Morgunblaðið - 31.03.1955, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
1 dag er 91. dagur ársins.
31. murz.
Árdegisflæði kl. 11,22.
SíðdegisflæSi kl. 23,59.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
nnni, sími 5030 frá kl. 6 síðdegis
til kl. 8 árdegis.
Næturvörður er í Lyfjabúðinní
Iðunni, sími 7911. Ennfremur er
Holts-apótek og Apótek Austur-
bæjar opin daglega til kl. 8 nema
4 laugrfrdögum til kl. 4. Holts-apó-
tek er opið á sunnudögum milli
kl. 1—4.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga milli kl.
13,00 og 16,00.
□ MÍMIR 59553317 — 1.
I.O.O.F. '5 = 1363318>/2 = 9
I. II.
RMR — Föstud. 1. 3. 20. —
VS — Fr. — Hvb.
Dagbók
pJHÉEi
, 1 ■
!
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína, ungfrú Unnur Magnúsdóttir
iðnnemi frá Drangsnesi í Stein-
grímsfirði og Sigvaldi S. Þorgils-
son iðnnemi, Laugavegi 11, Rvík.
• Skipafréftir •
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fer frá Reykjavík kl. 21
í kvöld austur um land til Vopna-
■fjarðar. Esja er á Akureyri. —
Herðubreið er á Austfjörðum. —
Skjaidbreið er í Reykjavík. Þyrill
var á Akureyri í gærkveldi.
|
Skipadcild S. I. S.:
Hvassafell fór frá Akranei í
gær áleiðis til Hamborgar. Arnar-
fell er í Reykjavík. Jökulfell er í
Rostock. Dísarfell er á Akureyri. 1
Helgafell er í New York. Smer- ,
alda er í Hvalfirði. Elfrida er á !
Isafirði. Jutland fór frá Torre-
vieja 23. þ.m. áleiðis til Aust-
fjarðahafna. „Thea Danielsen"
fór frá Torrevieja 26. þ.m. áleiðis
til Islands.
I dag er síðasti dagur málverkasýningar Sigurbjörns Kristinsson-
ar í Listamannaskálanum. Á sjöunda hundrað manns hafa séð
sýninguna og 16 myndir eru seldar.
Alþ:
nngi •
Efri deild: — 1. Dýralæknar,
frv. Ein umr. — 2. Barnavemd
og ungmenna, frv. 2. umr. — 3. !
Leigubifreiðar í kaupstöðum, frv.
2. umr. — |
Neðri deild: — 1. Ríkisborgara
réttur, frv. Frh. 2. umr. — 2. Fisk
veiðasjóður Islands, frv. 2. umr. |
3. Húsnæðismál, frv. 1. umr. — .
4. Fasteignamat, frv. 3. umr. —
5. Varnarsamningur milli íslands
og Bandaríkjanna, frv, 1. umr. —
6. Bæjarstjórn í Kópavogskaup-
stað, frv. Frh. 1. umr. — 7. Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins o. fl.,
frv. 1. umr.
Sameinaða
Vegna verkfallsins hér sneri
m/s Dronning Alexandrine við í
Færeyjum í gær og hélt aftur til
Kaupmannahafnar, þar af leið-
andi fellur ferð skipsins héðan
2/4. niður. Næsta ferð skipsins
. s.
SKIPAUTGCRO
RIKISINS
99
Hekla"
Sökum þess hvað fáir farþegai
hafa gefið sig fram til ferðar með
m/s Heklu austur og norður og
skípið fær heldur ekki að taka
póst, breytist ferðaáætlunin sen.
hér greinir: Skipið mun fara héð
an kl. 21,00 í kvöld og koma á
venjulegar áætlunarhafnir norður
til Vopnafjarðar, en sigla rakleitt
þaðan til Reykjavíkur án viðkomu
nema í Vestmannaeyjum, ef nauð
synlegt verður að koma þangað.
frá Kaupmannahöfn verður 13.
apríl. —
Kvenfélag óháða
safnaðarins
Skemmtifundur í Eddu'núsinu
kl. 8,30 á föstudagskvöldið.
Sólheimadrengurinn
Afh. Mbl.: Ómerkt: 25,00. B. E.
200,00. G. 50,00.
Til fjölskyldunnar, sem
brann hjá í Þóroddsstaða-
camp
Afh. Mbl.: N. N. kr. 200,00;
Ingibjörg 50,00; N. N. 200,00; N.
