Morgunblaðið - 30.06.1955, Page 8

Morgunblaðið - 30.06.1955, Page 8
24 MORGUNBLAOiÐ Fimmtudagur 30. júní 1955 Frétta-sjónvarp er dýrt Svissnesk sirandföf. Khöfn, í maí 1955. MARGIR merkustu ritstjórar heimsins voru saman komnir í Kaupmannahöfn þegar Alþjóða blaðastofnunin (International Press Institute eða IPI) hélt þar hið 4. ársþing sitt í þessum mánuði. Þetta er ung stofnun, ekki nema 4 ára gómul. IPI hélt fyrsta þing sitt í París (árið 1952), hið næsta í Lundúnum (1953) og þriðja þingið í Vín- arborg (1954). Nálega 700 ritstjórar, sem ann- ast útgáfu 450 blaða í 30 lönd- um, hafa gerzt aðilar þessarar stofnunar. Ennþá er þó enginn íslendingur meðal þeirra. Eljas Errko, aðalritstjóri „Helsingin Sanomat" í Helsingfors, er for- seti IPI, sem á aðalaðsetur í Zúrich. E. J. B. Rose, fyrrum einn af ritstjórum „Observers", er forstjóri þessarar stofnunar, en Svisslendingurinn Padel er aðalritari hennar. Á þinginu í Kaupmannahöfn mættu 170 ritstjórar frá 20 lönd- um í Evrópu, Ameríku, Asíu og Ástralíu. IPI vinnur fyrst og fremst að því að tryggja prentfrelsið og auka samiyndi milli þjóðanna. Padel skýrði blaðamönnum í Kaupmannahöfn í stuttu máli frá starfi stofnunarinnar. Hann er sagnfræðingur en hefur líka stundað blaðamennskunám við háskóla í Bandaríkjunum. PRENTFRELSIÐ SÉ f HEIÐRI HAFT Padel sagði m. a.: Starfsemi IPI nær eingöngu til þeirra landa, þar sem prent- frelsið er viðurkennt. Ritstjórar í einræðislöndunum, þar sem ekki er um neitt frelsi að ræða, geta ekki verið aðilar að IPI. í þeim löndum, sem viður- kenna prentfrelsið, getur komið fyrir, að valdhafarnir skýri það á annan hátt en blöðin sjálf gera. Við höfum dæmi þess, að ríkis- stjórnirnar reyni að hafa áhrif á blöðin á þann hátt, að það er ekki samrýmanlegt því frelsi, sem blöðin eiga að njóta. Þegar þetta kemur fyrir, þá reynum við að veita hlutaðeigandi blöð- um aðstoð. Ég skal nefna dæmi frá Pakist- an. „Times“ í Karachi réðist óþyrmilega á ríkisstjórnina og sagði m. a., að hún bryti í bág við siðferðislega lífsskoðun þjóð- arinnar. Ritstjóri blaðsins var tekinn fastur vegna þessara árása. IPI skýrði heimsblöðunum ítar lega frá þessum viðburði og sendi seinna ummæli þeirra til Pakistan. Þegar ríkisstjórnin þar í landi sá, hve illa þetta mæltist fyrir, þá var ritstjórinn látinn laus. GÓÐ SAMBÚÐ MILLI ÞJÓÐA Við leggjum líka mikla áherzlu á að skapa góða sambúð milli þjóðanna, sagði Padel ennfrem- ur. Fyrir nokkrum árum gekkst IPI fyrir því, að franskir og þýzkir ritstjórar hittust 1 bygg- ingu Evrópuráðsins í Strasbourg og ræddu ýmis þýðingarmikil ágreiningsmál. Við höfðúm fyrir- fram safnað saman upplýsingum um misskilnine og rangfærslur, sem komið höfðu fram í frönsk- um og þýzkum blöðum. Ég held að þessar viðræður hafi skapað betri skilning í blöðum beggja landanna. Þessa dagana hittast brezkir og bandarískir aðalrit- stjórar í Lundúnum. Væntum við góðs árangurs af viðræðum þeirra. Öllum ætti að vera ljóst, að blöðin ráða miklu um það, hvernig tekst að skapa aukinn skilning og betri sambúð milli þjóðanna. Öll heiðarleg blöð gera sér far um að flytja sannar frétt- ir. En þetta er ekki nægilegt. það er líka nauðsynlegt, að þýð- ingarmiklum atriðuim sé ekki sleppt, þótt annars sé sagt rétt írá. Blöðin eiga að gefa lesend- Það