Morgunblaðið - 12.01.1956, Blaðsíða 1
16 sáður
43. árgangnr
9. tbl. — Fimmtudagur 12. janúar 1956
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Djarfur flófti tveggja tjölskyldna
MEÐ SJÖ BÖRN YFIR
JARÐSPRENGJUS VÆÐl
Vín 11. jan.
TVEIM ungverskum fjölskyldum, sem flýðu á mánudaginn á
dirfskufullan hátt frá Ungverjalandi til Austurrikis, hefur nú
verið veitt landvistarleyfi sem pólitískum flóttamönnum. Vlnar-
blaðið Arbeiter-Zeitung skýrir frá þessu í dag — og lætur það
íylgja, að flóttamennirnir hafi sýnt ótrúlegt þrek og þor, er þeir
brutust yfir gaddavírsgirðingar og jarðsprengjusvæðin, sem Ung-
verjar hafa girt land sitt með.
6k yfir
JARÐSPRENGJUSVÆBIÐ
Flóttamennirnir voru 13 alls
—- þar af 7 börn. Sagðist fólkið
lengi hafa verið í vafa um hvaða
úígönguleið það hefði átt að
reyna, en að lokum talið heppi-
legast að fara götuslóða, sem lá
I gegn um skógarþykkni við
landamærin. Bóndi, sem nýlega
hafði gert tilraun til þess að
flýja á dráttarvél sinni á þessum
sama stað, hafði ekið yfir jarð-
sprengjusvæðið og sprengt all-
margar sprengjur — og rofið
gaddavírsgirðinguna. Var það
von fólksins, að landamæravörð-
unum hefði ekJci unnizt tími til
þess að koma nýjum jarðsprengj
um fyrir og gera við girðinguna.
GÁFU BÖRNUNUM
SVFFNMEÐAL
Var flóttinn síðan vel undir-
búinn — og yngstu börnunum
gefið svefnmeðal, til þess að grát-
ur þeirra vekti engar grunsemd-
ír landamæravarðanna. Að næt-
urlagl komust þau svo yfir landa-
mærin, og voru svo heppin að
komast hjá öllum jarðsprengj-
um — en girðinguna höfðu landa
mæraverðirnir lagfært. í birt-
ingu næsta morgun komu þau að
austurískum sveitabæ — og var
veittur þar bezti beini, en síðan
afhent lögreglunni.
NýfS veðurat'
huQunartæki
WASHINGTON, 10. janúar —
Bandaríski sjóherinn er nú að
gera tilraunir með eitt sérstæð-
asta veðurathugunartæki, sem
framleitt hefur verið. Það vegur
aðeins sex pund, og er hæglega
hægt að halda á því í annarri
hondi. Þó að tækið sé lítið fyrir-
ferðar mun það ef til vill gegna
mikilvægu hlutverki í veðurat-
hugunum í framtíðinni. Er það
smíðað í því augnamiði, að það
verði haft um borð í skipum og
& að mæla loftþrýsting við yfkv
borðið, hita, rakastig, vindhraða
og stefnu. En það er ekki allt
búið, því að tæki þetta mun rita
sjélft allar rannsóknir sínar, þó
lítið sé.
Ríkisstjórnin stendur dkveðin
nm sjálisákvnrðaða friðanarlinn
NICOSIA, 11. jan. — f dag dró
til mikilla tíðinda hér í dag, er
æstur múgur hóf bardaga á göt-
um borgarinnar. Áttust hér við
menn af grískum uppruna ann-
ars vegar — en hins vegar
menn af tyrknesku bergi brotnir.
Aðal vopnin voru grjót og bar-
efli — og fór svo, að lögreglan
varð að skerast í leikinn. Beitti
hún óspart táragasi og tókst að
lokum að tvístra múgnum. Óeirð-
um þessum olli fregn sú, að
tyrkneskur lögregluþjónn, sem
gætti laga eg reglna í tyrkneska
borgarhlutanum, hafi verið drep-
inn.
Er óttast að átök þessi hafi
óheillavænlegar afleiðingar á
árangurinn af viðræðum þeirra
Macariosar erkibiskups og lands-
stjórans brezka, Sir John Hard-
ings. j
Engin vopn til
ísrnel nð sinni
Washington 11. jan.
Á blaðamannafundi í dag skýrði
Dulles utanríkisráðherra frá því,
að Eden og Eisenhower mundu
ræða vandamálin við botn ktið-
jarðarhafs, er þeir ræðast við í
Washington hinn 30. jan. n.k.
Lét Dulles þess getið, að Banda-
rikin hefðu ekki breytt um stefnu
í máli þessu, og að þau væru fús
að taka á sig ábyrgð á landamær-
um ísraels og Arabaríkjanna
ásamt öðrum þjóðum, ef viðkom-
andi ríki fengjust til þess að gera
með sér samninga þar að lútandi.
