Morgunblaðið - 06.01.1955, Qupperneq 16
Yeðurúflif í dag:
V og NV gola. Skýjað. Hiti um
eða yfir frostmark.
3. tbl. — Fimmtudagur 6. janúar 1955
Saar-héraðið
enn hættulegt þrætuefpli. — Sjá
grein á bls. 9.
lýtt íslenzkt leikrit „Þeir koma
í hausf eftir Aynar Þórðarson
Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu n.k. laugardag.
NÆSTKOMANDI laugardag mun Þjóðleikhúsið frumsýna nýtt
íslenzkt leikrit, „Þeir koma í haust“, eftir Agnar Þórðarson
rithöfund. Leikstjóri er Haraldur Björnsson og leiktjöld eru mál-
uð af Lárusi Ingólfssyni.
HÖFUNDURINN —
AGNAR ÞÓRÐARSON
„Þeir koma í haust“ er fyrsta
leikrit Agnars Þórðarsonar, sem
sýnt verður á sviði. Hinsvegar
hafa verið flutt í útvarp þrjú
leikrit eftir hann, „Förin til
Brasilíu", „Spretthlauparinn" og
„Andri“, sem vakið hafa mikla
athygli, og gefa góðar vonir um
að hér sé á ferðinni höfundur,
sem mikils má af vænta í fram-
tíðinni á sviði leikritagerðar.
Höfundur hafði lokið við leik-
ritið „Þeir koma í haust“ árið
1952 og eru útvarpsleikritin 3
skrifuð eftir þann tíma. Auk leik-
ritanna, hefir Agnar Þórðarson
skrifað tvær skáldsögur, „Haninn
galar tvisvar" (1949) og „Ef sverð
þitt er stutt“ (1953) og einnig
nokkrar smásögur.
SÖGULEGUR BAKGRUNNUR
Hið nýja leikrit, „Þeir koma í
haust“ fjallar um efni, sem lík-
legt er að íslenzkir leikhúsgestir
muni hafa mikinn áhuga á. Það
gerist í Grænlandi seint á 15.
öld, um það bil er byggð íslend-
inga, eða réttara sagt Grænlend-
inga, afkomenda Eiríks rauða og
annarra íslenzkra landnáms-
manna á Grænlandi, er að líða
undir lok.
„Leikritið er ekki sagnfræði-
legt, persónur þess ekki sögu-
persónur — sagði höfundur þess,
Agnar Þórðarson við frétta-
menn í gær — en efni þess og
atburðarás er byggt á sögulegum
bakgrunni og með hliðsjón af
ýmsum sögulegum heimildum,
sem reyndar eru fáar til áreiðan-
legar um endalok fslandsbyggðar
í Grænlandi. í rauninni er þar að-
eins um getgátur og líkur að
ræða. Kólnandi loftslag, vax-
andi einangrun og um leið versn-
andi lífskjör íbúanna er talið
til aðalorsakanna til þess að svo
fór sem fór.
ÖRLÖG OG ÓTTI
Leikritið gerist að biskupssetr-
inu Görðum í Eystri-byggð í
Grænlandi, á þeim slóðum sem
Julianehaab er nú. Þar situr sétt-
arhöfðinginn Eiríkur, fulltrúi
hinna grænlenzku stórbænda og
sr. Steinþór, umboðsmaður —
oflicialis Grænlandsbiskups, sem
nú situr ekki lengur í Grænlandi
en hefir sinn umboðsmann á
biskupssetrinu til að heimta inn
t.ekjur biskupsstólsins. Sá umboðs
maður er fulltrúi kirkjuvaldsins
sem er óvægið og ágjarnt við
landsmenn. Jarðir flestar eru
kirkjunnar eign og bændur leigu
liðar hennar. Bændavaldið, sem
Eiríkur á Görðum er fulltrúi fyr-
m á þar við sitt ofurefli að etja.
Það eru þessi átök, margvíslega
samanslungin í örlagavef persón-
íinna í leiknum, sem eru í senn
efni og uppistaða leikritsins „Þeir
koma í haust“. Óttinn við skræl-
ingjana, .sem ógna byggð hinna
hvítu manna er þar og snar þátt-
ur, — óttinn um, að þeir „komi
í haust".
AÐALIILUTVERK
Með aðalhlutverk leiksins fara
þau Herdís Þorvaldsdóttir, Helgi
Skúlason, sem nú fer í fyrsta
skipti með aðalhlutverk í Þjóð-
ieikhúsinu, Haraldur Björnsson
og Jón Aðils. Aðrir leikendur eru
Arndís Björnsdóttir, Baldvin
Halldórsson, . Gestur Pálsson,
Bessi Bjarnason, Hildur Kalmann
Koinið raeð land-
helgisbrjét fil Reykja
víkur í gær
VARÐSKIPIÐ sem tók franska
togarann aó veiðum í landhelgi
við Ingólfshöfða í fyrradag kom
með hann til Reykjavíkur í
fyrrinótt. Heitir togarinn Capil-
laud og er frá Boulogne. Rann-
sókn í málinu hófst í gærdag og
varð ekki lokið í gær og mun
henni haldið áfram í dag.
