Morgunblaðið - 29.06.1955, Qupperneq 1
1§ ssður
43. árgangar
143. tbl. — Miðvikudagur 29. júní 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Perón kvæntist
19 dra stúdínu
K
Rio De Janeiro, 28. júní. Frá U.P.
AÞÓLSKI presturinn Jóse Fernandez, sem flúði eftir
byltinguna 16. júní frá Argentínu, „til þess að skýra
veröldinni frá sannleikanum um föðurland mitt“ eins og
klerkur sagði, hefur skýrt svo frá, að í febrúar eða marz
í vetur hafi forseti Argentínu, Juan Peron, gengið í leyni-
legan hjúskap og hafi kvonfang hans verið 19 ára yngismey
úr argentínsku stúdentasamtökunum, þokkadís hin mesta.
Samkvæmt frásögn Fernandez heitir brúðurin Laura del
Solar og er félagi í Union de Estudiantes Secundiantes Femenina,
en svo munu stúdentasamtök landsins nefnast á máli þarlendra.
Fernandez segir, að ráðgjöfum forseta hafi verið brúðkaupið kunn-
ugt, en þjóðinni sé leynd því, sökum minningarinnar um Evu Peron,
sem var hinn mesti forkur og yfirmáta vinsæl af alþýðu.
ic Vígslan á að hafa farið fram fyrir borgardómaranum í Sao
Fernando eða Vincente Lopez.
# BUENOS AIRES. — 16 ráðherrar í stjórn Perons hafa nú dregið
sig í hlé og er þess vænzt, að ný stjórn verði mynduð innan fárra
daga. Margir æðstu embættismenn og ráðgjafar landsins hafa
einnig látið af embætti. í útvarpsi'æðu, sem Peron flutti um helg-
ina, nefndi hann ekki einu orði hina nýju stjórnarmyndun né fram-'
tíðaráform sín.
• Hann ræddi einungis uppreisnina og ásakaði háttsetta her-
íoringja og virðingarmenn, bæði geistlega og verslega, um að hafa
blásið að glóðum byltingarinnar. Sagði hann, að höfðingi land-
gönguliðs flotans hefði verið potturinn og pannan í byltingunni,
en hann heitir Calderon og er flotaforingi að tign og stöðu.
• Sagði Peron, að nákvæm áætlun um byltinguna hefði
fundizt undir gólfábreiðunni í skrifstofu flotaforingjans. —
Samkvæmt þeirri áætlun átti að stökkva stjórninni frá völd-
um og ráða Peron forseta af dögum.
Hér sést Daninn Knud Gleie sem í gærkvöldi setti nýtt heimsmet í 100 m bringusundi í Sundhöllinni
í Reykjavík. Hann er frægasti sundmaður sem hefur heimsótt ísiand, en samt var Sundhöllin aðeins
hálfskipuð áhorfendum. Á fimmtudagskvöldið Iýkur mótinu og þá hyggjast þeir Gleie og Tikka gera
aðra tilraun til að bæta heimsmetið í 100 m bringusundi. Á fimmtudaginn verður forsala á aðgöngu-
miðum í Bókaverzlun ísafoldar Austurstræti. Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Heimsmet i
Sundhöllinni
Pétur Townsend í Höfn
Hjúskaparmálin ekki rædd
Kaupmannahöfn, 28. júní.!
k FÖSTUDAGINN kom glæsi-
l\. legasti „jungherra" vei’aldar
(að því er brezkar stúlkur telja)
í tveggja daga heimsókn til
Kaupmannahafnar. Það var flug-
hetjan og eðalmaðurinn Þétur
Townsend, sem öll sólarmerki
benda til að muni innan tíðar
kvænast drottningarsysturinni af
Englandi, Margréti Rósu.
Pétur Townsend er 40 ára
gamall og vann sér landsfrægð
í Bretlandi fyrir hreystilega
framgöngu sína í loftorrustunni
um landið í heimsstyrjöldinni.
Síðar varð hann ráðsmaður kon-
ungs og fyrir tveimur árum fóru
hann og Margrét að stinga sam-
an nefjum svo auðsætt var að
ástarbrími lá að baki.
Frh. á bls. 12.
