Morgunblaðið - 20.08.1955, Page 11

Morgunblaðið - 20.08.1955, Page 11
Laugardagur 20. ágúst 1955 MORGVNBLABIÐ 11 Rafvæðing Húnavatnssýslu ÁRIÐ 1932 var tekin ákvörðun J um að reisa vatnsaflstöð við Lax- á hjá Sauðanesi í Austur-Húna- vatnssýslu. Framkvæmdar- og eignaraðilar að rafstöðinni voru: Blönduóshreppur, Kaupfélag Húnvetninga og sýslufélagið, að einum þriðja hluta hvor. Byrjað var á verkinu vorið 1933 og því lokið fyrir áramót 1933—’34, svo að stöðin gat þá tekið til starfa. ! Voru allar þessar framkvæmdir gerðar á ótrúlega stuttum tíma, þegar miðað er við slík verk unn in nú með fullkomnustu véla- j tækni, en þá var allt unnið með j handverkfærum og við erfiðustu aðstæður. Sauðanesstöðin framleiddi með mesta álagi rúmlega 300 kílóvött Þetta afl fullnægði raforkuþörf Blönduós-kauptúns um nær tutt- Ugu ára skeið. Tveir sveitabæir fengu afl frá Stöðinni og hefðu fleiri geta not- ið þess, ef áhugi og geta bænda á nálægum bæjum hefði verið fyrir hendi. Aflið frá stöðinni var selt mjög cdýrt og því mikið notað til upp- j hitunar. Á árunum 1945—’50 ^ fjölgaði íbúum kauptúnsins veru i lega og jafnframt voru aflfrekar j iðnstofnanir reistar. Þótti þá sýnt að brýn þörf væri að stækka st.öð , ina. Var þá og vaknandi áhugi fyrir rafvæðingu sveitanna. — Framkvæmdastjórn Rafve.'tu Húnavatnssýslu ieitaðí álits og stuðnings raforkumálastjórnar ríkisins til þess að stækka stöð- ina, fá innflutt nýtt vélasett og fleira er til framkvæmda þurfti, en þá var allur innflutningur og framkvæmdir dregið í drón>.a alls konar hafta. Ekki vildi raf- orkumálastjórnin verða við bess- Um tilmælum, en ráðlagði hins Vegar að hækka verð aflsins veru lega. Það væri eina lausnin enda rökrétt ályktað, því þess eru jafn vel mörg dæmi, að fátækir menn hafa jafnvel orðið að spara svo mat við sig og sína, að þeir hafa hlotið af alvarlegt heilsutjón, hvað þá að veita sér ljós og hita Á þessum árum, sem stjórn Raf- veitu Húnavatnssýslu send: stöð ugt bænaskrár sínar til stjórnar- valdanna um stækkun Sauðaness stöðvarinnar, voru sendir hingað stórir leiðangrar til að mæla ýms fallvötn í héraðinu, sem sjáifsagt var. Voru þá og uppi miklar ráða gerðir um að reisa hér stórar stöðvar, t. d. 8000 kílóvatta stöð við Blöndu og enn stærri í Vatns- dal, átti þá að leiða Vatnsdalsá framan af heiði bak við fjallið og steypa henni þar ofan í dalinn. Allar voru þessar tillögur skýj- um ofar, því þó tæknilega séð væri hægt að framkvæma þær, kostuðu þær svo marga milljóna tugi, að ekki var hugsanlegt að fá fé, enda alltof dýrar virkjanir til þess að bera sig. En allar þessar ráðagerðir urðu til þess eins, að tefja framkvæmdir við stækkun Sauðaness-stöðvarinnar, enda vel til fundnar. Loks lá þó fyrir áætlun um stækkun Sauðanessstöðvarinnar árið 1950. Var í þeirri áætlun gert ráð fyrir að hægt væri að auka aflið allt í 1000 kílóvött. Var og með í áætluninni lína til Höfða- kaupstaðar og tuttugu sveita- bæja á þeirri leið. Ákvað þá stjórn rafveitunnar að hefjast þegar handa um lánsútvegun. — Snemma vorsins 1951 fór formað- ur stjórnar Rafveitunnar og ég, sem þetta rita, til Reykjavíkur, til þess að fá leyfi viðkomandi stjórnarvalda til þess að stækka stöðina og útvega lán til fram- kvæmdanna. 