Guðfinnur, hinn nýi bátur Keflvíkinga, sem smíðaður var í Drátt
arbraut Akraness. — Myndin er tekin er búið cr að rífa þil húss
ins og báturinn er að renna af stokkunum. j ,
(Ljósm.: Árni Böðvarsson). manna i
Ársháiíð Siálfsfæðis-
Agnar Þórðarson
Róbert Arnfinnsson, Klemens
Jónsson, Þorgrímur Einarsson og
Ólafur Jónsson. — Leikritið
stendur yfir í þrjár klukkustund-
ir með hléi.
★
Það er mikill viðburður og góð-
ur, þegar Þjóðleikhús okkar sýn-
ir nýtt íslenzkt leikrit. Þess er
jafnan beðið með eftirvæntingu
og tilhlökkun og svo er það einn-
ig nú, er við bíðum þess, að tjald-
ið lyftist á laugardaginn kemur
í Þjóðleikhúsinu.
Nýjum báti hleypt af
stokkunum á Akranesi
AKRANESI, 5. nóv.
NÝJUM BÁT á að hleypa af stokkunum kl. 3 í nótt í Dráttar-
braut Akraness. Ég hraða mér til Þorgeirs Jósefssonar fram-
kvæmdastjóra til að fá nánari fregnir af nýja bátnum. Er honum
greitt um svör, þar sem hann situr herðabreiður og vörpulegur
é heimili sínu á Kirkjubraut 2. Nýi báturinn, sem nú verður hleypt
af stokkunum á Akranesi, heitir Guðfinnur og er eign sameignar-
fél. Guðfinnur í Keflavík. Smíði bátsins var hafin 17. marz s. 1. vor.
Sfolið um SOðð kr.
HAFNARFIRÐI — Síðastliðna
þriðjudagsnótt var brotist inn í
Kron-verzlunina í Kópavogi, og
stolið þaðan um 5000 krónum í
peningum, og einnig nokkru af
tóbaki. — Var unnið að rannsókn
málsins í gær, en ekki hafði verið
haft upp á þjófinum seint í gær-
kvöldi. — G.E.
SMÍÐAÐUR INNAN HÚSS '
Báturinn er 61,4 brúttó lestir að
stærð, 20 m á lengd 5,05 m á
breidd og 2.6 m á dýpt. í bátnum'
er 225 ha Leistervél. 11 hvílur
eru í bátnum. Báturinn er byggð- j
ur úr eik og yfirbygging úr stáli.
Skipið er búið öllum fullkomn-
ustu tækjum svo sem asdictæki, |
hydroþilfarsvindu og línuvindu
samskonar frá Vélsm. Héðni h.f. |
Þótt smíðin hafi hafizt 17. marzj
hefur smíði skipsins raunveru-
lega ekki tekið nema 6 mánuði.1
Yfirsmiður við skipið er Magnús
Magnússon. Alla járnsmíði og nið
ursetningu hefur vélsmiðja Þor-
geirs og Ellerts annast. Raflýsing
er gerð af Sveini Guðmundssyni
rafvirkjameistara. Málingu hafa
haft með höndum Ásmundur Guð
mundsson og Hallur Bjarnason
málarameistarar. i
TÓK 6 MÁNUÐI
Þetta er 8 báturinn sem smíð-
aður hefur verið af Dráttarbraut-
inni síðan bún komst í eigu Þor-
geirs Jósefssonar framkv.stj. —
Guðfinur er fjórði báturinn, sem
smíðaður pt inni í húsi. Smíða-
húsið er 27x17 m að flatarmáli
og lofthæð 7 m og stærsti bát-
urinn sem smíðaður hefur verið
í þessu húsi er Heimaskagi 101
brúttó lest að stærð. Verðið á
Guðfinni er 12,5 þús kr. smá-
lestin og er þá miðað við segl-
búið skip. Dráttarbrautin er orðin
það stór, að 15 bátar geta staðið
í einu á brautunum. Þyrfti helzt
að vera svo stór að hún tæki alla
stóru vélbátana á staðnum í senn
t. d. á vorin.
Um leið og ég þakka Þorgeiri
Jósefssyni fyrir upplýsingarnar,
og óska honum til hamingju með
skipasmíðastöðina, spyr ég hann,
hvort ekki sé von á nýsmíði fleiri
báta.
— Jú, svarar hann, tvö fyrir-
tæki hérna á Akranesi hafa þegar
beðið mig að smíða sinn hvorn
bátinn fyrir sig, hvenær það hefst
er ekki gott að segja um í augna-
blikinu. —Oddur.
| SJÁLFSTÆÐISFELÖGIN í
Keflavik: Sjálfstæðisfélag Kefla-
víkur, Heirnir, félag ungra Sjáif-
stæðismanna, og Sókn, Sjálfstæð-
iskvennafélagið halda sameigin-
lega árshátíð n.k. laugardag 8.
þ.m. kl. 9 e.h. og er árshátíðin að
þessu sinni haldin í Biókjallar-
anum í Keflavík.
