Morgunblaðið - 30.12.1954, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 30. des. 1954
— Vák í iHýrdal
Framh. af bls. 9
Aðalfundur SÍF
fljótlega leitt rafmagn frá Sogs-
fossum, en áformað er, að það
komi hingað á næstu árum.
Mundi það geta orðið mesta lyfti
stöng aukins og fjölbreyttara at-
vinnulífs í kauptúninu. Mætti þá
ef til vill koma á fót einhvers
konar iðnaði í smóum stíl og
skapa þannig fólkinu betri og ör-
uggari lífsafkomu, en þess gjörist
nú brýn þörf, ef ekki á að draga
úr atvinnulífi og framkvæmdum
hér.
Ógerlegt sýnist að flestra dómi
að gjöra hér nokkurar þær lend-
ingarbætur, sem að gagni mættu
koma. Um aukningu sjávarafla
er því tæpast að ræða. Landrými
til ræktunar er mjög takmarkað,
svo sem fyrr segir, nema helzt
sandurinn, en öll ræktun þar er
næsta ótrygg vegna Kötlugosa.
Þau geta náð hingað vestur og þá
á einni svipstungu eyðilagt allt
það, sem gjört hefur verið.
Helzta leið til úrbóta væri því
sú, ef hægt væri að starfrækja
einhvers konar iðnrekstur í smá-
um stíl til fullnægingar á þörf-
um sýslunnar sjólfrar. En undir-
staða allra slíkra framkvæmda
er nægilegt rafmagn. Er það því
von okkar, að það komi sem fyrst.
Þá mun vinnufúsum höndum
gjört auðveldara fyrir um sköp-
un viðunandi lifskjara sér og sín-
um til handa. Þá mun unga fólk-
ið, sem elst hér upp, einnig geta
fundið sér verkefni við sitt hæfi
í stað þess að þurfa að leita burt
til fanga.
Vík, 10. desember 1954.
Víkari.
— Trúarofsóknir
Framh. af bls. 6
istaflokksins, birt ritstjórnar-
grein þar, sem ráðist er á trúar-
brögð og lýst yfir því eindregið,
að trúarbrögð séu ekki samþýð-
anleg vísindum og kommúnisma.
Einnig krefst Pravda meira hlífð-
arleysis gagnvart þeim, sem
halda fast við „úreltar trúarskoð-
anir“.
Greinin er opinber stríðsyfir-
lýsing á hendur trúarbrögðum og
boðar nýja og opinbera herferð
til að útrýma þeim.
' AÐALFUNDUR S.Í.F. haldinn
síðustu dagana í nóvember 1954
mun ef til vill marka tímamót í
þeim samtökum. Stjórnandi fund
arins var Davíð Ólafsson, fiski
málastjóri. Fyrir fundinum lágu
hin venjulegu aðalfundarstörf,
sem félagar kannast við. Eitt af
því, sem velgdi fundarmönnum
nokkuð undir uggum, var úthlut-
un 12 milljón króna, er stjórn
SÍ.F. hafði haldið eftir af fram-
leiðsluverðinu 1953 til að stand-
ast óviss útgjöld, er hún kynni
að verða krafin um, sem aðallega
mun vera skaðabótakröfur kaup-
enda. Það var þvi verið að skila
félagsmönnum afgangi af fram-
leiðsluverði 1953, ekki verið að
verðbæta framleiðsluna.
Þarna á fundinum var flutt
fróðlegt erindi um orsakir salt-
gulunnar, sem gefur mönnum
vonir um að þessi vágestur verði
kveðinn niður. Þar var einnig
samþykkt að félagið keypti skip,
sem flutt gæti framleiðslu þess
til neytenda á hvaða tíma árs
sem væri án þess að farmi væri
teflt í voða. Og þótti sumum,
sem til máls tóku að seint hefði
gengið af mestu utflutningssam-
tökum landsmanna að hleypa
þeirri bjargræðishugmynd af
stokkunum, en varla mun Arsæli
Sveinssyni úr Vestmannaeyjum
um kennt þótt seint gengi um
siglingu á eigin fleytu. Þá gerði
Guðmundur Guðmundsson frá
Akureyri harða hríð að fiskmat-
inu. Taldi að íslenzka fiskmatið
ætti að standa óhaggað fyrir um-
vöndun kaupenda, enda mun
hann ekki einn á báti um það að
reistar verði einhverjar skorður
við slíku hagsmunabrölti þeirra.