'Þáverandi raforku- málaráðherra Hermann Jónasson hét fullum stuðningi sínum. All- ur raforkumálasjóður var bund- in í útlánum, svo lítils var að vænta þaðan í bili, en hins vegar var okkur heitið láni úr honum síðar. Ráðherra lofaði ríkis- ábyrgð fyrir þeim lánum, sem við kynnum að geta útvegað. — Eftir Steingrím Davíðsson, Blönduósi Loks fékkst loforð um lán hjá bönkum og öðrum stofnunum, svo hátt að nægt hefði til allra aðalmannvirkjanna sem bvggja þurfti að nýju. Með lagningu raf- taugar til Höfðakaupstaðar, fengu tuttugu sveitabæir raf- magn, eins og áður segir. Var og augljóst mál, að með 1000 kv. orku var hægt að rafvæða fleiri sveitir sýslunnar, enda gerði stjórn rafveitunnar ráð fyrir að ríkið gerðist meðeigandi stöðvar- innar. En þegar hér er komið sögu þessa máls, undirbúningur framkvæmda hafinn, þá skerst stjórn raforkumála ríkisins í leik inn, og krefst þess að Sauðanes- stöðin með öllum mannvirkjum, þar með talin háspennulína til Blönduóss og lágspennukerfi kauptúnsins sé afhent Rafveitum ríkisins endurgjaldslaust. Meiri hluti rafveitustjórnar voru svo ginkeyptir fyrir þessari ráðstöf- un, að þeir samþykktu þegar, fyrir sitt leyti, þetta rausnarlega tilboð. Hins vegar neituðu fulltrú ar Blönduósshrepps í stjórninni, að ganga að þessu tilboði ó- breyttu. Töldu þeir að í fyrsta lagi að sanngjarnt verð kæmi fyrir mannvirkin, i öðru lagi að kauptúnið héldi yfirráð yfir lág- spennukerfinu í kauptúninu, eins lögheimila og í þriðja lagi að eig endur stöðvarinnar yrðu áfram eignaraðilar að helming móti rík- inu, svo sem dæmi voru til ann- ars staðar, þar sem stöðvar voru áður reistar sbr. Sogsvirkjunin. Loks eftir miklar umræður um málið, breytti stjórn Rafveitnu ríkisins, tilboði sínu, þannig, að Rafveitur ríkisins tækju að sér að greiða skuldir Rafveitu Austur Húnavatnssýslu, rúml. 200 þús. kr. gegn því að fá dieselraístöð, er Rafveitan átti á Blönduósi og metin var á 200 þús. kr. og sjóð- eign stöðvarinnar rúml. kr. 63 þús., en greiða fyrir lágspennu- kerfið á Blönduósi kr. 153 þús., eða sem svarar fjórðaparts verðs. Þegar stjórn raforkumálanna hafði fengið meirihlutann, þ. e. tvo eignaraðilana til að lofa stað- festingu þessa tilboðs, töldu þeir sér sigurinn vísan. Og í því trausti lætur hún flokk manna vinna við ýmsar smá endurbætur sumarið 1951. Oddviti Blönduóss- hrepps, sem var einn af fulltrúum kauptúnsins í stjórn Rafveitu Húnavatnssýslu, neitaði að skrifa undir samninginn óbreyttan og lagði fram nýtt samnings-frum- varp. í því frumvarpi er svo langt farið, sem fært þótti móti hinum samningsaðilanum, þ. á m. að mestu fallið frá greiðslu fyrir mannvirkin, en á móti komi 10— 15% afsláttur af verði raforku næstu fimmtán ár. En mannvirki þau er Rafveitur ríkisins fengu án endurgjalds og enn eru í full- um notum, væru þá minnst 3ja ' millj. kr. virði, og sjálfsagt tvö- fallt það nú, miðað við kostnaðar- verð slíkra mannvirkja er Raf- | veitur rikisins láta gera nú á tím- um. Þessu frumv. var algert hafnað, en haldið áfram flestum ■ hugsanlegum ráðum til að knýja minnihlutann til að undirskrifa samningsfrumvarp það sem I stjórn Rafveitna ríkisins og meiri hluta stjórnar Rafveitu Húna- vatnssýslu höfðu komið sér sam- an um. Þegar deilan um afhend- í ingu rafstöðvar við Sauðanesstöð, stóð sem hæst í júlíbyrjun 1951 var skipt um formann í stjórn | Rafveitu A.