Morgunblaðið - 31.03.1955, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.03.1955, Qupperneq 16
Veðurúllif í dag: SV og sunnan gola eða kaldi, skýjað. Úrkomulaust. Samfal við sr. Bjarna Sigurðsson á bls. 9. Hargþæ!! hátíðahöld verzl- unarmanna í tilefni a! 100 ára afmæli frjálsrar verrlunar ALDARAFMÆLIS frjálsrar verzlunar á íslandi verður minnst á föstudaginn um land allt, en aðalhátíðahöldin verða hér í Reykjavík. Verzlanir, skrifstofur og bankar verða lokuð allan ailan daginn, sýningargluggar skreyttir og margt til hátíðar. Síð- óegis verður haldin í Þjóðleikhúsinu hátíðasamkoma, veglegt minn- ingarrit verður gefið út, kvöldverðarboð haldið að Hótel Borg og loks verður dagskrá útvarpsins að verulegu leyti helguð afmæl- jnu um kvöldið. Þess er vænzt, að fánar verði dregnir að hún um allt land þennan dag. HÁTÍÐARITIÐ OG DAGSKRA DAGSINS Hátíðarrit dagsins nefnist „fs- lenzk verzlun" og hefur Vil- hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri ritað það, en í því eru einnig nokkur ávarpsorð í tilefni aldar- afmælisins frá forseta íslands. Dagskrá hátíðarsamkomunnar í Þjóðleikhúsinu verður á þá lund, að formaður hátíðarnefdar, Eggert Kdstjánsson aðalræðis- maður, setur hátíðina, Ingólfur Jónsson viðskiptamálaráðherra flytur ræðu, Vilhjálmur Þ. Gísla- son útvarpsstjóri flytur ræðu, en ávörp flytja þeir Erlendur Ein- arsson forstjóri fyrir Samband fsl. samvinnufélaga, Kristján Jónsson kaupmaður fyrir Sam- band smásöluverzlana, Guðjón Einarsson fulltrúi fyrir Verzlun- armannafélag Reykjavíkur og Eggert Kristjánsson fyrir Verzl- tmarráð fslands. Þá syngur Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Sigurðar Þórðarsonar, en Guðrún Á. Símonar og Guðmund- ur Jónsson syngja tvísöng og ein- söngva. Forseti íslands, ríkis- stjórn, sendiherrar erlendra ríkja og margt annarra gesta verða við- staddir hátíðina og verður henni útvarpað. HÁTÍÐIN AÐ HÓTEL BORG Um kvöldið flytja þeir ræður yfir borðum á Hótel Borg, Stein- grimur Steinþórsson, félagsmála- ráðherra, Sigurður Sigurðsson yfirlæknir og Björn Ólafsson fyrr verandi viðskiptamálaráðherra. í dagskrá útvarpsins verður samfelld dagskrá um verzlunar- hætti fyrr og nú, en auk þess flytja þeir ávörp Steingrímur Steinþórsson, Sigurður Sigurðs- son og Björn Ólafsson. HÁTÍÐ VERZLUNARSTÉTT- ARINNAR Verzlunarstéttin stendur heil- steypt að þessum hátíðahöldum. Hér í Reykjavík eru það Verzl- unarráð íslands, Samband ísl. samvinnufélaga, Samband smá- söluverzlana og Verzlunarmanna félag Reykjavíkur, sem tóku höndum saman um að hrinda þeim í framkvæmd. Samtímis þessum hótíðaahöldum hér í Reykjavík fara fram hátíðahöld í stærri kaupstöðum landsins, þar sem sami háttur er á hafður um fyrirkoomuag þeirra. Veerða hátíðahöldin út um land ýmist útihátíðahöld síðdegis og, eða samsæti um kvöldið. Allar vexzlanir um land verða lokaðar svo og skrifstofur, bæði hins opinbera og einkafyrirtækja. Frí verður í skólum og dagsins minnzt þar. Gluggar verzlana verða skreyttir sem fyrr segir og fánar munu hvarvetna dregnir að hún. TÍMARITIÐ FRJÁLS VERZLUN Tímaritið Frjáls verzlun, blað Verzlunarmannafélags Reykja- víkur, kemur út eftir helgina og er það að þessu sinni sérstaklega helgað þessu merka afmæli. Er mjög vandað og fjölbreytt að efni og eiga þar greinar ýmsir þjóðkunnir menn um verzlunar- mál fyrr og síðar. SVR fekkaremi | ferðum SVO er nú komið, að Strætisvagn ar Reykjavíkur verða að fækka ferðum á öRum leiðum allveru- lega þegar í dag. Bifvélavirkjar eru sem kunnugt er í verkfalli, og fá vagnarnir því enga