Morgunblaðið - 01.04.1955, Page 10

Morgunblaðið - 01.04.1955, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ! Föstudagur 1. apríl 1955 Samvinnuféíögin og verzlunarfreisið , Framh. af bls. 9 áfram við Björgvin og seldu þar vörur sína: sem voru ull, salt- kjöt og gæiur. SKAMMLÍF FÉLÖG Árið 18/8 dó J. A. Blöndal forstjóri Grafarósfélagsins og lagðist félagið þá niður. Borð- eyrarfélagið líka um svipað leyti. Þau félög sem nú hafa verið nefnd urðu ekki langlíf, enda höfðu þau við alla þá örðugleika að etja, sem frelsisbarátta í verzlunarmálum hefir versta átt. En þessi félög voru brautryðj- endur og gerðu mikið gagn. Þau faerðu stórté inn í iandið með betra verðlagi, vöndu menn af undirlægjuhætti við erlenda kaupmenn, sýndu að landsmenn þurftu eigi að sætta sig við skemmdar vörur og urðu að vanda meðí'erð eigin afurða. Þau byrjuðu á því að flytja inn nyt- samleg áhaid og reyndu útflutn- ing lifandi fjár og hrossa til Skot- lands; byrjuðu á því að koma á samgöngurn við Noreg og Bret- land, Þau *estU þá hugsun meðal margra manna, að fyrir því yrði að þerjast þrotlaust að gera verzlunina innlenda. Samvinnu- hugsjþnina höfðu þau vakið, og ruttskarð í valdamúr hinna ríkj- andi verztana COGHILL OG VÖRU- PÖTNTUNARFÉLAGIÐ Méðan Húnaflóafélagið og Gránufélagið voru starfandi byrj aði útflutningur hrossa og sauða til Skotlands. Voru það enskir kaupmenn, sem þar komu við sögu, keyptu hrossin og féð og fluttu út á eigin ábyrgð. Var einn þeirfa, John Coghill að nafni, stórvirkur á þessu sviði, og mjög vinsæll meðal íslendinga, Hann hóf þessa verzlun aðal- lega árið 1875 og hélt henni áfram til dauðadags, en hann dó á leið til íslands 1896. Coghill var í fé- lagi við enskan auðmann. Robert Sliman að nafni. Keyptu þeir fjölda sauða og hrossa í Húna- vatn's- og Skagafjarðarsýslum og víðat um land. Til marks um það hve mikil þessi verzlun var, má geta þess að á mesta harðinda- ári, sem komið hefir síðustu 100 árin,; árinu 1882, geyptu þessir menn 1481 hross og 22370 fjár. Þar af 7849 kindur í Húnavatns- sýslu. Verðið var 54.00 að meðal- tali 'fyrir hrossið og 16.59 kr. fyrir kindina. — Árið 1884 var fjáróerðið hjá Coghill 18—21 kr. fyrir tveggja vetra sauði; 15—16 fyrir geldar ær og 14 fyrir vet- urgamalt fé. Greiðsla fór fram í ensku gulli og vörum, sem byrjað var um þessai- mundir að panta. VÖIÍUPÖNTUNARFÉLAGIÐ Hdnvetningar og Skagfirðingar pöntúðu fyrst í stað vörur hjá Cogliill án skipulags félagsskap- ar nema innan hverrar sveitar. En hinn 15. ágúst 1884 var fund- ur haldinn á Sauðárkróki og stofnað Vörupöntunarfélag Hún- vetninga og Skagfirðinga“. For- maðúr félagsins var kosinn Er- j lendur Pálmason, bóndi i Tungu- nesi og var hann það til dauða- dags; 28. okt. 1888. Með honum í stjórn voru þeir lengst af Óiafur Briem á Álf- j geirsvöllum og Pétur Pétursson á Gunnsteinsstöðum. Féjag þetta byggði vöru- geymsluhús á Sauðárkróki og kostaði það upp komið 2024,75 krónur. Félagið hafði deildaskiptingu eins og siðari samvinnufélög. — Voru deildir bundnar við einn hrepp víðast hvar. Verðhæð pöntunarvörunnar var árið 1884 um 20 þús. kr., 1885 um 53 þús. kr., 1886 um 45 þús. kr. 1887 um 44 þús. kr. Um það bil voru ötulustu deild arstjórar í Húnavatnssýslu þeir; Jón 'Skúlason á Söndum, Björn Frá Húsavík Sigfússon á Kornsá, Jón Guð- mundsson á Guðlaugsstöðum og Guðmundur Gíslason á Bolla- stöðum. Félagið verzlaði aðallega við Coghill og Sliman, en siðan við Zöllner, er varð lengi aðalum- boðsmaður kaupfélaganna. Flest fé