-Húnavatnssýslu. — j Var þá kosinn formaður Haf- steinn Pétursson í stað Jónatans ; J. Líndals. En nýi formaðurinn hafði ötullegast túlkað samningar tilboð Rafveitna ríkisins og gyllt það fyrir meðnefndarmönnufn sínum. Hefur hann sennilega gert t>að í einhvers konar góðri trú á að héraðinu yrði bað happasæl- ast. Var þá þegar ekki auðvelt að skilja rök hans, og verr, sem lengra líður, enda vitnar reynsl- an móti. Áður en endanlegur samningur var gerður, var því ákvæði bætt inn í upphaflegt frumvarp, að tekjuafgangur rafstöðvarinnar 1951, sem reyndist vera h u. b. kr. 110 þús., skyldi fylgja með mannvirkjunum og öðrum eign- um rafveitunnar, án þess að nokk uð kæmi í staðinn. Þessi einstæði samningur var svo undirritaður til staðfestingar, í nóv. 1951. Aust ur-Húnavatnssýsla er eina hérað- ið á landinu, sem á þennan hátt hefur gefið ríkinu margar millj. í mánnvirkjum og sjóðeignum, til þess að rafveitur ríkisins afli við- bótar orku og leggi raftaugar út frá virkjuninni. Þó greiða not- endur a. m. k. jafn há afnota- gjöld sem þeir, er ekkert höfðu gefið og þar sem allt varð að byggja frá grunni. En þar sem marg nefndur samningur er svo hagstæður Rafveitum ríkisins, sem áður er lýst, mætti gera ráð fyrir að hann yrði ekki rofinn af Rafveitum ríkisins. Þó orðalag greinarinnar sé loð- ið og óheilt, sem von er, þá verð- ur ákvæði greinarinnar að skilj- ast á þann veg, að „orkuveitu- svæðið“ sé aðeins Austur-Húna- vatnssýsla eða a. m. k. hluti henn ar. En hverjar hafa svo efndirnar orðið. Stöðin hefur að vísu ver- ið stækkuð í nær 700 hestöfl lína lögð til Höfðakaupstaðar og lína á þá sveitabæi er í leiðinni voru. Engin viðbótar virkjun er enn sýnileg, en í stað þess er byrjað, þrátt fyrir almenn mótmæli Austur-Húnvetninga að leggja raftaug frá Sauðanesstöðinni vest ur á Hvammstanga, og það einn- ig gert í óþökk flestra Vestur- Húnvetninga, sem kusu heldur að fá Víðidalsá virkjaða en þar eru virkjunarskilyrði einhver þau ágætustu er fyrir finnast. Austur- Húnvetningar líta svo á, að Raf- veitum ríkisins sé með öllu óheim ilt að flytja orku frá Sauðanes- stöðinni eða annarri virkjun í Austur-Hún., til annarra héraða fyrr en búið er að fullnægja raf- veituþörf héraðsins sjálfs Hafa og fulltrúafundir í héraðinu sent mótmæli til stjórna Rafveitna ríkisins, en sem hún hefur að engu. Af þeim, sem mótmæli hafa sent er t. d. aðalfundur Kaupfélags Húnvetninga er sam- þykkti einróma mótmæli, en fundinn sátu fjörutíu fulltrúar. Ályktanir fundarins verða síðar birtar ef tilefni gefst. Þegar Raf- veitum ríkisins var afhent Sauða nesstöðin með gjafabréfi fyrir h. u. b. fjórum árum, sögðu áköfustu fylgjendur samningsins að með honum væri tryggt, að allar sveit ir sýslunnar fengju rafmagn þeg- ar á næstu árum. Milljónagjöfin væri full trygging fvrir því. Fólk ið trúði og fagnaði. Seinna upp- lýsti raforkumálastjóri