Morgunblaðið - 08.02.1955, Síða 1
16 síður
42. árgangur
31. tbl. — Þriðjudagur 8. íebrúar 1955.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Virðíileg útför Hans Hed-
tofts forsætisráðh. Dana
Kaupmannahöfn, 7. febr. — Skeyti frá Páli Jónssyni.
UTFÖR Hedtofts fór fram í gær að viðstöddu miklu fjölmenni.
í forsal Ráðhússins í Kaupmannahöfn voru 1700 manns, er
boðið hafði verið að vera viðstaddir útförina, og fjöldi manna
safnaðist saman á Ráðhústorginu og fylgdist með athöfninni gegn-
um hátalara. — Sigurður Bjarnason, forseti neðri deildar Alþingis,
flutti samúðarkveðju frá íslandi.
Forsalurinn var blómum skreytt*’
ur, og hin hvíta kista Hedtofts
þakin sveigum, m. a. frá forseta
íslands og Ríkisstjórn íslands. —
Friðrik konungur og erfðaprins-
inn voru viðstaddir útförina og
tóku forsætisráðherrar Norðurland
anna, þeir er viðstaddir voru, á
móti þeim og Sigurður Bjarnason
fyrir íslands hönd. ,
* AÐALRÆÐUMENN
Konungur stóð nokkur augna-
blik við líkbörurnar og laut höfði,
því næst var leikið sorgargöngu-
lag. Aðalræðumaður við útförina
var H. C. Hansen, hinn nýskipaði
forsætisráðherra. Birtist kafli úr
ræðu hans á bls. 8. Leikkonan Ellen
’Malberg, las kvæði um Norður-
lönd.
Erlander, forsætisráðherra Svía,
Gerhardsen, forsætisráðherra
Norðmanna, Kekkonen, forsætis-
ráðherra Finna og Siguvður
Bjarnason fluttu samúðarkveðjur
landa sinna.
Ávarp það sem Sigurður Bjarna
son flutti við minningarathöfnina
var á þessa leið:
Fyrir hönd ríkisstjórnar Is-
lands og allra íslendinga votta
ég ríkisstjórn Danmerkiir og
dönsku þjóðinni fyllstu samuS
í tilefni af fráfalli Hans Hed-
tofts forsætisráSherra. Innileg-
ustu hlultekningu vora sendum
vér börnum hans, sem þungbær
sorg hefur sótt heiin.
Ævilok Hans Hedtofts bar aS
meS sviplegum og sorglegum
hætti á hátindi lífs hans. En
þaS eru ekki Danir einir, sem
eiga á bak aS sjá einm sinna
beztu sona. Hans Hedtoft var
sívakandi og ötull hvatamaSur
sanns bræSralags og raunhæfr-
ar samvinnu NorSurlanda. Einn
ig vér íslendingar syrgjum ein-
lægan og tryggan vin. Fáir
skildu oss betur en hann.
ÞaS er skoSun vor, aS skerf-
ur hans til bættrar samúðar og
skilnings, eigi aSeins milli Is-
lands og Danmerkur, lieldur
og milli íslands og NorSurland
anna allra sé sá grundvöllur,
sem komandi kynslóðir geti
byggt á í framtíSinni.
Vinum lians á íslandi mun
aldrei úr minni líSa sú hjarta-
hlýja, sem stafaSi frá Hans
Hedtofts. Vér færum honum
þakkir og höidum minningu
hans í heiSri.
Flutti þá Braunthal samúðar-
kveðjur Alþjóðasambands jafnað-
armanna. Því næst flutti hinn 28
ára g-amli sonur Hedtofts, Bjarne,
mjög áhrifaríka þakkarræðu til
föður síns. Loks var leikið uppá-
haldslag Hedtofts, lagið: „Hin
gömlu kynni gleymast ei“.
★ LÍKFYLGDIN
Nokkrir ráðherrar, leiðtogar
verkalýðsfélaga, báru kistuna út
í líkvagninn. í fjörutíu bifreiðum
fylgdu fjölskylda Hedtofts, nán-
ustu vinir og erlendir gestir, hin-
um látna forsætisráðherra síðasta
spölinn að líkbrennslustofunni í
Bispebjerg. Fimm hundruð fánar
stéttarfélaga blöktu meðfram
þeirri leið, er líkfylgdin fór, og
þúsundir manna höfðu safnast sam
an við leiðina
Egyptar háta aö segja
sig úr varnarbandalagi
Arabaríkjanna
Varðarfélagið gengst fyrir alhliða
umræðum um iðn-
væðingu landsins
Stjórnar-
myndun
■ Frakklandi
© PARÍS, 7. febr.:
Antoine Pinay, er forseti
Frakklands liefur falið að reyna
að mynda nýja stjórn, hefur lýst
yfir þeirri von sinni, að stjórnar-
myndun verði lokið á fimmtudag
eða föstudag í þessari viku. Er
þó álitið alveg óvíst, hvort það
megi takast. Pinay tilheyrir hægri
óháða flokknum.