var flutt út árið 1890 um 70 þús., en árið eftir féll verð- ið og þá var aðeins flutt út 24 þúsund. Eftir að Erlendur Pálmason féll frá slitnaði sambandið miili Húnvetninga og Skagfirðinga um skipulegan félagsskap. Kaup- félag Skagfirðinga er líka talið stofnað árið 1889. Var formaður þess og aðal leiðtogi Ólafur Briem, alþm. á Álfgeirsvöllum. Ein deild í Húnavatnssýslu, Bólstaðarhlíðarhreppsdeild, var áfram í Kaupfélagi Skagfirð- inga. En viðskipti hennar voru mikil, enda var deildarstjórinn sá ötuli maður Guðmundur Gísla son á Bollastöðum. Aðrar deildir héldu áfram viðskiptum við Cog- hill beint. Var Svínavatnshrepps- deild þar fremst í flokki undir forystu Brynjólfs Gíslasonar í Litladal og Jóns Guðmundssonar á Guðlaugsstöðum, sem þá var formaður Búnaðarfélags Svína- vatnshrepps. Samkvæmt vörubókum, sem enn eru til úr Svínavatnshreppi á árunum 1885—1890, voru það frekar fáar vörur, sem Coghill útvegaði. Þessar eru taldar: hrís- grjón, bankabygg, hveiti, kaffi, sykur, tóbak, steinolía, járn, kol, ljáblöð og brýni. En verðmunur- inn var mikill frá kaupmanna- verði og vörurnar vandaðar. — Coghill seldi þær „cif“ á Sauðár- krókshöfn en félagsmenn önnuð- ust uppskipun. Varð sá kostnað- ur ásamt þóknun til kaupstjór- ans 2% árið 1889. Mundu það taiin góð kaup nú á dögum. í ársbyrjun 1893 var Coghill að mestu hættur vöruútvegun. Gengu þá Svínavatnshrepps- deild og Enghliðingadeiid aftur i Kaupfélag Skagfirðinga. Voru þeirra viðskipti allmikil, einkum hinnar fyrrtöldu, ur.dir deildar- stjórn Jóns á Guðlaugsstöðum, sem einnig tók ýmsa utanhrepps- menn vestan Blöndu í deildina. Eitt árið flutti bann 6000 krónur í peningum heim af aðalfundi K. S., sem deildin átti inni við reikningslok. Þótti það mikið fé í þá daga. Kaupfélag Húnvetninga var stofnað á fundi á Blönduósi 16. desember 1895 fyrir forgöngu þeirra Þorleifs Jónssonar, alþm., sem þá var bóndi á Svðri-Löngu- mýri og Jóns Guðmundssonar á Guðlaugsstöðum. Hafði Þorleifur árið áður flutt hmm í æskubvggð s:na fullur áhuga um félngslegar fram- kvæmdir. Hann varð nú formað- ur og framkvæmdarstjóri hins unga félags og gegndi því starfi bar fil hann flutti úr héraðinu árið 1900. Meðstjórnentíur voru þeir Árni Þorkelsson á Geita- skarði og Benedikt Blöndal í Hvammi. — Við forystunni tók svo Brynjólfur Gíslason í Litla- dal þegar Þorleifur flutti burt. GEITASKARÐ SETT AÐ VEÐI Félagið verzlaði við L. Zöllner fyrstu árin. Fyrir fyrsta láninu, sem félagið tók, kr. 2500 setti Árni Þorkelsson Geitaskarð að veði. Það, sem hér hefir verið sagt sýnir og sannar, að í verzlunar- málum Húnvetninga og Skagfirð- inga hélzt þráðurinn óslitinn frá þvi að Húnaílóafélagið var stofn- að árið 1869 og þar til núverandi kaupfélög tóku við. Breytingarn- ar í baráttunni við örðugleikana á harðindatimabili, voru forms- breytingar meira en efnisbreyt- ingar. Frelsisþráin, félagshyggj- an og sjálfsbjargar viðleitnin, voru vel vakandi og óhvikular hjá hinum mörgu hugsjónasterku bændaforingjum þessara héraða. Kaupfélag Þingeyinga á Húsa- v’’k var stofnað 1882 í mestu harðindunum. Það er því elzta kaupfélag landsins í núverandi mvnd og forystufélag fvrir margar hluta sakir Aðal forvíg- ismenn þess fyrstu árin voru þeir Jakob Hálfdánarson, bóndi á Grfmsstöðum við Mývatn og .Tón Sigurðsson, alþm. á Gaut- löndum. Varð Jakob Hálfdánarson framkvæmdarstjóri félagsins og gegndi þvj starfi um aldarfjórð- ungs skeið. Varð hann frægur af atorku sinni og hyggindum og mun alltaf minnzt sem þýðing- armikils