örfar lestur blaðanna eftir Pál Jónsson fréttoritara Morgunblaðsins i Kaupmannahöfn unum glögga hugmynd um það sem gerist, ekki bara segja frá viðburðunum, heldur líka skýra frá því, sem hefur leitt til þeirra. Ég get t. d. nefnt Klaksvíkur- málið. Blöðin í Sviss sögðu frá því, að dönsk lögregla hefði ver- ið send til Færeyja, og að Klaks- víkurbúar byggjust til varna. En okkur var ekki skýrt frá því, að Klaksvíkurbúar vildu að Halvor- sen yrði áfram læknir þeirra, en þetta virðist hafa verið hin upp- runalega orsök deilunnar, sagði Padel að lokum. AFSTAÐA RÍKISSTJÓRN- ANNA TIL BLAÐANNA IPI-þingið í Kaupmannahöfn ræddi ýmis mál, m. a. afstöðu ríkisstjórnanna til blaðanna. Claude Desjardins, ritstjóri blaðs ins ,Le Parisien libéré", hóf um- ræður um þetta efni. Hann sagði, að frönsku blöðin njóti víðtæks frelsis, en vægast sagt óheppi- leg ríkisafskipti af skrifum blað- anna geti þó komið fyrir. — Desjardins minntist á franska blaðamanninn Roger Stephane, sem skrifaði grein um Indó- Kína í blaðið „France-Observa- teur“. Greinin var skrifuð eftir að friður komst á í Indó-Kína. f grein þessari sagði Stephane frá leynilegum viðræðum, sem fóru fram áður en Dien Bien Phu féll. Stephane var tekinn fastur en enginn skipti sér af þeim embættis- og stjórnmála- mönnum, sem höfðu gefið hon- um þessar upplýsingar. Frönsku blöðin mótmæltu þessu framferði valdhafanna, og handtekningin mæltist illa fyrir meðal almenn- ings. Stephane var því látinn ’aus og var ekki höfðað mál á móti honum. En Desjardins fannst mjög varhugavert, að svona viðburður gæti komið fyrir. PRENTFRELSIÐ SKERT í SUÐUR-AMERÍKU German Arciniegas talaði um ástandið í Suður-Ameríku. Hann var áður ritstjóri blaðs í Bogota í Colombíu, en valdhafarnir flæmdu hann burt frá blaðinu. í Suður-Ameríku búa 170 millj. manna, sagði hann. Það eru langt um fleiri íbúar en í Bandaríkj- unum í Norður-Ameríku. 60 milljónir manna í S.-Ameríku búa í löndum, þar sem blöðin eru ekki frjáls. Örlög argentínska stórblaðsins „La Prenza“ eru öllum kunnug. En Evrópumenn vita líklega ekki, að 100 önnur blöð í Argentínu hafa verið bönnuð, þ. á. m. mörg þýðingar- mikil blöð, sem komu út í ýms- um borgum. Valdhafarnir hafa ekki aðeins bannað blöðin. Sum- staðar hafa þeir selt prentsmiðj- urnar á uppboði, og margir blaðamenn hafa verið teknir fastir. Kommúnistar hafa lítil áhrif í Suður-Ameríku, sagði Arciniegas. En ef íbúarnir í Argentínu, Paraguay, Bolivía, Venezuela o. fl. löndum eiga að búa áfram við þetta ófrelsi, þá er ég hræddur um, að „Austur- asíuástand" skapist með tíman- um í Suður-Ameríku. Donald Tyerman frá „The Times“ í Lundúnum benti á, að það er ekki bara ríkisvaldið, sem getur stofnað prentfrelsinu í voða. Hann minntist á verkfall- ið í Lundúnum, sem stöðvaði út- komu blaðanna í heilan mánuð. í fyrsta sinn síðan 1785 gat „Times“ ekki komið út. Verk- fall 700 manna gerði að verk- um, að 20 milljómr manna gátu ekki fengið blöð. Þetta má ekki koma fyrir aftur. Prentfrelsið er ekki aðeins réttindi sem okk- ur eru veitt. Því fylgja líka skyldur til að segja fólki frá því sem gerist. Prentfrelsið og þjóð- frelsið eru óaðskiljanleg, sagði Tyerman. VERKFOLL EÐA VERKBONN STÖÐVA EKKI ÚTKOMU BLAÐA Allan Hernelius frá „Svenska Dagbladet“ benti á, að útgefend- ur