Morgunblaðið - 05.03.1955, Page 14
14
MORGUHBLABIB
Laugardagur 5. marz 1955
Franihaldasagan 37
í>að er góður atvinnuvegur að
rcka hótel og við eigum ekki
mörg börn.... “
„Bíðið augnablik, herra John-
son“, greip Morgan fram í fyrir
litla manninum. „Við skulum nú
snúa okkur að nöfnunum. Kral
— það er Paul Kral, sem þér
eigið við? Brunner — það mun
vera Eric Brunner í utanríkis-
ráðuneytinu? Proshaska — það
er sá, sem þeir hafa gefið út hand
tökuheimild fyrir? Og Matejk —
aðeins til að vera viss um að gera
enga skyssu — það mun vera dr.
Matejka í innanríkisráðuneyt-
inu?“
„Þetta er allt rétt, herra Morg-
an. En nú langar mig til að spyrja
yður persónulegrar spurningar.
Hvar er salernið hérna?“
Morgan, sem ekki hafði náð sér
eftir áfallið, laut niður að eyra
litla mannsins og sagði honum
það, sem hann var að spyrja um,
en bað hann að koma strax aftur.
Um leið og hann var orðinn
einn, tók hann upp heyrnartólið.
„Ert þetta þú, Harry? Hvernig
iíður þér? Veiztu nokkuð um
herra Johnson frá Omaha, Ne-
braska? Hvers vegna ertu að
hlæja?“
„Vegna þess að þetta er í
fimmta sinn, sem spurt er um
hann í þessari viku. Johnson er
meinlaus bjáni. Hann er að leita
að ferðatösku og setur allt á ann-
an endann út af henni“.
„Svo að fólk heldur að hann sé
bjáni? Hvers konar ferðatösku
er hann að leita að?“
„Það má hamingjan vita. Ef
Johnson er inni hjá þér, geturðu
bara kastað honum út, honum er
alveg sama“.
„En þessi saklausi bjáni hefur
verið í sambandi við Matejka frá
innanríkisráðuneytinu! Ég hef
ekki þrautspurt hann enn, hvað
þeim hefur farið á milli. En hann
talar um Prochazka og hann
þekkir Paul Kral, hann þekkir
Brunner í utanríkisráðuneytinu.
Hvað meinar þú með meinlaus
ojáni?“
Röddin í símanum varð alvar-
legri. „Hefur Johnson hitt Mate-
jka? Ertu ekki að gabba? Það
auðvitað.... Á ég að koma?“
„Nei, ekki núna. Þegar ég veit
meira um hann, skal ég hringja".
Herra Johnson kom nú aftur
og brosti hjartanlega. „Jæja,
hérna er ég kominn aftur. Hvað
álítið þér um þetta allt og hvað
ráðleggið þér mér að gera, herra
Morgan?"
„Ég mun ráðleggja yður að
vera rólegur. Ferðataskan kem-
ur í leitirnar".
„Ég er svo sem nógu rólegur
og trúið þér mér, að ég mundi
liætta að hugsa um ferðatöskuna,
bara ef ég væri kominn aftur til
Omaha“.
■ „Herra Johnson, ég er dálítið
undrandi á þessum nöfnum:
Prochazka, Kral, Brunner. Mate-
jka — ég skil ekki, hvernig þér
íunduð þessa menn“.
„Ég fann þá ekki. Ef ég hefði
hitt þennan náunga Prochazka,
mundi ég aldrei hafa komið ná-
lægt utanríkisráðuneytinu eða
innanríkisráðuneytinu, eða eytt
tíma mínum á þennan hálfgeggj-
aða Matejka, en hann hlýtur að
vera veíkur, því að hann svitnar
svo mikið“.
„Það er satt. En Brunner og
Kral.... “
„Ég get ekki séð neitt undar-
legt við það. Kral sendi mig til
.Brunners og nokkurra annarra
tnanna“.
„Var Matejka þar á meðal?“
„Nú, ég var einmitt að segja
yður, hve Kral varð hræddur,
þegar hann heyrði, að Matejka
hefði beðið mig að koma til sín.
Mér er það ráðgáta, hvernig
Matejka vissi um ferðatöskuna
mína, og ég get ekki skilið, að
hann skuli hafa áhuga á mínum
málum, þar sem hann er ekki í
deildinni, sem hefur með óskila-
muni að gera“.