Doninn Knnd Gleie setti þnð í 100 m bringnsnndi
SUNDHÖLLIN í Reykjavík varð í gærkvöldi vettvangur heimstíðinda á sviði
íþróttanna. Daninn Knud Gleie setti nýtt heimsmet í 100 m bringusundi. —
Synti hann vegalengdina á 1:10,9 mínútum. Staðfesta heimsmetið átti Rússinn
Minachin og var það 1:11,2 mín. Pólverjinn Petrusivic hefur hins vegar náð 1:10,9
mín. og fékkst sá tími staðfestur sem Evrópumet, en hefur ekki fengizt staðfestur
af alþjóðasundsambandinu sem heimsmet. Það afrek vann Pólverjinn fyrir tveim-
ur arum.
Harkaleg gagnrýni
á þýzka herinn
IDAG fóru fram umræður um herkvaðningarfrumvarp vestur-
þýzku ríkisstjómarinnar í neðri deild sambandsþingsins. —
Fjallar það um kvaðningu sjálfboðaliða. Theódór Blank hermála-
íáðherra flutti framsöguræðuna með frumvarpinu og skýrði frá
tillögum stjórnarinnar, stefnu hennar í hermálum og lagði til að
frumvarpið yrði samþykkt.
Adenauer til Moskvu í september
Frá Reuter NTB
Bonn, 28. júní:
yESTUR-ÞÝZKA sam-
bandsstjórnin mun að
öllum líkindum afhenda
Sovétstjórninni skilaboð um
miðja þessa viku, sem eru
svar við heimboði Sovét-
stjórnarinnar dr Adenauer
til handa.
Samkvæmt því, sem
fregnir í Bonn herma hef
ir dr. Adenauer faiiizt á
það að heimsækja
Orðsending um förina í vikunni
Moskvu til þess að ræða
um upphaf stjórnmála-
legrar, viðskiptaleg'rar og
menningariegrar sam-
vinnu milli Þýzkalands
og Sovétríkjanna.
ENGIN SKILYRÐI
Auk þess mun vestur-þýzka
stjórnin taka ýmis almenn vanda
mál til umræðu í oi’ðsendingu
sinni, m. a. um heimsendingu
þeirra stríðsfanga, sem enn sitja
í dyflissum í Rússlandi, landa-
mærahindranir, sem Sovétstjórn-
in heldur enn fram í Þýzkalandi
og framferði rússnesku landa-
mæralögreglunnar. Eftir því sem
bezt er vitað er þó lausn ein-
hverra þessara mála ekki gerð að
skilyrði fyrir því að dr. Aden-
auer haldi til Moskvu. Er gert
ráð fyrir því, að hann geri för
sína þangað í september.
FLUGLEIÐIS
Líkast til mun dr. Aden-
auer fljúga til Moskvu í hlénu,
sem verður eftir að sérfræð-
Frh. á bls. 12.
Að ræðu hans lokinni hófust
Framh. a bls. 12
Dr. Adenauer.
Hvað skeður í Moski
Bringusundið var 7. sund-
grein kvöldsins og var aðal-
keppnin á milli Gleie og Finn-
ans Tikka. Gíeie synti í kafi
fyrstu 25 metrana og vel út úr
snúningnum. Synti síðan allt-
af afog til í kafiog nýtti handa
tök sín ’ ið það til hins ítrasta.
Smaug hann vatnið með ógn-
arhraða. Allan tímann átti
hann í hörkukeppni við Finn-
ann, sem veiíti honum harða
keppni, enda synti hann á
nýju finnsku meti.
Starfsmönnum mótsins var í
fyrstu ekki fyllilega ljóst að
hér hafði hvorki meira né
minna, en heimsmeti verið
hnekkt. Og ósköp glaðir til-
kynntu menn Norðurlanda-
met. Skrá yfir heimsmet var
ekki til staðar í Sundhöllinni,
en hún var sótt í skyndi, en
kom ekki fyrr en mótinu var
lokið, svo áhorfendur fiestir
voru farnir glaðir heim, án
þess að vita um heimsmetið.
Gieie var ekki mikið þreytt-
ur. Hann hvíldi sig 10—15
mínútna skeið og tók svo þátt
* í síðustu sundgrein kvöldsins
4x200 m boðsundi, sem lauk
með sigri íslands
Gleie varð að sjálfsögðu
hrókur aiis fagnaðar. Þessi
geðþekki 19 ára gamli Danf,
kunni vel að taka gleðitíðind-
unum — var stiltur vel, en
gladdist þó sýniiega.
Frh. á bls. 2.