N. 50,00; S. T. 30,00; Jónas 20,00.
Frá Verzlunarskólanum
Próf í verzlunardeifd hef.iast
laugardaginn 2. apríl. Utanskóla-
menn, sem ætla að þreyta próf
upp í annan eða þriðja bekk, komi
í fyrsta prófið þriðjudaginn 12.
apríl kl. 8 fyrir hádegi. Sjá nánar
próftöflu í skólanum.
Djúpmannafélagið
Spilakvöld er í kvöld í Tjarnar-
kaffi kl. 8,30. Takið með ykkur
spil.
Leiðrétting frá Almari
1 umsögn minni í gær um kvöld
vöku bændavikunnar, þar sem get
ið er kvæðalesturs Magnúsar Guð
mundssonar, hefur orðið sá rugl-
ingur á, að nafn höfundar kvæðis
ins, Guðmundur á Sandi, hefur
fallið niður en við það hefur upp-
lesaranum verið eignað kvæðið. Er
þetta því ieiðara, sem hér er um
að ræða eitt af ágætiskvæðum hins
snjalla skálds.
Listasafn
Einars Jónssonar
'Til 1. júní onið á sunnudögum
kl. 13,30—15.30. Um páskana þó
i aðeins 2. páskadag.
Meðlimir
Nevtendasamtakanna
sem ekki hafa fenedð leiðbein-
ino-abæklinga samtakanna, eru
l beðnir um að láta skrifstofuna
vita. í síma 82722. All margir, sem
bæklingarnir hafa verið sendir,
hafa revnzt vera fluttir, en skrif
stofunni hefur ekki tekist að fá
hið nýja heimilisfang.
Hrækið ekki á gangstéttir.
Brunatryggingarnar
Meinieg prentvilla var í grein-
inni um brunatryggingarnar, í
blaðinu í gær, þar sem gerður var
samanburður á iðgjöldum af
skyldutryggðum fasteignum í
kaupstöðum. Rétt er taflan
þannig:
Brunab.fél. Samvinnu-
Islands tryggingar
1. fl. 0.65% 0,64%
2. fl. 1,00% 1,04%
3. fl. 1,80% 1,88%
4. fl. 2,50% 2,80%
Sundmót skólanna
fer fram í Sundhöllinni í kvöld
Keppa þar auk framhaldsskól-
anna hérna í Reyikjavík: Mennta
skólinn á Laugarvatni og gagn-
fræðaskólar Keflavíkur og Hafn-
arfjarðar. —
Minningarspjöld S.L.F.
— Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra — fást í Bókum og rit-
föngum, Austurstræti 1, Bóka-
verzlun Braga Brynjólfssonar,
Hafnarstræti 22, Hafliðabúð,
Njálsgötu 1, og verzluninni Roða,
Laugavegi 74.
Málfundafélagið Óðinn
Stjóm félagsins er til viðtals
við félagsmenn í skrifstofu félags-
ins á föstudagskvöldum frá kl.
8—10. — Sími 7104.
Styrktarsjóður munaðar-
lausra barna. — Sími 7967
Minningarspjöld
Krabbameinsfél. íslands
fást hjá öllum póstafgreiðslum
landsins, lyfjabúðum í Reykjavík
og Hafnarfirði (nema Laugavegs-
og Reykjavíkur-apótekum), — Re-
media, Elliheimilinu Grund og
skrifstofu krabbameinsfélaganna,
Blóðbankanum, Barónsstíg, sími
6947. —■ Minningakortin eru af-
greidd gegnum síma 6947.
Bæjarbókasafnið
Lesstofan er opin alla virka daga
frá kl. 10—12 árdegis og kl. 1—10
síðdegis, nema laugardaga kl. 10
— 12 árdegis og kl. J—7 síðdegis.
Sunnudaga frá kl. 2—7 síðdegi3.
Utlánadeildin er opin alla virka
daga frá kl. 2—10, nema laugar-
daga kl. 2—7 og sunnudaga ki
5—7.
Orðsending frá Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt
Félagskonur, komið í skrifstofu
félagsins í S.jálfstæðishúsinu í
dag og næstu daga kl. 3—7 e.h.,
til viðtals og til að greiða árgjöld
ykkar. — Aðrar Sjálfstæðiskonur,
sem ekki eru komnar í félagið,
verða innritaðar á sama tíma.
Hrækið ekki á gangstéttir.