„Það getur verið, að Matejka
hafi frétt það hjá Brunner?"
„Ég hef aldrei hugsað út í það“.
„Það getur verið mögulegt. En
herra Johnson, þar sem þér þekk
ið svo marga velþekkta menn,
hafið þér nokkurn tíma heyrt
talað um mann, sem heitir Jak-
es?“
„Nei“.
„En Karel Skala?“
„Ég þekki mann, sem heitir
Skala — mann af yðar stærð og
vaxtarlagi — en hann heitir ekki
Karel“.
„En Kapoun? Alois Kapoun.
Ég get séð, að þér hafið heyrt
það nafn“.
Litli maðurinn deplaði augun-
um í ákafa. Hann tók ofan litlu
gleraugun, þurrkaði þau vand-
lega á vasaklút og sagði alvar-
lega: fmmrni
„Herra Mórgánj þetta híýtur
að vera misskilningur. Ég kom
hingað til að biðja yður um ráð-
leggingar, og þér voruð mjög
kurteis, því er ekki haSgt að
neita, en svo talið þér við mig
eins og það sé ég sem geti gefið
yður ráð“.
Morgan sá nú, að það var kom-
ið upp um hann, og hann ákvað
að reyna aðferð, sem hann var
annars ekkert hrifirtn af. Hann
spratt upp úr sæti sínu, gretti
sig allan og barði í borðið með
krepptum hnefanum og hrópaði
rauður eins og karfi: „Hvar hafið
þér hitt Alois Kapoun? Talið og
hættið öllum fíflalátum".
Hinn litli herra Johnson tók af
sér gleraugun, leit flóttalega
kringum sig, fyrst án þeirra og
síðan gegnum þau„ og nú brosti
hann ekki lengur glaðlega heldur
meðaumkunarlega og sagði síðan
biturlega: „Það er ekki smávegis
misskilningur milli okkar, held-
ur mikill. Þér eruð að ráðleggja
mér að vera rólegur, herra Morg- i
an, en svo hrópið þér eins og
einhver væri að drepa vður. —
Hvað á þetta að þýða? Mér finnst
ekki eins og ég sé á amerískri
skrifstofu". '
Morgan fannst cins og það
ætlaði að líða yfir hann, og nú
varð uppgerðar reiði hans að
sárri gremju. En hann hló, er
hann sagði: „Þér skulið ekki
halda, að þér komizt upp með
þennan sakleysisleik yðar! Nú er
alvara á ferðum hérna og ef þér
segið mér ekki, hvernig þér kom-
ust í kynni við háttsetta stjórn- í
málamenn í Prag, skal ég sjá til
þess að þér verðið tekinn til yfir-
heyrslu jafnskjótt og þér komið
til Ameríku. Og ég læt yður um
það, við hvern þér viljið heldur
tala, mig, eða lögregluna eða her-
inn heima í Ameríku, og það fyr-
ir rétti“. j
l
Herra Johnson krosslagði fæt-
urna og snýtti sér á bréfklútnum
og sagði síðan rólega: „Hvar haf-
ið þér ruslakörfuna, svo að ég
hendi þessu ekki á gólfið? Nú,
þarna hjá ofninum. Þar hefði ég
síðast leitað“. . 1
Morgan sortnaði fyrir augum
af reiði og blóðið komst á hreyf- ,
ingu, en Johnson var jafn róleg- 1
ur og virðulegur, er hann hélt
áfram:
„Það eru nokkur atriði í því, j
sem þér sögðuð, sem mig langaði ;
til að athuga nánar, en ef þér !
viljið, skal ég leggja til peninga, ,
því að ég er enginn maurapúki, ;
og svo skulum við fara saman til !
prófessors Jiraneks, sem er vel j
þekktur geðveikralæknir í Prag !
og við skulum láta hann skera úr
því, hvor okkar sé vitlausari
hvor okkar sé ráðvandari og hvor
okkar sé saklausari. Og hvað
Kveðju-sundmóf
Ármanns og Ægis verður haldið í Sundhöllinni í kvöld kl. 8.
Keppt verður í 8 spennandi sundgreinum
Allir beztu sundmenn landsins keppa auk þess hinir
snjöllu sundmenn Svía.
