Morgunblaðið - 01.06.1955, Blaðsíða 14
14
MORGVNBLÁÐIB
Miðvikudagur 1. júní 1955
-3B
DULARFULLA HÚSIÐ
EFTIR J. 8. PRIESTLEY
Fiamhaldssagan 48
Ungfrú Femm stóð þarna og
hélt hurðinni með annarri hend-
inni og ljósinu með hinni.
„Komið þið hingað“, hreytti
hún út úr sér við Margareti og
Gladys. „Komið hingað með
wiér“.
Margaret, sem titraði og skalf
á beinum, horfði á hana með
skelfingu og gat ekki komið upp
nokkru orði.
„Nei, nei!“ hrópaði Gladvs og
leit ýmist á hana eða Penderel.
Ungfrú Femm gekk aftur á bak.
„Blessaðar verið þið þá hérna,
•— bjánar!“ öskraði hún. Hún
skellti hurðinni á eftir sér og þær
heyrðu, að hún læsti henni.
Margaret hljóp fram og hróp-
aði. „Hún hefur læst henni. Og
Philip er þarna, Philip!“ Hendur
hennar fálmuðu nú við dyrnar.
„Það er ekki til neins. Komið
f burtu“. Penderel var við hlið-
ina á henni, en hann horfði á
Gladys.
„En Philip er þarna með
ófreskjunm“. hrópaði hún aftur.
f>ví næst sneri hún sér að honum
og sagði með kaldhæðni: „Og
hvað ætlar þú að gera?“
„Ég ætla að bíða hérna eftir
liinum manninum", sagði hann
mjög rólega.
Gladys þrýsti sér að honum.
„Nei, nei, þú mátt það ekki,
komdu í burtu.“
1 i „Hlustið. nú megum við engan
tíma missa“, og þegar hann sagði
þetta, færði hann þær þvert yfir
herbergið. „Ég verð að bíða hérna
þanaað til þeir hafa komið Morg-
an fyrir. Hann getur komið niður
á hverri stundu. Og þá verðið
þið að vera farnar.“
„Ég ætla að vera“, hrópaði
Gladys með grátstafinn í hverk-
unum.
„Þú getur það ekki, vina mín“,
sagði hann. „Og við verðum að
ílýta okkur.
„Hvert eigum við að fara?“
spurði Margaret og leit aumingja
lega á hana.
„Hingað inn.“ Hann benti á
hurðina, sem hann hafði opnað
áðan, þegar hann hafði skipt um
föt. Hann mundi eftir, að Ivkill
hafði staðið í skránni að innan-
verðu.
Nú hljóp hann fram og tók
bann út og ýtti þeim inn í her-
bergið, Margareti fvrst. Andar-
tak hélt hann utan um Gladys.
„Fvrirgefið, að ekkert ljós er
handa ykkur. Jú, hérna er ljós.“
Hann flýtti sér burtu og kom
aftur með kertið, sem Philip hafði
haft og rétti Gladvs það. „Ykkur
verður borgið þarna inni.“ Hann
horfði á andlit Gladys, eins og
hann væri að revna að muna það
alltaf. „Þið verðið öruggar hérna.
Bless!“
Áður en þær gátu gert nokkuð
eða sagt nokkuð frekar, hafði
liann lokað hurðinni og læst þær
inni, en skílið lykilinn í skránni.
Ef hann hefði skilið við þær
þannig, að þær hefðu getað kom -
izt út, gat ailt komið fyrír. Hann
gekk mjög hægt og hljóðleea inn
í mitt herbergið. og horfði upp
stigann og hlustaði.
ÞRETTÁNDI KAFEI
Það var eins og tíminn hefði
stöðvast fyrir Penderel, þar sem
liann stóð í anddyrinu. Nokkrum
augnablikum áður, þegar hann
hafði verið að koma konunum
inn í herbergið, hafði honum
/undizt, að hann mætti engan
tíma missa, en núna þegar hann
hlustaði alein milli þessara lætsu
h.urða, fannst honum hann hafa
nægan tíma. Ekkert hljóð heyrð-
ist að ofan. Hann gekk að dyrun-
um, þar sem Morgan, Waverton
og Sir William höfðu horfið inn
um og reyndi að opna hana. Auð-
vitað var hún læst; hann vissi vel,
að hún var læst. Það þýddi það,
i að Waverton og Sir William urðu
' fyrst að gera út af við Morgan,
en síðan urðu þeir að fá lykil-
inn hjá ungfrú Femm, áður en
þeir gátu komizt til hans. Og
• Morgan gæti auðveldlega þvælzt
fyrir þeim góða stund enn. Hann
hlustaði við dyrnar. Óljós, fjar-
læg hljóð heyrðust og þau gáfu
til kynna, að Morgan hafði enn
ekki verið yfirunninn, en átökm
virtust vera í endanum á gang-
inum eða í eldhúsinu. Það heyrð
ist brak í stiganum og hann flýtti
sér inn í mitt anddyrið og hjart-
að barðist í brjósti hans. En eng-
inn var. þar.