En þarna mun um erfiðan hlut
að eiga, því vöruvöndunin mun
ætíð verða fjöregg hverskyns
framleiðslu landsmanna. Og þó
miklu frekar þar sem við kepp-
um við aðrar þjóðir, sem gert
hafa sér ljóst fyrir löngu að léleg
framleiðsla er í mörgum tilfell-
um sama og skortur á lífsnauð-
synjum.
Magnús Gamalíelsson úr Ólafs-
firði og Jón Stefánsson frá Dal-
vík lýstu fyrir fundinum þeim
erfiðleikum, sem framleiðendur á
smáfiski ættu við að búa með
tvöfaldan tilkostnað við verkun
og mikið lægra vöruverð, þó hrá-
efnisverðið væri hið sama. Þetta
munu allir sem kaupa fisk norð-
an-, austan- og vestanlands
þekkja, svo mjög sem það hefir
sorfið að hagsmunum framleið-
enda þar, en furðu lítinn skiln-
ing fannst mér þetta vandamál
hljóta hjá þeim sem töldu sig
betur setta af guðs náð og lögðu
þau liðsyrði að bezt væri fyrir
þessi olnbogabörn að halda heim
og veslast upp á sínum vandræð-
um. Ég get engan veginn hugsað
mér þann félagsskap uppfylla
orðsins merkingu, sem ekki lítur
á málin frá öðrum sjónarhól en
úr sínum eigin bæjardyrum. Þó
mun þetta ef til vill standa til
bóta því samþykkt var að fela
stjórninni að leita úrlausnar á
málinu og þar held ég að sé hvert
sæti vel skipað með Richard
Thors í forsæti.
Um marga áratugi þegar þjóð-
inni lá mest á mun Thorsnafnið
hafa hljómað sem athafnakliður
í eyrum hennar og mig furðaði
það ekki, er ég leit forsætisráð-
herrann taka á móti S.Í.F.-mönn-
um í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu. Þar er vel til húsa
enn í dag, þó varla hafi fortíðin
gert ráð fyrir þeirri gestkomu,
sem nú mun alltíð þar. Enda fer
svo gjarnan að þrengist enn um
set, er gestir blanda guði við gleð
ina.
Steinþór Helgason.
— Þegnskylda
Frainh. af bls. 2
ferðarmál fslands. Fyrir því end-
urtek ég: þegnskylduvinna æsk-
unnar, er meðal annars — það
sem koma skal. Að því viðbættu,
að æskumeyjar 16—18 ára taki
þátt í þegnskylduvinnu hálfan
mánuð, eitt skipti fyrir öll, við
hið gagnmerka þjóðvakningar-
mál, skógræktina. Megi þessi
„draumur" rætast, er einlæg ósk
mín og von.
.t. Keflavíkurflugvelli 12. des: ’54.
Páll Oddgeirsson.
Höfðinglegar minn-
ingargjafir til
Skálhoits
MARÍA ÁMUNDADÓTTIR,
Laugavegi 159 A, hefur gefið
Skálholtsdómkirkju kr. 2000 til
minningar um afa sinn og ömmu,
Fiiippus Þorsteinsson og Sigríði
Jónsdóttur, sem bjuggu að Bólu
í Holtum. María hefur áður gefið
kirkjunni stóra gjöf til minning-
ar um tvö börn sín. — Þá hefur
verið gefin minningargjöf að
upphæð kr. 1000 til minningar
um Vilborgu húsfreyju að Fjalli
á Skeiðum af barnabarni hennar,
Á. G. — Þessar, sem aðrar minn-
ingargjafir, er Skálholtsfélaginu
berast, verða færðar inn í Minn-
ingagjafabók Skálholtsdóm-
kirkju og munu þannig geymast
nöfn þeirra, sem gjafirnar eru
helgaðar, svo og gefendanna.
Sigurbjörn Einarsson.
X BEZT AÐ AVGLÝSA
T t MORGV/VBLAÐIISV
— Jélaséfnun
Framh. af bls. 5
Þátturirin „Já og Nei“ gefur ágóð-
ann til Mæðrastyrksnefndar. Ásg.
Sigurðsson 200,00. Lítill drengur
3Ú,00. Sigga og Dídí 30,00. Dista
50,00. Úr bréfi 50,00. Kassagerðin
h.f. 500,00. Kassagerðin h.f. starfs-
fólk 775,00. Dóra 50,00. Á.Þ.
300,00. Þrjú systkyni 30,00. Friðr.
Bertelsen heildverzl. 285,00. Þ. L.