blaðanna og verkamenn í Svíþjóð hafa gert með sér samn- ing, sem tryggir, að verkföll eða vinnubönn stöðvi ekki útkomu blaðanna, Samkvæmt þessum samningum á gerðardómur að leysa allar kjaradeilur milli verkamanna og blaðanna. Báðir aðilar eru ánægðir með þessi ákvæði. Þau hafa reynzt svo vel, að samningurinn var fyrir skömmu framlengdur til ársins 1962. Fannst mönnum þetta fyr- irkomulag gott fordæmi til eftir- breytni í öðrum löndum. SJONVARPIÐ Walter Cronkite frá „Colum- bia Broadcasting System“ í Bandaríkjunum hóf umræður um fréttasjónvarpið og blöðin. Hann sagði: Það eru nú 500 sjónvarps- stöðvar í Bandaríkjunum. 10—12 milljónir Bandaríkjamanna sjá daglega sjónvarpsfréttir. Við get- um sjónvarpað kvikmyndum af viðburðum í Evrópu daginn eftir að þeir gerast. Fréttasjónvarpið er mjög vinsælt. Það getur gefið mönnum á 60 sekúndum greini- legri hugmynd um viðburði en hægt er að gera í þriggja dálka blaðagrein. Cronkite sýndi áheyr endunum sjónva.'psmyndir af yfirheyrslum hjá McCharty. Gáfu þær óneitanlega betri hug- mynd um þennan mann og bar- dagaaðferðir hans en langt skrif- að mál. En sjónvarpsfréttir eru dýrar, sagði Cronkite ennfremur. 15 mínútna fréttir á dag kosta 40 þús. dollara á viku og stund- um meira en það. Þegar kjarn- orkusprengjan var sprengd fyrir skömmu í Nevada-eyðímörkinni, þá‘ urðu ljósmyndarar okkar að bíða þar 9 daga eftir sprenging- unni. Þessi bið kostaði okkur 25 þús. dollara á dag. Við erum ekki keppinautar blaðanna. Sjónvarps fréttir eru einskonar viðbót við fréttir blaðanna, en geta aldrei gert þær ónauðsynlegar. Margir tóku til máls um þetta efni. Voru ræðumenn sammála um, að fréttasjónvarp sé ekki dagblöðunum hættulegt heldur þvert á móti gagnlegt. Bandaríski ritstjórinn Carl Lindstrom sagði m. a.; Þegar lesendur blaðanna hafa séð viðburði í sjónvarpi, þá geta þeir sjálfir dæmt um, hvort blöð- in segi rétt frá þessum viðburð- um. Þess vegna verða blaða- mennirnir að vera vandvirkari en áður. Ég held, að fréttasjón- varp taki ekki lesendur frá okk- ur. Þvert á móti má ætla, að blöðin fái ennþá fleiri lesendur en áður. Sjónvarpsfréttirnar auka áhuga fyrir blaðalestri. Ég hef t. d. heyrt talað um margar húsmæður, sem aldrei hafa haft áhuga á íþróttakeppni en sjá þær nú í sjónvarpi og lang- ar til að lesa meira um íþrótt- ir í blöðunum. Þar að auki hafa blöðin upp á margt að bjóða, t. d. fjölskyldudálkinn, sern flestir lesa, en ekki sést í sjónvarpi. Ég held, sagði Cronkite, að frétta- sjónvarpið sé aðeins aukaþáttur í sögu „blaðamennskunnar". Páll Jónsson. Strandfötin að ofan eru eftir svissneskri fyrirmynd. Skemmtilega röndóttar skyrtur við stuttar buxur úr sama efni. — Hentugar bæði til varnar of miklum sólbruna — og kulda. — Hún er oft svöl, golan í Nauthólsvíkinni okkar. Úr Biskupstungum: Embættismenn lóla ai störíum — Hvítórbrú við Iðu — From- hvæmdir í Skúlholti — Sogs- raímagn — Léleg spretta BISKUPSTUNGUM, 24. júní: — S.l. sunnudag var hinn nýkjörni prestur Skálholtsprestakalls, séra Guðmundur Óli Ólafsson, settur inn í embætti af hinum nýskip- aða prófasti Árnesþings séra Gunnari Jóhannessyni í Skarði. Fór sú hátíðlega athöfn fram í Torfastaðakirkju að viðstöddu miklu fjölmenni. Kvaddi nú séra Eiríkur Þ. Stefánsson söfnuði sína, en hann hefur þjónað presta