leiðtoga síns merka hér- aðs. Þau hrjú norðl^nzku sam- vinnufélög, sem hér hefiir nokk- uð verið sagt frá: Kaupfélag Hún- vetninga, Kauofélag Skagfirð- inga op KauDfélag Þingevinga, eru að bví levti merkustu sam- vinnufélög þessa lands. að þau eru elzt. Bændumir í þessum héruðum voru brautryðjendur, sem ruddu örðugustu steinunum úr annarra götu. Því er rík ástæða til að rekja sögu þeirra fremur en annarra þegar talað er og ritað um samvinnumál. Á 100 ára afmæli verzlunarfrelsis á Tslandi er líka sérstök ástæða að minnast á þessa menn. Þ"ir voru frelsishetjur og hugsjóna- menn. Barátta beirra var hug- siónabarátta, ekki við innlenda smákaupmenn, heldur við er- lenda verzlun og erlenda yfir- drottnun. STARF BRAIITRYÐJENDANNA Aðal brautrj’ðjandi á byrjun- arárum Kaupfélags Húnvetn- inga, Þorieifur Jónsson frá Stóra- dal, var smábóndi á hálfri jörð. Hann hafði verið ritstjóri Þjóð- ólís um 5 ára skeið og ritað mik- ið um verzlunarfrelsi og sam- vinnufélagsskap. IJndirbúið þar með jarðveginn, ekki einasta í Húnavatnssýslu, heldur og um allt land. Þegar hann svo flytur heim í æskubyggð sina, hefst hann handa um stofnun kaupfé- lags. Það er eitt hans fyrsta verk. Og hann byrjar á því, að fá í lið með sér mág sinn og frænda, Jón á Guðlaugsstöðum og síðan hvern af öðrum. Hann var fulltrúi Hún- vetninga á Alþingi í 14 ár. Hann gerðist fyrsti formaður og fram- kvæmdarstjóri Kaupfélags Hún- vetninga og samtímis varð hann oddviti sveitar sinnar. — Fyrir kaupfélagsformennskuna voru honum ánafnaðar 300 krónur á ári í laun, en hann lækkaði það sjálfur í 200 krónur. Það fékk hann fyrir að annast vöruinn- kaup, sjá um uppskipun, skipt- ingu milli deilda, innheimtu og reikningshald. Reikningana gerði hann á heimili sínu fram í Sól- heimum. Ég nefni þetta, um þennan brautryðjanda, af því að mér er það kunnast. En ég geri ráð fyrir, að eitthvað sviplík hafi verið að- staða hinna helztu forystumanna félaganna í Skagafirði og Þing- eyjarsýslu, þeirra Ólafs Briem, alþm. á Álfgeirsvöllum, Jóns Sig- urðssonar, alþm. á Gautlöndum og Jakobs Hálfdánarsonar frá Grímsstöðum. Allir þessir menn höfðu við svipaða aðstöðu að búa. Sam- gönguleysi, lánsfjárleysi, hús- leysi og harða andstöðu ríkjandi verzlana. Á Sauðárkróki mun fyrst hafa verið bætt að nokkru úr húsleysinu. Það var gert, eins og áður getur, af Pöntunarfélagi Húnvetninga og Skagfirðinga. Öll áttu þessi félög það sam- eiginlegt, að þau voru pöntunar- félög með deildaskiptingu. Skipt var að mestu við enska kaup- sýslumenn. Pöntunarvörurnar komu einu sinni á ári, að vorinu. ÞEGAR PÖNTUNARSKIPIÐ KOM Þegar pöntunarskipið kom á hafnarstað var fljótt uppi fótur 1 og fit um allar sveitir. Formað- ur félagsins sendi ríðandi hrað- boða til allra deildarstjóra og þeir svo hver til allra deildar- manna. Hver deild var boðuð á vissum tíma. Allir bændur í hverju félagi lögðu á sínajáburð- arhesta og flýttu sér eftir ítrustu getu í kauptúnið. Hver varð að hirða strax sína pöntun. Allar vörurnar varð að taka upp og flytja heim. Hjá flestum félags- mönnum var það ársforði að- fluttrar vöru. Þá var enginn sími, engir vegir, engir bílar. Ekki einu sinni kerrur. Engar hafnar- bætur og fyrst engin vöru- geymsluhús fyrir pöntunarvörur. Meðan unt var voru vörurnar greiddar með hestum og sauðum ; er fluttir voru út. En fyrir sauða- útflutninginn tók þegar Bretar settu sitt innflutningsbann árið 1896. Þá var aðeins eftir hrossa- útflutningurinn og ullin en síðar kjöt og gærur af heimaslátruðu