á fundi hér á Blönduósi, að reyndar væri ekki ætlunin að rafvæða nema 55 bæi af 218 í Austur-Húna- vatnssýslu. En ekki einu sinni 55 bæir fá rafmagn á næstunni sam- kvæmt áður lýstum ákvörðun- um raforkumálastjórnarinnar. Nú er fullvíst samkvæmt allri reynslu að 500 kw. stöð fullnægir engan veginn kauptúnunum Blör.duósi, Höfðakaupstað og Hvammstanga, hvað þá stórum sveitum til viðbótar. Ef stjórn Rafveitna ríkisins teldi sig bundna af samningnum frá 1. nóv. 1951 um yfirtöku Rafveitu Húnavatnssýslu, hlaut hún að auka virkjunina við Sauðanes svo sem kostur var og leiða það raf- magn út um sveitir sýslunnar, sem til entist í samræmi við 9. gr. samningsins, í stað þess að flytja orkuna burt í annað hérað. Og samkvæmt 54. gr. vatnalag- anna virðist algjörlega óheimilt að leiða orku úr héraðinu frá þeim fallvötnum er héraðsmenn eiga. En um þetta segir í nefndri grein: „Þegar fallvatn er tekið samkvæmt þessari grein, skal þess gætt, að héruðum í grennd við fallvatnið sé ekki gert örðugt um að afla sér nauðsynlegrar orku“. í greininni er heimild fyr- ir ráðherra að taka fallvötn lög- námi. Ekki veit ég til að lögnám hafi farið fram á fallvötnum í Austur-Húnavatnssýslu enda ó- heimilt til orkusölu í öðru hér- aði, sem hefur ágæt virkjunar- skilyrði, eins og áður segir. Eru og þessi ákvæði vatnalag- anna í samræmi við verndun stjórnarskrárinnar á eignaréttin- um. Hvaðan hefur þá stjórn raf- veitunnar vald til að flytja raf- orkuna burt úr héraðinu? Þess- ari spurningu væri æskilegt að fá svarað. Héraðsmönnum er sagt nú, að leiða eigi orku frá Gönguskarðsárstöðinni vestur í Húnavatnssýslu og því skuli þeir vera rólegir. En jafnvel þó þeirri vafasömu ákvörðun yrði komið í framkvæmd, þá yrði Húnvetning um það lítil búbót, því Göngu- skarðsárstöðin framleiðir .ekki nægilegt rafmagn fyrir orku- svæði Skagafjarðar a. m k. marga tíma ársins, því vatnamiðl un er þar engin. Og rísi þar í hér- aði aflfrek iðnver, t.d. á Sauðár- króki, verður sú stöð innan tíðar alltof lítil fyrir orkusvæðið. Um lagningu línunnar frá Göngu- skarðsá er það annað að segja, að ákveðið mun vera að leggja hana yfir fjallgarðinn milli sýsl- anna, um Kolugafjall og Þverár- fjall, en þar er fádæma illviðra- samt og fanndýpi mest á þessum fjallgarði. Virðist þetta því ein- kennilegri ráðstöfun fyrir það, að með því að framlengja línuna frá Varmahlíð vestur yfir Stóra- vatnsskarð, var um samfellda hyggð að fara, sem þá var hægt að rafvæða samhliða því, sem stöðvarnar voru tengdar saman, ef nauðsynlegt þætti. Og sé það rétt að Skagfirðingnr séu aflögu- færir í bili, þá virðist augljóst, að hagstæðara sé að fara þessa leið, en langan veg um óbyggðir og háa fjallgarða. Lína, sem lægi um Vatnsskarð meðfram bæjum þar kæmi ofan hjá Bólstaðahlíð um Langadal framan til, með fram þeim bæjum sem engar einkarafstöðvar hafa. Kæmi svo hliðarálma fram Svartárdal og Blöndudal. Virðist hverjum heilskyggnum manni þetta svo sjálfsögð leið að það ætti ekki að vefjast fyrir sér- fræðingum. Ætti ekki að líða að svo væri farið með alltof naum- ar fjárveitingar til rafvæðir.gar landsins, að þeim væri fleygt í línur yfir óbyggðir án þarfa