Morgunblaðið - 19.06.1955, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. júní 1955
acweú
Bandarískir háskóíar vöktu
hrifningu msna
HÉR var nýlega staddur í
boði Háskóla íslands dr. juris
Frede Castberg, rektor Oslóar-
háskóla. Ðr. Castberg er einn af
kunnustu lögfræðingum á Norð-
urlöndum og mikill vísindamað-
ur, einkum í stjórnskipunar
stjórnarfars og þjóðarétti. Er m.
a. kennd bók eftir hann í þjóða-
rétti við lögfræðideild Háskóla
íslands.
★
En dr. Castberg er auk þess
að vera mikill og fjölhæfur vís-
indamaður, einnig hinn bezti
kennari og háskólafyrirlesari og
hefir hann sem rektor Oslóarhá-
skóla unnið mikið og gagnlegt
starf. Setið hefur hann sem full-
trúi lands síns á þingum Samein-
uðu þjóðanna og er lögfræðileg-
ur ráðunautur norska utanríkis-
ráðuneytisins.
Á þriðjudaginn flutti dr. Cast-
berg ágætan íyrirlestur í Há-
skólanum, sem hann nefndi
„Noregur og Vesturveldin“, og
náði ég tali af honum stundar-
korn að loknum fyrirlestrinum.
Dr. Castberg er maður nokkuð
við aldur, fremur lágvaxinn,
grannur og fjörlegur. — Þetta
er fyrsta heimsókn mín til ís-
lands, segir hann og þykir’mér í
senn bæði gaman og fróðlegt að
koma hingað, og fá tækifæri til
þess að skoða Háskólann, sem
mér þykir hin fegursta og
nýtízkulegasta bygging.
MIKLIR IIÁSKÓLAR
— En hvað viljið þér, að ég
tali annars um, segir dr. Cast-
berg og heldur síðan áfram án
þess að þagna: — Kannske að
ég segi yður frá ferðalagi mínu
í Bandaríkjunum, en þaðan er
ég nýkominn.
Ég ferðaðist þar um þvert og
endilangt landið, og kom í fj.ölda
margra háskóla, víst eina tuttugu
talsins. Kynnti ég mér rekstur
háskólanna, kennsluhætti og
menningarlíf eftir föngum. Yfir-
leitt varð ég mjög hrifinn af
bandarísku háskólunum, þeir eru
fagrar byggingar og háskóla-
hverfin öll hin reisulegustu. —
Sumir skólanna eru líka forríkir
og geta eytt miklu fé til þess að
gera stofnanir sínar og kennara-
lið sem bezt og íullkomnast á
öllum sviðum.
— Hvað um kennsluna í fræði-
greinum yðar við bandarísku há-
skólana?
— Stjórnvísindi (political
science) eru kennd við þá flesta
og er kennslan víðtæk og náms-
efnið víða mikíð. Stjórnvísindi
eru mjög á dagskrá í Bandaríkj-
unum, eins og sakir standa, og
er því eðlilegt að háskólarnir
helgi þeim drjúgan hluta kennslu
sinnar. Eiga Bandaríkjamenn
einnig prýðisgóða prófessora í
þeim efnum. Ég kom á þing
bandarískra stjórnvísindafræð-
inga og háskólamanna, sem hald-
ið var í Fíladelfíuborg. Var þar
efnið Öryggi og menning til um-
ræðu. Þar voru íluttar margar
bráðsnjallar ræður og umræð-
urnar voru skarpar og skemmti-
legar, enda ágætir menn, sem í
þeim tóku þátt. Ekki vantaði
gagnrýnina á stjórnarfar lands-
ins eða það, að menn segðu skýrt
og skorinort frá því, sem þeim
þótti miður í stjórnarfarsefnum.