© Ræddi Pinay í dag við fjár-
malasérfræðinga flokks síns.
Á þriðjudag eða miðvikudag
hyggst Pinay ræða við stjórn-
Tœkniþróunin er
varanlegasta kjarabótin
® KAÍRÓ, 7. febrúar — Egypta-
land hyggst segja sig úr varn-
arbandalagi Arabaríkjanna, ef málamenn þá, er hann vill að sitji
í stjórn sinni. Óstaðfestar fregnir
herma, að fyrrverandi forsætisráð
herra, René Mayer, verði gerður
að utanríkisráðherra í nýju stjórn-
írak og Tyrkland undirrita fyrir-
hugaðan gagnkvæman varnar-
samning.
O Salah Salem, upplýsingaráð-
herra Egyptalands, skýrði frá
9 Pinay var einn af hörðustu
þessari óvæntu ákvörðun stjórnar andstæSingum Mendes-Franee, og
Egyptalands á fundi með blaða- jþví mj5g ólíuiest5 að fylgisnlenn
mönnum frá Líbanon síðdegis
dag.
® Salem kvað egypsku stjórn-
ina fúsa til að stofna til nýs
varnarbandalags Arabaríkja.
® Yfirlýsing þessi kemur mönn-
um nokkuð á óvart. Á sunnu-
dagskvöld, er lokið var síðasta
fundi ráðstefnu þeirrar, er boð-
að var til innan Arababanda-
lagsins vegna þess fyrirhugaða
varnarsamnings milli íraks og
Sýrlands, nafði fulltrúi egypsku
nefndarinnar á ráðstefnunni
sagt að Egyptaland myndi verða
áfram aðili að varnarbandalagi
Arabaríkjanna, hvað sem á dyndi.
•—Reuter-NTB.
Mendes styðji Pinay í stjórnar-
myndun hans. Fylgismenn Mendes
svokallaðir Mendesistar, eru a. m.
k. 260 í þinginu, jafnaðarmenn,
róttækir og um það bil lielmingur
Gaullistanna. Þar að auki munu
kommúnistar, sem eru 98, ekki
fylgja Pinay.
© Til að geta fengið stjórn sína
samþykkta í þinginu verður
Pinay að fá fylgi nokkurs hluta
Mendesistanna, mikils hluta ka-
þólska flokksins og þess hluta
Gaullistanna, er voru með í ráðum
um að fella Mendes-Franee.
© Pinay mun sennilega feta í
fótspor Mendes-France í því
að fá sem flesta unga stjórnmála-
menn með sér í stjórn sína.
STJÓRN Varðar-félagsins sýndi það áþreifanlega í gær
með fundarboði sínu, að hún vinnur að því markvisst að
beina hug félagsmanna sinna að atvinnumálum þjóðarinnar
og hagnýtum efnum með því að bjóða kunnum sérfræðing-
ii m til framsögu í meginatvinnumálum þjóðarinnar, þeim
Tómasi Tryggvasyni jarðfræðingi, er valdi sér að umtals-
sms. efnj hagnýt jarðefni, er gætu skapað nýja atvinnumögu-
leika fyrir þjóðina, Jón E. Vestdal efnaverkfræðingur talaði
um fyrirhugaða sementsverksmiðju á Akranesi, rakti til-
drög hennar og lýsti því hve langt undirbúningi væri komið,
en hann telur að til þess að fullgera verksmiðjuna þurfi
vinna við hana að standa yfir í þrjú sumur. Síðastur talaði
Eiríkur Briem rafveitustjóri er gerði grein fyrir orkuþörf
íslenzku þjóðarinnar og núverandi orkunotkun og talaði þá
um allt í senn vatnsokuna og orku jarðhitans.
Enda þótt umræðuefni þeirra allra væri þannig vaxið, að áheyr-
endur þyrftu að fylgja þeim vel eftir til að hafa þeirra full not,
var það sérkennilegt við þennan Varðarfund hve hljótt var á fund-
inum. Allir áheyrendur fylgdu hverju orði til þess að hafa full not
af fróðleik þeim, sem þar var á hoðstólum. Þess vegna var þessi
fundur sérstaklega ánægjulegur, því að menn voru sannfærðir um
að allir áheyrendur fóru fróðari af þeim fundi en þeir komu, en
einmitt þetta bar það með sér, hve gagnlegir slíkir fundir eru.
Formaðurinn Birgir Kjaran þakkaði frummælendum öllum sér-
staklega fyrir erindin, hvert í sínu lagi með nokkrum vel völdum
orðum, enda var full ástæða til að þakka þessi fróðlegu erindi, er
flutt voru af mikilli þekkingu og svo skilmerkileg, sem bez.t varð
á kosið.