viðgerð eða viðhald og hafa af þeim sök- um mjög týnt tölunni. Einnig er nauðsynlegt að spara eldsneytið, ef verkfallið skyldi ekki leysast á næstunni. — Vagnarnir munu hætta ferðum á tímabilinu frá kl. 8 til 8,40 í kvöld. Samgöngur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar munu enn hald ast óbreyttar frá því sem verið hefir, — eins Kópavogsférðir og Vífilsstaða. j Reykvíkingar reka líka dálítinn sauðfjárbúskap. Einn sauðfjár- eigandinn er Sigmundur Ágústsson á Grettisgötu 23. Hann elur tvær ær og einn hrút í smákofa bak við húsið sitt. Bar hin fyrri þeirra 13. febrúar s.I. og var tvílembd. Á myndinni hér að ofan sést eigandinn með annað lambið, sem nú er orðið nær sex vikna gamalt. Nokkrir krakkar úr nágrenninu eru með á myndinní. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Skipstjórinn á Churchill neitar sakargiftum Konurnar á Eskifirði sögllus! koma olíunni í land ef karl- mennirnir gerðu það MÖNNUM varð eðlilega tíð- rætt um það í gær, er olíu skipið Litlafell losaði olíu á höfnum á Austfjörðum, þrátt fyrir bann það er Alþýðusam- bandið hafði lagt á skipið og farm þess. — Á Eskifirði var það allur almenningur í bæn- um, sem neitaði að fallast á fyrirmæli verkfallsstjórnar og hafði bannið að engu. Þegar Litlafell kom til Eski- fjarðar klukkan 8 á þriðjudags morguninn, var fjöldi manns þar á bryggjunni. Verkalýðs- félagið hafði tilkynnt umboðs manni olíufélags þess er fá átti farminn, að vegna kröfu verkfallsstjórnarinnar, væri olían, sem fara ætti þar í Iand, bannlýst og myndi félagið fara að fvrirmælum verkfallsstjórn manna þar, að forráðamenn verkalýðsfélagsins hafi ekki treyst sér til að verja málstað verkfallsstjórnarinnar, sem leyfir olíu til upphitunar á sjálfu verkfallssvæðinu, Reykjavík, en vill hindra fólk- ið úti á landsbyggðinni í því að fá þcssar nauðsynjar, ekki aðeins til heimilanna heldur og til atvinnulífsins. — Réttláta reiði fólks hér á Eskifirði, vildu verkalýðsforsprakkarn- ir ekki eiga á hættu. Kaupfélagsstjórinn gat þess og að í Neskaupstað hefði los- un olíunnar einnig gengið fljótt og vel, þrátt fyrir bann-1 ið og stjórn verkalýðsfélagsins þar, aðhafðizt ekkert til þess' Skipin stöðvast óðum ÞEIM fer nú ört fjölgandi skip- unum sem stöðvast vegria verk- fallsins hér í Reykjavík. í gær- kvöldi kom Tungufoss að utan og eru þá fimm Fossanna sem stöðv ast hafa. f fyrrakvöld kom Brú- arfoss. Eitt Sambandsskipanna liggur hér, Arnarfellið, sem er með nýtt kaffi frá Brazilíu. í dag mun Katla vera væntanleg. Úthlutna skömmfunarseSla ÚTRLUTUN skömmtunarseðla fyrir næstu þrjá mánuði fer fram í Góðtemplarahúsinu í dag og á mánudag og þriðjudag kl. 10—5. Seðlarnir verða eins og áður af- hentir gegn stofnum, greinilega árituðum. Togarar landa fiski r a að koma í veg fyrir að olían kæmist í land. SIGLUFIRÐI, 29. marz: — Tog- arinn Ingvar Guðjónsson kom hingað í morgun og losaði 90 lestir til S.R. eftir að hafa verið eina viku á veiðum. — M.s. Súlan losar í dag hjá ísafold 40—50 lestir. Allur fiskurinn fer til vinnslu í frystihúsunum. — Guðjón. VESTMANNAEYJUM, 30. marz. SKIPSTJÓRINN á brezka nýsköpunartogaranum Churchill, sem tekinn var í landhelgi í gær, hefir verið hinn harðasti í horn að taka í sambandi við rannsókn máls hans og hefir neitað ákæru skipherrans á varðskipinu Þór um að hafa verið að veiðum innan landhelgislínunnar. JVýtt oiíuskip Sssf ai- ffreiSsiu í HvaiiirSi En eftir er að sjá hvort verkfallsstjórnin lætur sóa gjaldeyri með stöðvun hess í Reykjavík. IGÆRMORGUN kom enn eitt af hinum stóru rúillilandaolíu- skipum