Þótti mér bæði fróðlegt og
skemmtilegt að hlýða á fund
þennan.
ir FRIÐARHORFUR
Annars er staða bandarísku
háskólakennaranna allt önnur og
hvikulli en starfsbræðra þeirra
í Noregi. í Bandaríkjunum getur
stjórn háskólanna venjulega sagt
háskólakennurunum upp starfi
fyfirvaralaust og án mikilla
saka, en í Noregi og öðrum Norð-
urjöndum er ekki hægt að víkja
þeim frá nema með dómi.
— Þér eruð þekktur þjóðrétt-
arfræðingur, dr. Castberg. Hvað
segið þér um friðarhorfur í ver-
segir dr. juris. Frede Castberg,
rektor Oslóarháskóia
Dr. juris. Frede Castberg
öldinni og framtíð Sameinuðu
þjóðanna?
— Lítið get ég sagt um það
efni, enda vil ég ógjarnan spjalla
um utanríkismálin. Hinsvegar
er Ijóst, að S. Þ. er eina virka
tæki mannkynsins til þess að
afla því varanlegs friðar, og upp
á síðkastið virðast fnðarhorfur
hafa aukizt nokkuð.
Að lokum vænti ég þess, segir
dr. Castberg, að við munum fá
tækifæri til þess að hitta rektor
Háskóla íslands á næsta norræna
rektorsfundinum, sem haldinn
verður að ári. Þótt ekki liggi
kannske til þessa sjáanlegur ár-
angur eftir þá fundi, er þó allt
Knowlsnd vill verða
varafoneíi
í ramh. af bls. 1
Á fundi sxnum með blaða-
mönnum fyrir nokkru minntist
Eisenhower á aðferðir flokkanna
við útnefningu varaforsetaefna
og sagði, að hann teldi sjálfsagt,
að sá maður, sem hlotið hefði út-
nefningu sem forseti fengi mestu
um það ráðið hver verður í
kjöri sem varaforseti. Þetta sé
nauðsynlegt vegna þess að ekki
sé gerlegt að stjórna landi eins
og Bandaríkjunum nema með
náinni samvinnu hinna æðstu
manna.
Við forsetakjörið árið 1952
gerði Eisenhower ekki tilraun til
þess að fá því ráðið, hver yrði í
kjöri með honum, sem varafor-
seti, og ber hann því við nú, að
þetta hafi stafað af því, hve ó-
kunnugur hann var stjórnmálum
og stjórnmálamönnum. En hann
skrifaði á biað nöfn fimm til sex
manna, sem hann taldi heppi-
lega til starfans. Meðal þessara
nafna var nafn Nixons, núver-
andi varaforseta og einnig nafn
Knowlands. En frá því árið 1952
hefir Knowland stöðugt verið að
fjarlægjast Eisenhower og nú er
svo komið að hann leggur á það
höfuðkapp að komast í sæti Ro-
berts Tafts, hægrileiðtogans,
sem var andstæðingur Eisen-
howers við útnefninguna í repu-
blikanaflokknurn árið 1952. Er
talið að Knowland muni ekki
hika við að gefa kost á sér sem
forsetaefni republikanaílokksins
á næsta ári, ef Eisenhower
ákveður að draga sig í hlé En
við Eisenhower þýðir engum úr
republikanaflokknum að keppa
um forsetatignma.
Fari svo að Eisenhower gefi
ekki kost á sér, eru ýmsir aðrir
en Knowland tilnefndir sem for-
setaefni republikana, svo sem
Warren, forseti hæstaréttar
Bandaríkjanna, og Knight,
landsstjóri í Kaliíorníu.
af gott og gagnlegt fyrir okkur
að koma saman til skrafs og ráða
gerða um sameiginleg hugðar-
efni og vandamál.
ggs.
lEeim
í heimsókn hér
DAGINN fyrir þjóðhátíðina
komu hingað til landsins 12
blaðamenn á vegum Atlantshafs
bandalagsins. Þeir verða hér þar
til í byrjun næstu viku. Á þjóð-
hátíðardaginn voru þeir hér í
Reykjavík. Héðan fara blaða-
mennirnir til Bretlands.