40,00. K.J. 100,00. S.G. og G.Þ.
400,00. Anna 100,00. Þ. Þorgrímss.
& Co. 250,00. Víkingur h.f. sælgæti.
P. Pétursson vörur. N.N 100,00.
Áheit 50,00. G.Ó.A. 100,00. Hjör-
dís 50,00. A.J. Bertelsen vörur.
Hildur 60,00. E.B. 100,00. N.N.
50,00. S.Þ. 50,00. I.V. 50,00. A.E.
150,00. Erna, Ester, Valur og
Stefán 150,00. Hermann Sigurðss.
300,00. Frá fjórum systkinum
100,00. S. Ó. 65,00. N.N. 100,00.
Lögreglustöðin 330,00. G.H. 50,00.
Nokkrir skipverjar á b.v. Ingólfi
Arnarsyni 750,00. Þ.Þ. 200,00. Frá
Fúsa, Nonna, Önnu og Þóru 50,00.
Húnvetnsk kona 50,00. Á.B.Ó. Á-
heit 20,00. Bílasmiðjan h.f. 1395,00.
S.S. 150,00. Sláturfélag Suður-
lands 300,00.
Kærar þakkir.
Mæðrastyrksnefnd.
I Ingólfscafé — Ingólfscafé
■ ■
■ 1 " ..............- ■
■ ■
Aðgöngumiðar að áramótadansleiknum :
Eldri dansarnir
: eru seldir í dag og á morgun í Ingólfscafé frá kl. 5. ■
Borð tekin frá kl. 5—7. ;
■
• Sími 2826 :
Gömlu og nýju dansarnir
að Þórscafé í kvöld klukkan 9
Hljómsveit Jónatans Olafssonar
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7.
★ EINSTAKLINGSFRAMTAK
DEYR EKKI AF SJÁLFU SÉR
„Sigur hlnnar sósíalisku hug
sjónastefnu — er ekki merki
þess, að leifar hins borgara-
lega hugsunarháttar og hug-
sjónir og siðfræði einstaklings
framtaksins hafi verið upp-
rættar. Slíkt deyr ekki og mun
ekki deyja af sjálfu sér. því
verður að heyja harða og
miskunnarlausa baráttu gegn
því“, segir Pravda.
Eftir að hafa árum saman
fuiiyrt að „leifar hins borgara-
lega hugsunarháttar“ hafi dáið
af sjálfu sér, gefur þessi yfir-
lýsing íil kynna hversu alvar-
legum augum flokkurinn lítur
á þessa nýju hættu, sem ógnar
valdi kommúnismans.
★ ÁRÓÐUR HAFINN FYRIR
GUÐLEYSI
„Áhrifamestu og hættulegustu
leifar auðvaldsstefnunnar í með-
vitund fólksins", heldur Pravda
áfpam, „eru trúarhégiljur. Alveg
ftam til þessa dags spilla slíkar
hégiljur hugarfari og hamingju
þjóðar okkar og aftra henni frá
þyí að taka virkan þátt í upp-
byggingu kommúnismans.“
Kaffi
Nýbrennt og malað, í loft-
þéttum sellophanumbúðum.
1cr/l. Halia Þórarins
Vesturg. 17. Hverfisg. 39.
Hótel Borg
Ósóttir aðgöngumiðar að
áramótadansleiknum
á gamlárskvöld verða seldir milli kl. 5 og
í dag í skrifstofunni.
..............■■>■■■■■■•■•■.......>•■■■■•...
YETBARGARÐURINN VETRARGARÐURINN
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld klukkan 9.
Hljómsveit BALDURS KRISTJÁNSSONAR leikur.
Miðapantanir í síma 6710 eftir kl. 8.
Osóttar pantanir að áramótadansleiknum verða seldar
frá klukkan 8—9. V. G.
ÓDÝRIR ÁVEXTIR
2 kg. af appelsínum kr. 19,00.
2 kg. af eplum kr. 18,00.
1 kg. af vínberjum kr. 15.00
og annað eftir því.
Verzlunin Laugavegi 134.
1) — Aktok, ég sé bæði Markús
og hvítu konuna. Þau skunda út
á stöðuvatnið.
2) — Já, ég sé þau líka. Láttu
mig hafa byssuna. Ég ætla að
skjóta forustuhundinn þeirra, svo
að þau stöðvist.
3) Fimm mínútum síðar:
— Jæja, þá ætlá ég að sýna
hvítu mönnunum hvernig á að
skjóta af riffli.