• Útvarp •
Fimmtudagur 31. marz:
8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veður-
fregnir. 12,00—13,15 Hádegisút-
varp. 16,30 Veðurfregnir. 18,00
Dönskukennsla; I. fl. 18,25 Veður
fregnir. 18,30 Enskukennsla; II.
fl. 18,55 Framburðarkennsla í
dönsku og esperanto. 19,15 Þing-
fréttir. — 'Tónieikar. 19,30 Lesin
dagskrá næstu viku. 19,40 Auglýs
ingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Daglegt
mál (Árni Böðvarsson cand. mag.)
20,35 Kvöldvaka: a) Stefán Júlíus
son kennari flytur frásögu af hafn
firzkum sjómanni, sem víða hefur
siglt. b) Kór Biskupstungna-
manna í Reykjavík syngur ; Magn
Bazar
Sjálfstæðiskvennafélagsins Vor-
boðans í iHafnarfirði verður í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld, og hefst
hann kl. 8,30.
Að undanförnu hefir Austurbæjarbíó sýnt þýzku kvikmyndina
„Dreymandi varir“. Myndin er mjög áhrifamikil og var kvik-
myndasagan birt sem framhaldssaga í Familie-Journal. Með aðal-
hlutverkin fara mjög vinsælir og þekktir Ieikarar. Myndin hér
að ofan er af þeim Maríu Schell, sem þegar er orðin þekkt hér á
landi fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Holl læknir“ og Fritz van
Dongen (Philip Dorn) en eftir honum muna flestir úr kvikmynd-
inni „Ég hef ætíð elskað þig.“
ús Einarsson stjórnar. c) Jón
Sveinsson fyrrum bæjarstjóri seg
ir frá eyfirzkum athafnamanni,
Ásgeiri Péturssyni. d) Ævar
Kvaran leikari flytur efni úr ýms
um áttum. 22,00 Fréttir og veður-(
fregnir. 22,10 Passíusálmur (42).
22,20 Sinfónískir tónleikar (plöt-
ur). 23,05 Dagskrárlok.
Samsöngur kirkju-
kóra i Borgarnesi
BORGARNESI, 30. marz: — S.l.
sunnudag héldu samsöng hér í
Borgarnesi kirkjukórar Akraness
og Borgarness, samtals um 60
manns, undir stjórn Geirlaugs
Árnasonar, sem stjórnaði Akra-
nesskórnum og Halldórs Sigurðs-
sonar, er stjórnaði Borgarness-
kórnum.
Á söngskránni voru 18 lög og
varð að endurtaka mörg þeirra
og ennfremur syngja aukalög.
Undirleik önnuðust Bjarni Bjarna
son og frú Fríða Lárusdóttir frá
Akranesi og frú Stefanía Þor-
bjarnardóttir frá Borgarnesi. Sr.
Leó Júlíusson, sóknarprestur á
Borg, ávarpaði söngstjóra og
söngfólk og þakkaði ágætan söng.
Að síðustu sungu kórarnir sam-
eiginlega þjóðsönginn. Að söng-
mótinu* loknu, bauð kirkjukór
Borgarness Akurnesingunum og
nokkrum gestum til kaffidrykkju
að Hótel Borgarness. Var lengi
petið undir borðum og mikið
sungið og margar ræður fluttar.
Söngmótið verður endurtekið
í Bíóhöllinni á Akranesi n.k.
sunnudag, þann 3. apríl. — Fr.Þ.
AlþjéðaráS
ALÞJÓÐARÁÐ tónskálda heldur
sinn fyrsta aðalfund í London
dagana 3.—5. maí n.k. í boði
brezka tónskáidafélagsins. Fund-
ir alþjóðaráðsins verða haldnir í
„Copyright Iiouse“, salarkynnum
brezka STEFs. Um leið verða
haldnir sérstakir hátíðatónleikar
og ,,ballettar“ sýndir.
Stofnun þessa ráðs var undir-
búin af „Tónskáldafélagi íslands"
og formanni þess Jóni Leifs, og
ráðið endanlega stofnað á Þing-
völlum 17. júní með undirskrift
fulltrúa tíu þjóða.
Alþjóðaráðið er eina alþjóða-
samband tóniistar, sem í eru ein-
göngu tónskáld. Fjórtán lönd hafa
tilkynnt þátttöku sína í aðalfund
inum í London. Stofnskrifstofa
ráðsins hjá Tónskáldafélagi ís-
lands hefir nýlega gefið út í 300
eintökum, skýrslu og fundargerð
stofnfundanna.
v