I Ef stundin hefði verið komin
og átökin hefðu verið byrjuð,
fannst honum að sér mundi hafa
liðið betur. En nú var ekkert að
gera nema bíða og hlusta á brakið
í gömlu timbrinu og horfa á
hvikulu skuggana og hlusta; og
nú varð hann skyndilega hrædd-
ur,. og honum varð illt. Hann
langaði til að flýja út í mvrkrið
og flýta sér í eitthvert öryggi.
Ean hann gat ekki gert það. því
að ef hann færi núna, mundi öllu
vera tapað. Hann langaði til að
gera eitthvað og hérna var ein-
mitt eitthvað að gera. Hann
sagði ákveðinn við sjálfan sig, að
hann mundi ekki þurfa að bíða
lengi. Það var einkennilegt, en
það var eins og eitthvað inni í
honum fyndizt bara gaman að
þessu og glotti af kaldhæðni af
öllu, hversu bölvuðu ástandi,
sem hann lenti í. Hann hafði tek-
ið eftir þessu í Frakklandi, að
eins og núna, þótt hann væri
hræddur, var alltaf eitthvað hið
innra með honum, sesn ekki var ,
það. Gömul andlit koram í huga
hans, brostu og hurfii síðan; fé- J
lagar sem hann faélt, að hann
hefði gleymt fyrir löngu; sér-
stök herganga. Hann var að
hugsa um að kalla til Gladys. Hon
um mundi ef til víll líða betur
á eftir. Hún mundi skilja. En,
nei, það hafði ekkert að segja.
Hann leit í áttina tíl illa upp-
lýsta stigans, og beið eftir því,
að vitfirringurinn kæmi út úr
myrkrinu, og þá varð eins og
hugur hans skírðist allur. Ekkert
fótatak heyrðist, hann mundi
vera uppi í efri stiganum. Þegar
vitfirringurinn væri kominn nið-
ur, mundi hann auðveldlega geta
sloppið frá honum, og þá yrði
fjandinn laus, nema auðvitað, að
mennirnir tveir kæmu áður. Þar
sem engin leið var önnur niður,
var augsýnilega bezt fyrir hann
að vera uppi, og jafnvel þótt önn-
ur leið væri niður, mundi hann
ekki vera verr settur, því það
tók ekki langan tíma til að kom-
ast aftur til baka. Og því fyrr,
sem hann færi upp, því betra.
Hann gekk áfram, stanzaði
síðan og leit hikandi í kringum
sig. Hann lagði höndina á ennið, I
sem var kalt og þvalt. Var ekki
eitthvað sem hann gæti haft með
sér? Jú, þarna var skörungur,
hann var betra en ekkert. Hann
greip hann hikandi og var á leið-
inni til stigans, þegar honum datt
ljósið í hug. Hann gat ekki tekið
það með sér, það mundi véra of
hættulegt, en ef hann setti lamp-
ann einhvers staðar nær útidyr-
unum, myndi hann gefa meiri
birtu þangað, sem hann ætlaði að
taka sér stöðu — uppi á gangin-
um.
Hann læddist upp, hægt, skjálf-
andi og skugginn breiddi úr sér
fyrir framan hann. Alls staðar
heyrðust smábrestir, ekkert þrep
Hattasýning
Sumartízkan verður sýnd í Þjóðleikhúskiallaranum
laugardaginn 4. júní kl. 4 e. h.
Viðskiptavinir hafið samband við okkur sem fyrst.
Hattaverzlun ísafoldar h.f.
Austurstræti 14.
Bára Sigurjóns.
SKRIFSTOFUSTULKA
Vana skrifstofustúlku vantar oss nú þegar.
Landssamband
islenzkra útvegsmanna
Eignarland
við Selás, Vi ha. að stærð til sölu. Ágæt byggingarlóð.
Upplýsingar gefur Steinn Jónsson hdl, Kirkjulivoli,
sími 4951 á milli 11—12 og 5—6.
ÞAÐ ER EKKI
O. J. & K. KAFFI
BRAGÐAST BETUR
V erzlunarmannaf élag
Reykjavíkur
Fundur
Stúlkur
UM AÐ VILLAST I
verður haldinn í kvöld kl. 20,30 í fundarsal félagsins
að Vonarstræti 4.
Fundarefni: Samningarnir.
Félagar sýni skírteini við innganginn.
Stjórnin.
Hér með tilkynnist viðskiptavinum vorum að við höfum
selt
Sunnubúðinni s.f.
verzlun okkar að Sörlaskjóli 42. Væntum við því, að hún
verð’ viðskipta yðar aðnjótandi 1 framtíðinni.
Stjörnubúðin s.f.
Unglingavinnon í Krísuvík
Drengir í Hafnarfirði á aldrinum 10 og 11 ára, sem
óska eftir að komast í unglingavinnuna í Krísuvík í sum-
ar, láti skrásetja sig á vinnumiðlunarskrifstofunni í ráð-
húsinu í dag og á morgun, 1. og 2. júní til 10—12 árdegis.
Vinnumiðlunarskrifstofan, Hafnarfirði.
Nokkrar röskar stúlkur óskast í prjónaverksmiðju
Ó. F. Ó. nú þegar. — Uppl. í síma 7142.