Morgunblaðið - 10.01.1956, Blaðsíða 6
6
Kf ORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. jan. 1958
Frétlir frá
Knattspyrna
HÓPUR knattspyrnumanna frá
Kaupmannahöfn fór um jólin í
keppnisferð til Þýzkalands og
Spánar. Varð þetta engin sigur-
för, því að Danirnir töpuðu báð-
um leikjunum — en íþróttasið-
unni er ekki kunnugt um marka-
töluna.
Við heimkomuna sagði Carl
Holm (B 1903), að hinar snöggu
og nákvæmu sóknarlotur Spán-
verjanna hefðu Danir ekki getað
stöðvað. f liði Spánverja lék inn-
herji áður ‘lítt þekktur untan-
lands, og þótt. Dönunum svo
mikið til hans kama, að þeir telja
hann einn af b«;ztu leikmönnum
álfunnar. — Da íirnir nutu „sum-
arveðurs" á Spáni, gengu jakka-
lausir, en þó famst Spánverjun-
um kalt og br jttu frakkakraga
sína upp.
í Frankfurt voru Danirnir dá-
lítið óheppnir — gerðu sjálfs-
mark í leikbyrjun — en þeir
hrósa leik Þjóðverjanna.
Útlit er fyrir að góð samvinna
á knattspyrnusviðinu takist nú
með Dönum o/ Þjóðverjum. —
Fagna Danir þ’d að „gamalt og
gott samband“ sé nú aftur að
opnast milli þessara þjóða og
telja sér feng í því að fá tæki-
færi til að kep; a við Þjóðverja!!
Hlaup
HINN 31. janúar flýgur danski
hlauparinn Gu inar Nielsen til
Johannesborgar í Afríku Er þetta
keppnisferð. 4. febrúar keppir
hann í 1500 m hlaupi í Benoni
skammt frá Jóh annesborg, en þar
verður haldið s' órmót í tilefni af
50 ára afmæii íþróttafélagsins
þar. Ekki er vituð um keppinauta
Nielsens, en boð voru send all-
mörgum erlendum íþróttastjörn-
um. —
Gunnar Nielsen á einnig að
hlaupa í Dúrban, Port Elisabeth,
Höfðaborg, Preloria og Betlehem
í Oranje. Einnig er hugsanlegt að
hann keppi á móti í Rhodesíu á
heimleiðinni.
Verðlaun
DANSKA blaðið BT veitir árlega
gullverðlaun þcim íþróttamanni
dönskum fyrir bezta íþróttaafrek
ársins. Nefndin er ákveður hver
hljóta eigi verí launin er skipuð
íþróttaleiðtogum, m.a. formönn-
um sérsamba idanna (Skyldi
ekki kenna einhverrar hreppa-
pólitíkur á funoum þeirrar nefnd
ar?).
Nefndin hefur nú skilað niður-
stöðu sinni og ákveðið að tveir
menn skuli fá verðlaunin, þeir
Gunnar Nielsen fyrir að jafna
heimsmetið í 1500 m hlaupi og
skyttan Ole Hv d Jensen fyrir að
verða Evrópumeistari o. fl.
Handknattleikur
ÁKVEÐINN er landsleikur i
handknattleik milli Dana og
Þjóðverja. — Var eftirvænting
mikil fyrir þann leik, en hefur
nú minnkað, vegna þess að 5 af
þýzku landsliðsmönnunum hafa
tilkynnt að þeir geti ekki verið
með. Ástæðan er sú, að Þjóðverj-
ar leika fyrst landsleik við Svía
og verða Þjóðverjanir fimm að
fara heim þegar eftir þann leik
vegna atvinnu sinnar.
Meðal þeirra, sem ekki keppa
í Danmörku er bezti leikmaður
Þjóðverja, „Atom-Otto" Mayr-
chzak, markmaðurinn frábæri
Pankomin og 3 sóknarleikmenn
aðrir.
Eru því líkur á dönskum sigri
stórum meiri en áður.
„HjolEis" aftur í röð
bezftu skituftumonna
Verður i Ölympíuliði Moregs
FRAM til þessa hefur verið illa spáð fyrir árangri norskra skauta-
hlaupara í vetur. Það var allalmenn skoðun, að norsku garp-
arnir, sem á undanförnum árum hafa skipað sæti beztu skauta-
manna heims, væru nú að glata þeirri forystu. En 2. jan. s.l. fór
fram úrtökumót meðal norskra skautamanna fyrir Olympíuleikana
í Cortina og árangur á þvi móti sýnir, að norskir skautahlauparar
eru nú ef til vill sterkari en nokkru sinni fyrr.
★ ÁRANGUR „HJALLIS“
Einna mesta athygli og
gleði vakti árangur „skauta-
kóngsins“ Hjalniars Ander-
sen. Árangur hans er litlu
lakari en þegar hann náði
beztum árangri 1950—1952 og
vann meðal annars 4 gull-
verðlaun á Olympíuleikum.
Úrtökumótið fór fram á
Bislett-leikvanginum og stóð í 2
daga. Ef undan er skilið sprett-
hlaupið — 500 m skautahlaup —
þá náðist svo góður árangur að
jafnt Rússar sem heimsmeistar-
inn sænski frá í fyrra, Sigge Eric-
son, verða að ná sínum allra
beztu timum, eigi þeir að keppa
um^verðlaunin á Olympíuleikun-
Hjalmar Andersen.
um við skautahlaupara sem Knut
Johannessen, Roald Aas og ekki
sízt „Hjallis" Anderson, sem
tryggði sér Ítalíuferð með svo
frábærum tíma sem 17:08,2 á 101
km vegalengd.
