Morgunblaðið - 29.01.1955, Qupperneq 7
Laugardagur 29. jan. 1955
MORGUIS BLAÐIÐ
7
TORP KVEÐUR
GERHARDSEN KEMUR
4- Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni
Osló, 15. jan.
JÁ Norðmönnum hafa mörg
tíðindi gerst síðastliðna viku.
!Á mánudagsnótt byrjaði stór-
fcíldarvertíðin, þriðjudag kom
Btórþingið saman til forsetakosn-
ínga, miðvikudag setti konungur
þingið, fimmtudag lagði Bratteli
Éjármálaráðherra fram fjárlaga-
^rumvarp næsta árs, föstudag
feagði stjórnin af sér og í dag voru
fþirt nöfn hinna nýju ráðherra,
6em Einar Gerhardsen hefur val-
tð til fulltingis sér til þess að
framkvæma það, sem Torp tókst
lekki: að stöðva verðbólguna og
þæta hag ríkisins út á við.
i
PORSETAR
) Stórþings, Óðalsþings og Lög-
jþings voru endurkosnir hinir
jömu og síðasta ár: Einar Ger-
Ihardsen og Johan Wiik Stórþings
forsetar með 120 og 77 atkvæðum,
C. J. Hambro Óðalþingsforseti
með 94 atkvæðum (af 97 greidd-
|im) og Bent Röiseland, formað-
Jir vinstriflokksins forseti Lög-
jþingsins. En á föstudaginn kem-
Ur hafa þeir sætaskipti Gerhard-
6en og Torp, og Torp sest í for-
getastólinn. Síðast höfðu þeir
sætaskipti 19. nóvember 1951. En
Ííklega gera þeir það ekki oftar.
Mörg verkefni og erfið bíða
hins nýja Stórþings, sem er hið
99. í röðinni. Þegar síðasta Stór-
þingi var slitið skildi það við
Í49 mál óafgreidd auk 6 fyrir-
Bpurna, sem ekki hafði verið
svarað. Umfangsmesta málið af
hinum óafgreiddu er „Jordloven"
En fjárhagsmálin verða auðvitað
þau erfiðustu viðfangs á þing-
inu. Vegna þess að sveitastjórn-
arkosningar fara fram um allt
land í haust, er ekki gert ráð
íyr.ir að þingið komi saman til
haustfunda, heldur ijúki störfum
sínum fyrir sumarleyfið. En til
þess að það megi takast, verða
þingstörfin að ganga greitt. Þau
fara vaxandi með ári hverju, en
hinsvegar eru þingsköpin orðin
úrelt að ýmsu leyti — þau eru í
aðalatriðum jafngömul Stórþing-
inu — og heyrast oft raddir um
að þau þurfi gagngerðra breyt-
inga.
HÁSÆTISRÆÐA KONUNGS
„Ég býð Stórþingið velkomið
til alvarlegra starfa, og óska að
þau megi verða ættjörðinni til
gagns.
í fyrsta skipti í mörg ár er
hvergi háð styrjöld í veröldinni.
Noregur mun framhaldandi
taka þátt í alþjóðasamvinnu í fjár
hagsmálum, félagsmálum og
menningarmálum, og eftir beztu
getu stuðla að meiri kyrrð í al-
þjóðamálum og aukinni sáttfýsi
þjóðanna.
Noregur mun taka þátt í ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um
notkun kjarnorku til friðsam-
legra starfa.
Samvinnu við önnur norræn
lönd mun verða haldið áfram.
Stjórnin mun leggja sérstaka
áherzlu á að auka efnahagssam-
vinnu Norðurlanda.
Til að tryggja frið og sjálfstæði
mun Noregur halda áfram að
koma upp raunhæfum hervörn-
um og taka virkan þátt í starfi
Atlantshafsbandalagsins.
Stjórnin telur það aðalhlutverk
sitt í fjárhagsmálum á þessu ári,
að draga úr þrýstingnum sem er
á erlendum viðskiptum, verðlag-
inu og vinnumarkaðnum. — Pen-
inga- og lánapólitík og fjármála-
pólitík ríkisins verður hagað með
tilliti til þessa. Fjárlagafrum-
varpið er hallalaust. Tekjurnar
eiga að nægja fyrir bæði reksturs
útgjöldum og kostnaði við opin-
ber fyrirtæki og afborganir rikis-
skuldanna. — Fjárfestingar verða
takmarkaðar. Dregið verður úr
byggingaframkvæmdum til her-
varna. Innan fjárfestingaútgjald-
anna verða framlög til jarðrækt-
ar, vega og heilbrigðismála hækk
uð, og framkvæmdum í Norður-
Noregi verður haldið áfram.