Hann kvað enga ákvörðun hafa
enn verið tekna yiðvíkjandi
beiðni ísraels um vopn frá Banda
ríkjunum. Yrði málið tekið til
nánari athugunar eftir að Ör-
yggisráðið hefði rætt kæru Sýr-
lands á hendur ísraels .
Ætluðu að sprengja
þinghúsið
LONDON — Heyrst hefur, að
Scotland Yard hafi komizt á
snoðir um það, að skozkir þjóð-
ernissinnar hafi ráðgert að
sprengja neðri deild enska þing-
hússins í loft upp hinn 25. janúar
n. k. Þann dag munu Skotar
minnast þjóðskálds síns, Roberts
Burns. Blaðið , Sunday Dispatch“
skýrði frá þessu nýlega — og
sagði frá því um leið, að allmarg-
ir ungir slcozkir þjóðemissinnar
hefðu dvalizt í London í hálfan
mánuð, til þess að undirbúa
verknaðinn.
Kjarnorkuknúin flugvél
NÚ á dögunum hélt aagblað eitt
I Mexikó því fram, að Banda-
ríkjamenn hefðu lokið smíði
fyrstu kjarnorku knúnu flug-
vélarinnar. Segir blaðið, að fljúg-
andi virki af gerðinni B-36, sem
fyrir skömmu hafi verið á reynzlu
flugi yfir Texas og Ný;u Mexikó,
hafi verið knúin kjarnorku — og
hafi kjarnorkuofninum verið
komið fyrir í nefi vélarinnar.
Segir blaðið. að lögregluyfir-
Samméla um ríkis-
ábyrgð
JÓHANN Þ. JÓSEFSSON mælti
eindregið með því að frumvarpið
um heimild til ríkisábyrgðar fyr-
ir raforkusjóð vegna 200 milljón
króna lántöku hans. Flutti hann
framsögu um þetta fyrir iðnaðar-
nefnd Efri deildar, sem öll var
sammála um þetta, að því undan-
skildu, að Hermann Jónasson
hafði verið fjarverandi nefndar-
fund.
í ræðu sinni gerði Jóhann ýt-
arlega grein fyrir því að nú hefði
verið samið um það að raforku-
sjóður taki 200 milljón króna
bankalán til raforkufram-
kvæmda.
En í raforkulögunum skortir
ákvæði um heimild til ríkis-
ábyrgðar á láni þessu. Að vísu
eru í heimildarlögum um ein-
staka raforkuframkvæmdir
ákvæði um ríkisábyrgð og lán
til þeirra, en þar virðist átt við
lán, sem rafmagnsveitumar sjálf-
ar taka. Er því talið nauðsynlegt
að heimila ríkisábyrgð á lánum,
sem raforkusjóður tekur.
Dylgjur stjómarandstæðinga
eru eingöngu til að vekja upp
iEBindi um mikilvægt máiefni
OLAFUR THORS forsætisráðherra lýsti því yfir á Alþingi í
að ríkisstjórnin hefði ekM látið sér til hugar koma að færa
inn núverandi friðunarlínu, né heldur að semja um hana seofl
frambúðarlausn.
Kom fram af ræðu forsætisráðherra, að óþarfi ætti að vera sM
gefa slíka yfirlýsingu. Öll þjóðin vissi, að núverandi ríkiastjÓMS
hvikaði ekki. En yfirlýsingin var gefin sem svar við fyrirspwai
frá kommúnistaþingmanni, sem hefur verið að reyna að efina tíi
illinda um þetta mikilvæga mál með stöðugum dylgjum.
Dulles til
Indlands?
WASHINGTON, 11. jan. — Það
var tilkynnt hér í dag, að Dulles
utanríkisráðherra mundi eftir
fund Suður-Asíu bandalagsins í
Karachi sennilega sækja Indland
heim. Dulles sagði í þessu sam-
bandi við blaðamenn, að ekki
væri gott að segja nákvæmlega
fyrir um slíka heimsókn, þar eð
hún mundi ekki koma til greina
nema með formlegu boði Ind-
landsstjórnar. Sagði hann að Ind-
Verjar hefðu lítillega á það
minnst, en ekkert væri samt enn
ákveðið.
Matvælaframleiilslan
aldrci jafn mikil
WASHINGTON, 10. jan. — Sam-
kvæmt skýrslu, sem landbúnað-
arráðuneyti Bandaríkjanna hefur
gefið út, hefur matvælafram-
leiðslan í heiminum náð hámarki
á s. 1. ári. Er þetta byggt á
skýrslum úr öllum landbúnaðar-
héruðum heims.
