Morgunblaðið - 14.09.1955, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. sept. 1955
? n
6. ársjsing Fjórðungs AðaHundur Presta-
sambands Vesífirð- félags Ausfurlands
inga
ÞÚFUM, fsafjarðardjúpi, 13. sept.
— 6. ársþing Fjórðungssambands
Vestfirðinga var haldið í Bjarkar-
lundi 10. og 11. sept. s.l. Þingið
sóttu 17 fulltrúar frá sýslufélög-
um á Vestfjörðum og sýslumenn
í ísafjarðar- og Barðastrandar-
sýslum. Forseti þingsins var Jóh.
G. Ólafsson, bæjarfógeti á ísa-
firði, en þingritari, Páll Pálsson
hreppstjóri að Þúfum, í ísafjarð-
ardjúpi.
Á þinginu voru tekin fyrir
mörg mál, er Vestfirðinga varðar,
svo sem útfærsla landhelgislín-
unnar, togaraútgerð til atvinnu-
jöfnuðar, vegamál, símamál og
ýmis landbúnaðarmál vegna ó-
þurrkanna. — Er útlit til ýmissa
byggða vestra ískyggilegt. Þá var
einnig rætt um stofnun byggða-'
safna og fleira. j
Fór þingið hið bezta fram og
voru mál fjórðungsins rædd af
áhuga og hlutu mál góða af-
greiðslu. Síðari daginn skruppu
fulltrúar til Reykhóla og skoðuðu
staðinn. —P.P.
AÐALFUNDUR Prestafélags
Austurlands og héraðsfundir
Norður- og Suður-Múlaprófasts-
dæma voru haldnir á Seyðisfirði
dagana 4. og 5. sept. s.l
Fundirnir hófust með guðs-
þjónustu í Seyðisfjarðarkirkju
sunnudaginn 4. sept. kl. 2. — Séra
Sigmar Torfason á Skeggjastöð-
um prédikaði, en séra Jakob Ein-
arsson prófastur þjónaði fyrir
altari.
Fundirnir voru vel sóttir, bæði
af prestum og safnaðarfulltrúum,
voru t. d allir prestar Austur-
lands mættir nema einn. Að lok-
inni bauð sóknarnefnd Seyðis-
fjarðar prestum og safnaðarfull-
trúum til kaffidrykkju að Hótel
Snæfelli. Jóhannes Arngrímsson
sýsluskrifari bauð gesti velkomna
f. h. sóknarnefndar.
Síðan hófst aðalfundur presta-
félagsins í bæjarþingsalnum.
Form. félagsins, sr. Erlendur
Sigmundsson minntist látins fé-
lagsbróður, séra Haralds Jónsson-
ar prófasts á Kolfreyjustað, en
fundarmenn risu úr sætum.
Því næst var tekið fyrir aðal-
umræðuefni fundarins: Friðar-
hugtakið frá sjónarmiði kristin-
dómsins. — Framsöguerindi flutti
séra Jakob Einarsson prófastur
og séra Erlendur Sigmundsson.
Miklar umræður urðu um þetta
mál og ýmsar ályktanir gerðar
í sambandi við það, og önnur
kirkjuleg málefni, sem rædd
voru.
Á mánudagskvöld gengu prest-
arnir til altaris, en fundinum
lauk þá um kvöldið á heimili
prestshj ónanna.
Fráfarandi stjórn Prestafélags
Austurlands skipuðu þessir
prestar:
Séra Erlendur Sigmundsson,
Séra Jakob Einarsson.
Séra Sigurjón Jónsson.
í stjórn voru kosnir:
Séra Þorgeir Jónsson.
Séra Kristinn Hóseasson og
Þórarinn Þórarinsson skólastjóri
á Eiðum. —B.
BEZT AÐ AUGLtSA
t MORGUNBLAÐim
c*jnnr#'
Besta skemmtun ársins 7955
D. IL G*
- Úr daglega lífinu
Framh. af bls. 8
greind, hugarflug og framsýni,
hlýtur öll gagnrýni að þagna. —
Allar hinar svokölluðu raun-
hæfu tillögur hans þ. 9. apríl —
í Ósló, Hamri og Elverum —
leiddu til samþykkta, sem höfðu
hin víðtækustu áhrif. í rauninni
fólu þær í sér fyrsta ósigur
Adolfs Hitlers og Vidkuns
Quislings í Noregi. Hernaðarlega
gátu nazistar kannske sigrað í
fyrstu lotu, en svo er Hambro
fyrir að þakka, að N.S. og Þjóð-
verjar fengu þenna dag að finna
þann bitra sársauka, sem stjórn-
málaleg mistök hafa í för með
sér...