íbúðabyggingar verða miklar
áfram. Vélaorka orkuveranna
mun aukast meir en nokkurn-
tíma áður. — Starfinu að því að
auka framleiðslu landbúnaðaraf-
urða og rækta skóg verður hald-
ið áfram.
Áherzla verður lögð á að
spyrna á móti atvinnuleysi á
sumum tímum árs, með því fyrst
og fremst að dreifa byggingastarf
semi ríkis og sveitafélaga. — Frí-
listar haldast áfram.
Stjórnin telur mikilsvert að
að komast hjá hækkun fram-
færslukostnaðar. Eftirlit með
verðlagi og álagningu verður
skerpt.
Frumvarp mun verða borið
fram um að hækka ellistyrk og
stuðning við blinda menn og ör-
kumla. — Frumvarp verður lagt
fram um að auka lágmark
kennslustunda í barnaskólum til
sveita og heimild til að lengja
námstíma framhaldsskólanna.
Frumvarp til breytinga á lögum,
um að styrkja alþýðu- og skóla-
bókasöfn, verður lagt fram.
Ég bið Guð að blessa starf
Stórþingsins, og lýsi 99. reglulegt
Stórþing Noregs sett.“
o—^—o
Stj órnarandstöðublöðunum
finnst ræðan yfirleitt fremur loð-
in, og finna það einkum að henni,
að hvergi sé minnst á, með hvaða
móti stjórnin ætli að koma í fram
kvæmd því, sem lofað er. Þau
benda á að ræðunni svipi of mik-
ið til þeirrar, sem haldin var í
fyrra. En þrátt fyrir þá ræðu
hafi allt haldið áfram í sama far-
‘inu, að því er fjárhagsmálin
snertir.
FJÁRLÖGIN NÝJU
Frumvarpið sem Bratteli fjár-
málaráðherra lagði fyrir þingað
á fimmtudaginn var, er það hæsta
í sögu Noregs, útgjöldin 33 millj.
meiri en í fyrra, eða 4.471 milljón
* krónur, og tekjurnar standast á
Oscar Torp
við gjöldin og eru áætlaðar 324
milljónum hærri en í fyrra.
Stjórnin stefnir því í sparnaðar-
átt með því að vilja afgreiða
tekjuhallalaus fjárlög. Enda verð
ur engin lækkun gerð á sköttum
eða skyldum, heldur fremur í
hina áttina. Það sem helzt snertir
allan almenning er, að dýrara
verður að ferðast en áður. því að
fargjöld ríkisjárnbrautanna
hækka um 15% frá 1. marz og
bifreiðagjöld hækka líka vegna
stórhækkaðs biíreiðaskatts. Hann
er áætlaður 55 milljón krónur á
næsta fjárhagsári en er 11 millj.
núna. Ennfremur verður elli-
styrktarsjóðsgjald hækkað úr 1.5
í 1,8%, og nemur sú hækkun 28
milljónum.
Hækkanir á ýmsum tekjulið-
um fjárlaganna nema 328,2 miílj,
krónur. Munar þar mest um sölu-
skattinn, sem er áætlaður 150
millj. hærri en síðast, eða 1350
milljónir, tollar eru áætlaðir 30
milljónum hærri, ágóði af öli og
víni 16 milljónum hærri, og af
tóbaki 10 milljónum hærri en
síðast. Tekju- og eignarskattur er
áætlaður jafnhár og síðast, eða
1070 milljónir.
Flestir útgjaldaliðir hafa og
hækkað. Til kirkju- og kennslu-
mála um 28.5 í 307 milljónir, til
félagsmála um 85 í 688,6 milljón-
ir, til landbúnaðar um 13 millj.
í 139,7 milljónir. Til vegamála er
hækkunin 13, 5 upp í 211 milljón-
ir.
Einar Gerhardsen
Hinsvegar verðúr kostnaður
við hervarnir 110 milljónum
lægri á næsta ári en nú, vegna
þess að framkvæmdum verður
seinkað nokkuð frá því, sem ráð-
gert var í áætlun undanfarinna
ára. Og útgjöld til heimavarnar-
liðsins lækka um 11,7 milljónir.
Til raforkuvera ríkisins er áætl-
að 16.4 milljón krónum minna en
nú.
Erlendar ríkisskuldir jukust
um 141 milljón á síðasta ári og
voru 1835,4 milljónir um síðustu
áramót. Mest af þeim eru amer-
íkönsk lán, 1.001,9 milljón krón-
ur, sænsk lán nema 309,8 millj.
kr. og ensk lán 168,6 milljón
krónur. Afborganir og vextir af
þessum lánum nema tæpum 243
milljón krónum.