Mjög verður vandað til þess-
arar hátíðar og verða gestir fé-
laganna: forsætisráðherra Ólafur
Xhors og frú hans.
j Kristinn Hallsson syngur ein-
söng og siðan verður stiginn dans.
Er þess vænst að Sjálfstæðisfólk
í Keflavík og nágrenni fjölmenni
á þessa árlegu hátíð Sjálfstæðis-
félaganna þar syðra.
: '
I !
Smásíldarganga
i Skagafirði
Mifcíl yinna við niðursuðu sildarlnnar.
SAUÐÁRKRÓKI, 5. jan.
TALSVERÐ smásíldarganga hefur gengið hér upp að landinu
síðastliðna daga, og hafa þrjár trillur verið að veiðum síðan
daginn fyrir gamlársdag, er síldarinnar varð fyrst vart. Hafa
bátarnir aflað vel allt fram að þessu.
ÓVENJU FEIT
Síldin er bæði óvenjulega stór
og feit af smásíld að vera á þess-
um tíma árs. Hefur hún gengið
alveg upp að landi við Sauðár-
krók og er mest af henni upp
við svonefnda Sanda.
SOÐIN NIÐUR
Síldin hefur verið soðin nið-
ur í niðursuðuverksrniðju Sauð-
árkróks og hefur verið unnið við
niðursuðuna alla daga að undan-
teknum nýjársdegi, síðan síldin
fór að veiðast. Hefur þetta skap-
að allmikla vinnu, þar 6em yfir
20 stúlkur og 4—5 karlmenn
vinna stöðugt að niðursuðunni.
MINNI VEIÐI í DAG
í dag var veiði heldur minni
en undanfarna daga, en fullvíst
þykir að síldin hafi fært sig fjær
landinu vegna brælu, sem hefur
verið hér í dag. Eru öll líkindi
til þess að hún hverfi aftur upp
að þegar stillist.
Mikil veðurblíða hefur verið
alla þessa viku og hefur vart
blaktað hár á höfði.
— Guðjón.
Um 20 bátar gerðir úl
frá Sandgerði í velur
SANDGERDI, 5. jan.: — 18 bátar
verða gerðir út á línuveiðar frá
Sandgerði í vetur víðsvegar að af
Iandinu. Tveir heimabátar róa
þar að auki þar til loðnuveiðar
byrja síðast í febriiar eða byrj-
un marz.
Tveir bátar reru héðan s dag,
Elín og Andvari, og öfluðu vel,
6—10 skippund. Þeir lögðu hér
rétt fyrir utan og voru með
stutta línu.
Vonast menn til að bátarnir
geti sem fyrst hafið róðra þar sem
bllða er nú og aflaútlit gott.
, Góður rækjuafli
Skálavíkurbáið
j SKÁLAVÍK, 5. jan. — Veðráttan
' hér síðan milli jóla og nýárs hef-
j ur verið einmuna góð og nú orðið
snjólaust að kalla í byggð og allir
i bílvegir vel færir. Er óvenju hlýtfc
um þennan tíma árs.
j Sauðfé er alls staðar á húsi,
I en hestar víðast hvar úti nema
vinnuhestar.
j Kennsla hófst í dag í Reykja-
! nesskóla og er hann nú fullsetinn.
Aðalnám pilta og stúlkna ec
verknám.
Rækjuveiðar eru alltaf stund-
aðar héðan af nokkrum bátum
og leggja þeir upp afla sinn til
vinnslu bæði í Bolungavík og ísa-
firði. Afli bátanna hefur yfirleiti
verið góður og skapa veiðarnaC
mikla atvinnu, einkum kvenfólki
og unglingum, sem aðallega
starfa að vinnslu afians.
—Páll Pálsson.
„Eg ú dýrl
fsnw
HIN stórmerka trúarlega kvik*
mynd „Ég sá dýrð hans“, sem
séra L. Murdoch frá Skotlandi
hefur sýnt í Stjörnubíói á sunnu-
dögum í vetur og jaínan fyrir
fullu húsi, mun verða sýnd í síð-
asta sinn í Stjörnub'ói sunnudag-
inn 9. jan. kl. 14.30.
f sambandi við sýningu þessa
mun sér L. Murdoch flytja erindi
sem hann nefnir: Vonarrík fram-
tíð, Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari syngur nokkur einsöngs
lög.
Leigutími kvikmyndarinnar er
útrunninn um miðjan mánuðinn,
og er þetta því sjðasta tækifærið
til að sjá hana.
.Fósibræður' svngja
í Hihrenum-úlvarp-
ið í dag
KARLAKÓRINN Fóstbræður
syngur í dag í útvarp í Hilversum
kl. 18,15—18,50 eftir íslenzkum
tíma.
Söngur kórsins var tekin á
segulband í söngförinni í septem-
ber s.l. Bylgjulengd útvarpsstöðv
arinnar er 402 m.
AKUKETRI
1
mm
ABCDEFGH 1
RETKJAVÍK i
44. leikur Akureyringa:
Kc7—b7 J