Morgunblaðið - 06.03.1956, Blaðsíða 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
.rjsfl* J nn'-i-btffííh't
Þriðjudagur 6. marz 1956
SYSTURNAR ÞR-TAR
EFTIR IRA LEVIN - Annar hluti: ELLEN
Framh’aldssagan 36
númerið hans á upplýsingaskrif-
stofu stúdentanna og hringja svo
bara, til þess að heyra rödd hans
í símanum. Hann kærir sig ekk-
ert um þetta sjálfur og þess
vegna er það ég, sem svara oft-
ast. Það er nóg til þess að gera
mann snarvitlausan."
Frú Arquette horfði á kubbana
og hleypti brúnum: — „Haldið
þér nú áfram, hr. Fishback“,
sagði hún svo.
Ellen fitlaði við borðbrúnina:
„Er Gordon alltáf með stúlk-
unni, sem hann skrifaði mér um
{ fyrra?“ spuhði hún.
„Hvaða stúlka var það?“
„Ljóshærð stúlka, lítil og lag-
leg. Gordon minntist á hana öðru
hvoru í bréfum sinum í fyrra, —
£ október, nóvember og alveg
fram í apríl. Ég var farin að
halda að einhver alvara væri
þarna á ferðum hjá frænda min-
um, en svo hætti hann alveg að
skrifa um hana, þegar kom fram
í apríl.“
„Ég skal nú segja yður dálítið"
sagði frú Arquette. — „Ég fæ
aldrei að sjá þær stúlkur, sem
Gordon skemmtir sér með Áður
en hann fékk þennan dagskrár-
lið útvarpsins til að sjá um, var
hann vanur að skemmta sér þrjú
— fjögur kvöld í viku, en hann
kom aldrei með neina stúlku
heim. Nú, ég bjóst heldur alls
ekki við því. Ég er nú hvort sem
er aðeins húsmóðir hans. Hann
segir mér heldur aldrei neitt frá
vinkonum sínum. Hinir ungu
mennirnir, sem voru hjá mér á
undan honum, voru vanir að
segja mér allt um stúlkurnar sín-
ar, en í þá daga voru stúdent-
arnir yngri.
Nú til dags eru flestir þeirra
heimsendir hermenn og ég held,
að þeir tali ekki eins mikið, þeg-
ar þeir verða eldri. Að minnsta
kosti ekki Gordon. Það er ekki
vegna þess að mig langi til að
réka nefið í annarra manna mál-
efni, en ég hefi yfirleitt áhuga
fyrir fólki.“
Hún velti einum kubbnum enn
við, svo að stafurinn snéri upp: —
„Hvað hét stúlkan? Ef þér segið
mér nafn hennar, geta ég sjálf-
sagt sagt yður hvort kunnings-
skapur þeirra varir enn. eða varir
ekki. Stundum ber nefnilega svo
við, að ég er stödd i setustofunni
þegar hann notar símann þarna
yfir hjá stiganum og þá kemst ég
ekki hjá því að heyra brot og brot
út samtalinu.“
„Ég bara get ómögulega munað
nafn hennar, þessa stundina",
sagði Ellen. — „En þau voru sam
an í fyrra, svo að ef þér gætuð
rifjað upp nöfn einhverra vin-
kvenna hans, þá myndi ég eflaust
þekkja það aftur."
„Við skulum nú athuga málið“,
sagði frú Arquette hugsandi, á
meðan hún færði kubbaua úr
einum stað í annan, í leit að orði.
— „Ein hét nú t. d. Louelle. Ég
man það alveg sérstaklega vegna
þess að ég átti sjálf mágkonu
með því nafni. Og svo var líka
önnur sem hét....“
Hún lokaði votum augunum, til
þess að einbeita huganum betur
.. „sem hét Barbara. Nei, það var
árið áður. Fyrsta árið sem hann
var. hérna. Látum okkur nú sjá.
Ein hét Louelle og .. . . “
Hún hristi höfuðið. — „Þær
hafa verið fleiri, en þótt ég ætti
með því líf mitt að leysa, þá gæti
ég ekki munað nöfnin á þeim.“
; Keppnin í öfuglestrinum hélt
áfram um stund, í algerri þögn,
en loks sagði Ellen. — „Ég held
hezlt að hún hafi heitið Dorothy“.