STJÓRNARSKIPTIN
komu engum á óvart, því að
snemma í vetur var farið að
kvisast hvað í vændum væri. En
á föstudaginn var gekk Torp á
konungsfund og baðst lausnar
fyrir allt ráðuneyti sitt. í útvarps
ræðu sama kvöldið gerði hann
grein fyrir ástæðunni til þess að
hann bæðist lausnar Hann kvaðst
þykjast hafa gert skyldu sína
bæði við þjóðfélagið og flokkinn,
því að ráðherraembætti hefði
hann gegnt árin 1935 til 1948 og
siðan forsætisráðherraembætti í
rúm þrjú síðustu ár. Kvað hann
það starf hafa verið tímafrekt
og lýjandi og sagðist mæla fyrir
munn margra samverkamanná
sinna, er hann segðist þurfa að fá
hvíld.
Hann benti á Einar Gerhardsen,
sem sjálísagt var, til þess að taka
við stjórninni, og morgunin eftir
hafði Gerhardsen ráðið menn í
öll ráðherrasætin nema eitt —
fjármálaráðherrans. Hann gat
þess að svar væri ókomið frá
Mons Lid fylkismanni, en hon-
um hefði hann ætlað þetta ern-
bætti.
Torp tók það fram í kveðju-
oi'ðum sínum r.S fráför hans staf-
aði alls ekki af ósamkomulagi við
ílokkinn. Samvinnan hefði jafn-
an verið góð, þó að nokkur mein-
ingarmunur hefði orðið innan
flokksins um sum mál og nokk-
ur misbrestur á því, að sumir
flokksmenn fylgdu stjórninni
jafn eindregið og þörf hefði ver-
ið á.
En frá almennu sjónarmiði
liggur nærri að ætla, að fráför
Torps stafi fyrst og fremst af því,
að honum hefur ekki tekizt að
ráða við þau vandamál, sem nú
eru orðin áhyggjuefni allrar þjóð
arinnar: viðskiptahallann við út-
lönd og verðbólguna. Andstæð-
ingar stjórnarinnar kröfðust
gagngerðra breytinga á fjármála-
stefnu stjórnarinnar fyrir ári
liðnu, eftir að séð var að við-
skiptahallinn við útlönd var kom-
inn upp í einn milljard króna. Nú
hefur hann orðið öllu meiri á síð-
asta ári, og ríkisstjórninni sjálfri
fullljóst, að hér verður að spvrna
við fæti.
Og lækning á meininu fæst
ekki nema í samvinnu við at-
vinnurekendastéttir þjóðarinnar,
sem fylla flokk stjórnarandstæð-
inga. Það er talið sennilegt, að
Einar Gerhardsen sé líklegri mað
ur til að geta brúað djúpið milli
andstæðinganna, en Torp var, og
þessvegna hafi verið skipt um
stjórn.
í hinni nýju stjórn verða sex
AÐALFUNDUR Langholtssafn-
aðar var haldinn í Laugarnes-
kirkju sunnudaginn 12. desember
s.l. kl. 6,15 e. h. að aflokinni
messu.
Form. safnaðarnefndar, Helgi
Þorláksson kennari setti fundinn
og gaf skýrslu um liðið starfs-
tímabil. Starfið í sókninni hefur
gengið vel, þrátt fyrir ýmsa erf-
iðleika, sem við er að etja.
Barnasamkomur, sem haldnar
hafa verið í íþróttahúsinu að Há-
logalandi, hafa verið mjög vel
sóttar og þegar mest hefur verið,
hafa hátt á sjöunda hundrað börn
mætt. Vegna þess hversu léleg
húsakynni eru, ríkir nokkur
óvissa urn það hvernig halda
skuli barnastarfinu áfram.
Kvenfélag hefur og starfað af
mildum dugnaði og fórnfýsi og
hefur það meðal annars gefið 42
kyrtla til afnota fyrir fermingar-
börn safnaðarins.
Unglingafélag, sem nefnist
„Hálogaland“ og telur um hálft
annað hundrað meðlimi, hefur
haldið fundi með fjölbreyttri efn-
isskrá.
Kirkjukorinn hefur æft af
kappi og fyrir utan venjulegan
safnaðarsöng hefur hann haldið
kvöldvöku til óblandinnar
ánægju fyrir safnaðarfólk.
Fjáröflunarnefnd hefur verið
starfandi og flutti Vilhj. Bjarna-
son forstj. skýrslu um árangur-
inn, en safnast hafa um 112.000
krónur í peningum og vinnulof-
orð við væntanlega kirkjubygg- j
nýir ráðherrar. Halvard Lange
situr áfram sem utanrikisráð-
herra, enda hafa allir flokkar
nema kommúnistar verið sam-
mála um stefnu hans. Sömuleiðis
verður Birger Bergersen mennta
málaráðherra áfram. En um einn
af mönnunum, sem Gerhardsen
hefur valið sér til samverka-
manns, er líklegt að mikið verði
deilt. Það er Hauge, sem var her-
varnaráðherra i fyrri stjórn Ger-
hardsen og mjög deilt um starfs-
hætti hans þá. Hann á að verða
dómsmálaráðherra nýju stjórn-
arinnar.