Blaðamennirnir eru: Danmörk:
Árne Riis Flor — Social Demo-
kratisk Provinspresse. Frakk-
land: Mr. Serge Montigny —
Combat, Mr. Roland Delcour —
Le Monde, Grikkland: Mr. Nicol-
as Lindardatos. Ítalía: Mr. P. A.
Quarantotti Gambini — II Tempo
Luxemburg: Mr. Jeoseph Hanck
— Journal d’Esch, Portugal Miss
Maria Simas —Novidades, Tyrk-
land: Mr. Ecvet Guresin —
Cumhurieyt, Mr. Kemal Baglum
— Vatan. Þýzkaland: Mr. Dieter
Cycon — Stuttgarter Zeitung, Mr.
Frank Drexler — Der Abend
(Berling), Mr. Max Schulz-Vor
berg — Bayerishe Rundfunk.
Sundlaug í Borgar-
nesi
BORGARNESI, 18. júní: — Við
þjóðhátíðarhöldin hér var það
einn helzti viðburðurinn, er sund-
laugin nýja var tekin formlega
í notkun. Er þetta útisundlaug
12,5 m löng og er vantið í henni
hitað upp með rafmagni.
Hátiðahöldin fóru fram í Skalla
grimsgarði, en þar flutti messu
séra Eiríkur Gunnarsson prestur
í Reykholti. Þaðan var gengið að
nýju sundlauginni og var hún
tekin formlega í notkun, með því
að 42 börn, sem nýlega höfðu lok-
ið sundnámi á námskeiði þar í
lauginni. Formaður sundlaugar-
nefndar hélt ræðu og lýsti að-
draganda sundlaugabyggingarinn
ar. Hugmyndin er að hún verði
síðar gerð að sundhöll Borgar-
ness. Þá söng blandaður kór und
ir stjórn Halldórs Sigurðssonar,
en síðan hélt íþróttafulltrúi, Þor
steinn Einarsson, ræðu. Lauk þess
ari athöfn með því að sundkapp-
ar frá Reykjavík höfðu sundsýn-
ingu, sem áhorfendur þökkuðu
með lófataki. — Friðrik.
Regnhlífarnar komu í góðar þarfir 17. iúní.
— ÞjóshátíðardogskvöMið
Þýzkur yfirhen-
BONN, 18. júní: — Ileusinger
hershöfðingi hefir verið skipaður
yfirhershöfðingi þýzka hersins,
sem stofnaður verður á þessu
ári. Heusinger starfaði í þýzka
herráðinu í síðasta stríði, en
Hitler lét handtaka hann árið
1944, þar sem hann var grunað-
ur um andnazistiska starfsemi.
Heusinger er 58 ára gamall.
Tríchlorhreinsum
Framh. af bla. 1
götum, enda var veður hlýtt, þó
ekki væri sólskin. — Þarna var
skemmt með harmonikkuleik, sem
10 ára drengur annaðist við góð-
ar undirtektir. Klykkti hann út
með því að leika lítinn vals eftir
sjálfan sig. Við mikla hrifningu
sýndu ungar leikfimistúlkur úr
Ármanni og hópur telpna sýndi
þjóðdansa. — Illilegur ásýndum
með blikandi öxi sína í hendi óð
Skuggasveinn fram á pallinn, en
þar höfðu áður látið til sín taka
vinnumenn úr Dal, Jón sterki, sem
lagði þegar á flótta og höfðu börn
in gaman af að sjá þau snöggu
umskipti sem orðið höfðu á kapp-
anum. — Þessi þáttur úr Sugga-
sveini tókst vel
Lúðrasveitirnar Svanur og
Lúðrasveit Reykjavíkur léku fyrir
skrúðgöngunum og við skemmtan-
irnar. Þeim fer nú mjög fram
með hverju árinu.
Á ARNARIIÓLI
Um klukkan hálf átta kom loks
að því, sem menn höfðu óttast
allan daginn, að það fór að rigna.