kallinu óslitið síðan 1906. Flyst hann nú ásamt frú sinni að Laug- arvatni og munu þau setjast þar að. Þá mun annar embættismaður hér efra leggja niður störf sín á næstunni. Er það héraðslæknir- inn Knútur Kristinsson í Laugar- ási. Knútur hefur starfað sem héraðslæknir síðan 1923, lengst af í Hornafjarðarhéraði, eg. sein- ustu árin í Laugaráshéraði. Hefur hann verið framúrskarandi vel látinn af öllum, enda öðlingsmað- ur og reyndur og góður læknir. Munu þau læknishjónin setjast að í Reykjavík. HVÍTÁRBRÚ Vinna mun hefjast við Hvítár- brúna hjá Iðu nú um helgina. Vinna við brúna, sem er hafin fyrir nokkrum árum féll með öllu niður í fyrra vegna verkfræð ingaverkfallsins. Nú er það von uppsveitarmanna að nægur mann afli fáist, svo hægt verði að vinna við brúna af fullum krafti í sum- ar, þannig að þessi mikla sam- göngubót megi koma að lang- þráðum notum, sem allra fyrst. Yfirsmiður er hinn reyndi brúar- smiður, Sigurður Björnsson. FRAMKVÆMDIR í SKÁLHOLTI I Skálholti hefur ekki verið um aðrar framkvæmdir að ræða í vor en að fullgera íbúðarhús bóndans þar. Stendur það nú senn fullbúið og mun hann geta flutt í það í byrjun næsta mán- aðar. Hvort hafinn verður undir- búningur að kirkjubyggingu, byggingu prestseturs eða um aðr ar framkvæmdir verður að ræða þar á þessu sumri mun enn óráð- ið, en búist er við að einhverjar ákvarðanir verði teknar um það nú um belgina. RAFMAGN FRÁ SOGINU Á þessu sumri mun verða lögð raftaug frá Soginu yfir suður- hluta Biskupstungna og yfir í Hrunamannahrepp. Mun þá Skál- holt, læknissetrið í Laugarási og ef til vill tveir bæir í viðbót, fá rafmagn í haust. Haft er eftir ráðandi mönnum á raforkumála- skrifstofunni, að fleiri bæir í hreppnum muni ekki verða raf- magns aðnjótandi í náinni fram- tíð. Finnst mönnum hér þetta illar fréttir að vonum, þar sem hér er um að ræða einn fjölmenn asta og þéttbýlasta sveitahrepp landsins og sá sem framleiðir fyr ir stærri upphæðir landbúnaðar- afurðir, mjólk, kjöt og gróður- húsaafurðir, en nokkur annar hreppur á landinu. LÉLEG SPRETTA Spretta er hér légleg, eins og annarsstaðar á Suðurlandi, enda hefur til skamms tíma verið það mikill klaki í jörðu að það hef- ur torveldað skurðgröftinn með gröfunum hér efra. í fyrra var allsstaðar byrjað að slá af full- um krafti um þetta leyti. Nú mun sláttur óvíða hefjast fyrr en um næstu mánaðamót, að talið er. — St. Þ. Vegleg háfíðahöld á Bíldudal 17. júní BÍLDUDAL, 20. júní: _ Hér á Bíldudal voru talsverð hátíða- höld 17. júní, í tilefni dagsins. Var það unga fólkið í kaupstaðn- um, sem gekkst fyrir hátíðahöld- unum. Hátíðin hófst með því, að börn gengu skrúðgöngu í kirkju og hlýddu guðsþjónustu. Síðar um daginn hófst útisamkoma þar sem ræður voru fluttar og skemmt var með söng. Þá fór fram pokahlaup og handbolta- keppni. Um kvöldið var dansleik ur í samkomuhúsi Bíldudals. Síðastliðinn laugardag komu ungir Dýrfirðingar hingað í heim sókn á mótorbátnum Fjölni frá Þingeyri. Héldu þeir skemmtun í samkomuhúsinu hér á Bíldudal, og var hún mjög fjölsótt. Kl. 5 á sunnudagsmorgun var síðan far- in skemmtiferð á Fjölni til Geir- þjófsfjarðar og voru Bílddæling- ar boðnir með. Var þátttaka mik- il, og þótti förin hin skemmtileg- asta. — Fríðrik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.