★ ★ ★
Trygve Lie telur í bók sinni
Haldan Koht, þáverandi utanrík-
isráðherra Norðmanna, eiga
mikla sök á því, hve Norðmenn
voru illa við innrás þýzka hers-
ins búnir. Lie tilfærir orð Ham-
bros, er hann notaði er Koht og
Lie tóku sæti í norsku ríkisstjórn
inni árið 1935: „Ég óska til ham-
ingju. Nú getið þið verið kátir
og ánægðir og bjartsýnir á fram-
tíðina. Nú hafið þið fengið „hið
upplýsta einræði" sem utanríkis-
ráðherra.... “
Og þetta reyndust orð að
6Önnu, segir Lie í bók sinni. Ut-
anríkismálanefndin, Stórþingið,
forsætisráðherrann og „allir við
hinir í ríkisstjórninni" vorum
algerlega á valdi Kohts. — Lie
segir að aðvaranir frá sendiherra
Norðmanna dagana fyrir 9. apríl
hafi aldrei komizt lengra en til
utanríkisráðherrans eða að þær
hafi drukknað í öðrum málsskjöl-
um.
Lie reynir á hinn bóginn ekki
að skjóta sjálfum sér undan
ábyrgðinni af þeim stjórnar- :
athöfnum, sem gerðar voru í Nor-
egi hina örlagaríku daga í apríl
1940, og hann segir að hann sé
ekki viss um hvort önnur stefna, !
en þá var tekin myndi hafa verið
heillavænlegri. Lie lýkur bók
6inni með þessum orðum:
„Mennirnir eru fljótir að
gleyma. Ég hefi átt tal við marga
þeirra, sem gagnrýndu Nygaards i
voldstjórnina í apríl 1940 og 1
einnig síðar, fyrir það að hafa
vanrækt Jandvarnirnar, og rætt '
við þá landvarnirnar eins og þær
eru nú. Þeir eru ekki fáir, sem
eru þeirrar skoðunar að út-
gjöldin til landvarna séu of há og
herþjónustan of löng. Einnig er
ósamkómuag um Atlantshafssátt-
málann, sem veitir okkur í dag
mestan möguleika til þesá að
verja heimili okkar og land okk-
ar — ef til hins versta dregur.
Einir munum vér í dag hafa jafn
litla möguleika og þ. 9. apríl
1940 til þess að verja land okkar
gegn leifturárás stórveldis".
•■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■■■■■■■■■•■*■■■■■■■■■■■■■■*■■ ■Jl.ll ■■
Tónlistarskólinn
tekur til starfa um næstu mánaðamót. — Auk þeirra
námsgreina, sem kenndar hafa verið að undanfömu
verður tekin upp kennsla í söng. — Umsóknarfrestur er
til 20. sept. — Þeir, sem hafa hug á að stunda söng-
nám, eru beðnir um að koma til viðtals þriðjudaginn
20. sept. klukkan 5—7 síðdegis.
Skólastjóri.
■mne*
Aðgöngumiðasalan heldur áfram
í dag kl. 4 fyrir laugardag kl, 7 og
11,15 og sunnudag kl. 7 og
11,15
Geymsluhúsnæði til leigu
Ca. 300 ferm. húsnæði er til leigu í haust um lengri
eða skemmri tíma. — Húsnæði þetta er í óupphituðu
nýju steinhúsi í úthverfi bæjarins. — Leigutilboð sendist
blaðinu merkt: „Geymsla — 975“, fyrir 17. sept.
■ ■
j Húsmæbraskóli Beykjavíkur j
■ verður settur þriðjudaginn 27. sept. kl. 2 síðdegis. — ■
» ■
; Nemendur skili farangri smum í skólann mánudaginn 26. i
■
I september milli kl. 6 og 7 síðdegis.
Skólastjóri.
Óskum eftir að kaupa tveggja nála
prjónalessaumavél
fyrir ísetningu teygjubands.
Vinnufatagerð íslands h.f.
jr
Aríðandi fundur
verður haldinn hjá Félagi íslenzkra hljóðfæraleikara,
föstudaginn 16. september í Tjarnarcafé, uppi, kl.. 1,30
stur.dvíslega.
FLNÐAREFNI:
1. Taxtamál
2. Atvinnuleyfi útlendinga
3. Yms önnur mál
STJÓRNIN
H-R-E-Y-F-l-L-L
hefur opið allan sólarhringinn
Sími 6633
Hreyfill
1) — Jæja Markús vertu nú
ekki svona hlédrægur. Segðu okk
ur eitthvað af ævintýraferðum
þínum á norðurslóðum.
— Það er ekkert að segja frá
þeim. Þetta er slark hið mesta.
2) — Heyrðu Birna. Þetta er þó
ekki Kobbi, sem kemur þarna?
— Jú, hann hringdi áðan og arðu þig ekki við hann. Þú veizf
spurði hvort hann mætti ekki I að mér geðjast ekki að honum.
koma. I — En mig tekur sárt til hans,
3) — Ó, Birna, af hverju los-' þú veizt það líka. j