Kommúnistaleiðtogar vilja verða skáldsagnahetjur
BERLÍN, 10. jan. — Um þessar
mundir halda a-þýzkir rithöfund-
ar þing í A-Berlín. í ávarpi, sem
menntamálaráðherra A-Þýzka-
lands, Johannes R. Becher, flutti
þinginu sagði hann, að höfuð-
persónurnar í hinum nýju bók-
menntum A-Þjóðverja ættu að
vera „hinar sönnu hetjur og af-j
reksmenn hins nýja lifs — leið-
togar verkalýðsstéttanna, sem
væru í ábyrgðarstöðum". Hvatti
hann rithöfunda til dáða, og kvað
þá eiga að skrifa skemmtilegar
styrjaldarsögur, til þess að örfa
þýzk ungmenni til að ganga
í heri A-Þýzkalands.
völdunum á þessum sióðum hafi
verið tilkynnt um tilraunaflug
þetta, til þess að allt væri til
taks, ef eitthvað kæmi fyrir.1
Einnig segir, að settur hafi verið
strangur vörður við flugvélaverk
smiðju eina í Texas, og álítur
það, að þar fari tilraunirnar
fram. Yfirvöld verksmiðjunnar
hafa ekki viljað staðfesta þessa'
frétt.
Fer hann fram?
WASHINGTON, 11. jan. —
Eisenhower forseti gekk undir
nákvæma læknisrannsókn í dag.
Eftir rannsóknina gáfu læknarn-
ir út þá yfirlýsingu, að heilsa
hans hefði farið dagbatnandi —
og væri nú mjög góð. Svo sem
kunnugt er skýrði forsetinn frá
því s. 1 sunnudag, að brátt yrði
ákveðið hvort hann gæfi kost á
sér að öðru sinni til iörsetakjörs
— og að heilsa hans mundi verða
þyngst á metaskálunum í því sam
handi. Eftir þessu að dæma auk-
ast nú líkurnar fyrir framboði
Eisenhowers. —Reuter.
Ræða efua!ia«;s~
og kjarnorkumál
BAGDAD, 11. jan. — í dag komu
hér saman 30 sérfræðingar frá
löndunum fimm, sem aðild eiga
að Bagdad-bandalaginu svo-
nefnda. Munu þeir ræða efna-
hagsmál og friðsamlega notkun
kjarnorkunnar í Mið-Asíu lönd-
unum. — Efnahagsmálaráðherra
íraks tók í dag til máls á ráð-
stefnunni og sagði það vera sann-
færingu sína að ráðstefnan muni
stuðla að því að viðhalda friði
og reglu í Mið-Asíu.
Yfirlýsing forsætisráðherra ra»
á þessa leið:
„Hinn 7. janúar gaf ríkisstjóm
íslands út svohijóðandi fréttatii-
kynningu:
— Eins og kunnugt er, hafa
vandkvæði þau, er stafa af tönd-
unarbanninu á íslenzkum fiski í
Bretlandi, hvað eftir annað kom-
ið til umræðu í Efnahagssam-
vinnustofnuninni í París (OEEC).
Umræður þessar urðu ti! þess, a3
stofnunin skipaði nefnd til þeos
að kynna sér málið frá allum
hliðum og freista þess að fitma
lausn á því. í nefndinni hafa ný-
lega komið fram tillögur mn
lausn málsins og eru þær nú i
athugun hjá ríkisstjórninni".
Ólafur Thors hélt áfram á þessa
leið:
„Við þetta hef ég á þessu stigi
málsins ekki öðru við að bæta
en því, að ríkisstjórnin hefur
ekki látið sér til hugar koma aS
færa inn núverandi friðunarhnu
né að semja urr hana sem fram-
búðarlausn á friðunarráðstöfun-
um íslendinga.
Þetta er samhuga álit og
ákvörðun allra núverandi ráð-
herra“.
82 metra
skíðastökk
HALLSTABACKEN var vett-
vangur úrtÖkumóts Svía í skiða-
stökkkeppni fyiir vetrarleikana.
Erik Styf sigraði á þessu úrtöku-
móti, stökk 75 m og 73 m og
hlaut 231,5 stig. Annar varð Bror
Östmann er stökk 71,5 og 7ð m
og hlaut 227,5 stig. Þessir tveir
voru í sérflokki hvað getu snertx
En það var ekki stókk úrtöku-
mótsins sjálfs sem mesta athygli
vakti, heldur atburður er skefS
árdegis sama dag. Stökkmenn-
irnir voru þá að búa sig undir
stökkkeppnina. Skilyrði öll voru
ákjósanleg. Og þá skeðí það
óhapp, að einn keppendanna
Holger Karlsson náði stökki sen*
viðstaddir „sérfræðingar“ kalla
„draumastökk“ — og sem
kannski verður skráð, sem eitt
mesta skíðastökk er nokkur Svii
hefur náð. Ferð hans I aðrennslis-
brautinni var góð, uppstökkið
ágætt, svifið draumfallegt og
stökklengdin — já, hún varð full-
mikil bæði fyrir Holger og stökk-
brautina: 82 metrar. Holger féll,
sem vonlegt var, því hann vat
kominn niður á jafnsléttu. Hana
meiddist í hægra fæti, en ekki
alvarlega, en þc svo að hann gat
ekki tekið þátt í úrtökumótíriíi
síðar um daginn.