hingað til lands. Var það norska skipið Raila, sem mun vera um 12 þúsund tonn. Lagði verkfallsstjórnin nú ekki hindranir í veg fyrir að helming farmsins yrði dælt í land í Hval- firði. Hefur skipið meðferðis olíu fyrir báta. t BER EKKI SAMAN Togarinn Churchill er stór ný- legur Grimsbytogari. Varðskipið Þór sá til togarans á þriðjudag- xnn, og telur skipstjórinn togar- ann hafa verið að veiðum 0,8 Sjóm. innan friðunarlínunnar, skammt austan við Ingólfshöfða. Skipstjórinn á togaranum virð- ist hafa orðið varðskipsins var, því að þegar það stöðvaði hann, var togarinn að veiðum rétt ut- an við línuna, en þá hafði varð- skipið gefið honum aðvörunar- merki um að nema staðar og skotið að honum lausu skoti. Handtaka togarans Churchills byggist á radarmælingum varð- skipsins, en þeir eru tveir og að auki á hornamælingum. Er skip- herrann á Þór kærði togaraskip- Stjórann, John Robert Dore, kvaðst skipstjórinn hvorki hafa verið innan landhelginnar né heldur á veiðum á því tímabili, er skipherrann á Þór til tók. Hér í Vestmannaeyjum tók bæjarfógetinn mál togarans fyrir í dag, en rannsókn var mjög skammt á veg komin, þar eð skip stjórinn á togaranum óskaði eftir því, að yfirmenn á brezka eftir- litsskipinu, sem hér er við land yrðu viðstaddir málaferlin. Og kom það skip hingað til Eyja í kvölcl________— Bj, Guðm. r Ohugstæður um 1L9 mill i. kr. HAGSTOFAN tilkynnti í gær að vöruskiptajöfnuðurinn tvo fyrstu mánuði yfirstandandi árs, sé ó- hagstæður um 17,8 millj. kr. Verðmæti útfluttrar vöru var í janúar og febrúar síðastl. sam- tals 133 milljónir, en verðmæti innflutningsins 144,9 milljónir. í febrúarmánuði varð útflutning- urinn 73,9 milljónir á móti 75,7 millj. kr. verðmæti innflutnings- ins. Þær raddir urðu brátt háværar á bryggjunni, sem kröfðust þess að olíunni yrði dælt í land þar eð yfirvofandi væri olíuskortur í rafstöðinni, sem myndi hafa í för með sér að kauptúnið yrði rafmagns- laust til ljósa og hitunar, en nær öll heimilin eru með raf- magnseldavél. Það væri borgaraleg skvlda hvers að stuðla að bví að olían kæmist í land, einkum þar sem það væri mjög vafasamt að bann verkfallsstjórnar væri réttmætt. Allmargar konur voru á brvggjunni og þær kváðust albúnar þess að leggja hönd að verki, ef karl- mennirnir hyrfu frá. Eftir litla stund tóku menn að und- irbúa löndun olíunnar, tengja slöngur og þessháttar, án þess að fulltrúar verkalýðsfélags- ins á staðnum hreyfðu mót- mælum, og Eskifjörður fékk sinn skammt af oPufarmi skips ins og er nú birgur af olíu um sinn og þeim voða bægt frá dyrum, sem yfir kauptúninu og atvinnulífinu þar vofði. Heimildarmaður Mbl. kaup- félagsstjórinn á Eskifirði, Jón Sveinsson, kvað það skoðun SMERALDA LEYST FRÁ Olíuskipið Smeralda lá í Hval- firði þegar hið nýja skip kom. Varð fyrst að taka það frá bryggju og leysa í sundur tengsl á olíuleiðslum áður en Raila kæmist að, en síðan á dælingin að ganga fljótt fyrir sig. TILGANGSLAUS SÓUN GJALDEYRIS Helmingur farmsins úr Raila átti að fara í olíustöð- ina í Hvalfirði, en hinn helm- ingurinn skyldi fara til Reykjavíkur. Verður nú fróð- légt að sjá hvort verkfalls- stjórnin heldur áfram að setja tilgangslaust bann við löndun olíunnar, þar sem enn munu vera í gildi heit um það að þessari olíu verði ekki dreift út meðan á verkfalli stendur. Getur löndun hennar því eng- in áhrif haft á verkfallið og hlýtur almenningur að for- dæma það að verkfallsstjórn- in láti þannig sóa hundruðum þúsunda króna í biðgjöld fyr- ir skipin. v

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.