óg beint til óþurftar þeim sveitum, er kröfurétt eiga á línunni til sín. Það er eðlileg krafa allra er í sveitum búa, að byggðarlögin verði rafvædd, sem allra fyrst, og á því getur beinlínis oltið hvort sveitir haldast í byggð. — Ríkisstjórnin hefur og viður- kennt þessa miklu þörf og var stórfé árlega til þessara mála. En mikið kostar að raflýsa allar byggðir íslands. Og því er það áríðandi að þessu fé sé hyggilega varið og framkvæmdir fálmlaus- ar. Þó rétt sé í mörgum tilfellum að tengja saman virkjun ýmissa héraða, ber ótvírætt, að virkja fyrst þar, sem við verður komið í samfelldum byggðarlögum, áð- ur en dýrar öryggislínur eru lagð - ar um fjallgarða milli héraða, þó í sumum tilfellum verði ekki hjá því komizt, svo sem frá Lax- árvirkjuninni. Austur-Húnvetningar verða að krefjast þess, að stjórn Rafveitna ríkisins haldi lög og gerða samn- inga og hætti þegar við flutning orku burt úr Austur-Húnavatns- sýslu, en í stað þess undirbúi stækkun Sauðanesstöðvarinnar þegar og leggi raftaugar frá henni um allar sveitir héraðsins á næstu þrem árum. Húnvetning- ar hljóta að halda svo á ótvíræð- um rétti sínum að þetta verði gert. Ég hef áður í blaðagrein um rafmagnsmál haldið því fram að nauðsyn væri að héruð landsins væru eignaraðili að rafveitunum, móti ríkinu og hefðu íhlutun um stjórn þeirra. Leiddi ég rök að því að með því eina móti væri vel séð fyrir hag neytenda og komið í veg fyrir einræðislega valdbeitingu. Mundi þá og öllu meiri hagsýni gætt við fram- kvæmdir og rekstur orkuver- anna. „Það er hátt til himins og langt til keisarans". var sagt í austurvegi forðum. En það er eðlilegt og ekki til ámælis að skrifstofumenn í Reykjavík skilji eins vel þarfir og hagsmuni fólksins um víð- lendar byggðir landsins og hér- . aðsmenn sjálfir. Er framkvæmd rafvæðingar Húnavatnssýslu glöggt dæmi þess. Þar sem engu virðist skeytt að orkah sé nægi- leg fyrir þá staði er leitt er til, hvað þá varaafl vegna fólksfjölg- unar í kauptúnum og sveitum og brýna þörf fyrir byggðarlaganna fyrir alls konar iðnaðarstofnanir. Sé orkan miðuð við minnstu hugsanlega þörf til ljósa og suðu heimilanna. Þegar stöðvar eru reistar, er langt að því marki, sem stefna ber að með rafvæðing- una. Markið á að vera nægilegt rafmagn handa bvggðalögunum nú og í næstu framtíð, svo að eðlileg og nauðsynleg framþróun í landbúnaði og iðnaði geti þrif- izt, og verði orkunnar stillt svo í hóf að ekki þurfi að spara hana úr hófi til heimilisnota og verðið hindri ekki rekstur iðnstofnana. 20. júlí 1955. Buflagnir, roitækjaviðgerðir Tökum að okkur raflagnir í ný hús og viðgerðu á göml- um lömpum, einnig' viðgerðir á heimilistækjum og mótor- vindingum. Raftækja og raflagnavinnustofa Ólafs Haraldssonar, Bankastræti 10 Afgreiðsla í Véla- og raftækjaverzluninni, sími 2852. Heimasími: 80438. * • # Raivirkjor — Raivélavirkjar Rafvirkjar og rafvélavirkjar óskast nú þegar, upp- lýsingar í síma 80438, milli kl. 12—1 og 7—8 næstu daga Raftækja og raflagnavinnustofa Ólafs Haraldssonar, Bankastræti 10 Afgreiðsia í Véla- og raftækjaverzluninni, sími 2852. Heimasími: 80438. s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.