SÍLIÍA’EIÐARNAR
eru ekki byrjaðar ennþá. Síld-
in er að vísu komin, rannsókna-
skipið „G. O. Sars“ tilkynnti
komu hennar fyrir rúmri viku,
og á mánudaginn voru veiðiskip-
in til taks, hundruðum saman. En.
síðan hafa verið verstu veður ;á
síldarmiðunum. Reknetabátár
hafa farið út en ekki fengið nerrta
lítið, þrátt fyrir mikla síld. Og
herpinótabátar geta ekki athafn-
að sig. Fiskimennirnir eru orðnir
langeygðir eftir gæftunum, og
telja sér margra milljón króna
tjón að óveðrunum, hvern dag
sem það stendur.
Skúli Skúlason.
Leyfisumsókn þessari var synj-
að öllum til mikillar undrunar.
Samþykkc var að leita til húsa-
meistara ríkisins, um tillöguuþp-
drátt að væntanlegri kirkjubygg-
ingu eins fljót og kostur er.
Vegna húsnæðisvandræða
prestsins samþykkti fundurinn
eftirfarandi tillögu: „Þar sem
ekki hefir enn verið íundin end-
anleg lausn á húsnæðisvandamáli
prestsins, þá óskar safnaðarfund-
urinn þess eindregið, að ríkis-
stjórnin hlutizt til um það, að
prestssetuirhús verði reist í sókn-
inni sem allra fyrst.
Ennfremur furðar fundurinn
sig á því, að hlutaðeigandi stjórn-
arvöld skuli hafa verið ;;vo r.innu-
laus í húsnæðisþörf hinna nýju
presta í Reykjavík, sem raun feer
vitni.‘
Umræður urðu nokkrar um
mál safnaðarin.- og tóku ýmsir.til
máls.
Vegna fráfalls frú Lilju Jónas-
dóttur, sem sæti átti í safnaðar-
stjórninni, var kjörinn varamað-
urinn örnóifur Valdimarsson.
Safnaðarstjórn skipa nú eftir-
taldir menr.: Helgi Þorláksson,
form., Magnús Jónsson .frá Mel
ritari, Sveinbjörn Finiisson, gjald
keri, Helgi Elíasson og Örnólfur
Valdimarsson.
Varamenn eru Vilhj. Bjarna-
son, Bergþór Magnússon og Báfð-
ur Sveinssen, er hlaut kosningu
í stað Örnólfs Valdimarssohar,
sem tók sæti í aðalstjórninni.
ingu, sem nemur um 100 dags-
verkum, auk þess hafa presti safn
aðarins, séra Árelíusi Níelssyni,
borizt margar peningagjafir til
byggingarinnar.
í forföllum gjaldkera safnað-
arins las form. reikningana og
flutti skýrslu við þá. Tekjur |
reyndust á árinu kr. 78.683,00 og j
afgangur til næsta árs eftir að
kostnaður hefur verið dreginn
frá kr. 10,736.29.
Kirkjudagarnir tveir, sem
haldnir hafa verið seinni hluta1
ágústmánaðar haía reynzt drjúg 1
tekjulind fyrir söfnuðinn.
Aðalmál fundarins var að sjálf-
sögðu kirkjubyggingarmálið, en
sótt hafði verið um fjárfestingar- (
leyfi fyrir hluta af kirkjunni,!
með það fyrir augum að nota
hann til safnaðarstarfs, þar til
kirkjan er að fullu reist.
Safnarfulltrúi er dr. Björn
Björnsson hagfræðingur.
Eftir að torm. og prestur safn-
aðarins höfðu flutt þakkir fyrir
vel unnin störf í þágu safnaðar-
ins, lauk síðan fundi með því,
að sunginn var sálmurinn: „Son
Guðs ertu með sanni“.
Engin kol fyrir eiiniesíirnar
BERLÍN — Austur-þýzka sam-
göngumálaráðuneytið hefir ákveð
ið að fækka ferðum járnbrautár-
lesta. Frá 24. jan. til 3. apríl falla
niður ferðir 12 hraðlesta. Einkum
mun þetta bitna á eftirfaraiidi
járnbrautarleiðum: — Berlin,
Erfurt, Dresden — Rostock,
Dresden — Chemnizt og Halle
— Leipzig. Sennilega á þessi ráð-
stöfun rót sína að rekja til kola-
skorts.
Aðatfundur Langholtssánar