Frú Arquette gaf hr. Fishback
merki um að hann gæti haldið
áfram: — „Dorothy.... “ Hún
kreisti aftur augun. — „Nei ..
ef hún hefur heitið Dorothy, þá
er ég nærri viss um að þau eru
ekki saman lengur. Ég hefi ekki
nýlega heyrt hann tala við neina
Dorothy, það er ég alveg viss um.
Að sjálfsögðu fer hann stundum
þarna út á hornið, þegar um er
að ræða eitthvert sérstakt einka-
mál eða utanbæjarsímtal."
„En var hann þá kannske með
einhverri Dorothy síðastliðinn
vetur?“
Frú Arquette horfði beint upp
í loftið: — „Það bara veit ég ekki
með neinni vissu .. Ég man ekki
eftir neinni Dorothy, en það er
ekkert að marka. Ég gleymi nefni
lega svo fljótt nöfnum á fólki,
sem ég heyri.“
M. A. MARGAR STÆRÐIR OG GERDIR AF
SVÖRTUM OG GRÁUM DRÖGTUM
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5
Til kaups óskast hús eða hluti úr húsi, á góðum stað í bænum, sem möguleikar væru á að nota fyrir félagsstarfsemi, annað hvort í nú- verandi ástandi eða með litlum breytingum Tilboð, er gremi verð, greiðsluskilmála og annað, sem máli skiptir, leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir föstudagskvöld merkt: „Góður staður —833“. ÚTSALA Amerískar úlpur í mörgum litum, fyrir hálfvirði BEZT Vesturgötu 3
Nauoungafuppboo á eignarhluta Einars Egilssonar í Kópavogsbraut 12, Kópavogi, sem auglýst var í 2., 5. og 6. tölublaði Lög- birtingablaðsins þ. á„ fer fram samkvæmt kröíu Lárusar Jóhannessonar hrl. á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 7. marz 1956, klukkan 10 f. h. Bæjarfógetinn í Kópavogi,
Fyrir fermingarstúlkur: Undirfatnaður í miklu úrvali BEZT Vesturveri
GEYMSLUPLÁSS um 10 fermetrar, rakalaust,, óskast, PÁS prentsmiðia, Mjóstræti 6 — Sími 4352. Nælonnet Þorskanet úr nælon (hvít og græn), fyrirliggjandi. Netin eru hnýtt í Japan (tvíhnýtt) úr garni frá E. I. du Font de Nemours & Co. — Ágæt reynsla er þegar fengin hér á landi fyrir þessum netum. M a r c o h.f. Simi: 5953.
* lltsala — Bútasala Ýmsar tegundir af fyrsta flokks ógölluðum kjóla- efnum í 3 mtr. bútum, seljast fyrir hálft verð. Ýmislegt annað, með miklum afslætti. — Aðeins þessa viku. — Notið þetta einstæða tækifæri, því að nú hækka allar vörur ört. Nonnabúð Vesturgötu 27.
Símvirkjanemar Landssíminn getur tekið nokkra nemendur í símvirkj- un (síma- og radíótækni). Umsækjendur skulu hafa lokiö miðskólaprófi eða öðru hliðstæðu prófi og vera fullra 17 ára. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og lyrri störf sendist póst- og símamálastjórninni fyrir 15. marz 1956. Nánari upplýsingar fást í síma 1015 Póst- og símamálastjórnin 3. marz 1956.
Skrifstoiastólka óskast í heildverzlun til vélritunar- og afgreiðslustarfa. Uppl. í síma 2065, kl. 6—^8 í kvöld og annuð kvöld.
Rennismiður Vanur rennismiður óskast sem verkstjóri i vélsmiðju í Reykjavík. — Tilboð er tilgreini aldur og fyrri störf leggist inn á afgr. blaðsins fyrir 14. þ m. merkt: „Rennismiður — 855“.
Ungíinga •'ttntar til að bera blaðið til kaupenda 1 Drápuhlíð Grettisgötu, fremri hluti ^ - _ 1 JHorgmtblaoið
Kjólar i úrvali vandaðir og smekklegir. Kjólaverzlunin Elsa Laugavegi 53 B