Tómas Tryggvasan:
Hagnýt jarðefni á Islandi
Merkileg nýmœli á Alþingi
Bæjar og sveitarfélag skipi í
fuiitráaráS Mrunahétafélagsins
Ráðið taki ákvarðanir um t«‘\ jijii h*í;«-
kjör og kjósi framkvæmdastjórn
INÝJU frumvarpi á Alþingi um Brunabótafélag íslands
er gert ráð fyrir þeirri skipulagsbreytingu á stjórn fé-
lagsins, að stofnað verði fulltrúaráð fyrir það, skipað einum
manni frá hverju bæjar- og sýslufélagi, sem tryggja fast-
eignir sínar hjá félaginu. Fulltrúaráð þetta skal ræða rekstur
félagsins, afkomu og framtíðarhorfur og taka til athugunar,
livað unnt er að gera til hagkvæmra brunatrygginga fast-
eigna og lausafjár. Skulu þrír menn úr hópi fulltrúaráðs-
mannakosnir í framkvæmdastjórn fyrir félagið.
Frumvarp þetta er borið
fram af alþingismönnunum
Jónasi Rafnar, Jóni Sigurðs-
syni, Emil Jónssyni, Gils Guð-
mundssyni og Lúðvík Jósefs-
syni. Tilgangur þess er að efla
samstarfið milli Brunabótafé-
lagsins og sveitafélaganna til
þess að athuga möguleika á
sem hagkvæmustum trygging-
um, efla brunavarnir o. s. frv.
Til þessa er sveitafélögunum
gefin bein aðild að stjórn fé-
lagsins, enda er félagið gagn-
kvæmt tryggingarfélag þeirra.
ALIT MEIRIHLUTA
BRUNAMÁLANEFNDAR
Jónas Rafnar, þingmaður Akur
eyrar, gerði ýtarlega grein fyrir
frumvarpinu í ræðu á Alþingi í
gær.
Hann rakti það, að á siðasta
Alþingi voru samþykkt lög um
brunatryggingar utan Reykjavík-
ur, en í þeim lögum var ákvæði
um að fimm manna nefnd skyldi
endurskoða lög um Brunabóta-
félagið og önnur lagafyrirmæli
um brunamál utan Reykjavíkur.
Nefnd þessi var kjörin og hélt
nokkra fundi um málið s.l. sum-
ar. Hún gat ekki orðið sammála
um niðurstöður og skilaði því
tveimur tillögum. — Meirihluti
hennar (Jón Sigurðsson, Guð-
mundur í. Guðmundsson og Jónas
Rafnar) samdi frumvarp til laga
um Brunabótafélag íslands og
skilaði því til ríkisstjórnarinnar
10. nóv. s.l.
Þar sem það drógst á langinn
að ríkisstjórnin legði fram tillög-
ur í málinu urðu nokkrir þing-
menn ásáttir um að flytja tillög-
ur meirihluta brunamálanefndar
svo til óbreyttar og er það frum-
varp það, sem hér liggur fyrir.
Jónas skýrði síðan frá helztu
nýmælum frumvarpsins, en þau
eru þessi:
1)
FULLTRUARAÐ
VERÐI KOSID
Lagt er til að teknir verði
upp nýir og töluvert
breyttir stjórnarhættir hjá Bruna
bótafélaginu. Félagið skal áfram
standa undir umsjón ríkisstjórn-
arinnar og ráðherra skipar þvi
forstjóra.
En sú skipnlagsbreyting
Framh. á bls. 9
„HAGNYT’* JARÐEFNI VIÐ-
TÆKT HUGTAK
Tómas Tryggvason hóf mál
sitt með því að hagtakið „hag-
nýt“ jarðefni væri nokkuð víð-
tækt, en breytinlegt þó, því að
sama jarðefni gæti verið nothæft
eða ónothæft eftir aðstæðunum
til þess að notfæra sér þau..
Möl og sandur eru nú orðið
notuð til akvegagerðar og stein-
steypu og geta þannig að réttu
kallast verðmæt jarðefni nú orð-
ið. í vegi, götur og hafnarmann-
virki á íslandi þarf um 2 rnillj.
lesta af möl og grjóti árlega og
árleg steypuefnisnotkun skiptir
hundruðum þúsunda lesta.
Notkun heita vatnsins fer jafnt
og þétt vaxandi. Nú rnunu not-
aðar um 10 millj. lesta af heitu
vatni árlega á landinu, en hins-
vegar eru notaðar árlega um 70
þús. lestir af steinkolum árlega.
Annað eins eða meira af heitu
vatni fer samt forgörðum. Hér
eru því enn fyrir hendi miklir
möguleikar á að notfæra sér jarð-
hitann.
Það má ekki gleyma mónum,
sem löngum hefir verið notaður
til eldsneytis. Móneyzlan hefir
farið minnkandi sei'nustu árin og
mun tæplega aukast aftur nema
véltækni komi til.
Mórinn og reiðingur hefir lítils
háttar verið notaður til einangr-
unar seinustu áratugina. Samt er
það hverfandi í samanburði við
vikur og gjall sem er notað í
stöðugt vaxandi mæli til einangr-
unar og bygginga. Engu að síður
er notkun hraungrýtis enn á
Framh. á bls. 2