIST í G. T. húsinu í kvöld klukkan 8,30. Leikþáttur, — Kaffiveitingar. Dægurlög spiluð og sungin. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. Mætið snemma. STÚKAN ANDVARI Árnesdeild Skálholtsfélagsins heidur aðalfund í Skálholti ,sunnudaginn 24. október. 1. Messa: Séra Sigurður Pálsson prédikar. Kirkjukór Hraungerðissóknar syngur. 2. Aðalfundarstörf. Doktor Björn Sigfússon, háskóla- bókavörður flytur erindi um Skálholtsstað. Allir velkomnir. Arnesingar fjölmennið. STJÓRNIN U llartaukjólar GULLFOSS AÐALSTRÆTI HONG KONG — Rauða Kína og Noregur komu sér saman um í síðastliðinni viku að taka upp ,Stjórnmálasamband hvort við annað og skiptast á sendiherrum. JOHNNY MALOMc HAS SCCEcfiSD THE ENTRANCE TO THE SNOW HOJSE, AND MARK'S SMASHINS RIGHT HAS AKTOK OUT CCLC 1) Jonni hefur lokað fyrir út- 2)—Flýttu þér, Freydís, hjálp- ganginn, en Markús slær Aktok aðu mér til að skipta um úlpu í rot. | við Aktok 3) .... og segðu mér hvernig ég get fyrirskipað mönnum Ak- toks að byggja snjóhús og fara inn í það. 4) — Jæja, þá fer ég út. Er ég ekki líkur Aktok?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.