Himininn hafði verið skýjaður fi'á
því um morguninn og gerðist æ
þungbúnari eftir því sem leið á
daginn. Hátíðahöldin á Arnarhóls
túninu eða kvöldvakan, eins og hún
var nefnd í dagskránni, hófst kl. 8
Lúðrasveit Reykjavíkur, undir
stjórn Paul Pampichlers, lék fyrir
og á milli atriða, Pétur Sæmund-
sen skrifstofustjóri setti kvöldvök-
una fyrir hönd hátíðarnefndar. —
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
flutti snjalla ræðu, Karlakórarnir
Fóstbræður og Karlakór Reykja-
víkur og Þjóðkórinn og óperu-
söngvarar sungu.. K.R.-ingar
sýndu leikfimi og Karl Guðmunds
son flutti skemmtiþátt.
DANS.AÐ I REGNI
Arnarhóll var þéttskipaður fólki
svo hvergi sást á grænan díl, en
þó hefur hóllinn sjálfur sjaldan
verið litskrúðugri, regnhlífar í
flestum litum og skrautleg regn-
klæði hvar sem litið var.
Að loknum hátíðahöldunum á
Arnarhóli, um kl. 10, var tekið til
við dansinn og það heldur hraust-
lega, þrátt fyrir ömurlegt veður.
Dansstjóri var Erlendur Péturs-
son að vanda og mun engum öðrum
manni farast það embætti jafn vel
úr hendi. Fjölmennar og fjörugar
hliómsveitir voru á Lækjartorgi,
á Hótel íslands lóðinni og í Lækj-
argötu. Með þeim rauluðu dægur-
lagasöngvarar og gerðu sitt til að
auka á ánægjuna. Dansinn upp-
hófst hinn fjörugasti þegar í stað,
þrátt fyrir að nú var komínn úr-
hellis rigning. Stúlkurnar brugðu
bara regnhlífunum yfir höfuð sér
og dansherra síns og áfram var
lipurlega dansað á regnvotri göt-
unni. Fjöldi fólks gekk fram og
aftur eftir Lækjargötunni og Aust
urstræti milli dansstaðanna, en
götunni hafði verið lokað fyrir
bílaumferð. Ofan til úr Banka-
stræti voru göturnar á að líta
sem litskrúðugt blómahaf, er þar
sem regnhlífarnar sáust hvarvetna
á lofti.
LEIÐ DRYKKJA
Þegar leið frá miðnætti tók að
bera nokkuð á fulldrukknum
mönnum og sumum ofurölva.
Er leitt til þess að vita, að menn
geti ekki haldið Þjóðhátíðina alls-
gáðir, án þess að blóta Bakkusi í
sama mund. Var þó Áfengisverzl-
unin lokuð 16. júní.
Hátíðinni lauk að venju kl. 2 á
aðfaranótt 18. júní og sleit Þór
Sandholt formaður Þjóðhátíðar-
nefndar henni. Var þá orðið held-
ur þunnskipað á götunum, enda
hellirigning. Kaupmenn tóku
skjótt upp búðir sínar og hurfu
hljóðlega á braut með föggurnar,
verkamenn leystu niður fána og
vefjur og innan skamms hafði
Reykjavík tekið á sig hversdags-
búning á nýjan leik og kyrrð færð
ist yfir götnrnar.
Mikið úrva! af trúlofunar-
hringjum, steinhringjum,
eyrnalokkum, hálsmenum,
skyrtuhnöppum, brjóst-
hnöppum, armböndum o. fl.
Allt úr ekta gulli.
Munir þessir eru smíðaðir
1 vinnustofu minni, Aðalstr.
8, og seldir þar. Póstsendi.
KJARTAN ÁSMUNDSSON
gullsmiður.
Sími 1290 — Reykjavík.
Sólvallagötu 74. Sími 3237.
Barmahlið 6.
HRINGUNUM
FRÁ