Hverjir sigra i kvöld ?
Aðgöngumiðar fást í Sundhöllinni frá kl. 1 í dag og kosta
5,00 kr. fyrir börn, 10,00 kr. stæði og 15,00 kr. sæti
Jóhann handfastí
ENSK SAGA
119
úr kastalanum. Lang oftast var ég hjá konunginum. Við
tefldum skák saman og hann skemmti sér og mér með því
að segja mér sögur af ævintýrum sínum og ærslum fyrr á
tímum, eða þá hann orkti ljóð og samdi lög við þau, þegar
þungar hugsanir sóttú á hann og hann var ekki í skapi til
að gera að gamni sínu. Svo söng hann ljóð sín og lög fyrir
mig með djúpri, hljómfagurri rödd, því eins og ég hef áður
sagt, var Ríkarður konungur mikið skáld, jafnframt því að
vera frábær hermaður.
En konungur vildi alls ekki að ég væri inni hjá sér allan
daginn í litla herberginu sínu. „Farðu nú út, góði Reiddi
hnefi,“ sagði hann oft, „og teygðu úr löngu löppunum“. Þegar
ég var ekki hjá honum, notaði ég hið takmarkaða frelsi til
þess að rannsaka legu kastalans, ásigkomulag hans og víg-
girðingar og varnarmátt. Ég man hvað Runólfur gamli ridd-
ari, sem hafði það vanbakkláta starf að kenna strákunum
á heimili hr. de Columbióres, var vanur að segja: „Þegar
þið komið að kastala, sem þið hafið ekki séð áður, þá komizt
að þrennu: hvernig unnt sé að vinna hann, hvernig hann
verði varinn og hvernig verði flúið úr honum.“ Ég þarf
varla að taka það fram, að það var flóttinn, sem ég var stöð-
ugt að brjóta heilann um.
Samt mátti ég varla hugsa til þess að skilja konunginn
einan eftir í þessum þungbæru kröggum, en þegar hver
vikan leið af annarri í sama dauðleiðinlega tilbreytingar-
leysinu, varð mér æ betur ljóst með hverjum deginum sem
leið, að ég yrði að reyna að flýja úr þessum kastala með
einhverjum ráðum og koma boðum til Englands um það,
N ámskeið I
B
■
það sem Iðnskólinn í Reykjavík heldur fyrir bygginga- ;
■
meistara, hefst laugardaginn 5. marz kl. 2 síðdegis. í Z
Iðnskólanum við Skólavörðutorg. ■
B
SKÓLASTJÓRI E
BBBBBBB BBaaa»*a «■■■•■• •■■••BBaaBlBBBBBBBBBBBMBBaaaitBBaULU)
■
■
Skrifstofumaður I
■
■
óskast til starfa sem fyrs-t, hjá verzlunarfyrirtæki *
á Norðurlandi. — Vélritunarkunnátta nauðsynleg. ;
Ennfremur nokkur kunnátta í bókfærslu. — Um- ;
■
sóknir með upplýsingum um menntun og fyrri •
störf, sendist Sambandi ísl. samvinnufélaga,
Deifd 1.
LAXVEIÐI
■
■
■
Stangaveiði í Straumum við Ferjukot er til leigu á *
komandi sumri. — Veiðihús fylgja. — Tilboð send- ;
■
ist undirrituðum fyrir 31. þ. m. Z
■
■
Sigurður Guðbrandsson, Borgarnesi ;
Sími 26 :
Sölubúð
með bakherbergi, óskast til leigu, helzt við Lauga- ■
■
■
veginn. — Tilboð merkt: „Maí — 486“, sendist afgr. !
■
Mbl. fyrir 10. þ. m.
Miðaldra kona
■
■
■
óskar eftir ráðskonustöðu. — Upplýsingar í síma •
■
1082 frá kl 2—6 e. h. í dag.
Hrognkelsaútgerð til sölu
Trillubátur, net, rennibraut, vagn og spil. — Upplýs-
ingar í síma 6237 frá kl. 6—á e. h. laugardag.
Vantar bólstrara strax
RAGNAR BJÖRNSSON H. F.
Húsgagnabólstrun, Hafnarfirði
Sími 9397