fé. Voru þær afurðir fluttar á klökkum í kaupstaðinn. Við alla þessa örðugleika hiima fvrstu byrjunarára var örðugt að etja. En þrautseigja, fyrirhyggja, hugsjónatryggð og manndómur bændanna sigraði þá alla smátt og smátt. Forvígis- mennirnir þekktu af eigin i reýnslu og sögulegri reynslu, að það var ekki ánægjulegt að eiga allt sitt undir náðarvæng er- lendra sölstöðuverzlana. — Þeir vissu, að ekki mundi batna ef hin félagslega frelsisbarátta strandaði og gæfist upp. Öll viðskipti félaganna voru við það bundin, að útvega bænd- unum vörurnar með sem allra lægsta verði og ná sem beztu verði fyrir seldar afurðir. Engin álagning átti sér stað önnur en útlagður kostnaður svo sem: upp- skipun, vextir og hinn sára litli félagslegi sameiginlegi kostnaður, Síðar var svo byrjað á varásjóðs- gjaldi og stofnsjóðsgjaldi. Með þessum hætti urðu viðskiptin mjög hagstæð og munaði miklu frá því er menn höfðu átt að venjast. Félögin urðu því brátt vinsæl og þó margir stæðu utan við í byrjun, þá dró máttinn úr þeirri andúð þegar frá leið. UPPHAF SAMBANDSINS (SÍS) Um og upp úr síðustu aldamót- um fór kaupfélögum að fjölga. Fyrst á Norðurlandi og Vestur- landi, síðan á Austurlandi og síðast á Buðurlandi. Stærstu og þróttmestu kaup- félögin nú, svo sem Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Árnesinga og Kaupfélag Borgfirðinga, eru öll yngri í starfi en hin, sem áður hefir verið lýst. Kaupfélag Ey- firðinga þó elst. Það reis upp með miklum krafti þegar hinn þrótt- j mikli foringi Hallgrimur Krist- ' insson tók við forystu þess. Sá maður, sem á tímabili vann sér mest traust allra samvinnu- . foringja þessa lands. j Fyrsti vísirinn að Sambandi ísl. samvinnufélaga er „Sam- bandskaupfélag Þingeyinga", er stofnað var að Ystafelli 20. febr. 1902 af þremur kaupfélögum Þingeyinga Formaður þess varð Pétur Jónsson alþm. á Gautlönd- um. Árið 1904 urðu formanna- skifti og við tók Steingrímur Jónsson sýslumaður. Árið 1907 gengu í Sambands- félagið: Kaupfélag Skagfirðinga, Pöntunarfélag Fljótsdalshéraðs og Kaupfélag Eyjafjarðar. Var þá nafninu breýtt í „Sambands- kaupfélag íslands". Á aðalfundi 1909 gengu þrjú félög í sambandskaupfélagið: Verzlunarfélag Steingrímsfjarð- ar, Sláturfélag Vestur-Húnvetn- inga og Verzlunarfélag Hrút- firðinga. En þá hafði Pöntunar- félag Fljótsdalshéraðs sent úr- sögn og var að hætta störfum. Árið 1910 var aðalfundur hald- inn á Sauðárkróki. Var þá nafni sambandsins enn breytt í „Sam- band íslenzkra samvinnufélaga", og hefir það haldist síðan. Þá urðu aftur formannaskifti og tók Pétur á Gautlöndum þá við for- mannsstörfum á ný. Árið 1913 gekk Sláturfélag Austur-Húnvetninga í samband- ' ið. Þá gekk Kaupfélag Skagfirð- . inga úr sambandinu en Slátur- j félag Skagfirðinga gekk í það I staðinn. NÝ FELÖG Á aðalfundi Sambandsins á Akureyri 1917 gengu 5 ný félög í Sambandið Þar á meðal Kaup- félag Húnvetninga og Kaupfélag Héraðsbúa. Var á þeim fundi samþykkt að stofna heildsöluna í Reykjavík. Fram að þeim tíma hafði Sam- bandið verið nær eingöngu félags skapur samvinnuféiaganna á Norðurlandi, en verið þó í sam- vinnu við Sláturfélag Suðurlands eins og síðan mun að vikið. En eftir að Sambandið flutti sínar aðalstöðvar frá Akureyri til Reykjavíkur fjölgaði félögunum í því mjög ört og nú munu þau vera orðin 56 með um 30 þúsund félagsmönnum alls. Eru nú starf- andi félög i öllum héruðum lands ins og fleiri en eitt í mörgum. Sama er að segja um flesta eða Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.