★ MÁNUDAGURINN
2. JANÚAR
í frétt um afrek „Hjallis“
og árangurinn á mótinu skrif-
ar íþróttaritstjóri Aftenpost-
ens, Per Chr. Andersen, að
mánudagsins 2. janúar 1956
muni lengi verða minnzt í í-
þróttasögu Noregs.
Knut Johannessen setti
heimsmet á „láglendisbraut"
með 2:15,1 á 1500 m vega-
lengd. Og með tíma sínum á
10 km vegalengd, 16:52,8,
náði hann næst-bezta tíma,
sem skráður hefur verið. Að-
eins „Hjallis" á betri tíma —
og svo Rússamir og Sigge
Erieson á „hálendisbrautum".
Það er nú orðið ávalit aðgreint
hvort skautabrautin er hálendis-
braut eða láglendisbraut. Stafar
það í upphafi frá þeim imdra-
verðu tímum sem Rússamir náðu
á skautabrautinni i rússnesku
fjöllunum.
Skautasvell
fcemur ó
Tjöminni
ÍÞRÓTTABANDALAG Reykja-
víkur skýrði blaðinu svo frá í
gær, að strax og veður leyfði
yrði unnið að því að skafa og lag-
færa skautasvell á Tjörninni.
Þetta hefur ekki verið gert
fram til þessa — fyrst vegna
bannsins við íþróttaiðkun vegna
mænuveikinnar og frá áramótum
hefur skafrenningur og rosatíð
komið í veg fyrir að hægt væri að
gera svellið gott.
íþróttabandalagið sér um að
svelli sé haldið við á Reykjavík-
urtjörn, en Reykjavíkurbær legg-
ur fram fé til þess að svo megi
verða.
Kurt Homrin
til Juventus
FRÖNSK fréttastofa hefur til-
kynnt, að sænski landsliðsmaður-
inn í knattspyrnu, Kurt Hamrin,
frá AIK í Stokkhólmi, hafi und-
irritað þriggja ára samning við
Junventus, sem atvinnumaður í
knattspyrnu.
Opinber staðfesting á frétt
þessari er ekki fyrir hendi og
eðlilegt er- að menn taki frétt
þessari með nokkrum efa, þvi að
enn er i gildi á ítaliu bann við
„innflutningi" knattspyrnu-
manna. ‘
En staðreynd er að fyrir
nokkrum dögum kom Kurt
Hamrin til Rómaborgar. Þar
hafði hann enga viðdvöl, en ók
áfram til Turin, þar sem félagið
Juventus er starfandi.
1982 koniu fyrir
9 réttar
ÚRSLIT leikjanna á laugardag:
Bolton 0 — Huddersfield 0 x
Bristol Rov. 4 — Manch. Utd 0 1
Bury 2 — Burnley 2 x
Doncaster 3 — Nottm Forest 0 1
Everton 3 — Bristol City 1 1
Leeds 1 — Cardiff 2 2
Luton — Leicester (frestað) —
Manch. City 1 — Blackpool 1 x
Notts Co. 0 — Fulham 1 2
Sheff. Wedn. 1 — Newcast.le 3 2
West Ham 5 — Preston 2 1
Wolves 1 — WBA 2 2
Vegna niðurfellingar eins leiks
og óvæntra úrslita í nokkrinn
leikjum komu ekki fram fleiri en
9 réttir leikir, og það aðfeins á
einum seðli, sem hlýtur 1982 kr.
Vinningar skiptust þannig:
1. vinningur 496 kr. fyrir 9
rétta (2).
2. vinningur 99 kr. fyrir 8
rétta (20).
Vatteraðir greiðshtsloppar
Síðir, stuttir — Fjölbreytt úrval
Margir litir — Margar stærðir
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11
AIR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi imdraefnl.
Njótið ferska loftsins innan húoS allt árið.
Aðalumboð: i
Ólafur Gíslason & Co. H.f.,
Sími: 81J7*.
tíandavinnunámskeið
•
Byrja næsta handavinnunámskeið 16. þ. m. — Kenni
fjölbreyttan útsaum. Einnig að hekla, orkera, gimba,
prjóna, kúnststoppa o. fl. — Áteiknuð verkefni fyrir-
liggjandi. — Allar nánari uppl. kl. 2—7 e. h.
Olína Jónsdóttir, handavinnukennari,
Bjarnastíg 7 — Sími 3196.
Tvo landmenn
vantar við m.s. Fagraklett. — Upplýsingar um borð
i bátnum við hafnargarðinn í Hafnarfirði og í síma
7636 eftir kl. 5.
Fokheld verzlunar-
eða skrifstofuhæð
115 ferm. ásamt 60 ferm. geymsluplássi i kjallara,
við Miðbæinn til sölu. — Sérhitaveita.
STEINN JÓNSSON, hdl.
Kirkjuhvoli — sími 4951.
Ný íbúð til leifju
íbúð, á annarri hæð í einu af nýju sambýlishúsunum
við Eskihlíð, er til leigu, þegar smíði hennar er lokið, en
það verður að öllum líkindum um næstu mánaðamót. —
íbúðin er fjögur herbergi, eldhús og bað, ásamt innri
forstofu, góðum skápum, geymslu, aðgangi að þvotta-
húsi o. s. frv. — Fyrirframgreiðsla eftir samkomulagi. —
Tilboð með upplýsingum um núverandi heimilisfang, at-
vinnu og fjölskyldustærð umsækjanda sendist afgr. Mbl.
fyrir laugardaginn 14. janúar n k. — Tilboð merkist:
„Eskihlíð — 943“.
ÚT5ALA
Útsala á ýmsum vörum á morgun og næstu daga.
Verzl. Matthildar Björnsdóttur,
Laugaveg 46.